Morgunblaðið - 01.10.1958, Page 21
Miðvik'udagur 1. október 1958
MORGUNBLAÐIÐ
21
Kristín Ólafsdóttir:
Sumarhugleiðingar
FALLEGT er í Vestmannaeyjum
og stutt er flugið frá Reykjavík
þangað, tekur vart lengri tíma
en 25—30 mínútur. Auðséð er
að Eyjamönnum líður vel, og að
baerinn er í uppgangi. Mikill er
sá fiskur, sem lagður er þar á
land, og margbrotin er sú vinna,
sem unnin er í Fiskiðjuveri Vest-
mannaeyja.
Unga fólkið þar, vekur athygli,
hraustlegt og stolt, með ein-
beitni í svip og fasi, á görigu sinni
til og frá vinnu, eins og það væri
að ganga inn á íþróttavöll til að
keppa þar.
Skemmtilegt var að sjá ný-
byggðu hverfin, með fallegu ein-
býlishúsunum, en þau byggja oft-
ast ungu mennirnir, fyrir sig og
sína, áður en þeir gifta sig, og
hjálpa hver öðrum með að koma
húsunum upp, en það sýnir dugn-
að og fyrirhyggju.
Flestir yngri menn í Eyjum
eru sjómenn.
„Standa upp í stafni, stýra dýr-
um knerri", og setur það sér-
stakan svip á bæjarlífið yfir-
leitt.
Annars eru Vestmannaeyingar
bókamenn allt að einu, og eiga
margir þeirra safn góðra bóka,
sem þeir lesa, er því verður við
komið.
Félags- og þjóðmálaþroski
Eyjamanna er fastmótaður, og
kunna þeir vel að meta alþingis-
mann sinn, sem um langt skeið
hefur verið þeim hollur og ör-
uggur ráðgjafi í framfarabaráttu
þeirra.
Og eldri mennirnir í Eyjum.
Vel duga þeir. Eg, sem þetta rlta,
talaði við einn, sem situr góða
stund á hverjum degi og skrifar
á ritvél, eitt og annað um liðna
tíð.
Að skrifa um liðna tíð er erfitt.
Þar koma svo margir við sögu,
og ekki er víst að æyisagnahöf-
undar geti alltaf dregið þannig
ályktanir af mönnum og málefn-
um samtíðar sinnar að öllum líki.
Sannleikann er þó bezt að segja,
en honum reiðast menn á stund
um hvað mest, eins og dæmin
sanna .
íslendingar eru lítið gefnir fyr-
ir að skrifa æviminningar sín-
ar, finnst mér og er það að vísu
skiljanlegt, skaði er það samt,
því að í ævisögum merkra
manna, sem lifað hafa langa og
viðburðaríka ævi, er oft mik-
inn fróðleik að finna, sem ekki
fæst með öðrum hætti.
Víst myndi yngri kynslóðinni
vera ávinningur að því, að bæta
þeim fróðleik í sinn fræðslusjóð
og gefa þannig gætur að orðum
og athöfnum dáðríkra og viturra
manna, það mundi víkka sjón-
deildarhringinn og gefa hug-
mynd um það liðna og vist er
það, að öllu Ijósi mannsandans
er ætlað að skína til menntunar
og andiegs þroska alls mann-
kyns.
„Úr fornöldinni fljúga neistar,
framtaksins og hraustleikans".
Vissulega þarf ekki alltaf að
leita aftur í liðna tíma að slíkum
„neistum“. íslendingar hafa á öll-
um tímum sögunnar átt vitra og
góðgjarna forustumenn, sem i
hvívetna hafa gætt hagsmuna og
sæmdar þjóðarinnar utanlands
og innan, af forsjálni og dreng-
skap.
Vonandi bera Islendingar gæfu
til þess að hafa jafnan slíka
menn við stjórn og stýri á þjóð-
arskútunni. Allar þjóðir heims
hafa um stund átt valdasjúka.
óþjóðholla, ósannindamenn, sem
á þeim forsendum hafa brotizt
til æðstu valda með þjóðunum og
þannig leitt eymd og tortímingu
yfir lönd og lýð.
