Morgunblaðið - 01.11.1958, Síða 15
Laugardagur 1. nóv. 1958
MORCVISBLAÐÍÐ
15
Fundur Adenauers de
Macmillans um frív
LONDON, 31. okt. — Fulltrúar
brezku stjórnarinnar, hinnar
svissnesku og stjórna Niður-
landanna hafa að undanförnu
ræðzt við í London um sam-
raemingu framtíðarstefnu land-
anna í efnahagsmálum. Samkv.
áreiðanlegum heimildum hafa
stjórnir þessara landa í hyggju
Morgontidningen
hættir útkomu
STOKKHÓLMI, 31. október. —
Frá og með deginum í dag hættir
Morgontidningen í Stokkhólmi
útkomu sinni. Morgontidningen
hefur verið aðalmálgagn verka-
lýðssamtakanna um áratuga skeið
og var elzta morgunblaðið í
Stokkhólmi. Samtökin hafa fyrir
nokkru keypt Stockholms-Tidn-
ingen og munu nú einbeita sér að
útgáfu þess. Hætt var að gefa
Morgontidningen út vegna óhag-
stæðs rekstrar og á síðustu árum
hafa flokksblöð átt æ örðugra
uppdráttar í Svíþjóð. Jafnaðar-
menn munu nú einbeita sér að
útgáfu Stockholms-Tidningen, en
ekki er enn vitað hve miklar
breytingar verða gerðar á blað-
inu, sem hefur verið óháð að
kalla. Aðalritstjóri Morguntidn-
ingen mun taka við starfi hjá
Stockholms-Tidningen og skrifa
um stjórnmál, en aðalritstjóri
Stockholms-Tidningen mun frá
næstu áramótum verða Victor
Vinde, fréttamaður Dagens Ny-
heter í París. Núverandi aðai-
ritstjóri tekur að sér stjórn á
bókmenntasíðum blaðsins.
Afdrifarík
lokaáætlun
LONDON, 31. okt. — Montgo-
mery gerði í dag að umtalsefni
ævisögu sína, sem nýkomin er út,
og vakið hefur miklar deilur. —
Skýrir hann þar m. a. frá ágrein-
ingi meðal herforingja Banda-
manna og þykir mörgum miður.
Hvers vegna á ekki að segja satt
frá? spurði Montgomery. Ef eng-
inn segði satt, þá væri sagan
fölsuð. Hefði nokkur trúað því,
að lokaáætlunin um innrásina í
Normandie hefði verið gerð á
salerni í Alsír? Nei, enginn. En
ég var þar sjálfur viðstaddur.
— Vesturveldin
Framh. af bls. 1
Bandaríski fulltrúinn, Wads-
worth, ráðgjafi Eisenhowers for-
seta í afvopnunarmálum, sagði,
að Bandaríkjastjórn væri hlynnt
því, að samningar væru gerðir
um bann við kjarnorkutilraunum
ár í senn með því skilyrði, að
samkomulag næðist um virkt
eftirlitskerfi. Afvopnunarmálin
yrðu jafnframt rædd og reynt
yrði í sambandi við samkomulag
um bann við kjarnorkutilraunum
að semja um afvopnun — stig af
stigi.
Brezki fulltrúinn Ormsby-Gore
birti ekki neinar ákveðnar tillög-
ur, en fullvíst er, að Bretar og
Bandaríkjamenn eru í megin-
atriðum sammála um fram-
kvæmd málsins. Sagði hann, að
hægt mundi að stíga drjúg skref
í áttina að afvopnun, ef ráðstefn-
an leiddi til einhvers árangurs —
og kvaðst hann bjartsýnn, enda
þótt Rússar og Vesturveldin
virtust á öndverðum meiði í upp-
hafi.
Allir fulltrúarnir voru sam-
mála um það, að eftirlitskerfið
yrði að byggja á samkomulagi
því, sem varð með sérfræðingun-
um á fundum þem.
að stofna takmarkað fríverzlun-
arsvæði með þátttöku OEEC-
landanna 11, ef ekki tækist sam-
komulag um stofnun fyrirhugaðs
fríverzlunarsvæðis hinn 1. janú-
ar nk. Jafnframt mun haft á
prjónunum að leyfa löndum utan
Evrópu aðgang að þessu „tak-
markaða svæði“.
Heyrzt hefur, að stjórnmála-
menn í Bonn séu enn vongóðir
um að stofnun fríverzlunar-
svæðis takist, þrátt fyrir allt —
og í þvx sambandi mun vera fyr-
irhugaður fundur Adenauers, de
Gaulles og Macmillans. Talsmað-
ur stjórnarinnar í Bonn fékkst
þó ekki til að staðfesta þetta.
Skaug, viðskiptamálaráðherra
Noregs, sagði í útvarpsræðu í
dag, að vonlaust væri, að sam-
12 mílur
ÓSLÓ, 31. *kt. — Stjórn
Líbýu tilkynnti í dag, að land-
helgi Líbýu yrði færð út í 12
sjómílur.
