Morgunblaðið - 22.01.1958, Page 19
MifSviTcudamir 22. jan. 1958
MORGUNTILAÐIÐ
19
Singapore hefur nú í fyrsta sinn í sögunni kosiö sér borgarstjóra. Er sá ungur a'ff árum, aðeins
32 ára að aldri. Heitir hann Ong Eng Guan. Hann er malaji, en af kínverskum ættum og hefur
alizt upp í Ástralíu. — Nærri lá a'ö illa færi, þegar setja átti hann í embætti. Fylgismenn hans
ruddust berfættir inn í ráöhúsið til þess að votta honum hoilustu og þröngin var svo mikil að
borgarstjórinn komst hvergi nærri. Varð hann að leita til bakdyranna. Hér á myndinni sést
Ong Eng Guan vinna hollustueið sinn.
Naaðsynlegt að stofna til londs-
sombands bakarameistaia
— segf/f e/fífi af forvígismönnum þeirra
Frá a&alfundi Loftleiða
Félagið eykur hlutafé sitt
ALMENNUR hluthafafundur
var haldinn í Loftleiðum laugar-
daginn 18. janúar s. 1., en til
fundarins hafði verið boðað með
auglýsingum í dagblöðum og út-
varpi. Var fundarefni aðallega
tillaga félagsstjórnarinnar um
aukning hlutafjár úr 2 millj. í 4
inilljónir króna.
Formaður félagsstjórnar, Krist-
ján Guðlaugsson, hæstréttarlög-
maður, gerði grein fyrir þessari
tillögu og öðrum, er stjórnin bar
fram. Vék hann að því, að þó að
fjárhagur félagsins gæti talizt
góður og stöðug þróun væri i
rekstri þess, teldi stjórnin ástæðu
tii að auka hlutaféð, í og með
vegna væntanlegra flugvéla-
kaupa. Hann kvað stjórnina ekki
vilja raska núverandi eignahlut-
föllum innan félagsins og fyrir
því væri ekki farið fram á meiri
hlutaf j ár aukningu.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Alfreð Elíasson, gaf bráðabirgða-
skýrslu um rekstur félagsins á
s. 1. ári og mælti hann m. a. á
þessa leið:
„Á árinu 1957 voru flognar
274 ferðir fram og til baka milli
Evrópu og Ameriku, en árið 1956
voru þær 220, en þá voru einnig
farnar 15 ferðir milli meginlands
Evrópu og íslands. Ef miðað er
við flogna kílómetra hefur aukn-
ingin orðið 20.7%.
Félagið flutti 24.919 farþega á
árinu en 1956 voru þeir 21.773.
Miðað við farþegafjölda hefur þvi
aukningin orðið 14.5% en eins og
ég hef áður getið um, þá er ekki
mikið að marka farþegatöluna,
því eins og gefur að skilja, er
mikill munur á því, hvort far-
þegi er fluttur frá Hamborg ul
Kaupmannahafnar, eða hvort
hann er fluttur frá Hamborg til
New York. Það rétta er að bera
farþegakílómetra saman. Árið
1956 voru flognir rúmlega 95
milljón farþegakílómetrar en í ár
voru þeir 115 milljónir. Hefur
þvi aukning farþegaflutnings
raunverulega numið 20.07% frá
árinu áður. Póstflutningur var
mjög svipaður og á fyrra áii en
vöruflutningur jókst um 5.19
Yfir sumarmánuðina var bætt
við 4 sætum í vélarnar írá því
sem var áður. • Ef miðað er við
sama sætafjölda í vélunum fyrir
bæði árin 1956 og 1957, bá hefur
i,a. ijýtingin aukizt um
því árið 1956 var hún 58.15% en
nú var hún 61.31%. Annað veiga-
mikið atriði er nýting flugvél-
anna. Yfir sumarmánuðina voru
4 flugvélar í förum og flugu þær
samtals 11.227 klst., en þess ber
að gæta að ein vélin var aðeins
í förum 175 daga.
Hekla flaug 3.134.45 klst.
Saga flaug 2.596.40 klst.
