Morgunblaðið - 04.02.1958, Side 17

Morgunblaðið - 04.02.1958, Side 17
Þriðiiidaerur 4. febrúar 1958 MORCUNBLAÐIÐ 17 Jens Péfursson í Crafarnesi Fæddur 30. marz 1927. Dáinn 11. desember 1957. SKÖMMU fyrir jól lézt á sjúkra- húsi hér í Reykjavík Jens Pétursson, Grafarnesi, áður bóndi á Búlandshöfða. Jens sálugi féll frá í blóma lífsins, liðlega þrit- ugur að aldri, eftir að hafa árum saman glímt við þann sjúkdóm, sem leiddi hann til dauða. Þessi sjúkdómur hafði í för með sér, að Jens gat aldrei notið krafta sinna eins og efni stóðu til. Ftá náttúrunnar hendi var Jens karl- mannlegur að vallarsýn, hár og þrekinn eins og hann átti kyn til, og hefði eflaust orðið dugrnikill bóndi, ef heilsan hefði ekki brugð izt honum. Eftir að hafa dvalið hér í Reykjavík á heimili systur sinn- ar, Guðrúnar Pétursdóttur, um 10 ára skeið sér til lækmnga. jafnframt því sem hann stundaði bifreiðaakstur hjá Landsspítalan- um og fleiri fyrirtækjum, fluttist Jens sálugi aftur vestur í Breiða- fjörð til æskustöðvanna og gerö- ist bóndi að Búlandshöfða í Eyrar sveit. Þó að Jens sálugi dveldist þetta lengi hér í Reykjavík, átti sveitin hans fagra fyrir vestan allan hug hans, og í þeirri trú, að í skauti náttúrunnar mundi heilsu hans ekki síður borgið en hér í Reykjavík, þótt þar væri lengra til lækna og lyfjabúða að sækja, hóf hann búskap á erfiðri jörð, en sjúkdómurinn bar harm ofur- liði svo hann varð að hverfa frá búskapnum eftir nokkur ár og setjast að í Grafarnesi. En skömmu eftir að þangað kom varð hann dauðsjúkur og var fluttur í sjúkrahús hér í bænum og lézt eins og áður er sagt. Jens var fæddur að Hjarðar- brekku í Eyrarsveit. Foreldrar hans voru Pétur Jóhannesson, bóndi, og Kristín Guðmundsdótt- ir, sem nú býr á Naustum með syni sínum, Hallgrími Péturssyni, og verður nú að sjá af þriðja syni sínum hverfa héðan á bezta aldri. Við, sem þekktum Jens sáluga, minnumst með söknuði góðs drengs, sem ekki aðeins bar æðru laust erfiðan sjúkdóm heldur var manna léttastur í lurid i nópi vina — minningarorð og kunningja, góðviljaður og hjálpsamur þegar tii hans var leitað. Árið 1951 gekk Jens sálugi að eiga Eygló Pálmadóttur og eign- uðust þau 4 börn og er það elzta aðeins 6 árá. Það verður aldrei fullskýrt með orðum einum, hversu þungt áfall það er íyrir konu og bórn að sjá á bak maka og föður, þegar dagur stendur hæst í lífi fjölskyldunnar og verið er að koma börnunum til þroska og manndóms, en það verður þeim nokkur harmabót, að allar þeirra endurminningar um Jens sáluga eru ljúfar og góðar og munu veita þeim styrk í þeirri erfiðu baráttu, sem framundan Kveðja Horfði ég á þig hugfanginn heilla vinur mæti hvernig barstu baggan þinn brosandi af kæti. Engum meiri guð víst gaf gleði yndislega þú varst snauður alveg af ama sút og trega. Hart þér sótti helja gegn hugðist sárum dreifa en vanheilsunni var um megn við þínu br si hreyfa. Yrkja jörð var óður þinn öðrum betur kvaðstu orkusnjalli einyrkinn engan hjálpar baðstu. Ekki sástu óveginn eða heilsugrandið horfði lengra hugur þinn heim í draumalandið. er. S. H. M. H. H. . Hálf húseign við Guðrúnargötu, skemmtileg íbúð á I. hæð og hálfur kjallari. Allt í góðu ástandi og mjög vel umgengin er til sölu. Uppl. í síma 17254. Ný 5 heib. íhúð Til sölu er í Kópavogi ný, 5 herbergja íbúð á efri hæð (hálft húsið) með sér hita og bílskúrsréttindum. Góð lán fylgja og auk þess er fyrsti veðréttur laus fyrir 80 þúsund krónur. Einar Sigurbsson Ingóifsstræti 4 — Sími 16767. AUGLÝSING Skólajörðin Eiðar í Eiðahreppi er laus til ábúðar frá næstu fardögum. Nokkur búslóð og áhöfn fylgir. Upplýsingar gefur skólastjórinn Eiðum. Vélritunarstúlkur Vanar vélritunarstúlkur óskast nú þegar. Unpl. í síma 19946 (á veniulegum skrifstofutíma). — Regfusamur maður á aldrinum 25—35 ára, getur fengið atvinnu hjá nýju iðnfyiúrtæki ,sem er að taka til starfa. Tilboð sendist b’aðinu merkt: „Framtíð —7926“. 22 fiskhjallar til sölu fyrir ofan Hafnarfjörð. Leiga kemur til greina. Málflutningsskrifstofa Áka Jakobssonar og Krist- jáns Eiríkssonar, Laugaveg 27, sími 11453 (Bjarni Pálsson, sími 12059.) Skrifsfofustarf Okkur vantar vanan skrifstofumann eða skrifstofustúlku. Bsfreiðastöð Steíndórs Símar 1.15.88 og 1.85.85. Gefið börnunum SÓL GRJÓN á hverjum morgni ...! Framleidd af »OTA« Góður skammtur af SÓL GRJÓ- NUM með nægilegu af mjólk sér neytandanum fyrir •/. af.dag- legri þörf hans fyrir eggjahvitu* efnl og færir líkamanum auk þess gnægð af kalki, járni,fosfór og B-vitaminum. Þessvegna er neyzla SÓL GRJÓNA leiðin til heil- brigði og þreks fyrij; börn og unglinga. OTA SOl. GRJÓN Það er aðeins eitt, sem gefur hressandi vellíðan eftir rakst- urinn ...... það er 0 Blátt Gillette Látið nýtt blátt Gillette blað í viðeigandi Gillette rakvél og ánægjan er yðar L0 blöð kr.: 17.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.