Morgunblaðið - 21.02.1958, Side 6
6
MORCTlNfíT. AÐIÐ
Föstudagur 21. febrúar 1958
FUNDUR HINNA ÆÐSTU MANNA
í SUMAR?
Þessi myryl er af einu Iistaverka frú Gretu Bjömsson, „Úr Reykjavík“, sem verið hefir til sýnis
að undanförnu á vegum listkynningar Morgunblaðsins.
NÚ FYRIR röskri viku síðan
lýsti bandaríski utanrík-
isráðherránn John Foster
Dulles því yfir, að ekki væri skil-
yrði af hálfu Bandaríkjamanna,
að fundur utanríkisráðh. hinna
ýmsu ríkja yrði haldinn, áður
sn æðstu menn
þeirra hittust
eins og mjög
hefur verið
rætt um að
undanförnu. •—
Eins og kunn-
ugt er, hafa
R ú s s a r sótt
mjög á um að
slikur fundur
yrði haldinn en
Bandaríkjamenn hafa haft þann
fyrirvara, að þýðingarlaust
sé að halda slíkan fund nema
hann sé mjög vel undirbúinn og
þá fyrst og fremst með því að á
undan verði haldinn fundur ut-
anríkisráðherra þeirra ríkja, sem
þátt taka í fundi hinna æðstu
manna, svo að tryggt verði sem
allra bezt að einhver árangur
geti orðið af viðræðum æðstu
mannanna. Nú hefur Dulles lát-
ið i ljós, að utanrikisráðherra-
fundur sé ekkert skilyrði, eins
og áður er sagt, heldur sé nægi-
legt að fundurinn verði undirbú-
inn á fullnægjandi hátt, sem
hann svo nefnir, ep ekki útskýrði
ráðherrann nánar, hvað hann
teldi nauðsynlegt í þvi sambandi.
Meðal stjórnmálaritara bæði á
Vesturlöndum og eins austan við
járntjald er talið að með yfir-
lýsingu John Foster Dulles hafi
Bandaríkin gefið verulega eftir í
þessu máli og að nú séu miklu
meiri líkur en áður til þess, að
fundur hinna æðstu manna verði
haidinn á sumri komanda. Fyrir
nokkru síðan kallaði Eisenhower
forseti sendiherra sinn í London
Lleweilyn Thompson heim, en
hann er nú nýfarinn aftur til
Moskvu og er talið að hann hafi
fengið ýmsar fyrirskipanir frá
ríkisstjórn sinni varðandi afstöð-
una til hins fyrirhugaða fundar,
þannig að hann sé viðbúinn að
taka upp viðræður af hálfu
Kvennadeildir SVFI
í Eyjum ou Garðinum
SLYSAVARNAFÉLAGI fslands
barst nýlega rekstrarreikningur
kvennadeildarinnar Eykynd-
ils í Vestmannaeyjum. Heildar-
tekjur deildarinnar á árinu 1957
voru rúmar 55 þúsund kr. Fram-
Iag til Slysavarnafélagsins var
40 þús. kr. Tekna þessara hafa
konurnar aflað með bazar, dans-
leik, hlutaveltu, kaffisölu og fl.
af sínum alkunna dugnaði og
fórnfýsi til framdráttar slysa-
varnamálum á íslandi.
Formaður Eykyndíls er Sigrið-
ur Magnúsdóttir, ritari Kristjana
Óladóttir og gjaldkeri Katrín
Árnadóttir.
Einnig hefur kvennadeildin í
Garðinum nýlega sent rekstrar-
reiknmg sinn og voru heildar-
tekjur deildarinnar rúmar 10
þús. kr. og hluti Slysavarnafé-
lagsins í því um 8 þús. kr., sem
nú þegar hefur verið afhent. Eins
og kunnugt er var það brim-
róðrarbátur slysavarnafélagsins í
Garðinum, sem notaður var til
að bjarga áhöfn finnska skips-
ins, fyrsta áfangann er það
strandaði á Garðskagaflös f-yrir
skömmu og sést þar enn einu
sinni árangur þess mikla starfs,
sem deildir félagsins hafa lagt
á sig í sjálfboðavinnu svo hægt
hafi verið að koma fyrir björgun
artækjum sem víðast við hina
hættulegu strönd landsins.
