Morgunblaðið - 07.06.1958, Page 16

Morgunblaðið - 07.06.1958, Page 16
V EÐRIÐ A stinningskaldi, en úrkomulaust að mestu. 126. tbl. — Laugardagur 7. júní 1958 Um Skagafjarðardali • Sjá grein á bls. 9. Flokksráð- og for- mannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins ÍKVEÐIÐ hefir verið að boða flokksráð Sjálfstæðisflokks- ins og formenn allra Sjálfstæðisfélaga til fundai í Beykja- vík dagana 5.—6. júlí n. k. Auk skipulagsmála flokksins verður á ráðstefnu þessari rætt um ástand og horfur í þjóðmálum og afstöðu flokksins til hinna helztu vandamála. Svo sem áður hefir verið tilkynnt, var áformað að halda landsfund á þessu vori, en vegna erfiðs árferðis víða í sveit- um landsins hefir verið frá því horfið. Hœkkun á leigugjaldi fyrir vörubifreiSar Ásgeir Ásgeirsson forseti ávarpar kennaraþingið. Til vinstri er Gunnar Guðmundsson formaður Sambands ísl. barnakennara. 75. þing Sambands barna kennara sett í gœr HINN 4. þ.m. birti Landssam- band vörubifreiðastjóra nýja skrá yfir lcigugjald fyrir vöru- bifreiðar Er þar um að ræða all- mikla hækkun á töxtum, allt frá 25% fyrir minnstu bifreiðarnar (214 tonns), en gjaldið fyrir þær er nú orðið kr. 74,39 á klst. í dag- vinnu. Mbl. sneri sér í gær til Guð- mundar Kristmundssonar, skrif- stofustjóra Þróttar, og fékk hjá honum upplýsingar um þessa hækkun. Hann sagði, að skv. samningum bifreiðastjóranna við vinnuveitendur mætti breyta taxta, ef rekstrarkostnaður bif- reiðanna breytist um 10% eða meira. Taxtar voru ákveðnir 5. marz 1956, og snemma á þessu ári hafði orðið siík hækkun á rekstrarkostnaði, að taxtabreyt- ing var heimil. Hún kom þó ekki til fyrr en 4. júní, en þá hafði rekstrarkostnaðurinn hækkað alls um rúmlega 35% frá 1956, og er þá gert ráð fyrir hækk- Hæslu vinningar hjá SÍBS NR. 53489 fékk hæsta vinninginn í Vöruhappdrætti SÍBS. — í gær var dregið í 6. flokki Vöruhapp- drættis SÍBS. Dregið var um 350 vinninga að fjárhæð 460 þús. kr. Eftirtalin númer hlutu hæstu vinningana: 100 þús. kr.: Númer 53489, um- boð Austurstræti 9. 50 þús. kr.: Númer 45761, umb. Eskifirði. 10 þús. kr.: Númer 146 8736 17584 42067 43390 48900 50211 57694. 5 þús. kr.: Númer 2674 8247 11697 19055 19621 23510 31460 39488 55981 63406. (Birt án ábyrgðar) Nám í húsagerðar- list LISTAHÁ'SKÓLINN í Kaup- mannahöfn hefur fallizt á að taka við einum íslendingi árlega til náms í húsagerðarhst við skól- snn, enda íullnægi hann kröfum skólans um undirbúningsnám og standist inntökupróf í skólann, en slík próf hefjast venjulega í byrjun ágústmánaðar. Umsóknir um námsvist í skól- anum sendist ráðuneytinu fyrir 23. júní 1958. Umsóknareyðu- blöð fást í ráðuneytinu, og þar v«rða jafnaframt veittar upplýs- ingar um inntökuskilyrði í skól- ann. (Frá menntamálaráðuneytinu). unum af völdum hinnar nýju ef nahagsmálalögg j af ar. Af ökugjaldinu nú er kr. 21,21 kaup bílstjórans (var kr. 19,10 árið 1956). Hitt er kostnaður við bílinn. Helmingur þess kostn- aðar er benzín, sem hefur hækk- að um 39%, þá koma og til vara- hlutir (hækkun 27%), viðgerðir (hækkun 12%), olíur (40%), hjólbarðar (37,8%) o. fl. AÐALFUNDUR Mjölnis, félags Sjálfstæðismanna á Keflavíkur- flugvelli var haldinn í Sjálfstæð- ishúsinu í Keflavík í fyrrakvöld. Formaður félagsins, Bogi Þor- steinsson, flutti skýrslu um starf- semi félagsins á árinu, sem var bæði mikil og fjölþætt. Þá las gjaldkerinn, Guðmundur Gunn- laugsson, upp reikningana og skýrði þá og voru þeir sam- þykktir samhljóða. í stjórn félagsins voru kjörnir: Bogi Þorsteinsson, form og með- stjórnendur: Jósafat Arngríms- son, Þorgrímur Halldórsson, Kon- ráð Axelsson og Haildór Jósefs- son. Til vara: Þórður