Morgunblaðið - 21.02.1958, Síða 17

Morgunblaðið - 21.02.1958, Síða 17
Föstudagur 21. febrúar 1958 MORCVNBLAÐIÐ 17 Fréftabréf úr Fljótsdal Lítill hóll forðaði Egils- stöðum frá snióflóði SKRIÐUKLAUSTRI, 13. febr. — Hér hefur verið vetrarveðrátta, það sem liðið er af árinu. Snjó- létt hefur þó verið lengst af, en þó nokkuð bætt á nú síðustu dag- ana. Upp úr miðjum janúar gerði hörku norðan veðra kafla um vikutíma. Hríðaréi og hvassviðri og frosthart. í þorrabyrjuR setti hér tals- verðan austan-snjó, en hlánaði svo upp á. Var mikil rigning að- faranótt 28. jan. og rann snjór- inn fljótt í sundur. En þessi bráða leysing orsakaði snjó- og krapa- flóð bæði í Suður- og Norðurdal. T. d. féll allmikið krapaflóð rétt hjá bænum á Egilsstöðum í Fljóts dal. Klofnaði það á allmiklum hól upp af bænum og féll megin þess utan við bæ og tók m. a. túngirðinguna á nokkrum kafla. Jörð var mjöf þakin svellum hátt í hlíðar og því hált undirlag að nýja snjónum. En ekki hefur fallið þarna snjóflóð í minni nú- lifandi manna. Hagalítið eða hag- laust var viða fyrir þessa hláku, en batnaði talsvert. En síðustu viku hefur aftur verið norðaust- læg átt, élakóf oft og skakviðri. Haglitið er enn í Norðurdal og stórhætta fyrir sauðfé vegna hálku. Á Jökuldal eru víðast nokkrir hagar og sums staðar sæmilegir. Snjór er þar ekki mikill. Hrein- dýr hafa ekki leitað til byggða í vetur og bendir það til þess að hagar séu um afréttirnar, enda sennilega aldrei blotað á heiðun- um, a. m. k. ekki svo að harð- fenni yrði eða svell. Allir vegir mega nú heita ófær- ir um Héraðið. Þó hafa verið fær- ir vegarkaflar hér um dalinn að þessu. Lagarfljót er nú allt ísilagt. Lagði það innundir Hallormsstað seint í janúar, en hélzt autt á all- stóru svæði undan Geitagerði þar til í byrjun febrúar. Er sennilega kominn talsverður ís í það nú, en ekki hefur verið farið neitt eftir fljótinu enn. Jarðarför Páls Hermannssonar, fyrrverandi alþingismanns, fór fram að Valþjófsstað laugardag- inn 8. febrúar. Var þá hörkulculdi og nokkur skafrenningur, og erf- itt umferðar. Fylgdi þó allmargt fólk hinum látna sæmdarmanni til grafar. Þar hefði orðið mikið fjölmenni, ef samgöngur hefðu verið greiðar. Páll heitinn var fæddur að Þorgerðarstöðum í Fljótsdal og sleit barnsskónum í Víðivallagerði. Hann unni alla tíð dalnum, þar sem hann var borinn og kaus að bera þar bein- in. — J. P. Finnska stjórnin ■ékk traustsyfirlýsingu HELSINKI, 19. febr. — Finnska stjórnin undir forsæti Rainers von Fiendts kom „ósködduð“ út úr umræðum þingsins í dag, en hafði þó ekki nema fimm atkvæða meirihluta í úrslita-atkvæða- greiðslunni. Fyrir þinginu lágu tvær van- trauststillögur. Kommúnistar lögðu fram aðra þeirra vegna efnahagsstefnu stjórnarinnar, en sósíaldemókratar komu líka fram með tillögu, sem forsætisráðherr- ann leit á sem vantraustsyfir- lýsingu. Hér getur að líta hina tvo heimsmeistara í plægingum. Það er fjórða skiptið sem Fordson Major vinnur heimsmeistara- titilinn. — Þótt nýir plógar séu að