Morgunblaðið - 21.02.1958, Síða 13

Morgunblaðið - 21.02.1958, Síða 13
Föstucfagur 21. febrúar 1959 MORCVTSBLAÐIÐ 13 Landhelgismálið Frh. af bls. 1 fyrir að hafa tafið framkvæmd málsins? Og einkum og sérstak- lega vil ég spyrja hv. þingmann, Benedikt Gröndal, hvað hann sjálfur áliti um þetta. Hann segir nefnilega nokkrum línum neðar í þessari sömu grein, frá því að form. þingflokks Sjálf- stæðismanna og form. flokksins, Bjarni Benediktsson og ég, höf- um verið kvaddir á fund rikis- stjórnarinnar snemma í október og þar hafi okkur verið skýrt frá málinu, en við höfum hins vegar óskað eftir skriflegri grein- argerð og íengið hana. Svo bætir hann við, orðrétt: „í hinni skriflegu grg. var Sjálfstæðismönnum gerð grein fyrir öllu því, sem gerzt hafði í málinu síðan þeir fóru úr ráð- herrastólnum. Vildi sjávarútvegs málaráðherra þá færa út strax, en utanríkisráðh. bíða eftir nið- urstöðum Genfarráðstefnunnar“. Ég spyr nú þennan þingmann: Er það þá „firra“, að það sé ágreiningur á milli þessara manna, og er það „Gróusaga“, að segja frá því sem hæstv. at- vinnumálaráðherra áður er bú- inn að segja um það? Gröndal staðhæfir. — Stjórnin mótmælir Næst segir svo hv. þingmaður nokkrum línum enn neðar í sömu grein orðrétt: „Þannig stóð málið þegar ■tj órnin sneri sér til sjálfstæðis- •manna, með ósk um samvinnu. Ólafur Thors svaraði og kvað sjálfstæðismenn skilja málið svo, að stjórnin væri búin að taka á- kvörðun og taldi það mistök, að hafa ekki talað við sjálfstæðis- menn fyrr. Þessu var svarað af stjórnarinn ar hálfu, með mótmælum, og á það bent að ákvörðun hefði ekki verið tekin, en æskilegt væri að heyra till. sjálfstæðismanna í málinu. Sjálfstæðismenn fengust fkki til að segja orð um málið og neituðu meira að segja að tala við Hans Andersen þegar hann kom heim frá París samkvæmt beinni ósk þeii'ra sjálfra. Varð að staða þeirra ekki skilin á annan hótt en að þeir vildu ekkert sam- starf við stjórnina hafa um mál- 1#«. Stjórnin segir sitt á hvað Hér er um tvær veigamiklar fullyrðingar að ræða. Annars vegar vilja menn fá úr því skorið hvort það sé satt eða ósatt, að stjórnin hafi vcrið búin að taka ákvarðanir. Hins vegar hvort rétt sé að sjálfstæðismeiHi hafi hafnað samstarfi. Þingmaðurinn fullyrðir í um- boðl stjórnarinnar, að hún hafi ekki verið búin að taka neinar á- kvarðanir. 1 áðurnefndri skýrslu ríkis- stj. dags. 15. okt. sl. undirritaðri af Lúðvík Jósepssyni, stendur um þetta atriði, það sem ég nú skal leyfa mér að lesa upp: „S j ávarútvegsmálaráðherra hafði gert ákveðnar tillögur um að stækkun landhelginnar yrði látin koma til framkvæmda 1. október þ. á. — Utanríkisráðh. taldi hins vegar ekki rétt að ráð- ast í stækkunina fyrr en eftir Genfarfundinn“. Ennfremur segir um þetta í þessari sömu skýrslu: „Nú er ríkisstj. það Ijóst, að mjög miklu máli skiptir um far- sæla lausn þessa máls, að allir stjórnmálaflokkar landsins geti staðið saman um það, sem gert er i málinu". C ' ’oks kemur svo konklusion- in ac þessum skoðunum ríkis- stjórnarinnar og hún hljóðar þannig: „Sjávarútvegsmálaráðh. mun faiiast á, að ákveða framkvæmda tíma n strax að Genfarfundin- um loknum, of það er nauðsyn- iegt til að skapa samstöðu allra flokkanna um málið“. Þarf frekar vitnanna við? Hvað stendur í þessu? í þessu stendur að hæstv. at- vinnumálaráðh. vildi hefja fram- kvæmdir 1. okt. í fyrra. Það stendur