Morgunblaðið - 21.02.1958, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.02.1958, Blaðsíða 19
Föstudagur 27. febrúar 1958 MORCVNBLAÐIÐ 19 Vestur-íslendingur í öld- ungadeild Kanadaþings NÝLEGA skipaði ríkisstjórn Kanda íslendinginn Gunnar S. Thorvaldson til að taka sæti í öldungadeild ríkisþingsins. Er Gunnar S. Thorvaldson fyrsti maður af íslenzkum ættum, sem þessi heiður hlotnast. — Súdan Frh af bls. I og bendir á, að 1. febrúar sl. hafi Egyptar sent Súdönum orðsend- ingu þar sem þeir krefjast tveggja landsvæða fyrir norðan 22. breiddarbaug. í þessari orð- sendingu var því haldið fram, að svæðin tilheyri Egyptalandi sam- kvæmt ákvæðum samriingsins milii Egypta og Breta frá 1899. Samningar rofnir Súdans-stjórn bendir á, að sam kvæmt sáttmála Egypta og Súd- ana frá 1902 og 1907 séu bæði þessi landsvæði hluti af Súdan og hafi lotið súdanskri stjórn sið- an. íbúar svæðanna séu Súd- anar og hafi aldrei greitt at- kvæði í egypzkum þingkosning- lim eða þjóðaratkvæðagreiðslu. Hins vegar hafi þeir tekið þátt í kosningunum í Súdan 1953 í sam- ræml við sáttmála Breta og Eg- ypta um sjálfsstjórn Súdans frá febrúarmánuði 1953. Egyptar friðmælast Formælandi Egypta sagði í dag, að þeir hefðu hug á að fá friðsamlega lausn á deilunni. — Hann sagði að í landamærahéruð- unum væru bara venjulegar eg- ypzkar lögreglusveitir, en ekki hersveitir. Jafnframt endurtók hann tilboð Egypta um að fresta þjóðaratkvæðinu í Egyptalandi, sem ætti að fara fram á morgun, og þingkosningum í Súdan, þar til samkomulag hefði náðst um hin umdeildu landsvæði. Svartsýnl í Súdan í Khartoum, höfuðborg Súd- ans, voru menn yfirleitt svart- sýnir eftir að samningaumleitan- Ir Egypta og Súdana í Kaíro fóru út um þúfur í gær. Utan- ríkisráðherra Súdans, Mahmound Mahgoub, sagði í dag að hann mundi fara aftur til Súdans á miðnætti án frekari viðræðna við egypzka ráðamenn. Arababandalagið óákveðið Framkvæmdastjóri Araba- bandalagsins sagði í dag, að hann væri að kynna sér einstök atriði í landamæradeilunni og að von sé til þess að sættir megi takast. Haile Selaissie, keisari í Eþíópíu, sendi samhljóða orðsendingar til stjórna Súdans og Egyptalands þar sem hann skoraði á bæði rík- in að neyta allra bragða til að leysa deiluna friðsamlega. Kröfur Egypta Það var 16. febrúar sl. sem egypzk stjórnarvöld tilkynntu Súdans-stjórn, að þau hefðu ákveðið að senda kosningastarfs- menn og landamærahersveitir inn á hin umdeildu svæði til að hafa eftirlit með þjóðaratkvæð- inu þar. Súdans-stjórn bað tvisv- ar um frest til að semja um þessi mál við Egypta. Hinn 18. febrúar sendu Egyptar Súdönum aðra orðsendingu þar sem þeir kröfð- ust þess að bæði landsvæðin yrðu látin taka þátt í egypzka þjóðar- atkvæðinu. Jafnframt báðu þeir Súdana um að kalla heim her- deild sem send hafði verið til landsvæðanna til að halda uppi lögum og reglu í kosningunum. Súdans-stjórn neitaði að verða við þessum tilmælum og leit svo á, að hér væri um að ræða brot á sjálfstæði landsins og móðgun við Súdana. Hins vegar sendi hún utanríkisráðherra sinn til Kaíró til að semja við Egypta, en þær viðræður fóru út um þúfur. (Frétt sem Morgunblaðinu barst í gær um samkomulag milli Súdana og Egypta var á misskiln ingi fréttastofunnar byggð). í öldungadeildinni eiga 102 full trúar sæti, skipaðir af ríkisstjórn- inni ævilangt. Svo sem við er að búast, er stuðningsflokkur nú- verandi ríkisstjórnar þar æði fá- mennur eða aðeins 6 fulltrúar. Hinn nýi öldungadeildarþing- maður er meðal hinna yngstu í deildinni, enda flestir fulltrúar þar mjög við aldur. Hann er 57 ára að aldri, fæddur í Riverton. Faðir hans, Sveinn Thorvaldson, var þingmaður fyrir Gimli-kjör- dæmi. Gunnar S. Thorvaldson er kunnur