Morgunblaðið - 01.10.1958, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 1. október 1958
MORCVNBLAÐIÐ
15
Cuðmundur Guðjónsson
Melum, sjötugur
„Sveit er sáðmanns kirkja,
sáning bænagörð“.
EINN slíkur kirkjuhaldari Mela-
sveitar fyllir sjöunda tug ára í
dag.
Guðmundur er fæddur að
Reykjanesi í Grímsnesi 1. okt.
1888. Foreldrar, hjónin Guðlaug
Sigvaldadóttir og Guðjón Finns-
son. Guðmundur er tvíkvæntur,
með fyrri konunni eignaðist
hann sjö börn, en þau hjónin
slitu samvistum. Með seinni
konu sinni, Helgu Eggertsdóttur
frá Langey á Breiðaf. á hann einn
son.
Guðmundur kom að Melum ár-
ið 1923, þá gaf túnið af sér 150
hestburði. Nú er bústofninn sjö-
tíu nautgripir, auk hrossa og
sauðfjár. Má af þessum tölum
matka hve ræktunin á Melum
helur verið stórkostleg í tíð
Guðm. Allar byggingar jarðar
innar reistar að nýju, af þeim
stórhug sem auðkennir öll störf
Guðmundar. Þó hefur hann hin
síðari ár ekki gengið heill til
skógar og hefur eftirlátið tveim-
ur sonum sínum nokkurn hluta
jarðarinnar. Vart þarf að taka
það fram að allar nýtízku vélar
varðandi landbúnað eru til að
Melum.
Ég hygg, ef allir sveitabænd-
ur réðu yfir þeirri búhyggni og
þekkingu á búfé og meðferð þess,
sem Guðmundur á Melum, þá
þyrfti færri leiðandi menn á land
inu varðandi landbúnað almennt.
Aðbúð og umhirða Guðm. á
skepnum og áfurðamagn búfjár-
ins á Melum mun vera þjóðfrægt
að ágætum. Þykja það jafnan
meðmæli mikil með grip, ef hann
er ættaður frá Melum og talin
trygging fyrir ágæti hans. Gildir
einu, hvort eru nautgripir, hross
eða sauðfé. Enda hafa gripir það-
an iðuiega hlotið verðlaun á sýn-
ingum búfjár.
Þótt ævinlega sé deilt um
manngildi manna og eðlisgerð, þá
þori ég að fullyrða að allir er til
þekkja myndu sammála mér um,
ef allir umsýslumenn húsdýra
hefðu sama hugarfar og siðvenj-
ur í samskiptum sínum við hina
hógværu og arðgæfu félaga
sveitafólksins, sem bóndinn á
Melum þá þyrfti ekkert dýra-
verndúnarfélag á landinu og eng-
an eftirlitsmann með fóðrun og
umhirðu búfjár. Og, ef framþró-
un mannsandans er þannig hátt-
að, að hann — í þessu tilviki
sveitabóndinn — deili samvistum
á Melum ekki að kvíða þeirra
endurfunda við veglok lífsins.
Guðmundur á Melum er mikill
að vallarsýn. Skapgerð hans mun
vera rík og mjög í samræmi við
líkamsstærð. Einkum þó, ef gætir
andbyrs þeirra mála er hann
leggur lið og hyggur til hagsbóta.
Er þá hverjum ljóst að þar fer
enginn veifiskati. En sjötíu ára
nám í bröttubrekkum og ströng-
um skóla lífsins hafa án efa
kennt honum að oft et betra að
fcægja undiröldum hugans fram
hjá boðunum, en láta þær brotna
með gný.
Sem húsbóndi er Guðm. viður-
kennt ljúfmenni og skemmtinn
vel. Trygglyndur og vinmargur,
enda hjartahlýr og veglyndur ná-
grönnum og nauðleytamönnum.
Vís maður hefur sagt: að marg-
ir karlmenn gætu myndað heim-
ili, en það þyrfti konu til að
skapa hei.nili Þegar minnzt er
unninna afreka á sviði búsýslu á
Melum k >n a mér þessi orð ?
hug, er ég hugsa til húsfreyjunn-
ar þar, Helgu Eggertsdóttur. Það
mun allra mál að það pund sé
ekki rýrt, sem Helga hefur lagt
af mörk tm við að gera garðinn
frægan. Helga hefur með starfi
s.nu og mar.níætleika skceytt
heimilið gimstei.jUtn góðviidar og
lHsgleði og með pví um tugi ára
fL.úkomnað sitt stóxa og göfuga
hluU erk á htnairi fjölmenna oú-
sl-8.
