Morgunblaðið - 01.11.1958, Page 6

Morgunblaðið - 01.11.1958, Page 6
6 MUKGUISKLAOIÐ Laugardagur 1. nóv. 1958 De Gaulle og Als'ir ÞEGAR fallhlífahermenn- irnir í Alsír gerðu upp- reisn, létu þeir í ljós að ríkisstjórnin væri ekki nógu sterk, stjórnarfarið ekki nógu einbeitt og öflugt og þess vegna gerðu þeir uppreisn. Uppreisnin varð til þess að de Gaulle var kallaður til valda og hann hefur sýnilega tekið fyllilega til greina kvartanir fallhlífamann- anna um of lina stjórn, því hann hefur snúið þeirri mynd gersam- lega við og enginn þarf nú að kvarta yfir því, hvorki í Alsír né Frakklandi, að de Gaulle hafi ekki heimt i sínar hendur nógu sterkt vald. Hins vegar er það ljóst, að þeir háværustu meðal uppreisnarmannanna vildu ekki láta stjórna sér, heldur stjórna sjálfir og þeir hugsuðu sér að gera það á þann hátt að fela stjórnina þeim manni, sem þeir kusu til valda, sem var de Gaulle og knýja hann til þess að fram- kvæma vilja sinn. En þetta hef- ur snúizt þannig við að de Gaulle hefur, að því er virðist, öll ráð þessara manna í hendi sér. ★ Það sem gerzt hefur upp á síð- kastið í viðskiptum stjórnarinn- ar i París og Alsírmannanna, sem fyrir uppreisninni stóðu, var mikil valdabarátta milli de Gaulles annars vegar sem vildi stjórna sjálfur og hins vegar her- foringja, sem vildu beita honum fyrir sinn eigin vagn. Margir hafa talið að öfiugasti maðurinn og sá sem lengst vildi ganga, hafi verið fallhlífarherforinginn Massu, sem mest var talað um í byrjuninni, en Massu lét óðara undan kröfum de Gaulles og frá honum hefur ekki heyrzt neitt uppreisnarorð í garð stjórnar- herrans. Það var fyrst og fremst annar foringi, Lagaillarde að nafni, sem erfiðleikum olli. Það var þessi maður, sem gaf hinn 13. maí merki um það í Alsír að nú skyldi stjórnarbyggingin tek- in herskildi og hann hótaði því nú að á ný skyldi hið sama endurtaka sig, ef de Gaulle færi ekki að vilja þeirra, sem lengst vildu ganga í Alsír. En til þess kom aldrei. Varla nokkur maður fékkst til þess að fara út á göt- una og nú nægði slökkvilið og nokkrir lögregluþjónar til þess að vernda stjórnarbygginguna. De Gaulle hefur komið því til leiðar, að herforingjarnir hafa farið að vilja hans og horfið úr hinum svokölluðu velferðar- nefndum, sem stofnaðar voru í upphafi, en með því er vitaskuld ekki sagt, að herinn sé algerlega úr spilinu í stjórnmálum. Ýmsir menn, sem taldir hafa verið hættulegir, eins og það er orðað, eru fluttir til, og um tíma gekk orðrómur um að Massu hershöfð- ingi yrði sendur til Madagaskar og fyrr gekk sú saga að Salan hershöfðingi mundi taka við em- bætti í París, en Ely herráðsfor- ingi taka við af honum. Það er að vísu Ijóst, að það er ekki einungis meðal yngri foringjanna heldur meðal hersins yfirleitt, sem því hefur ekki verið með öllu vel tekið, að de Gaulle hef- ur komið í veg fyrir að hershöfð- ingjarnir blönduðu sér í stjórn- mál. Vafalaust hugsa allir herfor ingjarnir um stjórnmálin og ástandið í Alsír og það getur eng inn meinað þeim að hafa sínar eigin skoðanir, þótt þeir hafi beygt sig undir valdboð de Gaulles, eíns og nú stendur. ★ Það olli hershöfðingjunum hinum mestu vonbrigðum að de Gaulle skyldi taka upp samninga við Túnisbúa og Marokkómenn í stað þess að taka þau lönd her- skildi, eins og hinir æstustu munu hafa ætlazt til. Ekki bætti það úr skák, þegar de Gaulle setti það í lög, að enginn herfor- ingi mætti bjóða sig fram til þings, en hins vegar var hvaða flokki sem var í Alsír leyft að bjóða fram og hafa uppi kosn- ingaáróður. Þetta þótti hershöfð- ingjunum hin mesta smán og töldu margir að illa launaði de Gaulle hernum þau völd, sem hann hlaut fyrir hans