Morgunblaðið - 28.11.1958, Side 6
e
MORCVNBL4Ð1Ð
Föstudagur 28. nðv. 1958
forstjóri veit-
fomar hlóðir í salnum.
Breyting á hagkerfi und-
irstaða þáttföku í frí-
verzlun
Frá umræðum á Alþingi
Á FUNDI sameinaðs þings í
gær flutti iðnaðarmálaráðherra,
Gylfi Þ. Gíslason, skýrslu um
fríverzlunarmálið. Rakti hann í
ítarlegri ræðu þróun þess máls
frá því hann gaf skýrslu um það
á Alþingi 18. febrúar sl., en það
hefur komið fram í fréttum svo
sem lesendum er kunnugt. Ræddi
Gylfi nokkuð sérstöðu íslands og
ýmissa annarra ríkja og gat þess
að til greina kæmi að veita þess-
um ríkjum helmingi lengri frest
en áður hafði verið áformað til
að aðlaga sig fríverzlunarsvæð-
inu áður en þær gerðust virkir
þátttakendur. Skýrði Gylfi frá
því að lokum, að umræðurnar
væru nú að komast á úrslitastig
og vildi hann engu spá um hvern
ig þeim myndi ljúka. Hins vegar
kvað hann íslendinga hljóta að
fylgjast með þróun þessara mála
með athygli.
Einar Olgeirsson tók til máls
að lokinni ræðu Gylfa. Kvaðst
hann alvarlega vilja vara við
þvi, að við íslendingar ánetjuð-
umst því fríverzlunarsvæði, sem
nú væri að myndast. Þar væri
um að ræða samruna. þýzka og
franska auðvaldsins. Taldi hann
nauðsynlegt, að verja ísland
gegn þátttöku í öllu slíku. Þá vék
Einar að er'nahagssamvinnu
Norðurlanda og mælti með
henni.
Ólafur Björnsson tók næstur
til máls. Kvað hann ekki ágrein-
ing um það, að fríverzlunin hlyti
mjög að snerta hagsmuni íslend-
inga. Hann kvaðst hafa saknað
þess í skýrslu ríkisstjórnarinnar,
hve lítil skil því hefðu verið
gerð, hvaða breytingar við þyrft-
um að gera á hagkerfi okkar til
þess að geta orðið aðilar að frí-
verzlunarsvæðinu. Hann sagði
og, að skilyrði fyrir virkri þátt-
töku okkar væru þau, að við af-
næmum innflutningshöft og
tolla og útrýmdum hagsveiflum,
en til þess yrði að gera mjög
róttækar breytingar.
Þá vék Ólafur að þátttöku okk-
ar íslendinga í efnahagssam-
vinnu Norðurlanda. Skýrði hann
frá því, að þegar það mál'var
fyrst til umræðu milli landanna,
hefðum við íslendingar tekið
þátt í þeim umraeðum. Við hefð-
um síðan hætt þátttöku í þeim,
einkum vegna þess, að menn
hefðu ekki talið að fært mundi
að gera þær breytingar á gjald-
eyriskerfi okkar sem gerðu það
fært að taka þátt í norrænni
samvinnu á þessu sviði. Kvaðst
Ólafur álíta allar umræður um
þetta mál meira og minna óraun-
hæfar meðan ekki væri rætt um
hverjar breytingar við gerðum
á hagkerfi okkar. Við yrðum að
horfast í augu við að þessar ráð-
stafanir yrði að gera.
Sfjórnmálasam-
bandi slitið
BANKOK, Síam, 25. nóv. —
Tilkynnt var í dag af hálfu her-
stjórnarinnar, sem nú situr að
völdum í Síam, að stjórnmála-
tengsl landsins við Cambodia
yrðu rofin. í gær var tilkynnt í
Cambodia, að sendiherra lands-
ins í Síam yrði kallaður heim
sakir fjandskapar Síamsstjórnar
við Cambodia.
AKRANESI, 26. nóv. — Reyk-
víski vélbáturinn Reynir, sem
Sandgerðisbáturinn Sæmundur
sigldi á, var í kvöld tekinn upp
í dráttarbraut Akraness til við-
gerðar. Slippstjórinn var ekki
búinn að kanna, hve Reynir er
mikið brotinn, en sagði, að taka
myndi talsverðan tíma að gera
við bátinn. — Oddur.
Hinn glæsilegi salur á Vfk.
