Morgunblaðið - 01.11.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.11.1958, Blaðsíða 16
VEÐRIÐ SV stinningskaldi og úrkomulítið et'tir hádegi. BÓKAÞÁTTUR ____Sjá bls. 9 250. tbl. — Laugardagur 1. nóvember 1958 70—80 tonnum af landaö á 2 klst. Nýju löndunartækin i Hafnarfirði reyndust mjög vel HAFNARFIRÐI — í gær voru hin nýju löndunartæki, sem Vélsmiðjan Klettur hefir smíðað, reynd við uppskipun úr togaran- um Surprise. Um hádegisbilið í gær var færiböndunum komið fyrir og í gang voru þau sett upp úr eitt. Hafði þá safnazt saman á bryggjunni hópur fólks, þar á meðal margir útgerðar- menn og ýmsir forystu-menn fiskimála hér á landi. Eins og áður hefir verið sagt, eru færiböndin þrjú talsins, eitt ofan af bryggju og niður í skip, annað niður í lest og svo hið þriðja eftir henni endilangri. Eru skúffurnar drifnar með keðju, eem tengd er við mótora en þeir eru knúnir með rafmagni. JÞegar fréttamaður Mbl. kom niður á bryggju í gær, hafði færiböndunum verið komið fyrir og þau nýlega í gang sett, en nærstaddir fylgdust af ákafa með því, sem fram fór. Karfinn kom í stríðum straumi eftir færibönd- unum og hafnaði upp á bílunum, sem óku undir „bununa‘‘, Meðal viðstaddra voru þeir bræður Jón verkstjóri í Kletti og Gísli for- stjóri, en þeir hafa átt allan veg og vanda af smíði þessara tækja. Kváðu þeir þau reynast öllu bet- ur en hinir bjartsýnustu höfðu getað reiknað með — sem sagt þeir væru mjög ánæðir með færiböndin, sem hefðu mikla , Lítils háttar íkviknun á olíu- stöð 1 GÆRMORGUN kom upp eldur hjá Olíverzlun íslands á Klöpp við Skúlagötu. Lak húsahitunar- olía íir olíuleiðslu, sem verið var að bika sundur og komst neisti í oli ma. Slökkviliðið kom strax á st iðinn og réði fljótt niðurlög- um eldsins. og margvíslega kosti fram yfir fisktrogin. — Þess skal getið að Bragi Ólafsson vélfræðingur í véladeild Fálkans í Reykjavík, útvegaði keðjurnar á færiböndin, sem keypt voru frá Englandi. Þessi nýju tæki, sem vafa- laust eiga eftir að koma í stað fisktroganna við affermingu togara og annarra fiskiskipa, fluttu 70—80 tonn af karfa á tveimur klukkustundum, en það mun vera öllu meiri „gangur“ en við gamla lagið. Einnig hafa þau það fram yfir trogin, að nú hleðst miklu betur á bílana en áður, og þeir flytja því meira magn í hverri ferð. Töldu sérfróðir menn sem staddir voru við uppskipun- ina í gær, að þessi háttur á lönd- un ætti vafalítið eftir að hafa mikinn sparnað í för með sér. Auk karfans fluttu böndin upp Leikrit eftir Ugo Betti í útvarpinu f KVÖLD verður flutt í útvarp- inu fyrsta leikritið sem hér er flutt eftir ítalska skáldið Ugo Betti. Heitir það „Drottningin og uppreisnarmennirnir". Betti er almennt talinn helzta leikritaskáld ítala á seinni árum, að minnsta kosti að Pirandello látnum, og margir setja hann skörinni hærra. Betti er dáinn nú fyrir skömmu (1953) og var síð- ast hæstaréttardómari í Róma- borg, en hafði fengizt við leik- ritagerð frá því 1926. Síðustu tíu til tólf ár ævi sinnar skrifaði hann að jafnaði eitt leikrit árlega, hin ágætustu verk, og eru viðfangs- efni í flestum þeirra einhver vandamál mannsins í félagsmál- um og trú, eða þau fjalla að ein- hverju leyti „um hið hættulega kæruleysi mannsins eða upp- reisn gegn lögmálum guðs“. Þýðingu leikritsins hefur Ás- laug Árnadóttir gert, en Ævar Kvaran er leikstjóri. JAKARTA, 31. okt. — Indónes- íska stjórnin hefur ákveðið að þjóðnýta öll