Formaður deildarinnar í Garð-
inum er Helga Þorsteinsdóttir,
gjaldkeri Pálína Guðmundsdóttir
og ritari Una Guðmundsdóttir.
Bandaríkjanna við rússnesku
stjórnina um þessi mál.
Það mun vera fullt samkomu-
lag um það meðal stjórnmála-
manna á Vesturlöndum, að rétt sé
að dagskrá sé vel undirbúin áð-
ur en hinir æðst'u menn koma
saman og yfirleitt þannig búið
um hnútana að fundurinn snúist
um ákveðin málefni, sem fyrir-
fram séu undirbúin. Afstaða
Rússa hefur verið sú, að þeir
vilja ekki að tekin séu upp á
fundinum mál, sem sýnilega sé
mjög örðugt eða jafnvel ómögu-
iegt að komast að samkomulagi
um, eins og nú standa sakir og er
meðal þeirra sameining Þýzka-
lands og mál leppríkjanna austan
við járntjald. Hins vegar virðist
svo, sem Rússar muni leggja
mikla áherzlu á að hinir æðstu
menn ræði nýjan griðasátt-
mála milli austurs og vesturs og
einnig áætlun pólska utanríkis-
ráðherrans Rapackis um land-
belti í Evrópu, þar sem engin
kjarnorkuvopn séu.
Af hálfu Bandaríkjanna og
margra annarra hefur verið á það
bent, að nokkur hætta liggi í því
að halda fund hinna æðstu manna
vegna þess að fari svo, að ekkert
samkomulag náist um þau mál,
sem efst eru á baugi og mestum
deilum valda, þá muni afleiðing-
in verða sú, að vígbúnaður muni
stóraukast og óvissa og öryggis-
leysi verða enn meira í heimin-
um en áður. Afleiðingin muni
með öðrum orðum verða sú, að
kalda striðið harðni enn meir en
orðið er. Það sé því ver farið en
heima setið að halda slíkan fund
nema fyrirfram sé nokkurn veg-
inn Ijóst, hver möguleiki sé til
samkomulags um tiltekin ágrein-
ingsmál. Hvernig svo sem undir-
búningi fundarins verður háttað,
þá virðast, eins og sagt var hér á
undan, miklu sterkari líkur til
þess nú en áður, að fundur hinna
æðstu manna verði haldinn í sum
ar en um fundarstað mun allt
vera óráðið.
„Enn um jólasálminn
ELVAKANDI hefir í dálkum
Mbl. tveim sinnum gagnrýnt
þýðingu Sveinbjarnar Egilssonar
á „Heims um ból“. Síðan hefur
annar áhugamaður á sama vett-
vangi leitazt við að sanna að þjóð
söngur Matthíasar sé lélegur
skáldskapur, með áberandi hugs-
unarvillum. Bendir sá höfundur
á leið til úrbóta og víkur einu
orði til „betri vegar“. Margir
örðugleikar eru á, að að „bæta“
listaverk eins og „Heims um
ból“ og þjóðsönginn:
1. Fyrir nokkrum árum létu
yfirmenn þjóðkirkjunnar „endur
bæta“ nokkra kunna sálma og
gefa þá út. Reis þá öflug mótmæla
alda gegn þessum listiðnaði.
Stóðu skáld og almennir borgar-
ar hlið við hlið í þessu stríði. Að
lokum var „Leirgerður", því svo
var sálmaheftið nefnt, brennt og
báðu engir henni lífs eða griða.
Engin af breytingunum lifir á
vörum fólksins.
2. Þjóðsöngur Breta gæti verið
fullkomnari sem skáldverk, en
hann er sunginn óbreyttur öid
eftir öld í öllu Bretaveldi. Ótelj-
andi Englendingar hafa kvatt
jarðlífið í baráttu fyrir land sitt
með þennan þjóðsöng á vörum.
