Morgunblaðið - 04.02.1958, Blaðsíða 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
í>riðjudagur 4. febrúar 1958
UTSALA
Hin árlega útsala okkar er hafin.
Stórkostleg veirðlækkun
Lítið inn og gerið hagstæð kaup.
Eitthvað fyrir alla.
Skólavörðustíg 21.
Ungverskar
ullarpeysur
GLUGGIIMN
Laugaveg 30.
Y firbókarasfaða
flugmálastjórnarinnar er laus til umsóknar. — Laun
samkvæmt launalögum. Umsóknir, er tilgreini
menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu minni á
Reykjavíkurflugvelli fyrir 15. marz nk.
Reykjavík, 31. janúar 1958.
Flugmálastjórinn
Agnar Kofoed-Hansen.
íbúð til leigu
Til leigu er 4 herbergja íbúð í nýlegu húsi við Laug-
arnesveg. íbúðin er 115 m2 auk geymslu o. fl. í
kjallara. Sanngjörn leiga.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Upplýsingar gefur
Fasteigna og Verðbréfasalan,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4.
Ingibiörg Ólafsdóttir
— minning
„NEI, hvað sé égt — ert það
þú?“ sagði frú Ingibjörg Ólafs-
dóttir, þegar við sáumst í sumar
eftir réttan aldarfjórðung. Og þó
að hún væri komin yfir hálfátt-
rætt, brá fyrir glampa af glettni
í augum hennar. „Það held ég þú
sért nú búinn að gleyma spaug-
inu, sem flaug okkar á milli í
bókasafninu á ísafirði.“
„Nei, ekki gamanseminni,“ svar
aði ég, ððen orðaskiptum. Og þó
man ég enn það síðasta, sem ég
heyrði þig segja á ísafirði."
„Það er meira en ég man,“
sagði hún.
Það var síðan ráðið, að ég og
þau hjónin hittumst í góðu tómi,
en áður en af því yrði, heyrði ég,
að Ingibjörg væri komin í sjúkra
hús, og þann 17. þ. m. var ég við-
staddur, þá er hún var kvödd í
Fossvogskapellu og ísfirðingur-
inn séra Jón Auðuns kastaði á
hana rekunum þremur.
Kynni okkar Ingibjargar urðu
þannig, að þegar bókasafnið á ísa
firði var flutt í stærri og hentugri
húsakynni en það hafði áður haft,
þá er ég varð þar bókavörður,
réðst hún til að hjálpa mér við
þrif á bókum og niðurröðun
þeirra í hillur. Síðan vann hún
með mér á hverju vori að þrifum
safnsins, unz þau hjón fluttust til
Reykjavíkur. Sömu árin kynntist
ég og náið bónda hennar, því að
hann var þá dyravörður í skólan-
um, þar sem ég kom daglega frá
hausti til vors.
Frú Jngibjörg fæddist á Láuga-
bóli í ísafirði 23. september 1881.
Foreldrar hennar voru hjónin ól-
afur Jónsson og Sigurborg Gunn-
laugsdóttir, sem þá voru vinnu-
hjú Jóns bónda Halldórssonar og
Guðrúnar Þórðardóttur. Jón var
einstakur maður að áhuga og
dugnaði á sjó og landi og kona
hans mikil húsfreyja og búkona,
og var Laugabólsheimilið stórt og
frábærlega myndarlegt. Þarna
ólst Ingibjörg upp, unz hún var
orðin stálpuð, vandist öllum
verkshætti á slíku heimili, en
fékk auk þess tilsögn í hannyrð-
um, sem hún var mjög hneigð
fyrir. Var Guðrún húsfreyja
henni mjög góð og umhyggju-
söm. Frá Laugabóli fluttust for-
eldrar Ingibjargar að Hallsstöð-
um á Langadalsströnd, og þar
átti Ingibjörg heima, unz hún
giftist árið 1902 sveitunga sínum
Markúsi, syni Bjarna bónda á
Armúla, Gíslasonar dannebrogs-
manns s. st. Bjarnasonar, sem
einnig bjó á Ármúla. Markús
hafði snemma vanizt sjósókn, og
þá er þau Ingibjörg gengu í hjóna
band, hafði hann lokið prófi við
Tungubomsur
Fyrir kouur og böru
Hlífðarskófatnaður
á karla, konur og börn.
tJRVAL
Sendum í póstkröfu.
HECTOR
Laugaveg 11 — Laugaveg 81
Spœnskukennsla
Munið námskeiðið, sem byrjar í næstu viku.
Væntanlegir nemendur mæti nk. fimmtudag
kl. 8 síðd. í VII. kennslustofu Háskóla Islands,
Næst síðusti útsöludagur
Ýmsar vörur ennþá á ótrúlega lágu verði
svo sem:
flauelisbuxur á telpur,
drengjanærföt á 6—8 ára.
Kvenblússur, hvítar og mislitar.
