Morgunblaðið - 07.06.1958, Page 2
2
Mnnrr’xnr 4fílÐ
T augardagur 7. J’úní 1958
Fylkir kominn aftur í tölu
íslenzkra togara
Ýmsar nýjungar eru þar um borð
NAFNIÐ Fylkir, sem féll út af
skipaskrá togaranna í nóvember
1956, hefur nú verið fært aftur
inn á þá skrá með einkennisstaf-
ina RE-171. — Nýi Fylkir, eign
hlutafélagsins Fylkis hér í Rvík,
sigldi inn á Reykjavíkurhöín
laust fyrir hádegí í gær. Er hinn
nýi togari, sem byggður er í Bret-
landi, hið glæsilegasta skip.
Hinn'kunni togaraskipstjóri og
síðar útgerðarmaður Aðalsteinn
heitinn Pálsson, stofnaði hluta-
félagið Fylki og keypti, er ný
sköpunartogararnir voru byggðir,
eldri Fylki, sem fórst á Halamið-
um í nóvembermánuði 1956, er
tundurdufl sprakk í vörpunni
undir skipinu. Aðalsteinn var þá
fallinn frá, en áður var orðinn
framkvæmdastjóri hlutafélagsins,
Sæmundur Auðunsson, skipstjóri,
einn kunnasti aflamaður togara-
flotans. Hóf félagið þegar í stað
eftirgrenslan um kaup á togara,
og varð það úr, að í febrúar
1957 fékk Fylkir hf. smíðasamn-
ing við Beverley skipasmíðastöð-
ina, sem smíðaði eldri Fylki, um
smíði á 176 feta togara, rúmlega
640 tonna. Hófst svo smíði tog-
arans í septembermánuði síðastl.
í gærdag bauð Sæmundur Auð-
unsson blaðamönnum að skoða
togarann en á skipsfjöl bauð
bróðir hans, Auðunn, gesti vel-
komna um borð í skipið.
Fylkir er dieseltogari, og var
ganghraði hans í reynsluför 14,2
mílur en vélin er 1400 hestafla.
A heimleið frá Hull var siglt með
11 mílna hraða, og var togarinn
3 sólarhringa og 15 klst. hingað
heim.
Auðunn Auðunsson skipsstjóri
taldi það einna helzt frásagnar-
vert um skipið, að vél þess væri
mjög sparneytin, eða færi með
2% tonn af svonefndri gasolíu á
sólarhring. Aðalvélin er þannig
byggð, að enginn gír er milli
hennar og skrúfunnar, eins og
var í gömlu gufutogurunum. —
Aðalvélin knýr rafal á siglingu,
sem er fyrir allt rafkerfi skips-
ins. Spilið, sem er rafknúið, er
rúmlega 300 hestafla og er fyrir
það sérstök vél.
Fylkir mun vera fyrsti togar-
inn hér í Reykjavík, sem er með
sjálfvirkt stýri, sem hægt er að
setja í samband í lengri sigling-
um og síðan þarf ekki að fást um
stefnuna og aðeins einn mann
þarf í brú til að vera á varð-
bergi. Getur sá án efa gripið í
stýrið ef eitthvað óvænt ber að
höndum og skyndilega þarf að
breyta stefnu skipsins.
Þá er Fylkir fyrsti togarinn,
þar sem aðeins einn björgunar-
bátur er á bátapalli. Hægt er að
setja hann hvoru megin, sem
vill og tekur aðeins 20 sek Hann
getur borið alla áhöfn skipsins,
— en auk hans eru á skip. iu
gúmmíbjörgunarbátar mjög burð
arþolsmiklir hver um sig.
Fylkir er fyrsti togarinn, sem
byggður er eftir stríð, þar sem
öll siglingatæki og loftskeytastöð
er að öllu leyti brezk smíði, en
hann er búinn öllum þeim örygg-
is- og fiskveiðitækjum, sem nú
tíðkast.
Auðunn skipstjóri skýrði frá
því, að togari þessi væri nokkuð
breiðari en tíðkast hefði um smíði
togara af þessari stærð. Væri
það m. a. af því, að eftir að sjó-
slysið mikla varð hér á árunum
út af Horni, er tveir brezkir tog-
arar — annar nýbyggður — fór-
ust, þá var talið að óstöðugleiki
skipanna hefði átt sinn þátt í
því hversu fór. Var þvi stöðug-
leiki togaranna aukinn, og er
Fylkir einn þeirra.
