Morgunblaðið - 30.03.1958, Blaðsíða 2
MORGVNTiLAÐlh
Sunnudagur 30. marz 1958
Merkilegt kynningar-
starf Helgafells
Verðlaun í getraunasamkeppni barna um
ljóð Jónasar fiallgrímssonar
FYRIR alllöngu efndi Helgafell
til getrauna um ljóð Jónasar Hall
grímssonar og gaf jafnframt öll-
um unglingum á aldrinum 10—
14 ára ljóðasafnið, sem þess ósk-
uðu. Nokkur þúsund þörn fengu
Ijóðasafnið og mörg tóku þátt i
getrauninni sem lauk á afmæli
Jónasar í haust.
Nú hefir verið dregið um verð
launin og fengu eftirtalín börn
fimm hæstu verðlaunin, sem
voru Ritsafn Gunnars Gunnars-
sonar, Ritsafn Laxness, Ritsafn
Daviðs, ennfremur íslands þús-
und ár og fimmtu verðlaun voru
1000,00 í peningum. Auk þess fá
35 börn að velja sér eina Helga-
fellsbók í skinnbandi. Ennfrem-
ur fær einn þáttatkandinn Blóma
mynd Ásgríms fyrir skemmtilegt
bréf til forlagsins í sambandi við
getraunina og bókina, Ingveldur
Björnsdóttir, Kílakoti, Keldu-
hverfi, Norður-Þingeyjarsýslu.
Enginn svaraði spurningunum
alveg rétt, en samt sem áður
verða öll verðlaunin veitt og
hlutu þau þessir:
Dýrunn R. Steindórsdóttir,
Brautarlandi, Víðidal fær Rit-
safn Gunars Gunnarssonar.
Freygerður Sigríður Jónsdótt-
ir, Lyngholti, Bárðardal, Ritsafn
Laxness.
Pálmar Kristinsson, Hjaila-
nesi, Landsveit, Rangárvs. Rit
Davíðs Stefánssonar.
Björn Ingóifsson, Dai, Greni-
vík, Suður-Þing. ísland þúsund
ár.
Guðný Kristjánsdóttir, Háa-
gerði, Höfðahrepp, A.Hún. kr.
1000,00.
Það sem athygli vekur er, að
nærri hvert einasta barn telur
Gunnarshóima eitt af sínum upp
áhaldskvæðum. Næst koma Nú
andar suðrið, Skjaldbreið, Ferða
lok og Hulduljóð.
Bókamarkaöur
Helgafell hefir nú bókamark-
að í Listamannaskálanum. Út-
gáfubækur forlagsins eru nú
orðnar á annað þúsund og engin
tök á því lengur að sýna þær í
bókaverzlunum, nema aðeins frá
síðustu árum, en þær bækur eru
ekki í skálanum. Forlagið hefir
því tekið það til bragðs að inn
kalla allar bækur eftir tvö til
fjögur ár og setja þær á markað
vor og haust og selja með nokkr-
um afslætti. Svipað fyrirkomu-
lag tíðkast víða erlendis, og eru
slíkar útsölur þá um leið kynn-
ing þar sem fólk er minnt á þær
um leið og þær hverfa af mark-
aði. Um 900 bókategundir eru á
markaðnum, sérstaklega bækur
sem tilvaldar munu þykja til
fermingar- og jólagjafa. Munu
margir hafa notfært sér tæki-
færið í haust að velja sér úrvals
bækur til jólagjafa. Listaverka
prentanir Helgafells eru einnig
til sölu í skálanum innrammað-
ar. Meðal bóka sem munu verða
í síðasta sinn á markaði er hið
mikla verk er Gunnlaugur Claess
en gaf út fyrir forlagið „Bókin
um manninn" eftir D. Kahn, en
bók sama höfundar „Kynlífið“
hvarf með öllu á síðasta mark-
aði. Einnig eru myndaútgáfa for
lagsins á Heimskringlu, Vidalíns
postilla o. fl. úrvalsbókum að selj
ast upp.
Forlagið hefir prentað sérstaka
skrá yfir allar innkallaðar bæk-
ur og getur fólk fengið þær á
markaðnum.