ennfremur: Utanríkis- ráðh. neitaði því. — Og það stend ur loks: Ég undirritaður, Lúðvík Jósefsson, heimta samstöðu allra, og þar sem ég ekki get fengið samþykki utanríkisráðherra, gefst ég upp og felst á að fresta aðgerðum fram yfir Genfarfund- inn. Hér er því ákvörðun tekin, og þegar á okkur er kallað, þá er búið að taka þessa ákvörðun. Hvað átti þá að spyrja okkur um? Við skulum segja, að við hefðum sagt: Við viljum alveg eins framkvæmdir strax. Hverju hefði það breytt? Ekki hefði ut- anríkisráðherra okkar vegna fail ið frá einbeittum mótþróa sín- um. Þess vegna var það fyrir- fram útilokað að skapa samstöð- una, og einmitt af því að atvinnu málaráðherra vildi umfram allt þessa samstöðu, þá féllst hann á að fresta framkvæmdun- um, þar til eftir Genfarráðstefn- una. Það er þess vegna staðreynd, að við erum í raun og veru ekki kallaðir til neinna aðgerða ann- arra en þeirra, að fá okkur til að fallast á það sem stjórnin er bú- in að gera, þ.e.a.s. að ákveða að fresta öllum aðgerðum í málinu fram yfir Genfarráðstefnuna. Ég slæ því þess vegna föstu að ákvörðunin var tekin þegar á okkur var kallað. Og til vitnis um að Lúðvík Jósefsson var bú- inn að gefast upp í málinu, fyrir utanríkisráðherra, bendi ég einn- ig á það, að samkvæmt gildandi lögum, þarf atvinnumálaráðh. engan um þetta að spyrja nema sína eigin samvizku og sitt eigið hyggjuvit. Hann hefur fullan rétt tii að færa út friðunarlinuna sam kvæmt gildandi lögum, hvort sem hans einkavin, Guþ’mundi í. Guðmundssyni, líkar betur eða verr. Hann gafst upp og uppgjöf- in hafði skeð áður en við vorum til kallaðir. Sjálfstæðismenn buðu samstarf, en stjórnin hafnaði því Hin veigamikla spurning er sú, hvort við Sjálfstæðismenn höfum neitað samstarfi um málið, eins og þingmaðurinn ótvírætt segir. Það er að vísu að bera í bakka- fullan lækinn að lesa ummæli hans upp aftur. Þó endurtek ég þessar setningar: „Sjálfstæðis- menn fengust ekki til þess að segja orð um málið. Varð afstaða þeirra ekki skilin á annan hátt en þann, að þeir viidu ekkert samstarf við stjórnina hafa, enda kom það á daginn“. O. s. frv. Ég vil af þessu tilefni leyfa mér að lesa upp þau bréfavið- skipti sem fóru á milli Lúðvíks Jósefssonar og Sjálfstæðisflokks- ins um þetta mál. Eftir að við höfðum fengið skýrsluna sem ég gat um, dags 15. okt., var málið rætt á tveim- ur flokksfundum hjá okkur. Eftir það var svohljóðandi bréf skrif- að. Bréfið er dags. 30. 10. „Út af grg., dags 15. þ. m., varð- andi bollaleggingar innan ríkis- stjórnarinnar um landhelgismál- ið, sem sjávarútvegsmálaráðherra sendi Sjálfstæðisflokknum til at- hugunar lætur flokkurinn þetta uppi. , í grg. segir. „Ríkisstjórni* leggur áherzlu á að heyra álit stjórnarandstöðunn- ar um framkvæmdartíma, því að hún telur að ákveða beri hann þannig, að allir flokkar geti stað- ið saman um málið". Þegar þess er gætt að í grg. er jafnframt skýrt frá því, að utan- ríkisráðherra hafi ekki taiið „rétt að ráðast í stækkunina fyrr en eftir Genfarfundinn", og enn- fremur að „sjávarútvegsmála- ráðneytið mun fallast á að ákveða framkvæmdartímann strax að Genfarfundinum lokn- um“, er auðsætt að hið eina, sem gerzt hefir í málinu er það, að stjórnin hefur ákveðið að hafast ekki að fyrr en eftir Genfarfund- inn. Telur Sjálfstæðisfl. mið- ur farið, að ríkisstjórnin skuli ekki háfa ráðfært sig við flokk- inn, fyrr en