Halldórs- son og Harald Faaberg. Endur- skoðendur: Guðmundur Gunn- laugsson og Stefán Guðjohnsen. Miklar umræður urðu um fé- lagsmál og stjórnmálaástandið og tóku eftirtaldir félagsmenn til máls: Bogi Þorsteinsson, Jósafat Arngrímsson, Þórður Halldórs- son, Þorgrímur Halldórsson, Guð- Togari með skipti- skríifu í Reykjavík í GÆR var hér í Reykjavíkur- höfn stór nýtízku togari frá Bremerhaven, sem „Saturn" heit- ir, 700—800 lesta skip. Er þetta nýlegur togari sem nú mun vera í sjöttu veiðiför á djúpmiðum. Það sem merkilegast er við þenn an mikla togara er, að á honum er svokölluð skiptiskrúfa. Mun hann vera fyrsti togarinn með „gamla laginu“ er hingað kemur og búinn er slíkri skrúfu. Geta má þess að dráttarbáturinn Magni er með skiptiskrúfu. Þessi skrúfuútbúnaður gerir það að verkum, að ekki þarf neinn vél- síma úr brúnni niður í vélarúm. Skipstjórinn getur með einföld- um útbúnaði í brúnni stjórnað vélinni eftir því sem með þarf hvort heldur er á siglingu eða þegar verið er að toga, og sigla þarf áfram eða aftur á bak. 3 dagar eftir SJÁLFSTÆÐISMENN eru minnt ir á, að nú eru aðeins 3 dagar, þar til dregið verður í happdrætti Sjálfstæðisflokksins. Skrifstofan í Sjálfstæðishúsinu verður opin til kl. 6 í dag og á morgun er hún opin kl. 2 til 6. Síminn þar er 1-71-04. Andvirði miða er sótt til þeirra, sem þess óska. Munið, að gera skil strax í dag. Hver vill missa af glæsilegri bif- reið, sem í boði er — ef heppn- in er með? Ríkið vill ekki selja Engey Á FUNDI bæjarráðs Reykjavíkur í fyrradag var lagt fram bréf frá atvinnumálaráðuneytinu, þar sem skýrt er frá því, að ráðuneyt ið telji eigi unnt að selja bænum Engey nema í makaskiptum fyrir Korpúlfsstaði. Upphaf þessa máls hefur áður verið rakið í Mbl. Bærinn fór þess á leit, að fá Engey keypta vegna fyrirhugaðrar stækkunar Reykja víkurhafnar. Ríkið er eigandi eyj arinnar og kvaðst atvinnumála- ráðuneytið vilja láta eyna í maka skiptum fyrir Korpúlfsstaði. Ekki vildu forráðamenn Reykjavíkur á það fallast, en föluðu eyna enn til kaups. Barst þá svar það, sem að framan er frá skýrt. mundur Gunnlaugsson, Konráð Axelsson og Þorvaldur Stephen- sen. Að síðustu talaði Gunnar Helgason, erindreki og rakti gang helztu þjóðmála frá því núver- andi ríkisstjórn tók við völdum. Mikill áhugi ríkti á fundinum fyrir því, að efla samtökin og vinna að útbreiðslu Sjálfstæðis- stefnunnar í landinu. ÁRBÆJARSAFN verður opnað í dag, laugardaginn 7 júní, kl. 2, og verður opið á hverjum degi í sumar á tímanum kl. 2—6, nema mánudaga. Síðastliðið haust var safnið opnað í fyrsta sinn og var þá mikil aðsókn að því þann stutta tíma, sem það var opið. Nú hafa safninu borizt margar nýjar og góðar gjafir, þar á meðal ýmis áhöld og tæki handiðnaðarmanna frá fyrri tíð, stærst þeirra frá Bech-systkinunum á Vesturgötu, sem gáfu skipasmíðaáhöld föður síns, Símonar Bech, skipasmiðs. Þá gaf Eggert Guðmundsson, list- málari, mjög skemmtilegt safn áhalda og sýnishorna úr horni og tönn af spóna- og baukasmíði föður síns, Guðmundar Guð- mundssonar, trésmiðs. Hefur sýn- ingarskála verið slegið upp i gamla hesthúsinu í Árbæ og safni handiðnaðarmuna komið Norskur úfvarpsþátfur um Bjarna M. Gíslason MÁNUDAGINN 9. júní nk. kl. 17,00 eftir norskum tíma verður fluttur dagskrárliður um Bjarna M. Gíslason, rithöfund, í norska ríkisútvarpinu. Dagskrárliður þessi er undir- búinn af Fridtjov Sörbö, sem ræðir um störf Bjarna, en leik- konan Else Frogner les nokkur ljóð hans úr ljóðasafninu: „Stene pá stranden“ (Frá utanríkisráðu- neytinu' 15. FULLTRÚAÞING Sambands íslenzkra barnakennara var selt í Melaskólanum kl. 10 í gærmorg un að viðstöddum forseta