Morgunblaðið - 14.11.1958, Síða 18

Morgunblaðið - 14.11.1958, Síða 18
MORGZJNBLAÐ1Ð Fostudagur 14. nóv. 1958 * ií Fiskifélag íslands hefir gengizt fyrir námskeið- um í meðferð fiskileitar- tœkja Frá umræðum á Alþingi Kirkjan á Sauðárkróki. Sauðárkrókskirkju ber- ast góðar gjafir Kirkjan hefir verið endurbætt SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 26. okt. var þess minnzt í hótíðlegri messu í Sauðárkrókskirkju að lokið er nú mikilli viðgerð á kirkjunni sem staðið hefur yfir síðastliðið ár. Hefur kirkjan öll verið klædd innan, bekkir endur- smíðaðir, turn ehdurbyggður og ný forkirkja byggð, stærri en sú, sem áður var. Breytingin á kirkj- unni var gerð samkvæmt teikn- ingu, er Stefán Jónsson arkitekt gerði, en yfirsmiður verksins var Vilhjálmur Hallgrímsson tré- smíðameistari á Sauðárkróki. Við stækkun forkirkjunnar hef ur aukizt allverulega rúm á kirkjuloftinu, þar sem orgelið stendur. Verður hægt að koma þar fyrir pípuorgeli, enda er í ráði, að svo verði gert á næst- unni, og er þegar hafin fjár- söfnun í því skyni. Hafa safn- aðarmenn heima þegar lagt fram nokkurt fé til orgelkaupa. Hafa þegar safnazt um 30 þús. kr., sem þó er ekki nema þriðjungur þeirr ar upphæðar, sem þarf til orgel- kaupanna, enda eru sem óðast að berast gjafir bæði frá heima- fólki og fjarstöddum vinurn, — einkum þeim, sem eiga góðar minningar bundnar við gömlu, fallegu kirkjuna á Sauðárkróki. Auk þessara peningagjafa til orgelkaupa hafa kirkjunni borizt ýmsar aðrar góðar gjafir. Fyrir nokkru gáfu kirkjunni fagran skírnarfont þau hjónin Pétur Hannesson símstjóri og frú Sig- ríður Sigtryggsdóttir. — Guðjón Sigurðsson bakarameistari og kona hans frú Ólína Björnsdótt- ir og fjölskylda þeirra gáfu ein- tak af ljósprentuðu útgáfunni af Guðbrandsbibliu. Þórður P. Sighvats rafvirki gaf ljósakrónu í forkirkjuna, og nú síðast gaf Guðrún Þ. Sveinsdóttir kennslu- kona tvo vandaða hökla sinn í hvorum lit. Er annar til notkunar við hátíðaguðsþjónustur. Messan í Sauðárkrókskirkju fór þannig fram, að sér Gunnar Gíslason í Glaumbæ þjónaði fyr- ir altari en prófastur, séra Helgi Konráðsson prédikaði, Eyþór Stefánsson tónskáld lék á orgel- ið og kirkjukórinn söng. Minntist prófastur í ræðu sinni allra þeirra gjafa, sem borizt hafa, við- gerðarinnar á kirkjunni og vænt- anlegra orgelkaupa, færði gef- endum þakkir og bað kirkjunni blessunar Guðs í hinum nýja búnaði hennar. Á FUNDI sameinaðs Alþingis í fyrradag var tekin til umræðu tillaga um námskeið í meðferð fiskileitartækja. Flm.: Björn Jóns son o. fl. Er tillagan á þessa leið: Alþingi ályktar að skora á rik- isstjórnina að koma upp, eigi síð ar en fyrir næstu síldarvertíð, námskeiðum fyrir skipstjórnar- menn á fiskiskipum, þar sem veitt verði fræðsla um meðferð og gerð fiskileitartækja. Jafnframt heimilast ríkisstjórninni að greiða úr ríkissjóði nauðsynlegan kostn- að, er af þessari framkvæmd leiðir. Fyrsti flm. fylgdi tillögunni úr hlaði. Kvað hann nýjar gerðir fiskileitartækja mjög hafa rutt sér til rúms á íslandi á síðustu árum og væru nú flestir togarar og fiskibátar búnir slíkum tækj- um. Hins vegar