búið var að taka þessa ákvörðun. Þrátt fyrir þessi mistök, lýsir flokkurinn sig fúsan til samvinnu um málið gegn því, aö liann fái jafnóðum að fylgjast með öllu, sem í því gerist héðan í frá, þ. á. m. að tilnefna til jafns við stjórn- arflokkana fulltrúa, er fari með málið af tslands hálfu á alþjóða vettvangi. Það skal tekið fram, að einstak- ir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa áskilið sér rétt til að hreyfa málinu, eftir því sem þeir telja rétt. F. h. Sjálfstæðisflokksins, (sign) Olafur Thors“. Þessu bréfi er svo svarað sex' dögum síðar af ráðherranum, með svohljóðandi bréfi: Margsaga maður „í tilefni af bréfi yðar, 31/10, þykir mér rétt að taka þetta fram: Það er m’isskilningur, sem fram kemur í bréfi yðar, að ríkis- stjórnin hafi ákveðið að hafast ekki að í landhelgismálinu fyrr en eftir Genfarfundinn í febi. næsta ár. Ríkisstjórnin hefur enga slíka ákvörðun tekið. Á við- talsfundi þeim, sem formaður Sjálfstæðisflokksins og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins áttu með ríkisstjórninni, varð- andi þetta mál, kom þetta skýrt fram. Þessu bréfi Lúðviks Jósefsson- j og höfum verið virtir að vettugi ar svaraði Sjálfstfl. 5 dögum fullkomlega. En um leið og ríkis- seinna, eða 11/11 með svohljóð- j stjórnin opnar gáttina og segir: andi bréfi: I Viljið þið vinna að málinu með „Út af bréfi ráðuneytisins ds.'okkur, svörum við hiklaust „Já, 6. þ.m. vísast til bréfs Sjálfstfl. til sjávarútvegsmálaráðuneytis- ins ds. 31. f.m. þar sem flokkur- inn býður samstarf um landhelg- ismálið gegn vissum skilyrðum. Augljóst er að ríkisstj. hefur ekki samstöðu í málinu og telur flokkurinn frekari bréfaskriftir tilgangslausar, en óskar að ríkis- stj. segi til um hvort hún fellst á skilyrði Sjálfstfl. fyrir sam- starfi“. Ég segi, hvað þurfa menn frek- ar vitnanna við í þessu máli? Sjálfstfl. er óánægður með máls með ánægju“. Við erum ekki að karpa um það, að okkur hafi ver- ið sýndur dónaskapur. Nei, við segjum: Þetta mikla mál viljum við ræða, af því við vitum að við erum eins færir um það eins óg þið hinir, og er það ekkert ofsagt. En í öðru lagi vek ég athygli á þvi, að nú er það er- indið að reyna að fá samstöðu um, hvernig hin nýja friðunar- lína skuli vera. í fyrri skýrsl- unni er þó sagt, að um það sé í rauninni enginn ágreiningur. Það sé bara ágreiningur um hve- meðferðina og lætur það í Ijós ■ nær eigi að koma til fram- með hóflegum orðum. Hann býð- ur samt eða óskar samstarfs| vegna mikilvægis málsins. Hann fær annað bréf, sem er hreinn útúrsnúningur, þar sem ráðh. segir allt annað heldur en í lians eigin skýrslu stendur og scm engan veginn fær staðizt. Sjálfst. fl. svarar með fullri kurteisi og segir: við skulum ekki vera að karpa um þetta, við skulum bara fá aö vita hvort ríkisstj. vill samstarf við okkur um .náiið, eða hvort hún vill það ekki. Ég spyr enn, hváð þarf vitnanna frekar við um þetta? Sökudólgarnir Ég vil nú leyfa mér að vekja athygli allra þingdeildarmanna á því að það liggur ljóst fyrir að við Sjálfstmenn buðum sam- starf, og settum fyrir því engin I bréfi mínu frá 15. okt. sl., er , óaðgengileg skilyrði, engin. Og þetta einnig skýrt fram tekið. I hvernig var svo þessu tekið? Því Þar stendur eftirfarandi um af- ---- 1----- -* stöðu sjávarútvegsmálaráðuneyt- isins: „Sjávarútvegsmálaráðuneyt ið mun fallast á að ákveða fram- kvæmdartímann