Edda flaug 3.304.24 klst.
LN-SUP flaug 2.191.59 klst.
Hafa því þessar flugvélar sem
félagið hafði í förum allt árið,
flogið að jafnaði 10 klst. og 20
mín. á sólarhring, og er það tal-
ið mjög sæmilegt. Árið áður
flugu vélarnar 8.13 klst. á sól-
arhring.
Nettó veltan á árinu 1957 var
um 67 millj. króna en var 55
milljónir 1956. Hefur hún því
aukizt um rúm 20%“.
Nokkrar umræður urðu um til-
lögu stjórnarinnar og var hluta-
fjáraukningin samþykkt.
í lok fundarins var svofelld
tillaga samþykkt einróma.
Almennur hlutahafafundur í
Loftleiðum h.f. haldinn laugar-
daginn 18. janúar 1958 skorar á
hlutaðeigandi yfirvöld að heimila
félaginu yfirfærslu nú þegar,
samkv. útgefnum leyfum, á 300
þús. dollurum til flugvélakaupa,
enda liggur við borð að félagið
verði að hverfa frá kaupunum
fáist slík yfirfærsla ekki án tafar.
STÖÐVUN brauðgerðarhúsanna
í sumar er leið, hefur sýnt okkur,
að nauðsynlegt er, að stofna til
heildarsamtaka bakarameistara
um land allt, sagði Sigurður
Bergsson bakarameistari, í stuttu
samtali við Mbl. í gær.
Lært af reynslu
Án þess að farið verði nánar
út í að ræða það sem gerðist, þá
er brauðgerðarhúsin stöðvuðust
í sumar er leið þá lærðist hinni
fámennu sétt bakarameistara
það, að nauðsyn ber til að stofnað
verði til landssambands bakara-
meistara, sagði Sigurður, og nú
er það mál vel á veg komið.
Stjórn Bakarameistarafélags
Reykjavíkur hefur unnið að því
að undirbúa stofnun slíks lands
sambands og hefur nú verið boð
að til stofnfundar hér í Reykja
vík dagana 23.—25. janúar.
í Reykjavík munu nú vera
starfandi milli 30 og 40 bakara-
meistarar og úti á landi álíka
margir bakarameistarar, er reka
eigin brauðgerðir, eða meist-
arar, sem veita brauðgerðarhús-
um kaupfélaganna forstöðu, en
þeim hefur eðlilega verið boðið
að eiga aðild að stofnun þessara
heildarsamtaka.
Kvað Sigurður Bergsson bak-
arameistara vænta góðs af stofn-
un slíks sambands, enda hafi í
hópi þeirra oft verið á það bent,
að stíga ætti slíkt spor, einkum
þó eftir stöðvunina í fyrrasumar.
Ustinov verð-
lausiaður
LONDON, 17. jan. — „The
Society of Arts“ tilkynnti í dag,
að „Benjamin-Franklin-heiðurs-
peningurinn" fyrir 1957 hefði ver
ið veittur leikaranum og leik-
skáldinu Peter Ustinov, sem leik
ur nú í New York í gamanleik
sínum „Rómanoff og Júlía“.
Verðlaunin, sem voru veitt
fyrst árið 1956 til minningar um
250 ára afmæli Franklins, eru
árlega veitt einstaklingi, sem
hefur „getið sér frægð ungur og
gefið fyrirheit um stærri afrek“.
Ustinov er 36 ára gamall og hefur
verið meðlimur í „The Society of
Arts“ síðan 1951.
■Á PARÍS, 20. jan; — Francoise
Sagan, hin 22 ára gamla
franska skáldmær og ballet-
höfundur, sagði í dag, að hún
mundi ganga að eiga bókaútgef-
andann Guy Schoeller, sem er
fertugur, eftir tvær vikur. Hún
lét ekki uppi hvar hjónavígslan
færi fram, en sóknarpresturinn
í fæðingarbæ hennar, Carjao,
sagðist í síðustu viku ekki mundu
framkvæma vígsluna, „því ég
álít verk hennar siðlaus".