Eitt hinna vinsælu skemmtiatriða í „Syngjandi páskum“. —
Atriðið nefnist „Pokatízkan“, og á myndinni sjást frá vinstri:
Guðmunda Elíasdóttir, Guðrún Á. Símonar, Sigurður Ólafsson,
Sigrurveíg Hjaltested og Þuríður Pálsdóttir.
Brandenhurgarkonsertar
Baehs verða fluttir hér
KAMMERMÚSIKKLÚBBURINN
hefur nýlega hafið annað starfs-
ár sitt og verða aðrir tónleikar
þessa árs á sunnudagskvöldið í
samkomusal Melaskólans.
Fjárhag fámenns félagsskapar
sem Kammermúsikklúbbsins hlýt
ur að vera skorinn þröngur
Sýning á verkum hollenzks listmálara
í DAG kl. 7 siðdegis Verður
opnuð í Sýningarskálanum við
Hverfisgötu sýning á verkum
listmálarans Antons Rooskens. Á
sýningunni eru 22 verk í vatns-
litum og oliulitum. Anton RosS-
kens er holenzkur og er einn af
þekktustu nútímalistmálurum
Anton Rooskens.
Náð í kindur í snjóbíl
inn í óbyggðir
þar í landi. Rooskens er 52 ára
áð aldri.
Rooskens mun ætla að heim-
sækja ísland næsta sumar, og
kemur hann hingað í boði dr.
H. C. Cassens sendiráðsfulltrúa,
sem verið hefir milligöngumað-
ur þeirrar sýningar á verkum
listmálarans, sem opnuð verður
í dag.
Bíl eldð á ís eftir
Höfðavatni
BÆ Höfðaströnd, 28. marz. —
Hér hefur undanfarna daga verið
gott veður, frostlaust. En snjó
hefur ekki tekið upp og velcjur
því að á hverri nóttu er mikill
gaddur 10—12 stig.
Bílfært má heita um allar
jarðir og er ekið á hjarni. í
gær var bil ekið eftir endilöngu
Höfðavatni, en þess eru fá dæmi
svo seint, undir marzlok.
Róðrar eru hafnir með net, en
aflinn hefur verið misjafn mjög.
SKRIÐUKLAUSTRI, 25. marz.
ENN er veðráttan fremur köld
og enginn vorblær. Frost er næt
ur og daga. Um fyrri helgi, dag-
ana 16.—18. marz gerði hér suð-
austan þýðviðri. Leysti hér tals
vert af láglendi og eru nesin hér
í Fljótsdal að mestu auð síðan,
nema svellalög í lægðum. Einn-
ig er talsvert autt upp í hlíðarn-
ar. Eru síðan nægir hagar alls
staðar hér í dal, þótt þrengra sé
um til dalanna. En þessi þýoa
gerði lítið að á Jökuldal og komu
aðeins smádílar upp, en þar var
víðast mjög haglítið eða hagiaust
fyrir. Fært er nú að nafni til á
jeppum úr Fljótsdal í Egilsstaði.
Afmæli
90 ÁRA verður á morgun, mánu-
dag, Hafliði Jónsson, Mýrarholti
við Nýlendugötu. — Hafiiði dvel-
ur nú að EUiheimilinu Grund við
Hringbraut,
Þriðudaginn 18. marz var ekið
á snjóbíl inn í Eyjarfell og kind-
urnar 4 sóttar. Þar var orðið
þröngt um haga, en svo mun þó
ekki hafa verið lengi. Kindurnar
voru: Fullorðin ær með hrút-
lamb frá Sauðhaga á Völlum, vet
urgömul ær, sem Rögnvaldur á
Víðisvöllum átti og hrútlamb frá
Buðlungavöllum í Skógum. Ærn-
ar voru því báðar lembdar og að
byrja að ræta undir þeim. Kind-
urnar voru vigtaðar daginn eítir
að þær komu. Fullorðna ærin
vóg 49 kg. og hrúturinn undan
henni 39.5 kg. Veturg. ærin 33
kg og hrúturinn frá Buðlunga
völlum 35 kg. Tófuslóða varð
vart þarna innfrá. Ferðin gekk
vel og var sæmilegt að aka alla
leiðina. Snjóbíllinn fór upp á
beiðina innan við Ormarsstaði i
Fellum. Nokkru áður lögðu 2
menn úr Fljótsdal á skiðum inn
eftir og ætluðu að sækja kind-
urnar, en hrepptu ófærð og
versta veður og snéru aftur heim.