tilstilli. Þeir sem utan við standa munu flestir vera á einu máli um, að nauðsynlegt hafi verið að hafa örugglega hemil á hernum, ef nokkur skynsamleg stefna ætti að komast fram í Alsírmál- unum. En þá var aftur spurning- in: Hvað ætlast de Gaulle raun- verulega fyrir í Alsír? Sumir velta því fyrir sér hvort de Gaulle sé hægt og hægt að undir- búa samningaumleitanir við upp- reisnarmenn, eins og foringi þeirra Abbas stakk nýlega upp á. Aðrir hafa hins vegar haldið því fram, að de Gaulle hefði í undirbúningi stórfellda sókn gegn uppreisnarmönnum, sem ætti að miða að því að afmá ger- samlega uppreisnarherina á skömmum tíma. Ýmsir Frakkar eru þess mjög fýsandi að beinar samningaumleitanir verði teknar upp við uppreisnarmennina og hafa komið fram af hálfu margra þingmanna ákveðnar raddir í þá átt. Þeir sem næst standa de Gaulle telja að það sem fyrir honum vaki með hinni mildu framkomu hans í Alsír, og því frelsi, sem hann hefur veitt þar til kosninga, sé að lama þá róttækustu. Stefni de Gaulle að því að þeir frambjóðendur sem að vísu standa nærri þeim róttæku en vilja þó ekki ganga eins langt, nái kosningu til þingsins þe=?ar þær fara fram. Það virðist svo, sem de Gaulle sé viss um að þetta muni takast og þar af leið- andi hafi hann talið algeran óþarfa að binda á nokkurn hátt lýðræðið, en nú heyrast úr sömu röðum raddir um að hann sé ein- mitt að bjarga því með fram- komu sinni. Hvað úr þessu verð- ur leiðir svo framtíðin í Ijós en það er skoðun margra að stefna de Gaulles í Alsír, mildi hans og frjálslyndi í garð Alsírbúa, muni verða til þess að vmna landið á miklu skjótari og hagkvæmari hátt fyrir Frakka, heldur en ef þeir hefðu orðið að gera það me3 vopnavaldi einu. Fleygjum ekki góðum orðum úr málinu De Gaulle eða hefta kosningafrelsi manna í Alsír. Ef svo færi í kosningun- um, að hinir hægfara hefðu yfir- höndina í Alsír, þá væri á eftir við þá að semja en ekki við hina róttæku flokksmenn Abbas og stjórnar hans í Kairó. Þá yrði meirihluti þingmanna í Alsír því fylgjandi að halda samstöðu við Frakkland og de Gaulle hefði á eftir miklu sterkari aðstöðu gagn- vart hinum róttæku. Því er ekki að leyna, að mikill ótti hafði gert vart við sig í röð- um ýmissa hinna svonefndu frjálslyndari stjórnmálamanna Frakka um að de Gaulle mundi sækjast eftir of miklu valdi sér til handa og nota það til kúgunar. Þ^gar það hins vegar kom fram, hversu stefna hans í Alsír var mild og frámkoma hans í Alsír- málunum frjálsleg, þá sneru margir þessir menn við blaðinu, svo sem Mendes-France, og gengu til stuðnings við de Gaulle. í fyrstu hrópuðu þessir menn að de Gaulle væri að gera út af við ÉG á erfitt með að sitja þegjandi hjá, meðan verið er að þoka brott úr íslenzku máli góðum viður- kenndum orðum, sem mörgum mun þó verða eftírsjón að, þeg- ar þau verða horfin úr mæltu máli. Ætla ég þá fyrst að nefna orð- ið rafmagn. Mér finnst við ís- lendingar ættum að kunna að meta svo vel, að eiga svona stutt heiti á þessum dásamiega nátt- úrukrafti, að við glötum því ekki af vangá. Nú mun sennilega margur les- andinn hugsa: „Hvað er maður- inn eiginlega að fara, við höfum ekki tekið neitt annað orð fyrir rafmagnið“. Er það nú aiveg víst? Skyldu þeir ekki vera nokkuð margir, sem kalla rafmagnið straum í daglegu tali? Vissulega er þó fleira, sem streymir í kring um okkur eins og t. d. hið lífs- nauðsynlega vatn, sem fáir munu þó nefna straum. Vegna þess, hve íslenzka út- varpið hefur orðið rík áhrif á daglegt mál manna, vildi ég nú leyfa mér að leggja til að hér eftir yrði rafmagnið nefnt sínu rétta nafni, þegar útvarpað verð- ur tilkynningum um lokun á raf- magni einhvers staðar á landinU, sem