Ættingjum mínum og vinum, fjær og nær, sem sýndu
mér ástúð og heiðruðu mig á 100 ára afmæli mínu, sendi
ég hjartans kveðju mína og bið Guð að blessa þá.
Sigríður St. Helgadóttir,
frá Grímsstöðum.
rlendar
í stuttu
Iréttir
múli
Palermo, 21. jan.
Níu manns um ráðum, að Olympíuleikarnir
hafa verið grafnir út úr rustum
fjögurra hæða húss, sem hrundi
hér í borg. Slys þetta varð skyndi
lega og var orsök þess, að litill
gasgeymir í húsinu sprakk. Björg
unarlið hefur í allan dag verið
að grafa í rústirnar. Enn heyr-
ast neyðarköll í fimm manns sem
liggja undir rústunum.
—♦—
New York, 21. jan. — Hammar-
skjöld framkvæmdastjóri S. Þ.
átti í dag fund með fréttamönn-
um. Hann kvaðst vongóður um
að viðræður hæfust að nýju um
afvopnun. Hann neitaði að láta
í Ijós álit á því, hvort gagnlegt
væri fyrir hann að fara til
Moskvu og ræða við Gromyko.
Damaskus, 21. jan. — Utanríkis-
ráðherra Sýrlands, Salah Bitar,
lýsti því yfir í dag, að fullt sam-
komulag sé milli Sýrlands og
Egyptalands um sameiningu land
anna í eitt ríki. Ráðherrann var
að koma heim frá fundi við
Nasser í Kairo. Sameining þess-
ara tveggja ríkja verður upphaf
að sameiningu allra Arabaríkj-
anna.
Tókíó, 21. jan. — Hér í Japan
var í dag stofnuð risastór Olym-
píunefnd. í henni eiga sæti 120
kunnir stjórnmálamenn, íþrótta-
leiðtogar og blaðamenn, sem
5.43%,munu berjast fyrir því með öil-
1964 verði haldnir í Tokíó.
Næstu Olympíuleikar 1960 fara
fram í Rómaborg.
Öllum þeim, sem heimsóttu mig og glöddu á sextugs-
afmæli mínu færi ég mínar hjartans þakkir.
Hallbera Þorsteinsdóttir.
Framnesveg 3.
Gísli Einarsson
héraðsdóinslögmuxjur.
Mali lutningsskrif stof a.
l/augavegi 20B. — Sími 19631.
Samhomur
Fíladelfía
Vakningarvika. Samkoma hvert
kvöld vikunnar kl. 8,30. Aðkomnir
ræðumenn tala á hverri sam-
komu. — Allir velkomnir.
Kristniboðshúsið lletania,
Laufásvegi 13
Almenn samkoma í kvöld kl.
8,30. Bjarni Eyjólfsson talar. —
Allir velkonmir.
L O.G. T.
St. Einingin nr. 14
Fundiir í kvöld kl. 8,30. Yngri
embættismenn stjórna fundi. —
Flokkakeppnin heldur áfram. A,-
flokkur skemmtir með upplestri,
píanóleik, grínþætti og söng. Fé-
legar, mætið vel og stundvíslega.
— Æústi teniplar.
Elskuleg móðir okkar
KRISTlN KARÓLlNA JÖNSÐÓTTIR
Bergstaðastræti 10, andaðist í Landakotsspítala mánudag-
inn 20. þ.m.
Guðrún Halldórsdóttir,
Kristín Halldórsdóttir.
Eiginkona mín
CHRISTINE TOFT,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23.
þ. m. kl. 10,30 f. h.
Athöfninni verður útvarpað.
Þeim, sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á
einhverja líknarstofnun.
Fyrir mína hönd og dætranna,
Hartvig Toft.
Maðurinn minn
ANTON JÓNSSON
skipasmíðameistari,
sem andaðist í Landsspítalanum 14. janúar, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. janúar
klukkan 1,30 síðdegis.
Blóm eru vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu
minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Margrét Magnúsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar
RÓSU SAMtJELSDÓTTUR
frá Byggðarenda.
Systkinin.