Morgunblaðið - 22.01.1958, Síða 20
17. tbl. — Miðvikudagur 22. janúar 1958.
Kosningabók Sjálfstæðis-
manna, „Reykjavík 1958“
STEFNUSKRÁ SJÁLFSTÆÐISMANNA við bæjarstjórnar-
kosningarnar er þessa dagana borin í hvert hús í bænum í
hinni svonefndu „hláu bók“. sem gefin hefur verið út nú
eins og við nokkrar síðustu bæjarstjórnarkosningar. í hók
inni, sem heitir „Reykjavík 1958“, er birt stefnuskráin fyrir
síðustu hæjarstjórnarkosningar, lýst framkvæmdum á síð-
asta kjörtímabili og prentuð stefnuskráin í kosningunum,
sem nú fara í hönd.
Bókin hefst með ávarpi til um fjallað um hina ýmsu þætti
Reykvíkinga, sem undirritað er
af frambjóðendum Sjálfstæðis-
manna. Síðan er í máli og mynd-
Stjórn lýSræSissinna
sjállkjörin
AÐALFUNDUR Prentmynda-
smiðafélags Islands var haldinn
í fyrrakvold. Stjórji lýðræðis-
sinna varð sjálfkjörin, en hana
skipa: Sverrir Gíslason, form.,
Jón Stefánsson, ritari, Árni
Magnússon, gjaldkeri. Til vara:
Gunnar Heiðdal og Jens Hall-
dórsson.
bæjarmálanna. Kemur þar glöggt
fram, hversu miklar framfarir
hafa orðið í höfuðstaðnum á síð-
ustu árum og hve stórhuga stefnu
Sjálfstæðismenn hafa markað
fyrir næstu ár.
Morgunblaðið vill hvetja alla
bæjarbúa til að kynna sér til
hlítar þessa kosningabók Sjálf-
stæðismanna. Þar er að finna
margvíslegar upplýsingar um
mál, er varða höfuðstaðinn, og
hún er því góður leiðarvísir, þeg-
ar um það er tekin ákvörðun,
hvaða listi skuli studdur á
sunnudaginn kemur.
Þora þeír ekki nð lofa fóikmn að
sjó íraman í stóreignaskattinn ?
í LÖGUNUM um stóreignaskatt
var ákveðið að álagningu þessa
skatts skyldi vera lokið fyrir árs-
lok 1957. En ekkert bólaði á skatt
inum og í árslok gaf Eysteinn
Jónsson út bráðabirgðalög, þar
sem fresturinn til þess að leggja
á stóreignaskattinn var fram-
lengdur til febrúarloka n. k.
Það virðist svo sem ríkisstjórn-
in kæri sig ekki um að lofa fólk-
inu að sjá framan í þessa skatt-
heimtu fyrr en eftir að kosning-
arnar eru búnar.
Því er eins farið með stóreigna-
skattinn og það annað, sem ríkis-
stjórnin hefur á prjónunum en
reynir nú að dylja fyrir kjós-
endum, svo sem unnt er fyrir
kosningar, svo sem gengislækk-
unina, peningaskiptin og eigna-
könnunina. Það sem ríkisstjórnin
og ráðunautar liennar eru nú að
brugga, af þessu tagi, má ekki
sjást fyrr en eftir kosningarnar.
Eftir að gula hneykslið kom
upp, gætir rikisstjórnin þess meir
en nokkru sinni áður að ekki
berist neitt út um þær fyrirætl-
anir hennar, sem hún telur að
allra óvinsælastar verði meðal
fólksins. Frestunin á álagningu
stóreignaskattsins er einn liður-
inn í þeirri viðleitni.
Snjóplógurinn hefir reynzt
ve! en þykir vera
HINN svissneski snjóplógur,
>em verið hefur til reynslu
austur á Hellisheiði og víðar
andanfarið, hefur staðið sig
mjög vel, en reynslutíminn
hér er nú senn á enda. í gær
,reyndu þeir með sér“ sá
svissneski og stóri ameríski
plógurinn, sem er á Reykja-
víkurflugvelli.
Samkeppni
Þar sem plógarnir stóðu
skammt frá flugstjórnarturnin-
um, sögðu nærstaddir að þetta
væri eins og „Davíð og Goliat“,
því sá svissneski er allur miklu
minni en sá ameríski.