oft kemur fyrir. Ætti ekki að vera vandara um það, heldur en þegar tilkynnt er lokun á vatninu, sem alveg eins mætti nefna straum, því að þar er einnig straumurinn stöðvaður. skrifar úr dagBegq lífinu Að flækja sig í pilsunum. VELVAKANDA hefur borizt eft irfarandi tillaga frá „fslenzku kennara“ viðvíkjandi fram- burðinn á orðum eins og réttun- um og pilsunum: „Fyrrum tiðkaðist sá klæða- burður mjög, að konur gengu í síðum pilsum, stundum niður fyrir fætur. Eins og gefur að skilja, var þetta óþægilegt fyrir kvinnurnar, og iðuJega flæktu þær sig í pilsunum. Gátu hlotizt meiðsl og jafnvel slys af. Nú eru síðu pilsin horfin úr tízku og þar með úr notkun að mestu. Samt eru ekki allir hættir að flækja sig í pilsunum, því að í dálkum Velvakanda hefur staðið þræta um, hvort bera skuli fram „pils- onum“ eða „pilsunum". Um þetta finnst mér fánýtt að deila, því að litlu skiptir fyrir fegruð og varðveizlu málsins, hvor fram- burðurinn er notaður. Er þó ekki því að íeyna, að u-framburðurinn er eðlilegri, þar sem hann er í samræmi við rithátt og uppruna. Má þar og minna á, að þegar orð- ið er greinislaust, er alltaf borið fram u, en ekki o: pilsum — ekki pilsom. Hví skyldu menn breyta þessu, þótt greini sé bætt við orðið. Þegar greini er bætt við þágufall fleirtölu, fellur stafur- inn m aftan af orðinu, og stafirnir h og i falla framan af grein- inum, svo að samsetningin verð- ur pilsu-num. Framburðínn á o er hér upphaflega latmæli, að vísu ekki nýtt, og hefur e. t. v. unnið sér hefði í málinu, en hinn framburðinn verður ekki rangur fyrir það. Röng notkun falla verri. EN það var ekki þetta, sem ég ætlaði að ræða um, heldur annað miklu þýðingarmeira fyrir þróun málsins í framtíðinni, vandamál, sem ekki má dragast að taka ákvörðun urn, hvort spyrnt skuli við fótum eða látið skeika að sköpum. Ég á hér við ranga notkun falla, sem orðin er áberandi mikil og útbreidd í þetr býlasta hluta landsins a. m. k. í fiestum tilfellum er þar um að ræða notkun þágufalls í stað anr. arra falla, einkum þohalls. og nefnist fyrirbærið þá þágufalls- sýki. Nokkur algeng dæmi: Þú þorir engu, eða þú þorir því ekki — fyrir þorir ekkert, borir það ekki, mér langar í bíó — fyrir mig langar, klukkunni vantar átta mínútur í átta — fyrir klukkuna vantar, þér syfjar — fyrir þig syfjar, þeim grunar — fyrir þá grunar, honum hryllti við — fyrir hann hryllti við, henni hlakkar til — fyrir hún hlakkar til Það er alveg áreiðanlegt, að verði ekki hafin skipulögð bar- átta gegn þessu hið fyrsta, held- ur þessi þróun áfram að breiðast út. Sýkin berst óðum um land allt, og hún leggur sífellt undir sig fleiri og fleiri orð, þar sem hún er búin að geisa til lengdar. Sumir munu ef til vill segja, að bættur sé skaðinn, þótt Við leggj- um þolfall alveg niður, en tök- um upp þágufall í þess sfað. Mál- ið verði bara ei.ifaidara og auð- veldara á eftir. En mundi is- lenzkan ekki missa eitthvað aí fegurð sinni við þá breytingu, og hversu langt skal gengið í átt einfaldleikans, unz sagt verði hingað og ekki lengra? Hvað má til varnar verða? EN hvað má til varnar verða vorum sóma? Mér er kunn- ugt um að íslenzkukennarar í gagnfræðaskólum vinna að leið- réttingu á þessum málgöllum unglinganna, eins og öðrum mál- lýzkum, svo sem fljótmæli og lin- mæli, eftir þvi, sem þeirra tak- markaði tími leyfir. En allir sjúk dómar læknast bezt á byrjunar- stigi, og ekki er nóg að skól- arnir heyi þessa baráttu. Villan er orðin svo almenn meðal full- orðins fólks, að börn og ungling- ar heyra hana glymja í eyrum sér hvarvetna: á heimilunum, á vinnustöðvunum og stundum í útvarpinu. Meira að segja hef ég heyrt hana oftar en einu