Allaufgnð
reynitré
MÝVATNSSVEIT, 26. okt.: —
Eftir lok ágústmánaðar hefur tíð-
arfar verið með afbrigðum gott,
óvenjuleg hlýindi og góðviðri. í
september voru oft ágætir þurrk-
ar og gekk þá vel að hirða það
hey, sem til var. Vegna kuldanna
í ágústmánuði, mátti telja að öll
grasspretta stöðvaðist. Um mán-
aðamótin ágúst og sept. voru tún
víða slegin í síðara skipti og þá
víðast illa sprottinn, en þegar
hlýindin í september komu, fóru
þau á ný að spretta og svo fór
að lokum að sumar nýræktir
voru slegnar í þriðja sinn.
Caulles og
erzlun?
komulag næðist um fríverzlunar-
svæðið áður en tollabandalagið
milli Frakklands, Ítalíu, V-
Þýzkalands og Beneluxlandanna
gengi í gildi í janúar nk. Taldi
hann horfurnar slæmar, svo
gæti farið, að V-Evrópa klofnaði
í viðskiptamálunum.
Openberri
fieimsókn
lokið
LONDON, 31. okt. — Popovic,
utanríkisráðherra Júgóslavíu,
hefur lokið fjögurra daga heim-
sókn til Bretlands. Ræddi hann
meðal annars við Selwyn Lloyd.
— Mun hann hafa leitað eftir
efnahagslegri aðstoð við Júgó-
slavíu.
Biskupar verði tveir-
í Rvík og á Akureyri
Kirkjuþingi lauk i gær
Hættuástand
NAUÐSYNLEGT er að vekja at-
hygli lögreglunnar á því að hún
verður að hafa fasta umferðar-
stjórn á Miklubrautinni við
gatnamót Lönguhlíðar. Vegna
gatnagerðarinnar sem þarna er
unnið að, er umferð mjög hættu-
leg, einkum fótgangandi. Fyrst
og fremst þarf að bæta götu-
lýsinguna, en þarna er mikil um-
ferð. T.d. á þarna leið um
fjöldi barna úr skóla Isaks Jóns-
sonar. Maður nokkur sem var
þarna inn frá í gærkvöldi er um-
ferðin var sem mest, sagði að það
mætti teljast mildi, að ekki
hefði orðið neitt slys á fyrr-
nefndum gatnamótum síðustu
dagana.
Dilkar reyndust fremur lélegir
til frálags, framan af sláturtið,
en reyndust mun betur er á leið
haustið. Mun það sennilega að
mestu stafa af hinu ágæta tíðar-
fari.
★
Óvenjulegt má það teljast að
sjá reynitré allaufguð í vetrar-
byrjun, en svo er hér víðast nú.
Að vísu eru sum trén með fagur-
gul blöð, en mörg eru algræn að
mestu. Aftur á móti eru birki og
fjalladrapi búin að missa öll sín
blöð og standa nú ber og nakin.
Oðru hverju verður vart við
minka. Fyrir miðjan október
gerði dálítið snjóföl. Var þá þeg-
ar farið að athuga um hvar
minkaslóðir væru, og náðust þá
tveir karlminkar.
★
Mjög lítið verður vart við
rjúpur. Þó bar töluvert á rjúpum
með unga, fram eftir sumri, en
með haustinu virtist þeim fækka
mjög. Undanfarið hefur verið dá-
lítið snjóhrafl í háfjöllum og má
búast við að eitthvað af rjúpuxn
haldi sig þar á daginn meðan
bjart er, af ótta við fálkana, sem
nú virðist vera óvenjulega mikið
af. Þegar þannig hagar til um
snjólag, er það venjulegt, að
rjúpurnar komi ofan af fjöllun-
um, þar sem þær leynast í snjón-
um, yfir daginn, og dreifa sér
um láglendið, þar sem gróður er,
þegar rökkva tekur á kvöldin og
fylla sarpinn yfir nóttina. í dög-
un fljúgá þær svo til fjalla á ný
til að dyljast þar meðan dags-
birtan er.
★
Þótt þetta kunni að valda
nokkru um það hve lítið verður
vart við rjúpur nú, þá álít ég að
aðalorsökin sé að rjúpnastofninn
sé nú óvenjulega fáliðaður.
— Jóhannes.
Á KIRKJUÞINGI náðist í gær
samkomulag um afstöðuna til
þeirra tveggja frumvarpa, er þar
hafa verið til umræðu síðuStu
daga, og nefnd hafa verið í frétt-
um Mbl., „þriggja biskupa frum-
varpið“ og „tveggja biskupa
frumvarpið“. Samkomulag náð-
ist um „tveggja biskupa frum-
varpið“, en það samdi kirkju-
málanefnd þingsins, á grundvelli
hins 17 ára gamla frumvarps um
biskupa þjóðkirkjunnar, er
Magnús heitinn Jónsson próf. og
alþingismaður, lagði fram á Al-
þingi. Kefur þess verið getið
ýtarlega hér í blaðinu.