íslands. Einnig voru viðstaddir setningu þingsins, menntamálaráðherra, borgarstjóri og fjöldi annarra manna, sem starfa að fræðslu- málum. Formaður Sambandsins, Gunnar Guðmundsson, setti þingið, en því næst flutti forseti íslands ávarp. Þá flutti mennta- málaráðherra ræðu og minntist einkum 50 ára afmælis fræðslu- laganna, en Frímann Jónasson, skólastjóri, flutti 100 ára minn- ingu um séra Magnús Helgason, fyrsta skólastjóra kennaraskól- ans. Lúðrasveit drengja aðstoðaði við setningarathöfnina, sem stóð fram undir hádegi. Fundur hófst aftur kl. 1 e.h. Þá var kosið í nefndir og kosnir starfsmenn þingsins. Stjórnin flutti skýrslu sína, reikningar Sambandsins voru lesnir upp og samþykktir, en Jón Emil Guð- jónsson flutti erindi um ríkisút- gáfu námsbóka. þar fyrir, m. a. beykisáhöld, stein smíðatæki og loks prentvél Isa- foldar frá 1879, sem Vilhjálmur Svan Jóhannsson, prentsmíðju- stjóri, gaf safninu, og nú sett upp að nýju. Nokkur viðgerð hefur farið fram á bæjarhúsunum, austur- þilin endurreist og timburklædd og afþiljað hjónahús í austur- enda baðstofunnar. Þetta her- bergi verður helgað minningunni um síðustu ábúendur Árbæjar og hefur frú Guðrún Eyleifsdóttir gefið safninu góða mynd af móð- ur sinni, Margréti Pétursdóttur, sem var húsrnóðir í Árbæ rúma hálfa öld. íslenzk tónlist flutt í sænskri kirkju HINN 8. maí sl. flutti Gunnar Thyrestam, organleikari og tón- skáld, íslenzka tónlist í Kirkju heilagrar þrenningar í Gávle í Svíþjóð. Lék hann orgelmúsík eftir Jón Leifs, Hallgrím Helga- son, Steingrím Sigfússon o. fl„ aðallega úr Farsælda Frón, safni íslenzkra laga, sem dr. Hallgrím- ur Helgason tók saman og útgáfu félagið Gígjan gaf út. Þetta voru hádegistónleikar og stóðu frá kl. 12—13, en margir notuðu matar- hlé sitt til að setjast inn í kirkj- una og hlýða á orgelleikinn. Aðr- ir áheyrendur voru aðallega ferða menn. — Karl. Nýlega hefur stjórn Sambands- ins fest kaup á húsnæði í Þing- holtsstræti . 30 fyrir starfsemi sína. í kvöld eru fulltrúar boðn- ir til kvöldverðar hjá mennta- málaráðherra. Guðmundur Gissurarson látinn HAFNARFIRÐI — í fyrrinótt lézt í Landsspítalanum Guð- mundur Gissurarson, forseti bæj arstjórnar Hafnarfjarðar. Var hann fluttur þangað kvöldið áð- ur. Guðmundur, sem var 56 úra að aldri, lætur eftir sig konu og tvær dætur. Banamein hans var kransæðastífla. Bíll tekinn úr um- f erð eftir slys í FYRRAKVÖLD var slys á Amt mannsstígnum. Sjö ára telpa á reiðhjóli varð fyrir bíl með þeim afleiðingum að hún handleggs- brotnaði. Bíllinn hafði komið upp Amt- mannsstíginn, en telpan á stíg- inn úr Skólastræti, Rannsóknar- lögreglumaður fór þegar í stað- inn til að kanna málið. Við at- hugun á ástandj bílsins, kom í ljós, að hann var allur í megnasta ólagi, og var tekinn úr umferð samstundis. Sá, sem bílnum ók, hafði fyrir skömmu tekið próf og var búinn að festa sér bílinn í því skyni að kaupa hann og gera hann upp. Rannsóknarlögr^glan skýrði blað inu frá því í gær, að kunnugt væri um að ungir menn með „bíladellu" réðust oft í kaup á gömlum bílum. sem væru orðnir úr sér gengnir og gætu beinlínis verið hættulegir í umferðinoi, eins og kom í ljós í þessu til- felli. Ættu menn ekki að hætta á að aka bílunum fyrr en viö- gerð væri lokið, og þaö tryggt þeir séu í lagi. Heimdellingar KOMIÐ til starfa í Sjálfstæðis- húsið kl. 2 í dag. Þeir, sem geta lánað bíla, eru vinsamlega beðn- ir að koma á sama tíma. — Nú eru aðeins 3 dagar, þar til dregið verður í happdrættinu. Munið, að allir miðar eiga að seljast. Bogi Þorsteinsson, endur- kjörinn formaBur Mjölnis Árbœjarsafn opnað að nýju í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.