Plógarnir „reyndu með sér í
skafli, sem bæði var í gamall
snjór og beingaddaður, og eins
nýr snjór. Var skaflinn líklega
um 10 m langur og nokkuð á ann
an metra á dýpt. Það var álit
manna, er báðir plógarnir höfðu
brotið sér braut í gegnum skafl
inn, að sá svissneski, þó miklu
minni sé og vél l»ans aflminni,
hefði unnið fullt ei«i vel og sá
stóri.
Austur
Of mjór
á Hellisheiði hefur
Hermann gengur fyrir Krúsjeff.
Engirm bæjathúi vili glund-
roðastjórn í bæjarfélagi sínu
Alþýðuflokkurínn afneitaði „gulu
bókinni66 í útvarpsumræðuiu í gærkv.
t ÚTVABPSUMRÆÐUNUM um bæjarmál Reykjavíkur í gær-
kvöldi gerðist það m. a. að annar af ræðumönnum Alþýðuflokksins
lýsti því yfir að „gula bókin“ væri Alþýðuflokknum óviðkomandi.
Flokkurinn hefði átt fulltrúa í nefnd þeirri, sem Ilannibal skipaði
til þess að fjalla um húsnæðismálin. En hann hefði skilað séráliii
og aldrei hefði komið til greina að hann féllist á tillögur þær, sem
felast í „gulu bókinni" frá kommúnistum og Framsókn. Er auðsætt
að flokkar vinstri stjórnarinnar eru orðnir dauðhræddir við hinar
furðulegu tillögur sínar í þessum málum, sem Morgunblaðið hefur
skýrt frá.
svissneski plógurinn verið reynd
ur mjög undanfarið, og munu
verkfræðingar vegamálastjórnar
innar vera ánægðir með plóginn,
að öðru leyti en því, að breidd
hans er ekki nema 175 senti-
metrar, en hefði þurft að vera
meiri. Hin svissneska verksmiðja
framleiðir stærri gerðir slíkra
plóga, en þeir eru þá þannig gerð
ir að setja verður þá á stóra öfl-
uga kranabíla eða þess háttar
bíla. Þessi plógur sem hér hefur
verið til reynslu er festur fram-
an á Unimog-dráttarbíl.
Margt þarflegt gert
Fyrsti ræðumaður í útvarps-
umræðunum í gærkvöldi var
Bárður Daníelsson, efsti maður á
lista Þjóðvarnarmanna. Mestur
hluti af ræðu hans fjallaði um
verklegar framkvæmdir í Reykja
vík. Kvað ræðumaður rétt, að
margt þarflegt hefði verið gert og
sagðist hann ekki nema að litlu
leyti geta tekið undir, að fram-
kvæmda- og framfaravilja skorti
meðal Sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórn. Þó taldi Bárður, að hag
kvæmar hefði mátt að ýmsu
vinna. Ekki kvað hann sparnað
í skrifstofukostnaði líklegan til
að auka fé til verklegra fram-
kvæmda svo að um munaði.
Bárður Daníelsson ræddi einn-
ig nokkuð um. húsnæðismál.
Kvað hann hafa verið gert virð-
ingarvert átak til að útrýma
bröggum og öðru heilsuspillandi
húsnæði. í sambandi við lóða-
málin ræddi hann um tillögur
sínar um að krefja þá, sem lóðir
fá, um hluta af kostnaðinum við
að gera þær byggingarhæfar.
Taldi hann, að það væri ein^
Fyzirgreiðsia í
kosBÍngar er
AÐ gefnu tilefni vill Morgun-
blaðið benda á, að í kosninga-
lögum Jieim, sem samþykkt voru
af ríkisstjórnarliðinu á Alþingi
fyrir jólin, eru engin ákvæði,
sem banna mönnum að gefa upp-
lýsingar um, hvort þeir sjálfir
eða aðrir hafa kosið, banna að
greiða fyrir flutningi fólks á
kjörstað eða veita aðra þá fyrir-
snwhnnJi við
ekki bönnnð
greiöslu á kjördegi, sem venju-
legt hefur verið.
Ákvæði í þessa átt voru að
vísu í hinu upphaflega frum-
varpi, sem ríkisstjórnin lagði
fram, en þeim var breytt i með-
förum þingsins. Þagnarskylda
hvílir nú einungis á umboðs-
mönnum listanna í hcrbergjum
þeim, sem kosið er í.
leiðin til að fullnægja eftirspurn-
inni eftir lóðum.