Nokkrar breytingatillögur voru
þó gerðar á „tveggja biskupa
frumvarpinu". Frumvarp þetta
kveður á um að Skálholtsbiskup
skuli sitja i Reykjavík, en Hóla-
biskup á Akureyri, en báðir hafi
þeir aðstöðu til dvalar og starfa
á hinum fornu biskupssetrum. —
Norðlendingar fengu því og fram
gengt, að ef það reynist vera
vilji kirkjunnar manna þar
nyrðra, þá skuli kirkjumálaráð-
herra heimilt að gera Hóla að
biskupsgarði Norðlendinga, í
stað Akureyrar.
Þegar kirkjuþing kom saman
til framhaldsfundar í gærdag, og
kirkjuþingsmenn tóku að ræða
málið á ný, kom fram í umræð-
unum, að enn virtust nokkrar
greinir með mönnum, um hvaða
afgreiðsla þessa máls væri því
og framgangi þess fyrir beztu.
Ræðumenn bentu á, að hér væri
um að ræða stefnuyfirlýsingu
| þingsins, en ekki verið að semja
lög.
Ýmsir höfðu tekið til máls,
er Gísli Sveinsson, varaforseti
kirkjuþings, gerði grein fyrir til-
lögu, er hann taldi ganga í rétta
átt. Úr því sem komið væri taldi
Gísii það vænlegast til árangurs,
að vísa málinu til kirkjuráð til
athugunar og síðan afgreiðslu.
Þessu var misjafnlega tekið, en
þetta varð til þess að afstaða
manna til málsins, varð allt í einu
Ijósari og ákveðnari í senn. Þau
urðu sem fyrr greinir málalok,
að „tveggja biskupa frumvarpið“
var samþykkt, og náðu nokkrar
breytingartill. fram að ganga. t.d.
þessi varðandi biskupakjör: „Itétt
kjörinn biskup er sá, sem fær
meira en helming greiddra at-
kvæða. Nú fær enginn það at-
kvæðamagn, og skal embættið j
þá veitt þeim þeirra þriggja, er |
flest fengu atkvæði, sem forseti j
íslands telur bezt til þess íallinn.“ j
Kirkjuþingi barst í gærdag;
skeyti frá Jóhannesi Gunnars- !
syni Hólabiskupi, en kirkjuþing-
ið sendi honum heillaskeyti
vegna kjörs hins nýja páfa.
Herra Ásmundur Guðmunds-
son, biskup, sleit þinginu með
stuttri ræðu og þakkaði fulltrú-
um gott samstarf, en varaforseti
þakkaði biskupi fyrir hönd full-
trúanna.
GENF, 31. okt. — Donald Mac-
lean, fyrrum starfsmaður
brezku utanríkisþjónustunnar,
er sagður hafa verið í rússnesku
sendinefndinni, sem kom til
Genf í dag og situr fundinn um
kj arnorkutilr aunir.
Leiðrétting
í FORYSTUGREIN blaðsins í
gær varð meinleg prentvilla. —
Stóð þar: „Konan-----leitaði
frelsisins á flótta í gegnum Genf-
arskóga". — Þar átti að standa:
—-----gegnum dimma skóga.
0 nglinga
vantar til blaðburðar í ettirtalin hverfi
Herskálakamp
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
Ég þakka öllum vinum og vandamönnum fyrir komuna
á 50 ára afmæiisdegi mínum. Þó vil ég sérstaklega
þakka börnum mínum og barnabörnum fyrir komuna.
Guð blessi ykkur öll.
Svanfríður Sigurðardóttir, Þverholti 18K.
Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig á 85 ára af-
mælinu.
Ég óska ykkur öllum Guðs blessunar.
Guðný G. Jónsdóttir frá Bíldudal.
Hjartkær eiginkona mín
JÖNlNA JÖNSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Hellukoti, Stokkseyri 30. þ.m.
Fyrir mína hönd, barna og annarra vandamanna.
Andrés Ingimundarson.
Konan mín og móðir, okkar
SIGURBJÖRG ASMUNDSDÓTTIR
Freyjugötu 8, andaðist í Sjúkrahúsi Hvítabandsins 31.
október. Jarðarförin ákveðin síðar.
Friðrik J. Ólafsson og böm hinnar látnu.
Maðurinn minn og faðir okkar
SVEINBJÖRN JAKOBSSON
frá Hnausum verður jarðsunginn mánudaginn 3. nóv.
Húskveðja hefst kl. 1 e.h. frá heimili hans.
Jarðsett verður á Þingeyrum.
Eiginkona og börn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför
SIGURBJARGAR GUÐBRANDSDÓTTUR
frá Litla-Galtardal, Sigtúni 53.
Vandamenn.
Alúðar þakkir til allra þeirra, sem sýnt hafa samúð
og vinsemd við andlát og jarðarför föðursystur minnar
JARÞRtJÐAR BJARNADÓTTUR
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Hólmfríður Valdimarsdóttir.