koma á markaðinn er heimsmeistarakeppnin enn háð með hinum árþúsunda gamla plógi. Hver á að borga brúsann! Allir vilja fá eigið regn SIDNEY. — Ástralíumenn hafa mikinn hug á því að hagnýta sér í framtíðinni þá visindalegu upp götvun, sem gerði fært að fram- le'iða regn með því að varpa úr flugvél iskristöllum yfir ský. Ástralskir bændur eiga oft í erf- iðleikum vegna þurrka — og fyr- irhugað er að hafa fyrirkomulag- ið þannig, að bændur geti pant- að regn fyrirfram einhvern á- kveðinn dag, þegar það kemur sér bezt fyrir þá. Síðan munu sérlegir verktakar á þessu sviði sjá um að framleiða regnið. í sambandi við þetta er komið upp mikið vandamál: Segjum t.d. að bóndi panti regn, en vindurinn beri það yfir jörð nágrannans. Já, og við getum sagt, að regnið valdi þar skemmdum þar eð ná- granninn hefur ekki verið því vjðbúinn. Báðir krefjast skaða- bóta — hver á að greiða þær? Nú vilja ástralskir bændur, að þingið setji sérstök lög um þetta efni svo að ekki komi til ótal klögumál, ef bændur fá ekki eig- ið regn — sem þeir hafa borgað fyrir — svo og til þess að fyrir- byggja að bændur geti „stolið'1 regni, sem öðrum er ætlað. Nefndarálii um uppsagnarfresl o. fl. \ Heilbrigðis- og félagsmála- nefnd efri deildar Alþingis hef- ur skilað áliti um stjórnarfrum- varpið um rétt verkafólks til upp sagnarfrests frá störfum og um rétt til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla. Lagt er til, að 3 breytingar verði gerðar á frumv. Sjálfstæðismennirnir (Sigurð- ur Ó. Ólafsson og Friðjón Þórðar- son) taka þetta fram í álitinu: „Við erum sammála öðrum nefndarmönnum um nauðsyn þess að tryggja betur en nú er atvinnuöryggi tíma- eða viku- kaupsverkafólks, en teljum hins vegar frv. að ýmsu leyti ábóta- vant. Ýmis ókvæði þess eru óljós og vafasamt, hversu þau reynast í framkvæmd. Þar sem með frv. er verið að lögfesta breytingu á gildandi kjarasamningum, teljum við mjög vanhugsað að hafa ekki haft samráð við samtök vinnu- veitenda og launþega um undir- búning málsins. Þótt meðferð mólsins sé þannig að ýmsu leyti gölluð, munum við fylgja frv. og sjáum ekki ástæðu til að bera fram breytingartillögur við það, þar sem vitað er, að ákveðið mun hafa verið af stuðningsflokkum ríkisstjórnarinnar að samþykkja frv. í öllum meginatriðum ó- breytt. Áskiljum við okkur hins vegar rétt til þess að fylgja breyt ingartillögum, sem fram kunna að koma“. Fylgiskjöl með áliti heilbrigð- is- og félagsmálanefndar eru bréf um frumvarpið frá Alþýðu- sambandinu, Vinnumálasam- bandi samvinnufélaganna, Vinnu veitendasambandinu og Félagi íslenzkra iðnrekenda. Þessir að- ilar, en einkum þó 3 hinir síðast- nefndu, gagnrýna ýmis atriði frumvarpsins. Þá gera þessir 3 aðilar athugasemdir við meðferð málsins. 1 tileini ai 85 fira aimæU JÓNS TRAUSTA verður Ritsafnið 8 bækur selt í dag fyrir kr. 750,oo flðeins þennon eino dng Bókaverzlun ísafoldar Sími: 1-4527 og 1-8544. Guð/ón Ó. Hallveigarstíg 6 A Sími 14169

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.