lögfræðingur í Winnipeg, meðefgandi í lögfræðifirmanu Thorvaldson, Eggertson, Bastin and Stringer. Hann var um skeið forseti verzlunarráðs Kanada og sat á þingi Manitoba 1941—1949. (Frá utanríkisráðuneytinu). Skákmóti frestað HAFNAFIRÐI. — Afráðíð hafði verið að skákmót Hafnarfjarðar hæfist á sunnudaginn, en af óvið- ráðanlegum ástæðum getur það ekki hafizt fyrr en n.k. miðviku- dagskvöld. Hefst það þá kl. 8 og verður teflt í Gúttó. Er búizt við góðri þátttöku, því að nú er mikil gróska í félaginu, og hefir starfað í því í vetur fjöldi ungra pilta. Eru þeir, sem enn hafa ekki tilkynnt þátttöku, beðn ir að gefa sig fram við StígHerluf sen fyrir sunnudag, en þá verður raðað niður. — Að öllum líkind- um munu tveir sterkir skákmenn frá Rvík taka þátt í mótinu sem gestir. — Keppt verður um titil- inn skákmeistari Hafnarfjarðar 1958. ■—G.E. Hammarskjöld aflýsir ferðalap;i NEW YORK, 20. febr. — Dag Hammarsk j öld framkvæmda- stjóri S. Þ. sagði á fundi sínum vxð fréttamenn í dag, að þróun heimsmálanna hefði neytt sig til að hætta við fyrirhugaða heim- sókn sína til Malaja í næsta mán uði. Hins vegar kvaðst hann mundu heimsækja Moskvu og London eins og ráð hefði verið fyrir gert. Hammsrskjöld ræddi ekki nán- ar, hvað hann ætti við með þró- un heimsmálanna, en hann hafði gert ráð fyrir að vera í Malaja við setningu jiæsta þings Efna- hagsnefndar Asíu. Hammar- skjöld kvaðst ekki hafa fengið neina opinbera skýrslu eða mála leitan í sambandx við landamæra- deilu Egypta og Súdana, þegar funduxúnn var haldinn í dag. Um deilu Frakka og Túnisbúa sagðx hann, að hann liti á það sem skyldu sína að skerast 1 leikinn, ef tæKÍfæri byðist til að draga úr viðsjám. Hann kvað þessa skyldu ekki falla úr gildi, enda þótt vinsamlegar umræður deilu- aðila ættu sér stað. Hins vegar gæti aldrei orðið um samkeppni milli S. Þ. og einstakra aðildar- ríkja að ræða um milligöngu í deilumálum. Hvenær sem einstök ríki sæu sér fært að miðla mál- um, væri það S. Þ. gleðiefni og benti í því sambandi á samkomu- lagið um að leyfa vistaflutninga til frönsku hersveitanna í Túnis. ákólasýning KL 5 og 7 í dag sýnir Lauga-„s- bíó rússnesku kvikmyndina „Don Quixote“ fyrir skólafólk. Að- göngumiðar verða seldir í dag frá kl. 2 og verður gefinn 50% afsláttur. PARÍS, 20. febr. — Franska stjórnin ókvað í dag að beita sér fyrir bandalagi Evrópuríkjanna um efnahagssamvinnu, sem komi í staðinn fyrir fríverzlunarsvæð- ið. Álcvörðunin var tekin á stjórnarfundi undir forsæti Gail- leffds. Einstök atriði hinnar nýju áætlunar eru ekki kunn, en hún verður lögð fyrir hin fimm ríkin, sem eru aðilar að sameiginlegum markaði Evrópu. Engin merki mæðiveiki i sauote i Skagafrirða MBL. átti í gær símtal við Ágúst Jónsson, bónda að Hofi í Vatns- dal, en hann var þá staddur á Hofsósi. Ágúst, sem er eftirlits- maður með mæðiveiki var á eft- irlitsferð í Skagafirði vegna þessa. Árið 1954 kom upp mæði- veiki ó einum bæ í Hjaltadal, og var þá skorið niður á tveim næstu oæjum þar til öryggis. Flóabáturinn Baldur úrskurSaður ósjófær STYKKISHÓLMI, 20. febr. — Enn er flóabáturinn Baldur kom- inn í fréttirnar, því nú hefur það gerzt, að Skipaeftirlitið hefur úr skurðað bátinn ósjófæran. Baldur hefur verið tekinn upp í slipp og á nú fram að fara ná- kvæm skoðun á bol skipsins. Hefur undanfarið stöðugt borið á leka í skipinu og ekki tekizt að fá það þétt aftur. Skipstj órinn segir að eftir að báturinn varð fyrir áfalli í desember við Malar rif, hafi hann alltaf lekið meira og minna. Ekki hefur enn verið gengið úr skugga um hve skemmdirnar á bátnum eru miklar, en með mikilli viðgerð, gæti svo farið að Baldur yrði í slipp allt að því 2 mánuði. Aðkallandi er fyrir Breiðafjarð arhafnir að fá bát