Morgunblaðið - 16.09.1958, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 16.09.1958, Qupperneq 3
Þriðjudagur 16. sept. 1958 MORGVNBL 4ÐIÐ 3 w '• 'w '•vw'nn«miJ»nn<ww"W«'' ' ' ' ' • '• . Bmm Coventry City og Albert mætast út af Vestfjörðum. Vegna ofureflis Breta verður lítið gert nema trufla landhelgis- brjótana Samtal við Jón Jónsson skipherra d Albert VARÐSKIPIÐ Albert kom til Reykjavíkur rétt fyrir helgina. Fréttamaður Mbl. fór um borð, hitti Jón Jónsson skipherra og spurði hann, hvað helzt hefði á dagana drifið síðan 1. sept., þeg- ar landhelgisbaráttan hófst. — Við sigldum út frá Reykja- vík þann 30. ágúst. Fórum við fyrst suður fyrir land. Var það ætlunin í fyrstu að við hefðum varðstöðu nálægt Vestmannaeyj- um. Þar gætum við verið mitt á milli, svo að styttra yrði að sigla, hvort sem við færum til Vesturlands eða Austurlands. Það var ekki hægt að spá fyrir- fram um það, hvert landhelgis- brjótar myndu helzt sækja, enda ekki um neinar sérstakar fiski- göngur að ræða á þessum tíma. — Hvort' siglduð þið svo aust- ur eða vestur? — Það bárust fregnir af því, að Bretar hygðust rjúfa landhelg- ina undir herskipavernd, á þrem- ur stöðum, tveimur stöðum við Vestfirði og einum fyrir austan land. Svo við sigldum vestur fyrir og að morgni þess 1. sept. vorum við undan Kópanesi. Jón Jónsson skipherra — Þið hafið þá strax komizt í tæri við landhelgisbrjótana? — Já, þarna voru 9 togarar að veiðum innan landhelgi. Sigldum við þegar að einum þeirra. Það var togarinn Coventry City. Við drógum upp stöðvunarmerki. Það bar ekki árangur. Þá morsuðum við til hans að stöðva en hann anzaði því ekki. Þá sigldum við upp að hliðinni á honum og köll- uðum til hans í sterkum hátal- ara, að hann væri staðinn að olöglegum veiðum, og skip- uðum við honum að nema stað- ar. Enn svaraði hann engu. Við spurðum þá, hvort skipstjórinn hefði skilið okkur. Hann kvaðst hafa skilið það, en hélt samt sem áður áfram að toga. Við venjulegar aðstæður hefð- um við að sjálfsögðu getað feng- ið togarann til að nema staðar, því að varðskip okkar eru vopn- uð til þess. En hér kom annað til sögunnar. Strax og við nálg- uðumst togarann, kom brezka eftirlitsskipið HMS Russel á vettvang með mannaðar fallbyss- ur. Við heyrðum í útvarpi, að Resselsmenn stöppuðu stálinu í togaramennina, hvöttu þá m. a. til að veita okkur mótspyrnu, ef við reyndum að stíga um borð. Gegn þessu ofurefli þýddi okkur ekkert að reyna að taka togar- ann. Eftir þetta fylgdi Russel okkur eftir eins óg skuggi. — Gerðuð þið ykkur þá nokkra von um að geta tekið landhelgis- brjót? — Ef við hefðum reynt veru- lega til þess, hefðum við getað komizt um borð, en hins vegar virtist ljóst af Northern Foam atvikinu, að það leiddi aðeins til þess, að herskipið hertæki okkar menn. Þegar um þessi mál er talað, verða menn að gera sér það ljóst, hve mikla yfirburði Bretarnir höfðu í skipum og mannafla. Hugsið ykkur t. d. að eftirlitsskipið Russel getur siglt um 15 sjómílum hraðar á klst. en Albert. Og þegar einn brezki togarinn bilaði fyrir vestan, þá settu þeir bara um borð svolítinn herflokk, vopnaðan kylfum og stálhjálmum og þar með varð sá togari okkur óvinnanleg borg. — Það hafði því enga þýðingu Málverkasýning í Firðimim HAFNARFIRÐI — Eins og getið var um hér í blaðinu fyrir helgi, var opnuð málverkasýning á laugardaginn í nýja bókasafns- húsinu eða nánar tiltekið í húsa- kynnum Iðnskólans, sem eru á efri hæðinni. Er henni komið þar fyrir í þremur rúmgóðum stof- um, en einnig sýnir Húsgagna- verzlun Austurbæjar (Rvík), ný- tízku húsgögn og blómaverzlun- in Sóley hefir séð um blóma- skreytingar. Á þessari íýningu, sem opin verður til