Hér er helgur dómur heilar þjóð
ar. Enginn brezkur ættjarðarvin-
ur talar gálauslega um þjóðsöng-
inn eða orðar breytingu.
3. Hvaða íslendingur vill taka
'Sveinbjörn Egilsson á kné sér,
og leiðrétta „stíl“ hans? Svein-
björn er meistari meistaranna,
áhrifaniesti málfræðingur þjóöar
Iðnráð Reykjavíkur
hefir slarfað í nær
30 ár
AÐALFUNDUR Iðnráðs Reykja-
víkur var haldinn .1. febr. 1958.
Formaður Iðnráðs, Guðmundur
Halldórsson, húsasm.meistari,
setti fundinn og stjórnaði hon-
um. í fundarbyrjun minntist for-
maður Guðmundar Halldórssonar
prentara sem lézt á sl. ári, og var
minningu hans vottuð virðing
innar og mestur af öllum sam-
löndum, við að snúa erlendu máli
á íslenzku.
„Endurbætt útgáfa" af „Heims
um ból“ mundi verða lögð til
hinztu hvíldar við hlið „Leir-
gerðar“. í heila öld hafa öll ís-
lenzk börn ofið þetta ljóð inn í
jólafögnuð sinn, og þau munu
um ókomin ár standa vörð bæði
um lofsöng Matthíasar og jóla-
sálm Sveinbjarnar.
Jónas Jónsson
frá Hriflu"
Um fiskmeti og fleira
Skuggi skrifar:
VINLEGA sæll og blessað-
ur, Velvakandi góður.
Ætíð gerist eitthvað nýtt í bless
aðri borginni okkar. Ég sá í dag
blöðunum nýlega, að nú hafa
meiri háttar vertshúsin endur-
vakið þann gamla góða sið að
bera í trogum górnsæta, þjóðlega
rétti. Til þægindaauka er gestum
séð fyrir sjálfskeiðungum. En
annars er vist hverjum þeim, sem
það kýs frekar, leyfilegt að nota
guðsgafflana eins og í gamla
daga, þegar lítið var um hnífa-
pörin.
í trogunum kvað kenna margra
grasa af góðmetinu, svo sem súrs-
aðra lundabagga, hvals, lifrar-
pylsu, sviða, blóðmörs, að
ógleymdu mesta hnossgætinu,
blessuðum hrútspungunum. En
einhverjir eru þeir ný-yrðingar
uppi meðal vor, sem vilja koma
fyrir kattarnef þessu rammís-
lenzka kjarnyrði. Gaf að lita á
með því, að fundarmenn risu úr
sætum sínum.
Á fundinum flutti form.
skýrslu stjórnarinnar, ritari Valdi
mar Leonhardsson, las upp úr
gjörðabók framkvæmdastjórnar-
innar um afgreiðslu hinna ýmsu
mála. Gjaldkeri, Gísli Ólafsson,
lagði fram endurskoðaða reikn-
inga Iðnráðsins. í skýrslu form.
var þess m.a. getið, að á kjör-
tímabilinu sem er tvö ár, hélt
framkvæmdastjórnin 50 fundi og
skrifaði 302 bréf. Þá gat form.
þess einnig, að í des. n.k. væru
30 ár liðin frá stofnun Iðnráðs-
ins, en það var stofnað fyrir for-
göngu Iðnaðarmannafélagsins í
prenti orðið „kviðsvið“ i stað
hrútspungs, og þá var hlegið dátt
í koti mínu. Tel ég slíka nafn-
breytingu rangtúlkun, og bera
vott um pempíuhátt á háu stigi,
og vonandi nær þetta viðrinisorð
aldrei fótfestu í okkar máii. Þeg-
ar ég heyri orðin „súrsaðir hrúts-
pungar“ kemur ætíð vatn í munn
inn á mér, en „súrsuð kviðsvið“
valda mér velgju.