hollenzk fyrirtæki í Indónesíu. karfa var ís úr lestum togarans, og gekk það einnig með ágætum. Hin nýju tæki, sem smíðuð voru fyrir ísfirðing h.f., verða flutt vestur á næstunni. —G. E. UPPSKIPUNIN 1 „FULLUM GANGI“ Hér gefur að líta hin nýju færi- bönd, sem Vélsmiðjan Klettur hefur smíðað. Verið er að af- ferma togarann Surprise í gær. LONDON, 31. okt. — Það var upplýst í dag, að foringi flug- vélavirkja í þjónustu BOAC- flugfélagsins, sem hafði forystu í verkfallinu á dögunum, er með- limur í kommúnistaflokknum brezka — og aðalaðsetur hans á flugvellinum gengur undir nafn- inu Kreml meðal flugvirkja. — Verkfallið olli félaginu sem kunnugt er milljónatapi. Sjálfstœðismenn juku atkvœðamagn sitt mjög SELFOSSI, 31. október: — Kjör fulltrúa á væntanlegt búnaðar- þing, sýndi að Sjálfstæðismenn eiga mjög verulegri fylgisaukn- ingu að fagna meðal bænda innan vébanda fjölmennasta bún- aðarsambands landsins, Búnaðar- sambands Suðurlands. Listi Sjálf stæðismanna fékk tvo fulltrúa kjörna en listi Framsóknarmanna þrjá. Kosningar þessar fóru fram á sunnudaginn var, og fór taLning atkvæða fram hér á Selfossi í dag. Á kjörskrá voru 1465 bænd- ur í V-'Skaftafeilssýslu, Rangár- vallasýslu, í Vestmannaeyjum og í Árnessýslu. Þannig skiptust at- kvæðin á milli listanna, að A- listinn, Sjálfstæðismenn, hlaut 446 atkvæði, en hafði við síðustu búnaðarþingskosningar árið 1954 249 atkv., B-listinn, Framsóknar- menn hlutu nú 563 atkv., en við síðustu kosningar hlaut þeirra listi 459 atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru 12. Alls greiddu at- 1 kvæði 1021 og var kosningahlut- takan 69,7%. Þessar tölur tala skýrustu máb um fylgisaukningu Sjálfstæðis- manna meðal bændanna. Þegar hér fóru fram búnaðarþingskosn- ingar 1954 voru á kjörskrá 1453. Geta má þess að nú vantar Sjálfstæðismenn nærri 100 atkv. til þess að ná þriðja manni, en árið 1954 vantaði Framsókn- armenn 17 atkvæði til þess að fá 4. mann kjörinn. Fulltr. Sjálfstæð ismanna á búnaðarþingi verða þeir Sigurjón Sigurðsson bóndi í Raftholti og Sigmundur Sig- urðsson bóndi Syðra-Langholti. Fulltrúar Framsóknar verða þeir Bjarni Bjarnason skólastjóri á Laugarvatni, Klemenz Kristjáns- son bústjóri á Sámsstöðum og Jón Gíslason fyrrum alþingismað ur og bóndi í Norðurhjáleigu. Bílstjóri sýnir mikið snarræði MEÐ snarræði sínu tókst leigu- bílstjóra að forða slysi í gærdag, í útjaðri bæjarins. Gerðist þetta á Sogavegi, sem er í Sogamýri. Drengur á reiðhjóli, ók inn á götuna frá vinstri. Vissi leigu- bílstjórinn ekki fyrri til en drengurinn var kominn fram fyr- ir bílinn, og virtist slys óum- flýjanlegt — En bilstjórinn snarhemlaði, krap var lítis- háttar á götunni og snar- snerist bíllinn og rann stjórnlaust á grindverk, en drengurinn slapp ómeiddur, þó að hann aðeins kæmi við bílinn. Bíllinn skemmd ist allmikið við að rekast á grind- verkið. Þing Landsam- bands vörubíl- stjóra hefst í dag ÞING Landsambands vörubíl- stjóra hefst hér í Reykjavík í dag. Sitja það 30 fulltrúar, en innan vebanda sambandsins eru 35 fé- lög. Þingið mun taka fyrir ýmis hagsmunamál stéttarinnar, m. a. deilu vörubílstjóra í Reykjavík og vörubílstjóra í Árnessýslu í sambandi við flutning á efni til Efra-Sogs. Fyrsti snjórinn vakti gleði SNJÓFÖL var á jörðu hér í bæn- um er bæjarbúar risu úr rekkju í gærmorgun. Svo sem venja er vakti þessi fyrsti snjór mikla gleði barnanna, og voru sleðarn- ir