— J. P.
09
fökur á Spáni
BARCELONA, 28. marz (Reuter)
— Spanska lögreglan handtók í
dag nokkra starfsmenn í bifreiða
iðnaði landsins fyrir þátttöku í
ólöglegu verkfalli og kröfugöngu.
Um þessar mundir gengur ein
mesta verkfallaalda yfir Spán,
sem um getur í sögu landsins. í
dag munu um 20 þúsund iðn-
verkamenn í Barcelona hafa lagt
niður vinnu, þeirra á meðal fjöldi
verkamanna úr vefnaðarverk-
smiðjum og úr bílaverksmiðju
Fiat í borginni.
í dag ætluðu þúsundir iðnverka
manna að fara í mótmælagöngu
um borgina til aðseturs stjórn-
valdanna. Tóku þeir upp þann
sið að krossleggja allir hand-
leggina til að sýna að þeir hefðu
lagt niður vinnu. Fremstir í
flokki voru starfsmenn úr Fiat-
bílaverksmiðjunum. Kröfugang-
an hafði ekki farið langa leið,
þegar lögreglulið stöðvaði hana
og dreiíði hópnum með kylfum.
MONTGOMERY, Alabama, 29.
marz. — 22 ára gamall svertingi
var tekinn af lífi í rafmagns-
stólnum hér í gær samkvæmt
dómsúrskurði. Hann var fundinn
sekur um að hafa nauðgað hvítri
konu.
stakkur. Viðfangsefni hafa ver-
ið mörg, en fjölbreytni þeirra
hefur að vissu marki takmarkast
af fjárhagsástæðum.
Nú hefur stjórn Músikksjóðs
Guðjóns Sigurðssonar veitt
Kammermúsikklúbbnum höfð-
inglegan styrk, svo að Kammer-
músikklúbburinn getur nú hugs-
að til flutnings stærri Kammer-
tónverka.
Hefur stjórn hans ákveðið að
ráðast í flutning allra Branden-
burgarkonserta Bach og hefst sá
flutningur með því að fluttir
verða tveir þeirra á tónleikum
Kammermúsikklúbbsins í haust.
Sumir teija Brandenburgarkons-
erta Bach einn helgasta dóm tón-
listarinnar, þótt ekki væru þeir
metnir sem skyldi á sínum tima.
Þeir eru sex að tölu, samdir
1718—1721 og tileinkaði Johann
Sebastian Bach þá Christian
Ludwig, markgreifa af Branden-
burg.
Guðjón heitinn Sigurðsson
haíði mikinn áhuga á Kammer-
tónlist. Styrkur úr sjóði hans
stuðlar að aukinni kynningu á
þeim hluta tónbókmenntanna,
sem flokkast undir það nafn.
Á tónleikunum á sunnudags-
kvöldið verða flutt Sonata fyrir
hnéfiðlu, og slaghörpu, op. 69,
eftir Beethoven og trio fyrir
fiðlu, hnéfiðlu og slaghörpu, op.
99, eftir Schubert. Flytjendur
verða Ingvar Jónasson, Jón
Norðdal og Einar Vigfússon.
Kammermúsikklúbburinn er
nú sem næst fullsetinn.
Beethoven
-tónleikar
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í
hátiðasalnum í dag, sunnudag 30.
marz kl. 5 e.h. Flutt verður af
hljómplötutækjum skólans 6.
sinfónía Beethovens, „Pastoral“
— eða sveitasinfónían. Dr. Páll
ísólfsson skýrir verkið. Öllum er
heimill ókeypis aðgangur.