Þó að mér, sem þetta rita,
finnist, að nú skyggi í stjórn-
málaál íslendinga, vona ég, að
með guðs og góðra manna hjálp
takist að bægja þeim sorta frá
landi voru og þjóð.
„Undarlegt er ísland,
ef enginn réttir þess stand.“
Komið á Siglufjörð.
Að fara alla leið norður á
Siglufjörð, finnst mér vera þó
nokkuð ferðalag, í langferðabíl.
Glatt og skemmtilegt var sam-
ferðafólkið, bílstjórarnir við-
kunnanlegir. Á viðkomustöðum
var ajlt til reiðu fyrir farþeg-
ana, góð afgreiðsla, hreinlæti,
matur, mjólk og kaffi í bezta
lagi, og verði í hóf stillt, að ég
hygg.
Guðdómlega fallegur, víður og
fagur, þótti mér Skagafjörður,
það sem ég sá af honum, en það
var furðamikið, því að rúðurnar
í langferðabílnum voru svo stór-
ar og vel hitrar, að landslag,
fjöll og umhverfi allt sást ótrú-
lega langt að, en það er mikil
og góð viðbót við ferðalagið.
Ekki sást ský á himni, allt glóði
í sól og sumarskrúða.
Á Siglufirði var gaman að
vera, enda ekki í kot vísað hjá
Ólafi Þ. Þorsteinssyni yfirlækni
þar og hans ágætu frú Kristínu
Hákonardóttur. Því miður var
lítið um síld, samt sá ég allar'
„græjur". Handfljótar voru stúlk-
urnar að leggja síldina niður í
tunnurnar, er þó ekki sama
hvernig það var gjört.
Á Siglufirði er fólkið glatt og
dugmikið. Konurnar vinna mik-
ið úti með heimilum sínum, og
eru félagslyndar. Nú hafa þær á
,,prjónunum“ að koma upp ný-
tízku spítala og hafa á því hinar
beztu forsjár, svo það mun vel
takast.
Nokkur nýlunda þótti mér það
og skemmtilegt að vísu, að yfir
hinum mörgu og góðu kaffiboll-
um, sem ég drakk með siglfirzk-
um konum, var mest talað um
bækur og bókmenntir og hafði ég
orð á því við þær.
Á Siglufirði býr gott og gáfað
fólk, sem fordæmir ósannindi,
ranglæti og kúgun, hvar sem er
í heiminum. Það mætti því segja
mér, að Siglfirðingar sýndu það
í verki við næstu alþingiskosn-
ingar, með því að kjósa Sjálf-
stæðismann á þing fyrir kjör-
dæmi sitt.
O—★—O
Þá eru nú barnaskólar vorir
að taka til starfa á ný. Fram af
því fer allt fræðslukerfi lands-
ins í „gang“.
Gott er að útvarpið hefur tek-
ið upp þann hátt, að láta lesa
íslendingasögur fyrir börn og
fullorðna og er þá sérstakur
þáttur ætlaður börnum, sem ég
tel þó vafasamt að þörf sé á.
Sjaldan munu yngri börn en
10—11 ára hlusta að neinu ráði
þó lesnar séu íslendingasögur í
útvarp, fyrr en þau fara að læra
íslandssögu í barnaskólum, en þá
eru þau vakin og hafa oft gagn
og gaman af lestrinum.
Eg hef gjört mér far um það
í skóla mínum, að komast eftir
því hvað mikið börnin tileinkuðu
sér, skildu og myndu af því, sem
lesið er í útvarpið, yfirleitt.
Rímnakveðskapur fer ekki
nærri alltaf fram hjá börnum.
Þau hlusta gjarnan á hann, hafa
gaman af „stemmunum" og læra
þær á stundum. Vitanlega
er það misjafnlega mikið,
sem börn skilja og muna af því.
sem þau heyra. Sum endursegja
efni þáttarins þó nokkuð vel.
1 Einkum var það svo, þegar Njála
var lesin í útvarpið, þá kom fyr-
ir að 11—12 börn í skóla mínum
endursögðu yfir fleiri blaðsíður.