Upptalning sú sem ég las í dag-
blöðunum á hinum rammíslenzku
réttum í verthúsunum, bendir til
þess, að spendýrunum sé gert
hærra undir höfði en fiskunum,
að undantekinni síldinni. Nu er
þó tími kútmaganna, hausastöpp-
unnar, hrognanna og lifrarinnar.
Man ég þá tíð, að vertíðin þótti
mikill dásemdartími, og miklu
gat maður slokað í sig af þessu
góðgæti. Og ekki má nú gleyma
„tannburstanum“ okkar í gamla
daga, hertu þorskhausunum.
Gaman var að sitja á rúmstokkn-
um í rökkrinu og tæta sundur
harðan hausinn á þeim gula.
Beztur þótti mér kinnfiskurinn,
en mest hélt ég upp á kerlingar-
svuntuna, hvernið svo sem á því
stóð. Steikt tálknin smökkuðust
prýðilega. Og ekki var nú ónýtt
að éta með lýsisbræðinginn.
Ég held, að það væri ekki svo
vitlaust, að kokkarnir okkar
gæfu meiri gaum að vertíðinni og
fiskmetinu. Ekki skal standa á
mér að staulast á þá staði, sem
hafa á boðstólum lifraða kútmaga
í hádegismatinn. Ég tala nú ekki
um, ef hertir þorskhausar og lýsis
bræðingur fylgdi með.
Reykjavík, 23. des. 1928, og taldi
formaður að viðeigandi væri að
almennur Iðnráðsfundur y«jði
haldinn um það leyti, og saga
Iðnráðsins rakin í stórum drátt-
um.
Óskar Hallgrímsson flutti svo-
hljóðandi tillögu:
„Aðalfundur Iðnráðs Reykja-
víkur, haldinn 1. febr. 1958, þakk
ar stjórninni vel unnin störf á
liðnu kjörtímabili".
Tillagan var samþykkt með
samhljóða atkvæðum. Stjórnin
var öll endurkosin, en hana
skipa:
Guðmundur Halldórsson, húsa-
sm.meistari, formaður; Gísli Jóns
son, bifr.sm.meistari, varaform.;
Gísli Ólafsson, bakarameistari,
gjaldkeri; Valdimar Leonhards-
son, bifvélavirkjam., ritari og
Þorsteinn B. Jónsson, málari,
vararitari.
Varastjórn:
Óskar Hallgrímson, rafvirki;
Þórólfur Beck, húsgagnasm.;
Gestur Pálsson, prentari og
Þorsteinn Daníelsson, skipasm.
Endurskoðendur:
Guðmundur B. Hersir, bakari,
og Þorsteinn Daníelsson, skipa-
sm. og til vara Sigurður Jónsson,
pípulagningam.
Ritari almennra funda, Gísli
Ólafsson, bakarameistari.
Æskuiýðssamkoma í
Keflavíkurkirkju
LAUGARDAGINN 1. febrúar
gekkst stúkan Vík fyrir æskulýðs
samkomu í Keflavíkurkirkju, en
sá dagur hefir fyrir nokkru ver-
ið helgaður bindindisfræðslu á
vegum skólaæsku landsins.
Samkomunni í kirkjunni stjórn
aði Rögnvaldur Sæmundsson
skólastjóri gagnfræðaskólans í
Keflavík, en ræður fluttu: Val-
geir Gestsson formaður skólafé-
lags Kennaraskólans og Eyjólfur
Þór Jónsson kennari. Ræddu þeir
um skaðsemi tóbaks og áfengra
drykkja og brýndu fyrir æsku-
lýðnum að varast slíkar nautna-
vörur, sem aðeins skapa fólki
fjármunatap og leiða ógæfu og
heilsutjón yfir neytendur. Þótti
ræðumönnum segjast vel, enda
var gerður góður rómur að máli
þeirra. Að lokum tók til máls
sóknarpresturinn, sr. Björn Jóns-
son, er hvatti æskufólkið eindreg-
ið til þess að helga líf sitt háleit-
um hugsjónum og reglusemi.
shrif'ar ur
daglega lífínu