sinni í barnatímanum. Allt útvarpsefni ætti að vera vandlega hreinsað af málvillum (nema hvað ég mundi leyfa mönnum að bera íram pils- unum og pilsonum eftir vnd). En síðast en ekki sízt þarf að fræða og hvetja allan almenrung. Þeir, sem vita muninn á réttu og röngu í þessum efnum, ættu að ieiðrétta alla, unga sem gamla, og einnig mætti fræðandi bæklingur koma þar að gagni. En það er einmitt sterkasta læknisráðið, ef takast mætti að skapa almenningsálit um það, að hverjum manni væri sæmd að því, að tala móðurmál sitt rétt og óbjagað, en skömm sé að öllu kæruleysi í þeim efn- um“. Jafnframt ættum við sem flest að hafa hirðu á að nefna raf- magnið sínu rétta nafni sem oft- ast, því annars glatast orðið áður en varir. Hér er annað stutt og gott orð, sem mér er sárt um að missa, en það er síma-heitið, sem við meg- um vara okkur á að missa ekki sem sagnorð. Við megum víst þakka Jóni Ólafssyni skáldi fyrir að hafa fært okkur það i staðinn fyrir hálfdönsku styttinguna að „fóna“, sem var að festa rætur, þegar hið stutta og þjála síma- orð var endurvakið í nýrri merk ingu (að mestu). Hér stendur líkt á og um raf- magnið, að breytingin kemur smám saman, án þess að því sé gaumur gefinn, en slíkar breyt- ingar eru einmitt varasamastar — og þannig breytist tungan. Mér virðist nefnilega fleiri og fleiri vera að hætta að tala um að síma — til kunningjans, eða í búðina — heldur bara hringja til hans, en hér er þó meiningamun- ur, sem engin ástæða er til að rugla saman. Víst þarf að byrja á að hringja óður, en símað er til einhvers, en vissulega er símtal- ið þó aðalatriðið og því engin ástæða til að hætta að nefna það sínu rétta nefni, því þanníg glöt- um við orðinu, verði ekki „stung- ið við fótum“ í tæka tíð. Þá er þriðja orðið, sern verið er að þoka brott úr mæltu máli, a. m. k. á vissu sviði, en það er sagn orðið: mála. Þótt nú sé að fara í vöxt máln- ing með úðun eða sprautun, í stað þess að mála með bursta eða pensli, þá sé ég enga ástæðu til að hætta að tala um að mála. Er engu líkara en sumum finnist svo mikið til um að hægt sé að sprautu-móla t. d. bílinn, að þeir segja að hann hafi verið spraut- aður, en ekki málaður. Þá mætti alveg eins segja, ef bíllinn er orð- inn þurfandi fyrir áburð á liða- mótin: „Ég þarf að láta sprauta bílinn minn (með feiti)Eins . þykir mörgum gott að geta fengið að sprauta bílinn ef hann kemur mjög óhreinn úr ferð (með vatni). Ég bendi aðeins á þetta, sem dæmi þess að „fieira er mat- ur en feitt ket“!, fleiru má i sprauta en málningu. Ef aðgrein- j ingar er þörf á málingaraðferð- um ætti engum að vera ofætlun að segja: sprautu-málað, pensil- málað. Þessum hugleiðingum er aðeins ætlað að reyna að vekja til umhugsunar um, að hér er þörf að staldra við í tæka tíð og íhuga betur, að það stend- ur ekki á sama hvaða orð við notum, sé okkur ekki sama hvernig fer um „ástkæra ylhýra málið“. Ég ætla aðeins að nefna eitt dæmi enn um orð, sem við eigum ekki að glata, en það er orðið: stanz. Finna ekki ailir hve það er hljómfegurra en erlenda orðið stop, sem vel getur rutt okkar orði úr vegi ef við gætum okkar ekki með að hætta að nota það. „Stanz! hljómar harpan og hvellur er strengur" .... þýddi Jón Ólafsson svo smekklega, ef ég man rétt, — hver vildi nú skipta og segja: „stop! hljómar harpan? . . . Ég ætla svo að enda þessar hugleiðingar með því, að amast við einu orði, þótt íslenzkt sé og fallegt, þ. e. a. s. amast við því í þeirri merkingu, sem nú er far- ið að nota það, en það er orðið „virkjun". Látum gott heita með- an unnið er að virkjun á ein- hverju fallvatni t. d. þótt talað sé Frh. á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.