drifnir út úr geymslunum. — Mikil kátína ríkti, þó að ekkert sleðafæri væri. Börn gerðu jafn- vel tilraunir til þess að búa til snjókellingar, en ekki var snjór- inn svo mikill að hann dygði í smákellingu, hvað þá heldur myndarlega og búsældarlega „kerlingu". Þegar á daginn leið, hvarf snjórinn að mestu, en í grassverðinum þar sem engin umferð var um, var krap. Frá umrœðum á Alþingi Hagur félagsheimilis- sjóðs mjög bághorinn Kirkjuþingsmenn mjög óánœgðir með framkomu Fulltrúaráðið i < Keflavik FULLTRÚARAÐ Sjálfstæðis- félaganna í Keflavík heldur fund í Sjálfstæðishúsinu í Keflavík kl. 2 e. h. á morgun, sunnudag. Rætt verður um bæjarmál Og félagsmál. Ariðandi að fulltrúar fjöl- menni á fundinn. ráðherrans ÞAÐ olli kirkjuþingsmönnum miklum vonbrigðum, að kirkju- málaráðherra og kirkjuráðsmað- ur, Hermann Jónasson, tók eng- an þátt í umræðum og afgreiðslu aðalmáls þingsins, afstöðunni til kjörs biskupa hinnar ísl. þjóð- kirkju. Það var boðað hvað eftir ann- að á þinginu að ráðherrann myndi koma, og að hann óskaði beinlínis eftir því, að fá að taka þátt í lokaumræðunum um mál- ið. Af þessum sökum var gert verulegt hlé á fundum kirkju- þings í gær. Það var hringt til ráðherrans. og hann boðaði enn á ný komu sí»a, en allt kom fyr- ir ekki. Ógerningur var að fresta umræðum lengur. Eftir alllangt fundarhlé var fundi áfram hald- ið, án þess að ráðherrann kæmi og að lokum var gengið til at- kvæðagreiðslu um málið, en aldrei kom ráðherrann. Kirkju- þingsmenn höfðu orð á þessari framkomu ráðherrans og voru settar fram ýmsar tilgátur um ástæðurnar. FUNDIR voru settir í deildum Alþingis á venjulegum tíma í gær. Á dagskrá efri deildar var eitt mál. Frumvarp til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að innheimta skemmtanaskatt með viðauka árið 1959. Var það framhald 3. umr, en forseti hafði tekið málið út af dagskra er það var til 3. umr., vegna fyrirspurn- ar frá Jóm Kjartanssyni um hag Félagsheimilissjóðs. Á fundinum í gær gaf fram- sögum. fjárhagsnefndar, ISjörn Jónsson, upplýsingar um ástand félagsheimilissjóðs. Kom í ljós að við síðustu áramót var fjárhagur hans 800 þúsund kr. lakari, en við áramót árið áður. Jón Kjartansson kvaddi sér hljóðs og þakkaði framsögumanni veittar upplýsingar. Kvað hann þær sýna, að ástand sjóðsins væri mjög bágborið. Á Alþingi 1957 LONDON, 31. okt. — Diefen- baker ræddi við Macmillan í dag í Downing Street 10. hefði verið samþykkt að fjölga mjög þeim aðilum, sem eiga að- gang að sjóðnum og þegar hefðu nokkur félög sótt um styrk sam- kvæmt þeirri samþykkt. Kvað Jón það augljóst mál, að ef svo héldi áfram. yrðu félagsheimili í sveitum algerlega útundan með fjárveitingu úr sjóðnum í fram- tíðinni. Aðrar umræður urðu ekki og var frumvarpið samþykkt með 13 atkv. samhljóða og afgreitt til neðri deitdar. V arðarkaffi VARÐARFÉLAGAR og annað Sjálfstæðisfólk. Munið Varðar- kaffið í Valhöli í dag kl. 3—5. Héraðsmót Sjálfstœðis- manna í Kjósarsýslu HÉRAÐSMÓT SJÁLFSTÆÐISMANNA í Kjósarsýslu verður haldið að Hlégarði í kvöld og hefst kl. 8,30 siðdegis. Pétur Benediktsson, bankastjóri, flytur ræðu, en formaður Sjálfstæðisflokksins, þingmaður kjördæmisins, Ólafur Thors, ílytur ávarp. Skemmtiatriði annast leikararnir Haraldur Á. Sigurðsson og Jón Sigurbjörnsson. Mun Haraldur m. a. flytja gamanþætti og Jón s&ngtu einsöng. Hljómsveit leikur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.