strax að Genfar- fundinum loknum, ef það er nauð synlegt til þess að’ skapa sam j stöð'u allra flokka um málið, því að það er álit þess, að ekki sé j rétt að standa þannig að málinu, i __ ____ að deilur þurfi að vera hér heima , ekki við sem berum út Gróusögur j stærsta flokk landsins í málinu. var þannig tekið að stjórnin hundsaði okkur. Hún virti okkur ekki einu sinni svars. Það er þess vegna við, en ekki ríkisstj., sem rétti fram hönd í þessum málum. — Og það er þess vegna ríkisstjórnin, en ekki við sem sló hönd á hina út- rétta hönd kvæmda. Stjórnin veit ekki sitt rjúkandi ráð Þetta síðasta bréf sýnir, að þegar á hólminn er komið, þeg- ar ráðstefnan er hafin, þá veit ríkisstjórnin ekki sitt rjúkandi ráð, heldur ekki hvernig hún ætlar að hafa kröfur sínar og kallar okkur nú á elleftu stundu til samstarfs, sem við með ánægju erum reiðubúnir til, þó að öll málsmeðferðin sé mjög óviðfeld- in og raunar vílaverð. Myndin, sem við höfum af ríkisstjórninni í þessu, er sú, að ofan á það að taka ákvörðun um frestun málsins fram yfir Genf- arráðstefnuna án þess að spyrja okkur, og ofan á það að virða okkur ekki svars og hafna þannig öllu samstarfi, bætist nú það, að þegar Genfarfundurinn er hafinn þá veit ríkisstjórnin ,ekki sitt rjúkandi ráð um, hvað hún eig- inlega ætlar að gera, því ef hún veit það, af hverju er hún þá ! að kalla okkur til samstarfs um I þetta? Ég spyr: hverju er hægt að bæta við svona framkomu? Það væri þá helzt að senda ungan þingmann, sem litið þekk- ir til málsins, út af örkinni til Á þessu sést líka að það er Þess að bera út Gróusögur um um einstök atriði málsins, sé nokkur kostur annars". Þér hafið áður fengið upp- lýsingar um að sjávarútvegsmáia ráðuneytið hefur lagt til að stækkunin yrði framkvæmd fyrr en þetta, og það er enn þeirr- ar skoðunar, að æskilegast væri, að allir flokkar gætu sameinazt um það. Eins og skýrt kemur fram í bréfi ráðuneytisins frá 15. októ- ber, var megintilgangur þess að leita eftir vilja Sjálfstæðisflokks- ins um samkomulag í málinu, og þá alveg sérstaklega um val á framkvæmdartíma. um ríkisstj. í þessu máli. Það er þingmaðurinn Bened. Gröndal sem ber út Gróusögur um okkur i málinu. Málefnið fyrst Mér þykir rétt að segja frá því, að nýverið barst Sjálfstfl. enn á ný bréf frá atvinnumálaráð- herra Lúðvík Jósefssyni um þetta mál. Það er dagsett 13. febr. og hljóðar þannig: „Ráðuneytið hefui ákveðið að skipa nefnd til þess að samræma sjónarmið stjórnarfiokkanna urn útfærslu landhelginnar, sérstak- Ég ítreka þvi hér með fyrirsp. | lega hvernig hin nýja friðunar- mína um það, hvaða till. Sjálf- i ]ína skuli ákveðin og viil hérmeð eins og hann hefur gert. Sjálfstæðisflokkurinn harmar þessa meðferð hins mikla vel- ferðarmáls og neyðist til að vita hana opinberlega, úr því að mál- ið á annað borð er dregið inn á þennan vettvang. Sjálfstæðisflokkurinn leyndur staðreyndunum Ég vil svo að lokum geta þess, að það er ennfremur ósatt, sem Benedikt Gröndal segir í grein sinni, að Sjálfstæðisflokknuni „sé fullkunnugt um allan gang þessa máls“, Sannleikurinn í málinu er sá, að okkur hefur ekkert um þetta gefa Sjálfstfl. kost á að tilnefna j mál verið sagt annað en það, sem einn mann í þessa nefnd, sem stendur í skýrslu þeirri, sem ég skipuð verður einum manni frá hverjum hinna þingflokkanna. Jafnframt eruð þér, herra gat um, og er eiginlega