Liklega þyrfti að lesa þá sögu oft
í útvarp, bæði fyrir börn og full-
orðna. En ekki er sama hver les,
því að annað eins listaverk og
Njálssögu má ekki limlesta með
slæmum lestri, enda óþarfi, þar
sem nóg mun vera til af góðum
lesurum. Eg held að engar bækur
séu eins vandlesnar í útvarp eins
og Islendingasögurnar, ef þær
eiga að njóta sín. Mér finnst þær
standa þar og falla með lesti’-
inum.
Öðru máli gegnir ef maður les
þær eingöngu fyrir sig sjálfan.
Enginn skyldi vanmeta eftir-
tekt og skilning barna, þó ung
séu, en þess finnst mér þó gæta
nokkuð, á ýmsum sviðum, t. d.
í bókakosti þeim, sem börnum er
ætlaður til lestrar í barnaskól-
um vorum nú. Hugsanir, álykt-
anir og eftirtekt barna, eru oft
furðu þroskaðar. Hugurinn op-
inn fyrir sönnu og ósönnu, réttu
og röngu. En á þeim eigindum
þarf barnið að fá rétta og holla
skilgreiningu, svo að samvizkan
verði víðsýnn, réttlátur og við-
kvæmur leiðtogi allra athafna
barnsins. K. Ó.
F ramtíðaratvinna
Heildverzlun óskar eftir að ráða til sín ungan, efnilegan
mann, er hefur áhuga á verzlunarstörfum sem framtíðar-
atvimju. Umsóknir, merkt: „Framtíð — 7829“ með mynd
og meðmælum, ef til eru, sem hvorttveggja verður endur-
sent óskast send blaðinu.
Fró iþróttaskdla
Jóns Þorsteinssonor
Vetrarstarfsemi skólans hefst í dag 1. okt. Leikfimi fyrir
stúlkur á mánud. og fimmtud. kl. 8—9 síðdegis. Innritun
er hafin. Kennari Anna Gísladóttir. Sími 32532. Baðstofan
verður til afnota frá kl. 10 árdegis til kl. 10 síðdegis. Hún
er opin fyrir almenning sem hér segir. Á mánud. kl. 4—6
síðdegis fyrir konur. Á laugard. kl. 6—9 síðdegis fyrir
karla. Eldri baðflokkar mæti á venjulegum tímum. Nokkr
ir nýir baðflokkar geta fengið ákveðinn baðtíma á morgn-
ana eða um miðjan daginn. Nánari uppl. í skólanum
Lindargötu 7, sími 13738.
JÓN ÞORSTEINSSON.
Vélbátnr
Vélbáturinn OTTÓ Re. 337 er til sölu. Báturinn er 50 tonn
með 110 hestafla June Munktell vél, sem er öll nýstand-
sett (m.a. nýr sveifarás o.s.frv.). Báturinn er í fullkomnu
ríkisskoðunarástandi, allur nýyfirfarinn, hampþéttur og
nýmálaður. Bátnum fylgir nýr norskur dýptarmælir og
nýr bjögunargúmmíbátur fyrir 8 menn. Báturinn er til
sýnis í skipasmíðastöð Daníels Þorsteinssonar v/Bakka-
stíg.
Allar nánari upplýsingar gefur milli 10—12 og eftir kl. 6.
JÓHANNES LÁRUSSON, lögfræðingur.
sími 24893.
H0TEL
HAFNIA
við Raadhuspladsen, Köbenh. V.
Herbergi með nýtízkuþægindum.
Niðursett verð að vetri til.
Restaurant — Hljómleikar
Samkvæmissalir
Sjónvarp á barnum
Herbergja- og borðpöntun: Central 4046.
Góð bílastæði.
Vokkrar unglingakápur
á 12—14 ára verða seldar fyrir
HÁLFVIRÐI.
Ódýrir, uppreimaðir
Strigaskór
Vetrð frá kr: 31,20.
Breiðablik
Laugavegi 63 (horni Vitastígs og Laugavegs).
Ný sending
Ullarkjólar
margir litir, flestar stærðir.
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 5.
SÍ-SLÉTT P0PLIN
IN0-IR0Ni
MIMERVAcÆ^te>»
STRAUNING
ÖÞÖRF