yrðu not af þess- um tækjum ekki sem skyldi, vegna þess, að mjög vandasamt og engan veginn auðlært sé að nota tækin svo, að árangur náist við veiðar. Vitnaði ræðumaður í ummæli norðlenzks skipstjóra, þess efnis, að þeir, sem skarað hefðu fram úr á sl. síldarvertíð mundu betur kunna að nota fiski leitartækin en aðrir. Nokkur fræðsla væri veitt í Sjómanna- skólanum um meðferð tækja þessara, en þeir, sem þar hefðu stundað nám áður en þau komu Fréttabréf frá Suðurdölum í Dalasýslu: Óhugur í sauðfjáreigend- um vegna mœðiveikinar SUÐURDÖLUM, Dalasýslu, 10. nóv. — Vorið í ár var kalt eins og víðast hvar annars staðar á landinu. Grasspretta var því sein og töluvert í minna lagi. Úrkoma var lítil um heyskapartímann og hey því vel verkuð, en heymagn af túnum yfirleitt í minna lagi — á stöku stað jafnvel einum fjórða minna en í meðalári. Haustið var óvenjulega hlýtt og milt, en úrkomusamt. Naut- gripum var beitt fram yfir vetur- nætur. Garðávextir spruttu vel. Slátrun sauðfjár meiri en nokkru sinni áður Slátrun sauðfjár varð meii'i en nokkru sinni áður. Hjá Kaupfél. Hvammsfjarðar var slátrað 13.000 dilkum auk fullorðins fjár og í Brautarholti um 2.500 dilk- um. Meðalþungi dilka var í ár 15,2 kg, en var í fyrra 15,7 kg. Sauðfé mun yfirleitt ekki fjölga á fóðrum fremur hið gagn- stæða. Nautgripum og hrossum fækkar heldur. Ætlun bænda mun yfirleitt vera að nota minni' fóðurbæti, enda sjálfsagt veg'na þess gífurlega verðs, sern nú er á fóðurbæti. Óhugur í sauðfjáreigendum vegna mæðiveikinnar Mikill óhugur er í sauðfjáreig- endum hér um Suðurdali vegna mæðiveikinnar, sem æ ofan í æ er að skjóta hér upp kollinum. í Miðdalahreppi var öllu sauðfé lógað á þremur bæjum og nokkru af fjórum býlum. Ekki var talið öruggt, að um mæðiveiki væri að ræða nema á einu býli, þar sem öllu var lógað, og grunur lék á, að um mæðiveiki væri að ræða á öðrum býlum, þar sem öllu fénu var einnig slátrað. Á einum bæ í Haukadal var öllu fé slátrað og nokkru af öðrum býlum, en engin sýking fannst þar. Ógerlegt er að einangra þessi býli með girðingum og verður því að hafa fjárskipti á þeim aft- ur, ef til allsherjar niðurskurðar kynni að koma síðar í þessu fjár- skiptahólfi. Er það því mjög ó- sanngjarnt, að þeir sauðfjáreig- endur, er fyrir slíkum búsifjum verða, fái ekki meiri afurðatjóns- bætur en ríkissjóður greiðir við allsherjar niðurskurð í heilum fjárskiptahólfum. Með sanni má segja, að sauðfé þeirra sé haft til tilrauna á því, hversu útbreidd veikin sé. Eigi þeir því fullan rétt á riflegri bótum. Annars getur sú raunin orðið á, að treglega gangi framvegis að fá sauðfjár- eigendur til að afhenda fé sitt til rannsóknar með sömu bótum og nú eru ætiaðar. ★ Hins vegar skilja bændur það vel, að til mikils er að vinna, ef hægt væri að forða því að þurfa að skera niður 60—70 þús. fjár, sem mun vera í þessu fjárskipta- hólfi nú með þeim prófunum, sem gerðar voru í haust. Þá verða líka valdhafarnir að skilja það, að þeir, sem fyrir þessum niður- skurði verða, eiga að fá tjón sitt bætt að fullu, þar sem þeirra sauðfé er,haft til rannsóknar á því, hvort unnt muni að losa aðra