Nælonsokkar á kr. 22,00.
Herrabindi á kr. 14.00 o. m. fl.
Gjörið svo vel og lítið inn.
imkmupinn
TEMPLARASUND -3
\
I
t
Afgreiðsíumaður
(Lagermaður)
óskast í véladeild Áhaldahúss vegagerða ríkisins,
Borgartúni 5.
Upplýsingar gefur vélaverkfræðingurinn,
sími 12809.
Afgreiðslustarf
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í sérverzlun
í miðbænum strax.
Tilboð ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf
sendist blaðinu merkt: „Verzlun —Hd±ó“, fyrir
miðvikudag.
Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Þau settust að á ísafirði. Þar var
Markús stýrimaður og skipstjóri,
unz hann meiddist þannig að
hann gat ekki lengur verið
yfirmaður á skipum. Eftir
það stundaði hann oftast
þar vestra ýmis störf í landi,
þangað til þau hjónin flutt-
ust til Reykjavíkur á kreppu-
árunum. Þau áttu þrjú börn, Ólaf,
kennara í Reykjavík, kvæntan
Hólmfríði Jónsdóttur, Guðrúnu
húsfreyju í Silfurtúni, gifta Jóni
Jónssyni húsasmíðameistara frá
Skaganesi í Mýrdal, og Elísabetu
húsfreyju í Sveinatungu í Garða
hreppi, gifta Jóhanni stórkaup-
manni Eyjólfssyni.
Ingibjörg Ólafsdóttir var á
yngri árum fríð sýnum og alla
ævi myndarleg í sjón, hýrleg og
skýrleg. Hún var hvort tveggja
í senn: góð kona og greind. Hún
var traust í skapi, dugleg og vel
verki farin, mjög hagvirk
og smekkleg á hannyrðir, þó
að hún gæti lítt gefið sig
við slíkum störfum fyrr en á
efri árum sínum. Hún var
bónda sínum ómetanlegur föru-
nautur og börnunum frábærlega
umhyggjusöm og nærgætin, enda
naut hún mikillar ræktarsemi og
ástúðar af hendi dætra sinna, þá
er elli tók að færast yfir hana og
heilsan að bila. Hún var fámál
og óhlutdeilin um annarra hagi,
frekar dul og þó glaðleg við lítil
kynni, en ræðin og skemmtileg,
þá er kynning jókst, reyndist þá
glettin og gamansöm, enda hafði
hún glöggt auga fyrir öllu
skrýtnu og skoplegu og var minn
ug á sérleg atvik og orðalag.
Þess vegna hef ég órðið lang-
minnugur á orð hennar við mig,
þá er hún flutti frá ísafirði, að
þau lýstu henni vel, voru engan
veginn sögð út í bláinn, eins og
sitthvað það, sem fólk lætur sér
um munn fara, þegar svipað er
ástatt. Ég hafði spurt hana, hvort
hún héldi nú ekki, að hún mundi
kunna hálfilla við sig syðra svona
í fyrstunni.
„Onei“, sagði hún. „Fólkið er
sjálfsagt alls staðar eftir því,
hverju að því er snúið, og þó að
mér sé sagt, að tíðin sé leiðinlegri
fyrir sunnan en hérna á Vest-
fjörðum, þá kvíði ég henni ekki.
Ég held það sé mest komið undir
manneskjunum sjálfum, hve oft
þær njóta sólarinnar."
Ég sá ekki betur í sumar, þegar
við Ingibjörg hittumst, en að ell-
in hefði ekki náð að byrgja fyrir
henni sólina, og víst mundi bjart
um hana í minningu allra, sem af
henni höfðu nokkur veruleg
kynni.
Guðmundur Gislason Hagalín.
Ekki jafnmargir
kafbátar
WASHINGTON, 31. jan. — Butke
yfirforingi bandariska flotans,
skýrði fulltrúadeild þingsins svo
frá í dag, að Rússar framleiddu
nú ekki kafbáta í jafnstórum
stíl og áður. Rússneska flota-
stjórnin hefði nú einbeitt sér að
framleiðslu kjarnorkuknúinna
skipa — og hefði þar af leið-
andi dregið nokkuð úr kafbáta-
framleiðslunni.
Ný tillaga um
nýjaíi fund
PRAG, 31. jan. — Tékkneska
stjórnin gerði það að tillögu sinni
í dag að haldinn yrði fundur
aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins og Varsjárbandalagsins
með þátttöku Júgóslavíu, Egypta
lands, Indlands, Sviss og Aust-
urríkis. Tillögunni var komið á
framfæri í orðsendingu, sem
sendiráðum í Prag bárust í dag
frá tékknesku stjórninni. í orð-
sendingu þessari er lýst fullum
stuðningi við hugmyndina um
griðasáttmála NATO og Varsjár
bandalagsins svo og tillöguna um
• „afvopnað" belti í Evrópu.