til þess að ann- ast samgöngurnar við Reykjavik, því ónógar þykja ferðir „Skjald- breiðar", er hingað kemur hálfs mánaðarlega, en Baldur hefur far ið a.m.k. einu sinni í viku á milli Breiðafjarðarhafna og Reykjavík ur. —Árni. Árnesingafélagið heldur þorrablót LöBRÁ Árnesineamót Ár- HIÐ árlega Árnesingamót Ár nesingafélagsins í Reykjavík verður haldið n.k. laugardag. Hefst það með borðhaldi kl. 6,30 e.h. í Sjálfstæðishúsinu. Verður þar framreiddur ís- lenzkur þorrablótsmatur. Dag- skráratriði verða meðal annars: ávarpsorð formanrs félagsins, Hróbjarts Bjarnasonar, Björgvin Jónsson, alþingismaður flytur ræðu, Flúðakórinn i xngur undir stjórn Sigurðar Ágústssonar Birtingaholti og Karl Guðmunds son, leikari flytur gamanþátt. Að lokum verður dansað. Það hefur verið venja Árnes- ingafélagsins, að bjóða einum til tveimur heiðursgestum úr Árnes- þingi á árshátíðir sínar. Að þessu sinni eru heiðursgestirnir Eirík ur Jónsson, bóndi að Vorsabæ ; Skeiðum og Sigurjón Steinþórs- son, fyrrverandi bóndi að Ki'óki í Flóa. Von er á stórum hópi fólks heiman úr héraði. Ekki kvað Ágúst nein þess merki, að mæðiveiki værx í neinu fé á þessum slóðum. Taldi hann sennilegt að veikin væri búin að gera vart við sig á þess um tíma, ef hún hefði leynzt fé. Ágúst kvað mikið fannfergi Skagafirði. Skepnur eru þar all- ar á gjöf, nema hvað lítilsháttar jörð er af og til í Blönduhlíð og framan til í Skagafirði. í norðan verðum Skagafirði eru hvergi snöp. Bændur gefa fé öllu inni, en hrossum hefur verið gefið úti og einnig í húsi. Hann kvað menn þar vel birga aí heyjum. Vegir góSir sem stendur Vegir hafa verið mokaðir í Skagafirði síðustu daga, og geta nú bílar komist leiðar sinnar eins og er, viðast hvar í byggðarlag- inu. Ekki 1 millj. kr. heldur 1 millj. $ SKÝRT var frá því í blaðinu í gær, að bandarískur auð- og fjár- málamaður, A. S. Kilman, hefði boðið fram fé til byggingar gisti- húss hér í Reykjavík. Var sagt að Mr. Kilmar. hefði boðið fram 1 milljón króna. — Hér var um mjög alvarlega prentvillu að ræða hjá blaðinu, því Mr. Kil- man bauð að leggja fram hvorki meira né minna en 1 milljón Bandaríkjadala í þessu skyni eða um 16.000.000 króna samkvæmt skráðu bankagengi. PILTAR. EFÞIO EIGI0 UNNUSTONA ÞÁ Á ÉC NRINGANA / ER RÉTTA BÓNIÐ Hreinsar vel Skinandi gljái Heildsölubirgðir: Eqgerl Kristjánsson & Co. h.f. Skrifstofustúlka sem getur vélritað ensk bréf og unnið önnur skrifstofu- störf óskast sem fyrst til starfa hjá heildsölufyrirtæki. Umsóknir merktar: , 8699“, óskast lagðar á afgreiðslu Morgunblaðsins sem fyrst. LOKAÐ í dag frá kl. vegna jarðarfarar. Magnús Th. S. Blöndahl HF. Faðir og tengdafaðir okkar BJARNI JÓNSSON í Gerði, lézt að heimili sínu 20. þ. m. Jarðarförin auglýst síðar. Börn og tengdabörn. BJÖRN ARNDAL GUÐMUNDSSON frá Miðkoti, Sandgerði.er lézt af slysförum 15. þ. mán. verður jarðsunginn laugardaginn 22. þ. m. Húskveðja verður að Miðkoti kl. 2. Jarðað verður að Hvalsnesi. Aðstandendur. wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammm—^m^mmmm^mmmmmmmmmmmmm Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður SIGURÐAR PÉTURSSONAR verkstjóra, Margrét Björnsdóttir, Halldór Sigurðsson, Kristjana Kjartansdóttir, Helga Sigurðardóttir, Jón Björnsson, Eysteinn Sigurðsson, Kristín Guðmundsdóttir Tómas I*. Sigurðsson, Sigrún Sigurbergsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð við andlát SIGRÍÐAR P. SIGFÚSSON Friðrikka Sveinsdóttir, Guðjón Hjörleifsson, María Möller, Sigurður Sívertsen. Við þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför PÁLS ÁRNASONAR Jónas P. Árnason, Elísabet Magnúsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Jakob Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.