Ég vil ekki dæma ’ um orð
skáldsins er sagði:
„ .. Bár.dans starf er betra,
en brauð og sálumessa".
En að starf bóndans að Mel-
um hafi svo verið — og er ekki
lokið enn — um það geta allir
verið sammála.
Þetta er ekki afmælisgrein, held
ur kveðja frá fávísum frænda.
Lifðu heill, bústólpi og sómi
þinnar stéttar.
Vilhj. Jónsson
frá Ferstiklu.
Vélamenn
eða menn vanir vélavinnu geta fengið
vinnu nú þegar.
Hamar hf.
1
Rafmótor
50 hö 22 Volt með gangsetningu óskast nú þegar.
Upplýsingar í síma 3.2204.
Síldar og fiskiinjölsverksmiðjan Kletti.
Verkamenn — Hnfnarfirði
Bæjarsímann i Hafnarfirði vantar verkamenn nú
þegar, þeir verkamenn, sem vilja sækja um vinnu, i
gefi sig fram við Vinnumiðlunarskrifstofuna kl.
10—12 og 13—17. Eftir þann tíma í síma 50615.
Viiiniiiniðlunarskrifstofan, Hafnarfirði.
i
við hina áður gengnu mállausu
félaga sína og vini-þá þarf Guðm.
EGGERT CLAESSEN og í
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn. •
Þórshamrí við Tempiarasund 1
3jn—4ra herbergja íbúð
óskast til leigu strax. Tvennt fullorðið í heimili. Til- (
Orgelkennsla
Kenni byrjendum og einnig
þeim, sem lengra eru komnir.
Til viðtals í síma 12103 kl. 11
—12 á morgnana eða kl. 6—7
á kvöldin.
Skúli G. Itjarnason
Grandavegi 39B. "
boð merkt: „Rólegt
fyrst.
4094“ sendist afgr. Mbl. sem
GÓÐUR UPPHITAÐUR
BILSKtR
eða gott kjallaraherbergi óskast til leigu (fyrir
geymslu á húsgögnum) fyrir 4. þ.m. Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir 4. þ.m. merkt: „Geymsla — 4093“.
Nýbýli Atvinna
Hluti af góðri jörð til söju
undir nýbýli, ef samið er Tveir unglingar geta fengið atvinnu hjá oss við sendi
strax. Leiga á jörðinni kemur ferðir og innheimtustörf, æskilegt að þeir hafi hjálp
til greina í nokkur ár, meðan armótorhjól til umráða.
land nýbýlisins er að komast
í rækt. Sendið tilboð til blaðs-
ins fyrir 15. okt., merkt: — j Hf. Hamar
„Norðurland — 7833“.
T rompetkennsla
Kennsla byrjar 1. október.
BJÖRN GUÐJÓNSSON
Birkimel 10A — Sími 24768.
Stúlka
vön öllum skrifstofustörfum, einkum vélritun, getur feng-
ið atvinnu á opinberri skrifstofu. Umsókn ásamt meðmæl-
um og nauðsynlegum upplýsingum sendist Morgunblað-
inu, merkt: „Opinber skrifstofa — 7825“.
Einbýlishús
á góðri hornlóð er til sölu við Suðurgötu.
Upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti 9 — Sími 14400.
Hús á eignarlóð
sem er 352 ferm., innarlega við norðanverða Njálsgötu er
til sölu nú þegar. Unnt er að rýma húsið strax. Húsið er
ca. 40 ferm. timburhús (steinkjallari, hæð og manngengt
geymsluloft). Tilboð, er m.a. greini útborgunarmöguleika
sendist Mbl. fyrir föstudagskvöld 3. okt. n.k. merkt:
„Hitaveita — 4089“.
1______________________________________
i Hús við Langaveg
j Tilboð óskast í húseignina Laugaveg 157, hér í bænum,
ásamt tilheyrandi eignarlóð. Húsið er kjallari, hæð og ris-
hæð. Húsið er til sýnis frá kl. 17—19.
Nánari upplýsingar gefa:
Lárus Jóhannesson, hrl. Ólafur Þorgrímsson, hrl.,
Suðurgötu 4. Austurstræti 14.
Sími: 13294. Sími: 15332.
Rishœð fil sölu
Af sérstökum ástæðum höfum við til sölu rishæð á bezta
stað í Kópavogi. Ibúðin er 4 herbergi, eldhús og bað. Útb.
r. 60—70 þús. Allar nánari upplýsingar gefur
dlrl ÆHJ rvi
BEYKJAVÍk
Ingólfsstræti 9B — Sími 19540.
Opið alla daga frá kl. 9—7.