Morgunblaðið - 16.09.1958, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.09.1958, Qupperneq 8
8 MORCTJTSTtLAÐÍÐ Þriðjudagur 16. sept. 1958 1 Ný ágœt kjallaraíbúð (2 herbergi og eldhús) til leigu. Aðeins barnlaus, reglu- söm hjón um fimmtugt koma til greina. Aðstoð við garð- hirðingu og þ.h. æskileg. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir annað kvöld merkt: Sanngjarnt — 7642. Atvinna óskast Ungur maður sem hefur verzlunarskólapróf, og hefur verið við nám í Englandi og Þýzkalandi, óskar eftir góðri atvinnu stax. Tilboð mekt: „Viðskipti — 7630“, sendist afgr. Morgunbl. fyrir miðvikudagskvöld. Kona óskast í eldhúsið og afgreiðslustúlka óskast á sama stað. IViatbarinn Lækjargötu 6. AÐALFUIMDUR Tafl- og bridgeklúbbsins verður haldinn í Sjómannaskólanum, fimmtudaginn 18. sept n.k. og hefst kl. 20,30. Venjuleg aðalfundarstörf Mánudaginn 22. þ.m. verður fyrsta spilakvöld starfs árs ins (frjáls spilamennska). STJÖRNIN. Frú Gagniræðaskólanuni í Keilavík Þeir nemendur sem ætla sér að stunda nám í 3. og 4. bekk skólans í vetur og ekki hafa sótt um skólavist láti skrá sig í skólanum (sími 135) dagana 17.—20. sept. frá kl. a-A e.h. FRÆÐSLURAÐ keflavíkur I Stundvís og reglusöm Stúlka oskast til afgreiðslustarfa (helzt vön). íUiÍRimuu, Laugavegi 82. Ibúðir —■■ Silfurtún j Höfum til sölu í Silfurtúni fokheldar t»0 ferm. íbúðir | I 3ja herb. íbúðirnar geta einnig selzt tilbúnar undir tréverk og | málningu. Sanngjarnt verð og góðir greiðsluskilmálar. Málflutningsstofa Sigurður Reynir Pétursson hri., Agnar Gústafsson hdl., Gísli G. Isleifsson hdl. Austurstræti 14. II. hæð símar 1-94-78 og 2-28-70. Cuðrún Jóh. Jónsdóttir Minningarorð F. 13. maí 1895. — D. 9. sept. 1958. í DAG fer fram útför frú Guðrún ar Jóhönnu Jónsdóttur. Þótt okkur vinum Jóhönnu, sem fylgdumst með líðan hennar eftir að heilsu fór að hraka, kærni lát hennar á óvart, þá er það aðeins mannlegur veikleikj að sjá á bak góðum vini, sem dreifði gleði og léttu hjali með návist sinni. Frá því ég var lítill drengur, er ég kynntist Jóhönnu fyrst, var ég heimagangur á heimili henn- ar við Framnesveg 46, hér í bæ fram eftir árum, og hélzt sú vinátta með okkur æ síðan til hinztu stundar. Ekki var mér Ijóst við okkar fyrstu kynni, hve atorka, dugn- aður og sjálfsbjargarviðleitni hennar voru í ríkum mæli, en seinna þegar þroski jókst, varð mér allt þetta auðskildara. Jóhanna fæddist að Lamba- stöðum í Sandvíkurhreppi í Ár- nessýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Þóroddsdóttir og Jón Jónsson, sem þar bjuggu og var Jóhanna yngst sinna fjögurra systkina. Fljótt komst hún í kynni við alvöru lífsins, því korn ung var hún, er bæjarhús öll hrundu í jarðskjálfta, og neydd- ust foreldrar hennar þá til þess að koma börnum sínum til kunn ingja og vina og var Jóhanna tæpra tveggja ára, þá er þetta gerðist. Hennj var komið í fóstur hjá hjónunum Guðrúnu Brynj- ólfsdóttur og Jóni Jónssyni að Melshúsum á Seltjarnarnesi, en hjá þeim ólst hún upp til 17 ,ára aldurs, að þau létust með stuttu millibili. Ári seinna giftist hún Jóhanni Benediktssyni verkstjóra og áttu þau fjögur börn saman. Fvrsta barn sitt misstu þau óskírt, en hin þrjú komust öll upp, þau G.unnar, giftur Guðrúnu Guð- mundsdóttur, Þórdís, sem látin er fyrir þremur árum, gift Ing- ólfi Ágústssyni verkfr., og Bára gift Gunnari Eggertssyni við- skiptafræðingi. Eftir fimm ára sambúð ákváðu þau hjónin Jóhanna og Jóhann að slíta samvistum, og var sú ákvörðun tekin að vel athuguðu máli, því bæði gerðu sér fulla grein fyrir ákvörðun sinni, og bæði héldu sinni fullu virðingu, þótt því verði aldrei neitað, að áfall var þetta mikið. Mannkostir Jóhönnu komu vel fram í því, að aldrei talaði hún um þessi tíma- mót lífs síns með beiskju, enda dreifðist hugur hennar fljótt að því, að sjá sér og sínum farborða, en með dugnaði og atorkusemi í DAG verður til moldar bor- inn Þorsteinn Jónsson, sjómaður, til heimilis að Skólavörðustíg 24 A. Hann andaðist 5. september síðastliðinn. Hann var fæddur 29. janúar 1882 að Hafurbjarnarstöð- um í Útskálasókn. Foreldrar hans voru Jón Ólafsson, bóndi á Haf- urbjarnarstöðum og Guðrún Þor- steinsdóttir, kona hans. Mestan hluta ævinnar stundaði hann sjó, fyrst á skútum, síðan á togurum og mörg seinni árin á varðskip- um. Eftir að hann hætti á varð- skipunum varð hann vaktmaður í skipum við höfnina. Fyrir nokkrum árun* varð hann