frekar skýrsla um, að það sé full- komið ósamkomulag innan stjórn form., beðinn að láta ráðarieytinu ! arinnar, og ekki að'eins það, held- ur sé hreinn persónuklofningur hjá hæstv. atvmrh. í málinu. Hann segir að vísu: Ég gerði tillögur. En hann sendir kort af átta tillögum, þar sem koma fram átta mismunandi leiðir, talar sjálfur alvarlega um þrjár, en þó langalvarlegast um tvær, sem eru gerólíkar hvor annarri. Þessi skýrsla Lúðvíks Jósefs- sonar segir þess vegna: Það er í té hið allra fyrsta, afstöðu Sjálfstfl. til þessa máls“. Lúðvík Jósefsson" Bréf þetta var rætt á fundi Sjálfstfl. í gær og svarað þá þeg-9 ar svohljóðandi með leyfi hæstv. forseta: „Til svars bréfi „landbúnaðar- ráðuneytisins“ (það er nú skifa'ð frá landbúnaðarmálaráðuneyt- inu) ds. 13. þ.m. þar sem Sjálfstf). stæðisfl. hefur um framkvæmd- artí.ma þessa máls“. Lúðvík Jósefsson". Þegar við lásum þetta bréf, urð um við gersamlega undrandi. Við höfðum skýrsluna, sem ég áðan vitnaði í, sem sannar ótvírætt að ríkisstjórnin var búin að ákveða að fresta aðgerðum þar til eftir kosningar. En nú skvrði ráðherr- ann frá, að enga ákvörðun hafi verið búið að taka. Ráðherrann segir i öðru orðinu það ósatt, sem hann segir í hinu orðinu satt. Ráðlierrann hefur sjálfur sagt, eins og ég áðan gat um, í fyrsta lagi: ég vildi liefja aðgerðir strax, í öðru lagi: utan- ríkisráðh. vildi það ekki, í þriðja lagi: ég heimta samstöðu allra, í fjórða lagi: af því ég gat ekki fengið hana þar sem utanríkis- ráðh. neitaði að verða mér sam- mála, þá gefst ég upp og sætti mig við að bíða þar til eftir Gen- farfundinn. Þetta segir ráðherrann í skýrsl unni sem er dags. 15. okt., en 6. nóv. þremur vikum seinna segir hann að hann hafi ekkert verið búinn að ákveða um þetta. Það getur verið að menn séu 1 málið ofar öllu öðru. Þess vegna Ottesens, á ekki að láta etja sér ekkert hissa á þessu npna, en | nefnum við mann þegar í stað, fyrir tveimur árum hefði ég látið er flokkurinn fékk tækifæri til segja mér tvisvar sinnum að að starfa að málinu. Ég minni svona málsmeðferð teldi þessi (á það, að það eru liðnir rúm- ráðherra sér sæmandi í svo stóru ir þrír mánuðir frá því að við máli. (skrifuðum okkar seinasta bréf, [ er gefinn kostur á að tilnefna 1 ( alger klofningur innan stjórnar- mann í n., sem ráðuneytið hafði innar og persónuklofningur hjá ákveðið að skipa til þess að sam- mér, sem öllu ræð, sem lýsir sér ræma sjónarmið stjórnarflokk- ! í því, að ég týni minni eigin anna um útfærslu landhelginnar, ! persónu og skýt henni inn í er ráðuneytinu hérmeð tjáð að persónu utanríkisráöherra og fer flokkurinn hefur iiinefnt Sigurð eftir því, sem liann segir mér. Bjarnason alþm. í umrædda Þetta er það, sem stendur i því nefnd“. , eina sem við höfum fengið um Hvað sannar nú þetta? Það málið. öllu öðru hefur verið j sannar, í fyrsta lagi: að þrátt haldið leyndu fyrir okkur. fyrir mjög ókurteisa framkomu I Að lokum vil ég segja Bene- hæstv. ríkisstj. í garð okkar í dikt Gröndal það, að maður, sem málinu, þá setjum við ævinlega býður sig frarn í kjördæmi Péturs mális nfar niln Síirii boc= ■.rnor.o Ottesens, á ekki að láta etja sér á foraðið i landhelgismálinu, og hann á ekki að vera að vekja um það óþarfar og ef til vill skað- legar umræður og hann á ekki að gerast beinn ósannindamaður Frh. á bls 18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.