Næstur talaði Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins og er ræða
hans rakin á öðrum stað í blað-
inu.
f vörn fyrir ríkisstjórnina
Þá talaði Guðmundur Vigfús-
son fyrir kommúnista. Lagðihann
í uppahfi máls sins áherzlu á að
kommúnistar hefðu til þessa get-
að hindrað gengislækkun, sem
bæði Framsókn og Alþýðuflokk-
urinn vildu framkvæma. Réðist
hann síðan með miklum fáryrð-
um að Morgunblaðinu, sem hann
taldi mjög ósanngjarnt í gagn-
rýni sinni á vinstri stjórninni.
Bað hann Reykvíkinga að votta
ríkisstjórninni traust sitt í bæj-
arstj órnarkosningunum.
Næstur talaði Alfreð Gíslason
fyrir kommúnista. Kvartaði hann
mjög undan því að Sjálfstæðis-
menn hefðu sent bæjarbúum
„smekklega myndabók", þar sem
gerð væri grein fyrir starfi og
stefnu Sjálfstæðisflokksins í bæj-
armálum. Þá kvað hann risnu
vera of mikla á vegum bæjarins,
hitaveitan hefði „þróazt aftur á
bak“ og skortur væri á neyzlu-
vatni. Skoraði hann loks á Al-
þýðufiokksmenn og Þjóðvarnar-
menn að kjósa lista kommúnista.
Enginn vill glundroðastjórn í
bæjarfélagi sínu
Næst töluðu fulltrúar Alþýðu-
flokksins. Magnús Ástmarsson
taldi æskilegt að tveir flokkar
kepptu um völdin í bænum og
hefðu hreinan meirihluta á víxl.
En kommúnistar hefðu klofið
Alþýðuflokkinn á sínum tíma og
sundrað andstæðingum Sjálf-
1 stæðismanna.
Sæti því illa á kommúnistum
að seta upp einingarandlit. Hann
kvað Sjálfstæðismenn hafa gert
þakkarvert átak í húsnæðismál-
um bæjarbúa. Margvíslegar fram
kvæmdir aðrar hefðu verið unnar
í bænum, m. a. reist stórglæsileg
skólahús. Þó taldi Magnús óheppi
legt að þrjú sjúkrahús skyldu
vera í byggingu samtímis.
Enginn bæjarbúi kýs glund-
roðastjórn í bæjarfélagi sinu,
sagði Magnús Ástmarsson.
Deildi hann síðan hart á komm
únista og kvað engan geta
villzt á eðli þeirra þrátt fyrir
nafnbreytingar þeirra.
Einnig varaði hann við
Framsókn.
Gulu bókinni afneitað
Lúðvík Gizurarson var annar
ræðumaður Alþýðuflokksins. Las
hann yfirlýsingu frá Tómasi Vig-
fússyni, sem átti sæti í hinni
frægu nefnd, er Hannibal skipaði
til að fjalla um húsnæðismálin.
Lýsti Tómas því yfir að hann
hefði gefið út sérálit og væri
„gula“ bókin sér og Alþýðu-
flokknum óviðkomandi. Aldrei
hefði komið til mála að Alþýðu-
flokkurinn féllist á tillögur Fram
sóknarmanna og kommúnsta.
Lúðvík Gizurarson kvað engan
bilbug á fylgi og völdum Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Hann
kvað kommúnista hafa beðið mik
inn ósigur í Dagsbrún og bað
bæjarbúa að lokum að fylkja sér
um A-listann.
Sungu gamla sönginn
Síðastir töluðu tveir efstu
mennirnir á lista Framsóknar-
flokksins, þeir Þórður Björnsson,
lögfræðingur og Kristján Thor-
lacius deildarstjóri í fjármála-
ráðuneytinu. Voru ræður þeirra
beggja mjög í sama stíl í öðru
orðinu, hinar harðorðustu skamm
ir um stjórnendur Reykjavíkur-
bæjar fyrir að standa ekki í
meiri framkvæmdum á öllum
sviðum, en í hinu orðinu miklar
umkvartanir vegna hárra út-
svara á borgarana. Ekki heyrðust
þeir minnast á, að neitt hefði far-
ið vel í Reykjavík á undanförn-
um árum. Þórður Björnsson þuldi
sömu blekkingarnar og hann hef-
ur haft á takteinum á bæjar-
stjórnarfundum árum saman og
enginn vill þar lengur hlusta á,
ekki einu sinni minnihlutamenn!