fyrir árás, þar sem hann var að gegna skyldustörfum. Slasaðist hann svo að hann náði aldrei fullri heilsu aftur. Eftir það var hann heima og naut þar ástríkis og umönnunar eig inkonu og stjúp- barna. Þorsteinn var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni átti hann fimm mannvæn- lega syni. Þau hjón slitu sam- vistum. Á Þorlóksmessu 1944 kvæntist hann síðari konu sinni, Þorbjörgu Grímsdóttur, frá Litla- Seli í Vesturbænum, sem þá var ekkja. Var hún áður gift Aðal- bimi Stefánssyni, prentara, sem lézt 1938. Höfðu þau hjónin eign- azt átta myndarleg börn, sem öll eru á lífi. Ævisögu Þorsteins get ég ekki skrifað, því að ég kynntist hon- um ekki fyrr en á efri árum komst hún yfir þennan hjalla og kom börnum sínum vel til manns, enda lifði hún fyrir þau alla tíð og tók þátt í öllum þeirra erfið- leikum og sorgum, jafnt sem gieði og ánægju. Jóhanna var undur-barngóð, og sýndi hún það í Verki með því að taka bágstödd börn heim til sín í lengri eða skemmri tíma, og eitt þeirra ól hún upp að nokkru. Systkinum sínym var hún góð systir, sem alltaf var boðin og búin til hjálpar og aðstoðar, enda vinátta þeirra með ágætum. Jafnframt því, sem ég bið Jó- hönnu blessunar, votta ég ástvin- um hennar og öðrum aðstand- endum mína innilegustu samúð. Minning hennar mun lengi lifa í hjörtum barna hennar og vina, en ótalinna gleðistunda vil ég minnast og muna með konu minni og vinum. hans. Var það sumarið 1942 a8 ég fór sem kokkur á björgunar- skipið „Sæbjörgu". Reyndist hann mér mjög vel og bauð mér lán til þess að stunda nám við Húsmæðrakennaraskóla Islands, sem varð til þess að ég gat þá þegar um haustið hafið nám þar. Fæ ég það aldrei fullþakkað. Var ég ekki eina fátæka náms- manneskjan, sem hann liðsinnti. Um það talaði hann samt aldrei sjálfur, en frá öðrum hefi ég frétt það. Hann varð að þola margt mis- jafnt á langri ævi. Hann var dul- ur í skapi og talaði ekki um það sem miður fór. Hann gladdist þegar „blessuðum drengjunum“ gekk vel, en það nefndi hann syni sína. Ég álít að hann hafi gert fleirum gott en aðrir honum. Mikið lán var það honum er hann kvæntist Þorbjörgu. Var indælt að koma á heimili þeirra á Skólavörðustíg. Þar ríkti hinn sanni heimilisfriður. Voru börn hennar honum mjög góð og hug- ulsöm á allan hátt, og kunni hann vel að meta það. Eftir kulsama ævi átti hann því láni að fagna að verða umvafinn óstúð og hlýju seinustu æviárin. Fyrir það ber okkur að þakka sem ekki gátum launað honum sjálf góðverk þau, sem við urðum. aðnjótandi frá hans hendi. Blessuð sé minning hans. Guðný Frimannsdóttir. Meira fé til flugmálanna HR. CARL Ljungberg, fram- kvæmdastjóri Alþjóðaflugmála- stofnunarinnar, (ICAO) hefur ásamt konu sinni og dóttur dval- izt að undanförnu í Evrópu í or- lofi og notað dvöl sína þar til að kynnast með eigin augum ár- angri af samstarfi þjóðanna í flug málum. Framkvæmdastjórinn og fjöl- skylda hans komu hingað til lands 30. ágúst s.l. með flugvél frá Flugfélagi íslands h.f. og fóru héðan 4. þ.m. vestur um haf með flugvél frá Loftleiðum h.f. Dvöl sína hér notaði fram- kvæmdastjórinn til að kynna sér alþjóðaflugþjónustuna á íslandi, en þar er umfangsmikil flugör- yggisþjónusta, sem ísland annast á vegum Alþjóðaflugmálastofn- unarinnar, og til að ræða við yfir menn og starfslið þeirra stofn- ana, er þjónustuna annast. Hr. Ljungberg lét í ljós ánægju sína með framkvæmd alþjóðaflug þjónustunnar á íslandi, kvað undraverðan árangur hafa náðst í þróun flugmála hér á landi, en sagðist í allri vinsemd vilja benda á, að hið opinbera þyrfti að Verja meira fé til flugmálanna, ef þjóð in ætti ekki að dragast aftur úr á þessu sviði t.d. væri alþjóða- flugöryggisþjónustan í algerlega óviðunandi húsnæði. Eldri maður getur fengið atvinnu sem sölumaður hjá þekktu iðnfyrirtæki hér í Reykjavík. Tilboð merkt: „Eldri maður — 7618“ sendist Morgunblaðinu fyrir n.k. föstudag 19. þ.m. I 2—3 starfsstúlkur helzt miðaldra, óskast strax eða um mánaðamótin. Gott kaup og fæði, sér herbergi frí vinnuföt, stuttur vinnutími. Upplýsingar í símum 11966. j HÚSEIGEIMDUR! Jlöfum kaupendur að íbúðum og einbýiishúsum af öllum stærðum. Málflutningsstofa Sigurður Reynir Pétursson hrl., i Agnar Gústafsson hdl., Gísli G. Isleifsson hdl. i i Austurstræti 14. II. hæð símar 1-94-78 og 2-28-70. I Oddur Oddsson. Þorsteinn Jónsson sjómaður — minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.