sauðfjáreigendur í fjárskiptahólf- inu við niðurskurð. Og verði með þessu móti komið í veg fyrir niðurskurð í fjárskiptahólfinu losnar ríkissjóður við stórkostleg fjárframlög. BÍLDUDAL, 13. nóv. — f barna- skólanum á Bíldudal eru nú 85 nemendur, og starfar hann í 8 deildum. Skólinn var settur 20. okt. sl. Skólastjóri er Sæmundur Ólafsson, en aðrir kennarar eru Kristín Pétursdóttir frá Bíldudal og Sórún Skúladóttir frá Dönu- stöðum í Dalasýslu. Auk þess er sr. Jón Kr. ísfeld stundakennari. — Hannes. til sögunnar, þyrftu að verða hennar aðnjótandi annars staðar og því væri þessi þáltill. flutt. Pétur Ottesen kvaddi sér hljóðs að ræðu fyrsta flutnings- manns lokinni. Kvaðst hann vilja taka undir það með flutnings- mönnum þessarar tillögu, að haldin séu námskeið í meðferð fiskileitartækja. Reynslan benti örugglega í þá átt, að notkun þessara tækja sé mjög mikið at- riði við veiðarnar. í sambandi við þetta mál kvaðst Pétur hins veg- ar vilja veita þær upplýsingar, að Fiskifélag íslands hefði þegar hafið leiðbeiningarstarfsemi í þessum efnum. Félagið hefði lengi haldið uppi námskeiðum í stýrimannafræðum víðs vegar hefði það gengizt fyrir mótor- námskeiðum víða um land, og einnig kennt sjóvinnuaðferðir. A síðastliðnum vetri, nánar til- tekið í desember, hefði Fiskifélag Islands svo stofnað til námskeiðs í meðferð fiskileitartækja í Reykjavík og hefðu sótt nám- skeiðið 54 menn úr öllum lands- fjórðungum. Kristján Júlíusson, loftskeytamaður, hefði kennt á námskeiðinu og farið hefði verið með þátttakendur á mótorbáti út í Flóann til að kenna þeim raun- hæfa notkun tækjanna. Þá skýrði Pétur Ottesen frá því, að á þessum vetri væru fyr- irhuguð fjögur námskeið í notk- un fiskileitartækja, sitt í hverj- um landsfjórðungi: Á Vestfjörð- um, Norðurlandi, Austurlandi og í Vestmannaeyjum. Lagði hann til að lokum, að nefnd sú, er fengi málið til meðferðar, kynnti sér þetta með því að ræða við fiskimálastjóra um málið. Var tillagan samþykkt til 2. umræðu samhljóða og til fjár- um landið. Undanfarin 40 ár i veitingarnefndar. Fjórar nýjar bœkur frá forlagi Odds Björnssonar BÓKAFORLAG Odds Bj öx’nsson- ar á Akureyri sendir þessa dag- ana frá sér fjórar nýjar bækur, og eru þær hver á sinn hátt for- vitnilegar. „örlög orðanna“ eftir dr. Hall- dór Halldórsson er fróðleg bók og skemmtileg. Þar eru þættir um ýmis íslenzk orð og orðtök, sem notuð eru meira og mmna daglega, án þess að menn geri sér yfirleitt grein fyrxr uppruna þeirra. Hvað merkir t.d. upphaf- lega „að tala undir rós“, „að deila um keisarans ske""“. ..*ð vera á döfinni" eða „eitthvað kemur spánskt fyrir sjónir"? Hvers vegna er talað um „keisaraskurð“ þegar kona getur ekki fætt með eðlilegum hætti? Þessum spurn- ingum og mörgum fleiri er svar- að í bók dr. Halldórs Halldórs- sonar, sem er í senn vísindarit og alþýðlegt fræðirit, ætlað öll- um þeim sem áhuga hafa á ís- lenzkri tungu. „Vígðir meistarar" eftir Edou- ard Schuré er löngu heimsfræg bók, enda var hún fyrst gefin út árið 1889 og hefur síðan kom- ið á fjöldamörgum tungum í hátt á annað hundrað útgáfum. Höf- undurinn var kunnur franskur