n. k. laugardagskvölds, sýna 10 þekktir listamenn úr Reykjavík og héðan úr bæ mál- verk, olíu. og vatnslitamyndir, teikningar og pastellmyndir. Opnaði Sigurgeir Guðmundsson skólastjóri Iðnskólans sýninguna og gat þess m. a., að hún væri sú stærsta, sem haldin hefir ver- ið hér í Hafnarfirði. Er hún opin kl. 2—11 e. h. dag hvern og er jafnframt sölusýning. —G. E. fyrir okkur, að taka ofan af okk- ar fallbyssu, hvað þá meira, hélt Jón Jónsson skipherra áfram. — Við tókum því upp aðr- ar aðferðir, sem voru í því fólgn- ar, að trufla togarana við veiðarn ar, láta þá aldrei hafa neinn stundlegan frið. Við sigldum frá einum þeirra til annars og létum sem við ætluðum að ráðast til uppgöngu á þá. í hvert skipti, sem við nálguðumst var öll á- höfnin „ræst“, hvort sem það var að degi til eða nóttu. Þetta trufl- aði svefnfrið skipverjanna og var þeim því meinilla við þetta. — Hvað haldið þér um afla Bretanna innan landhelgi? — Hann var sáralítill, stund- um bókstaflega enginn. Við sá- um, að oft þegar þeir tóku vörp- una inn, komu úr henni 4—6 körfur af fiski. — Var hvert skip nema 3 daga í landhelgi? — Ég heyrði fréttir þess efnis, að hver togari væri aðeins þrjá daga innan við línu Það held ég' að sé ekki rétt. Eins og eg sagði voru 9 togarar innan við línu, þegar við komum á þessar slóðir þann 1. sept. Þeir héldu allir áfram veiðunum innan landhelg- islínu nú fram á síðustu daga. Þeir fóru stundum til veiða dá- lítið út fyrir, eftir því sem þeim bezt hentaði. I>eir færðu sig líka dálítið meðfram ströndinni. Fyrstu tvo dagana voru þeir við Kópanes. Síðan færðu. þeir sig suður að Látrabjargi. Voru þar einnig í tvo daga og færðu sig svo aftur norður á bóginn, þar til þeir voru út af önundarfirði. — Ætla Bretar að halda áfram landhelgisbrotum sínum? — Ekki er annað sýnilegt — og herskipaverndin heldur á fram. Eii að lokum hljóta þeir þó að reka sig á þá staðreynd, að skipin geta ekki haldið áfram að fiska á vetrardegi, þegar frost og hríðar fara að skella yfir. Þá neyðast þeir til að leita land- vars. — Vilduð þið skipstjórarnir í landhelgisgæzlunni ekki fá betri og hraðskreiðari skip? — Það er víst, að litlu bátarn- ir þrír eru alltof litlir til að vera í gæzlunni. Að sjálfsögðu er úti- lokað að við getum nokkurn tíma þreytt kapp við brezka her- skipaflotann, en við erum illa út- búnir að skipum til að verja 12 mílna landhelgi, jafnvel þótt við ættum við togarana eina að etja. Jón Jónsson skipherra hefur lengi starfað hjá Landhelgisgæzl- unni. Hann byrjaði feril sinn þar sem 13 ára hjálparkokkur á gamla Þór árið 1922. Var þar m. a. þegar Islendingar gerðu fyrstu tilraun sína til að taka brezkan landhelgisbrjót, en var svarað með kolakasti. Gerðist sá atburður út af Aðalvík, ekki ýkjalangt frá þeim slóðum, þar sem hann var nú að erta brezka landhelgisbrjóta. Hann hefur verið skipherra hjá Landhelgis- gæzlunni síðan 1947. Einsöngvarar og stjórnandi Carmen frá í vor. — Frá vinstri: Stefán íslandi, Gloría Lane, W. Briickner-Riiggeberg, Þuríður Pálsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Ingibjörg Steingrímsdóttir, Guð- munda Elíasdóttir og Guðmundur Jónsson. Sitjandi: Kristinn Hallsson og Árni Jónsson. Sýningar hefjast að nýju á óperunni Carmen Fyrsta sýning á fimmfudagskvöldið í Austurbœjarbíói 1 ÞESSARI viku hefur Sinfóníu hljómsveit íslands aftur sýningar á óperunni Carmen, en eins og menn minnast var óperan flutt sex sinnum í vor fyrir fullu húsi og komust færri að en vildu. Verður óperan flutt í fyrsta skipti í Austurbæjarbíói kl. 9,15 á fimmtudagskvöldið kemur. Að því er Jón Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitarinhar, skýrði frétta- mönnum frá