Þá sýndi Auðunn blaðamönn-
unum dálitla möppu, þar sem
gefnar eru nákvæmar upplýsing-
ar um það hvernig togarinn hag-
ar sér undir mismunandi hleðslu.
Sagið hann þetta vera nýmæli i
brezkum skipasmíðum, að láta
slíka möppu fylgja, til frekari
glöggvunar fyrir skipstjórnar-
menn, varðandi sjóhæfni skipsins
undir hinum ýmsu kringumstæð-
um.
Athylgisvert er hversu brúin á
Fylki er lítil, t. d. miðað við tog-
ara bæjarútgerðarinnar, Þormóð
goða. Sagði Auðunn að vegna
þessa þyrfti ekki að hafa hreyf-
anlegt stýri í brúnni, því auð-
veldlega sæist frá stýri, þegac
verið væri að toga. Þar er og mið-,
stöð hatalakerfis, sem er um allt
skipið og fram á þilfarið.
Hinir kunnu bræður, sem báð-
ir hafa víðtæka þekkingu á öllu,
sem lýtur að hæfni togara, og
um góðan frágang á öllu hand-
bragði, kváðust vera mjög ánægð
ir með hinn nýja togara, er kost-
aði kringum 260 þús. sterlings-
pund, sem er tæplega 12 milljónir
króna.
Þegar blaðamennirnir höfðu
óskað bræðrunum til hamingju
með skipið og voru að fara í
land, mættu þeir ýmsum gömlum
togaramönnum, t. d. kom þar
léttur í spori, Halldór skipstjóri
frá Háteigi Þorsteinsson. Nokkru
á eftir honum kom svo sjálfur
fjármálaráðherrann, Eysteinn
Jónsson, sem mun trúlega ákveða
að hve miklu leyti hin nýju
gjaldeyrisákvæði skuli taka til
byggingarkostnaðar þessa glæsi-
lega skips, sem senn mun halda
á karfaveiðar fyrir innanlands-
niaiKaUiarl.
AuouuoOiæOuriur. — Auðunn skipstjóri t. v. og btoimn.
framkvæmdastjóri
Samningar d frumstigi
EINS og frá var skýrt í Mbl.
sl. sunnudag, hafa 40 laun-
þegasamtök sagt upp samning-
um sínum við vinnuveitendur.
Sáttasemjari fjallar nú um
a. m. k. deilur verzlunar-
manna og prentara við vinnu-
veitendur. Mbl. reyndi í gær
að fá upplýsingar um, hvaða
félög önnur hefðu lagt fram
kröfur sínar. Munu þau ekki
vera mörg, en fréttir eru af
því, að járniðnaðarmenn, mál-
arar, iðnverkafólk, kjötiðnað-
armcnn og trésmiðir í Reykja-
vík hafi gert grein fyrir sín-
um kröfum, svo og verkafólk
á Siglufirði.
Soilíu Guðkugsdóttur minnzt —
Helgu Vultýsdóttir heiðruð
í GÆR voru liðin 60 ár frá fæð-
ingu frú Soffíu Guðlaugsdóttur
leikkonu, og af því tilefni efndi
Leikfélag Reykjavíkur til hátíð-
arsýningar á ítalska sjónlciknum
Nótt yfir Napólí. Sýningunni lauk
skömmu fyrir miðnætti og fékk
blaðið þá þær fréttir úr leikhús-
inu, að hinnar látnu leikkonu
hefði verið minnzt að leikslokum
m. a. með því að úthlutað var í
fyrsta skipti úr minningarsjóði
þeim, sem við hana er kenndur.
Hlaut frú Helga Valtýsdóttir
verðlaun fyrir „bezta leik ársins“
— túlkun sína á móðurinni í Gier
dýrunum eftir Xennessee Wiiii-
ams.
Macmillan
til Washington
LUNDÚNUM, 6. júní. — Á morg
un, laugardag, fer Macmillan í
heimsókn til Washingron. Þar
mun hann ræða við forsetann
ýmis vandamál, s. s. átökin í
Libanon og Alsírmálið.
Ovíst um stjórnar-
myndun í Belgíu
BRÚSSEL, 6. júní. — Baldvin Belgíukonungur fól í dag Auguste
De Schryver, fyrrum varaforsætisráðherra í stjórn kaþólskra, að
gera tilraun til stjórnarmyndunar. Gert er róð fyrir, að erfitt verði
að mynda nýja stjórn í landinu og þykir beiðni konungs nú sýna það
óþreifanlega. Áður var búizt við, að hann mundi snúa sér til ann-
ars leiðtoga kaþólskra, sem hefur verið forsætisráðherra.