rithöfundur (lifði á árunum 1841—1929) og skrifaði um marga hluti, m.a. tónlist, dulfræði, þjóð- sögur, austurlandatrúarbrögð. Auk þess samdi hann skáldsögur og leikrit og víðlesna sjálfsævi- sögu. „Vígðir meistarar'1 fjallar um ýmsar merkustu persónur trúar- bragðasögunnar: Rama, Krishna, Hermes, Móses, Orfeus, Pýþagór- as, Platon og Jesúm. Bókin fjall- ar sem sagt um dularkenningar trúarbragðanna og leitast við að mjókka bilið milli trúar og vís- inda. Hún er 436 blaðsíður í stóru broti. Björn Magnússon prófessor íslenzkaði bókina eftir þýzkri út- gáfu. Þá sendir forlagið frá sér nýja ljóðabók eftir Sigurð Sveinbjörns son og nefnist hún „f dagsins önn“ Bókin er 104 blaðsíður og hefur að geyma 50 ljóð í hefð- bundnu formi. Loks sendir forlagið á mark- aðinn vasaútgáfu af frægri skáld- sögu, sem á íslenzku nefnist „Þrír óboðnir gestir“, eftir Joseph Hay- es. Hefur sögunni verið snúið í leikrit vestanhafs og hlaut mikið lof gagi ' '°ndi>. Ennfremur var hún kviiin^nduð. Bókin var lengi metsölubók í Ameríku, enda er hún óvenjulega spennandi og æsandi, þó um efnið sé fjallað af mikilli sálfræðilegri nærfærni. Áður er komin á markaðinn hjá Bókaforlagi Odds Björnsson- ar bókin „Leiðin til þroskans" eftir miðilinn Guðrúnu Sigurðar- dóttur. Efni bókarinnar var hljóð- ritað á fundum miðilsins á árun- um 1954—57, og eru allar lýsing- ar óbreyttar með öllu. Bókin er í 21 kafla og greina þeir allir frá dulrænni reynslu höfundar- ins. Maður meiðist á Tryggvagötu í FYRRAKVÖLD, um kl. 6,30, meiddist eldri maður nokkuð í bilslysi í Tryggvagötunni, rétt austan við gatnamót Naustanna. Var maðurinn, sem heitir Bjarni Þórir ísólfsson, Baldursgötu 1, kominn langleiðina yfir götuna, er hann varð fyrir bíl, með þeim afleiðingum að hann hlaut hand- leggsbrot, liðhlaup og skrámaS- ist og marðist. Bjarni Þórir er rúmliggjandi. Hvorki hann né sá sem bílnum ók virðast hafa séð til ferða hvors annars. Sýningarsalurinn flytur í nýtt húsnœði I DAG opnar Sýningarsalurinn tvær sýningar samtímis í nýju húsnæði að Þingholtsstræti 27. Er þetta helmingi stærra húsnæði en Sýningarsalurinn hafði á Hverfisgötunni. Sýningarnar eru happdrættissýning og sýning á eftirprentunum af málverkum eftir erlenda listamenn. Auk þess verður til sýnis og sölu íslenzkur listiðnaður, skartgripir, sem þær Sigríður Björnsdóttir og Sigrún Gunnlaugsdóttir hafa gert. ★ Á happdrættissýningunni, sem nú er sett upp í þriðja og síðasta sinn, verða 30 verk eftir ýmsa þjóðkunna listamenn, t. d. Ás- mund Sveinsson, Kjarval, Krist- ínu Jónsdóttur, Svavar Guðna- son, Þorvald Skúlason og Jón Egnilberts. Eru happdrættismið- arnir 3 þús. að tölu, og verð mið- ans 100 kr. Dregið verður í happ- drættinu nk. þriðjudag. Eftirprentanirnar eru af verk- um alls um 30 þekktra, erlendra listamanna, þ. á. m. Kandiskys, Klees, Picassos, Cézannes, Braques, Gauguins, Van Goghs og Matisses. — Allar eftirprentanirnar eru til sölu. ★ Sýningarnar verða opnaðar kl. 2 i dag, og verða opnar í 10 daga, frá kl. 1—10 fyrstu þrjá dagana, en síðan frá kl. 1—7. Aðgangur er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.