Svaniir fékk
tunnur
AKRANES, 29. marz. — Vélbát-
urinn Svanur fór í gser út á
reknetjaveiðar. Lagði hann netin
suður í Miðnessjó og fékk 40 tunn.
ur síldar. Síldin var falleg. — O*
„Þorméður goði44
í reynsluferð
HINN nýi togari Bæjarútgerðar
Reykjavíkur „Þormóður goði“,
sem byggður hefur verið af
Aktien Gesellschaft „Weser“
Werk Seebeck, Bremerhaven,
fór í fyrri reynsluför sína föstu-
daginn 28. marz. Reyndist skipiS
í alla staði ágætlega, og komst
ganghraði þess upp í 14,6 sjó-
mílur.
Togarinn mun væntanlega
verða formlega afhentur eigend-
um miðvikudaginn 2. apríl.
^ KVIKMYNDIR +
//
Barnið og bryn-
drekinrí'
„ÞAÐ skeður margt á sjó", segir
máltækið og sannazt það vissu-
lega í þessari gamanmynd, sem
Tjarnarbíó sýnir um þessar mund
ir. Tveir sjóliðar á brezka orr-
ustuskipinu „Gillingham" fara I
land í Neapel til þess að hitta
þar vinkonu annars þeirra,
„Knocker“ White’s. Foreldrar
hennar eiga ekki minna en eina
tylft barna, og er það yngsta 6
mánaða sonur, bráðefnilegur. —.
Þeir félagar bjóða stúlkunni með
sér út, en hún kemst ekki nema
með því að taka litla bróður sinn.
með sér. — .Sjóliðar eru margir
í landi og fer svo að allt lendir
í áflogum og þau „Knocker"
White og stúlkan hans leggja á
flótta, en félagi „Knocker’s",
„Puncher" Robert, situr uppi með
snáðann. Hann sér ekki aðra leið
út úr vandanum en að fara með
krógann um borð í orrustuskipið.
Þegar hann vaknar morguninn
eftir, er skipið komið út í rúm-
sjó, en „Knocker" hefur orðið
eftir í landi. „Puncher" og félagar
hans um borð verða nú að flytja
snáðann úr einum felustað í ann
an, og sjá u mallar þarfir hans.
Kemur þá margt broslegt fyrir,
sem ekki verður rakið hér. — En
eitt er víst, að ef mikil brögð
væru að því að enski flotinn
hefði slíka gesti, sem litla dreng-
inn um borð hjá sér, þá myndi
flotinn vera gjörsamlega óvirkur.
Mynd þessi er bráðfyndin og
skemmtileg, enda leikur hinn
ágæti enski leikari, John Mills,
aðalhlutverkið afbragðsvel. — Þá
er gaman að sjá snáðann litla,
sem unir sér ágætlega og hjalar
og brosir hvernig sem með hann
er farið.
Ego.
Ferðolélog Islonds einir til
tveggio longferða um pósknna
Faiið verður að Hagavatni og í Þórsmörk
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
fyrstu ferðanna á þessu ári næst
komandi fimmtudag, sem er skír-
dagur. Verður þá farið í tvær
öræfaferðir, sem hvor um sig
mun taka fimm daga. Verður
lagt af stað frá Austurvelli kl. 7
á skírdagsmorgun í báðar ferðirn
ar og komið aftur að kvöldi
annars páskadags.
Að' Hagavatni
Önnur ferðin er að Hagavatni.
Ekki er fært á bílum nema að
Geysi, en þaðan verður gengið í
sæluhús félagsins við Hagavatn
og er það sex tíma ferð. í þessa
ferð verður að hafa skíði með-
ferðis. Ætlunin er að farið verði
á skíðum út á Langjökul, og við-
ar, ef veður leyfir.
Þórsmerkurferð
Hin ferðin er í Þórsmörk. Þeir,
sem vilja, geta haft með sér
skíði þangað, en ekki mun þó
vera mikið skíðafæri á þeim slóð
um. Vegir inn . Þórsmörk eru
góðir á þessum tíma. Vanir og
cruggir fararsTjórar verða í báð-
um þessum ferðum