Eftir kosningarnar hafa kaþ-
ólskir nauman meirihluta í efri
deildinni, en enginn flokkur hef-
ur hreinan meirihluta í neðri
| deildinni. Þar eru kaþólskir þó
I öflugasti flokkurinn.
Formælandi Frjálslynda flokks
ins, sem tapaði verulegu fylgi í
kosningunum, sagði í dag, að
flokkurinn vildi vera í stjórnar-
andstöðu „til að endurheimta eitt
hvað af fylgi sínu aftur“. En
hann bætti við, að flokkurinn
mundi ekki ráðast í blindni á
stjórnina, heldur dæma hana eft-
ir gerðum hennar. Hefur það þótt
ekki ómerkileg yfirlýsing.
Óvíst er um afstöðu jafnaðar-
manna, en sumir leiðtogar Kaþ-
ólska flókksins viija mynda
stjórn með þeim.
12 þingmenn í stofufan^elsi á Ceylon
Tungumálastríðið í algleymingi
COLOMBO, 6. júní. — Solomon’
Bandaranaike, forsætisráðherra
Ceylons ákvað í dag að láta til
skarar skríða gegn öllum þeim,
sem reynt hafa að efna til óeirða
vegna tungumáladeilna þeirra,
sem áður hefur verið skýrt frá
í fréttum. Málið er svo vaxið, að
Tamilar, um 9 milljónir að tölu,
krefjast þess, að mál þeirra verði
jafnrétthátt máli Sinhale, sem
hefur verið hið opinbera mál á
eyjunni, enda móðurmál meiri-
hluta eyjarskeggja, _ sem eru
Búddatrúarmenn. — í dag ákvað
stjórnin að láta handtaka 12 þing
menn Tamila og setja þá í stofu-
fangelsi. Eru þeir allir í Sam-
bandsflokknum, sem var bannað-
ur hinn 27. maí sl., eða eftir
blóðuga bardaga víðs vegar um
landið milli Sinhalesa og Tamíls.
Undanfarin tvö ár hefur Sam-
bandsflokkurinn barizt fyrir þvi,
að mál Tamila njóti sömu rétt-
inda og hið opinbera tungumál
Búddatrúarmanna.
Okeypis kvik-
myndasýning
Á VEGUM Sambands bruna-
tiykíijenda á íslandi veröa sýnd-
ar þrjár merkar eldvarnamyndir
kl. 3 e.h. í dag í Tjarnabíói og
er aðgangur ókeypis. Auk þess
verður sýnd ný kvikmynd um
lífgun úr dauðadái. Eldvarna-
myndirnar eru jafnt fyrir heim-
ili og vinnustaði og veita glögg-
ar upplýsingar um orsakir elds-
voða og hvernig fólk á að bregða
við ef eldsvoða ber að höndum.
— Færeyjar
Framh. af bls. 1
um samkvæmt bráðabirgðasamn-
ingi 22. apríl 1955, og verður því
fiskveiðitakmörkin samkvæmt
því færð út í 12 sjóm. sama dag
og íslendingar breyta sínum tak-
mörkum.
Álytkunartillaga jafnaðar-
manna var þess efnis, að fisk-
veiðitakmörkin verði færð út í
12 sjóm. hinn 1. jan. 1959.
Ályktunartillaga frá Þjóðveld-
isflokknum var á þá lund, að
Færeyingar lýsi fiskimiðin um-
hverfis eyjarnar sína eign. Lands-
stjórnin birti tilskipun, sem á-
kveði 16 sjóm. fiskveiðitakmörk.
Fiskveiðar innan þeirra takmarka
skuli háðar lögsögu og eftirliti.
Útfærslan gangi í gildi 1. sept.
1958.
í NTB-skeyti í gærkvöldi sagði,
að lögþingið hefði kosið sérstaka
nefnd til að fjalla um málið og
verður henni falið að semja til-
lögur , sem allt þingið getur sam-
einast um. Átti nefndin að starfa
í nótt og reyna að ná samkomu-
lagi. Atkvæðagreiðsla fer svo
endanlega fram í dag, laugardag.
★ • ★
Seinustu fréttir hermdu,
að lögþingið hefði sam-
þykkt að færa landhelgina
út í 12 sjómílur. Innan
þeirra takmarka verði eng-
ar botnvörupveiðar leyfð-
ar. Þjóðveldisflokkurinn
var einn á móti, en hann
hafði krafizt 16 mílna
landhelgi.