í gær, verða söng- kraftar nú þeir sömu og í vor að því undanskildu, að Ludmilla Schirmer, frá Hamborgaróper- unni syngur hlutverkið, sem frú Guðmunda Elíasdóttir fór með í vor, en frú Guðmunda dvelst er- lendis um þessar mundir. Hljóm- sveitarstjóri er eins og áður Wil- helm Brúckner-Ruggeberg, fyrsti hljómsveitarstjóri við ríkisóper- una í Hamborg. Ennfremur kem- ur Gloria Lane, óperusöngkona frá New York hingað öðru sinni og fer með hlutverk Carmen. Stefán íslandi fer með hlutverk Don José, en aðrir flytjendur eru frú Þuríður Pálsdóttir, Jón Sig- urbjörnsson, Kristinn Hallsson, Árni Jónsson, Ingibjörg Stein- grímsdóttir og Guðmundur Jóns- son. Þjóðleikhúskórinn aðstoðar við flutning óperunnar. STAK8TEIMAR „Eins vel og raun ber vitni“ Tíminn segir s. 1. sunnudag tftn Hermann Jónasson og einingiuna, sem honum hafi tekizt að skapa innan stjórnarinnar um land- helgismálið: „Þess vegna hefur honum tek- izt eins vel og raun ber vitni um, að sameina mismunandi sjónar- mið, er gætt hefur í landhelgis- málinu að undanförnu". Þetta segir Tíminn daginn eft- ir, að Lúðvík Jósefsson hótaði því í Þjóðviljanum að elta Guð- mund f. til New York í forboði hans, og sama dag, sem Þjóðvilj- inn birtir forystugrein, sem nefn ist: „Hefur ekkert Iært*‘ Þar segir m.a.: „Guðmundur f. Guðmundsson utanríkisráðherra hefur ekkert lært og engu gleymt. f allt sumar stóð hann og sendlar hans í samn- ingamakki við Breta og Atlants- hafsbandalagið á bak við þjóðina, án nokkurrar heimildar frá rík- isstjórn eða Alþingi. Erlend blöð voru alltaf barmafull af fréttum um það að Guðmundur f. Guð- mundsson utanríkisráðherra vildi semja um landsréttindi og lífs- hagsmuni íslendinga. — — — Það er engum efa bundið að þessi óhreinlynda framkoma utanríkis- ráðherra hefiur bakað íslending- um mjög mikið tjón; árás Breta á ísland getur ekki helgazt af neinu öðru en því, að brezka stjórnin hafi talið að hér væru veikir hlekkir sem myndu bila andspænis vopnavaldinu. Og brezku blöðin sögðu öll að Guð- mundur f. Guðmundsson, sjálfur utanríkisráðherra fslands, væri veikasti hlekkurinn". „Erfitt með að skilja heil og hrein vinnubrögð“ Síðan segir Þjóðviljinn: „Maður hefði mátt ætla að Guð mundur í. Guðmundsson hefði gert sér grein fyrir þáttaskilun- i um sem urðu 1. september, að hann skildi að nú voru tímar óhreinlyndisins endanlega liðnir, — — — og sem utanríkisráð- herra átti hann að skilja það, að einmitt á vettvangi Samein- uðu þjóðanna var mikilvægt að eining og óbilandi festa þjóðar- innar birtist á sem afdráttarlaus- astan hátt. En utanríkisráðherra virðist eiga ákaflega erfitt með að skilja heil og hrein viðbrögð. Þeg ar ljóst var að hann ætlaði að halda pukurstefnu sinni áfram á þingi Sameinuðu þjóðanna, Iagði Alþýðubandalagið til að sá hátt- ur skyldi hafður á þátttöku fs- Iands að hver af þingflokkun- um íslenzku tilnefndi einn mann í sendinefndina, til þess að aug- lýsa--------að það væri enginn veikur hlekkur til meðal fslend- inga. En svo heil og hrein fram- koma var gersamlega andstæð eðli Guðmundar f. Guðmunds- sonar utanríkisráðherra.---— Með þessari þröngu og skamm- sýnu afstöðu hefur Guðmundur f. Guðmundsson spillt dýrmætu j tækifæri til þess að sýna öllum i heimi óbilandi samheldni og ein- hug íslenzku þjóðarinnar og treysta samstöðuna hér innan- lands“. „Enga heimild“ f síðustu málsgrein forystu- greinarinnar fær Guðmundur svo þessa áminningu: | „Á hitt ber svo að leggja meg- ináherzlu að Guðmiundur f. Guð- mundsson hefur enga aðstöðu né heimild til þess að f jalla um land- helgismál fslands sérstaklega á i þingi Sameinuðu þjóðanna".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.