Einn fallegasti samkomusalur
landsins oonaður i Keflavík
Á EFRI hæð Matstofunnar Vík-
ur í Keflavík, hefur verið gerður
skrautlegur og sérkennilegur
samkomustaður, er þar allt vand-
að vel og byggt upp í fornum stíl,
þiljur gamlar og slitnar, þó að
Selmu Lagerlöf minnzt
ÍSLENZK-sænska félagið minnt
ist aldarafmælis sænsku skáld-
konunnar Selmu Lagerlöf 20.
nóv. sl. með kvöldvöku í Þjóð-
leikhússkjallaranum. — Meðal
gesta voru ambassador Svía og
frú hans. Formaður félagsins,
Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleik-
hússtjóri, bauð gesti velkomna,
og drap á þá miklu þýðingu, sem
skáldsögur Selmu Lagerlöf hefðu
haft fyrir kynni íslands og Sví-
þjóðar. Frú Þórunn Elfa Magn-
úsdóttir, flutti prýðilegt erindi
um skáldkonuna og síðan las frú
Inga Þórarinsson upp ljóð það,
er skáldið Harry Martinson
hafði ort og flutt á hátíðahöldum
þeim, sem haldin voru í Verma-
iandi sl. sumar í tilefni aldaraf-
mælisins. Er það mikið ljóð og
gott og svo „martinsonskt“ sem
mest má verða. Að lokum gafst
kostur á að heyra rödd Selmu
Lagerlöf sjálfrar af segulbandi
er hún las kafla úr sögu Gösta
Berlings. Þátttaka* í þessari
kvöldvöku sýndi, að enn á Selma
Lagerlöf sér marga unnendur.
(Frá íslenzk-sænska félaginu)
skrsfar úr
dqglegq lífinu
nýjar séu, hlaðnir steinveggir og
ullarteppi og áklæði á'veggjum
bendir allt til liðins tíma, og í
forsal er svipmynd úr gömlu eld-
húsi, þó að eldhús af gerðinni
1958, í kjallara byggingarinnar,
framleiði veitingar sem fram eru
bornar. Innan um hið skemmti-
lega gamla andrúmsloft, er svo
ljósatækni og húsgögn frá yfir-
standandi ári eða þess komandi.
— Byggðasafn Keflavíkur hefur
lánað nokkra muni til skreyting-
ar.
Víkursalurinn er djarft og
skemmtilegt framfaraspor í
Keflavík, þar sem dugnaður og
bjartsýni fara saman. Magnús
verðleikum, að hér er engin
„sjoppa“ til — engin af þessum
óhreinu óreiðustöðum, sem safna
reköldum saman, heldur eru
kvoldsölubúðirnar og veitinga-
staðirnir með glæsibrag og boð-
legar hverjum sem er, og sam-
bærilegt við það, sem bezt gerist
annars staðar. — Þetta er vissu-
lega þakklætisvert og hlutverk
okkar er að halda þessu við, svo
sem nú horfir. Við greiðum veit-
ingar okkar svo sem upp er sett,
en viljinn til snyrtimennsku og
sköpunar skemmtilegs umhverf-
is er óborganlegur — þó er góð
umgengni og hógvær framkoma
nokkur greiðsla í þá átt.“
J Meira um mjólkurafurðir.
„Reykvísk húsmóðir", skrifar:
„¥ gær las ég í dálkum yðar þörf
1 skrif húsmóður um smjörið
og aðrar mjólkurafurðir. Og lang
ar mig til að bæta þar við einni
spurningu: Hvers vegna fást ekki
hér áfir í mjólkurbúðum, eins og
títt er erlendis. Þær eru svo hent
ugar til matreiðslu?"
Að sjálfsögðu fá hlutaðeigandi
aðilar rúm fyrí’- svarið í þessum
dálkum.
Enn um biðstöðvar stræt-
isvagnanna.
UNDANFARIÐ hafa biðstöðvar
strætisvagnanna verið mik-
ið til umræðu hér í dálkunum,
enda er það svo að um ekkert
efni fáum við jafnoft bréf eins
og strætisvagnanna, nema ef vera
skyldi útvarpið. Sýnir það hversu
mikill þáttur þessar stofnanir eru
í daglegu lífi fólksins. í bréfun-
um, sem Velvakanda hafa borizt
nýlega um biðstöðvarnar, hefur
aðallega verið rætt um heiti á
þær. Bréf frá Munda er aftur
á móti um það hvernig ætti að
merkja biðstöðvarnar. Það hljóð-
ar svo:
„Við biðstöðvar strætisvagn-
anna í Reykjavík hefur verið
komið upp skiltum með leiða-
númerum vagnanna, sem nema
það staðar, svo og spjaldi, sem
líkist klukkuskífu í laginu. Ég
leyfi mér að leggja til, að gefið
verði til kynna, um hvert leyti
hver vagn nemur staðar á hverri
biðstöð, með því að mála leiðar-
númer vagnsins á þann stað á
spjaldinu, sem sýnir hvenær
klukkutímans vagninn er vænt-
anlegur. Komi t. d. vagn á ein-
hverja biðstöð 10 mínútum yfir
hvern heilan og hálfan tíma, sé
leiðarnúmer hans skrifað á
„klukkuskífuna" við tölurnar 2
og 8. Oft er óþægilegt að vita
ekki, hvenær von er á vagni, þótt
skiltin sýni, hvar biðstöðvar eru.
En slík áletrun á skiltin mundi
veita vegfarendum upplýsingar
um það“.
Þetta er ágætis hugmynd. Það
er vissulega þörf á að gefnar séu
upplýsingar um það hvenær sé
von á strætisvögnum á ákveðna
viðkomustaði, ekki sízt þar sem
langt er á milli ferða. Þeir sem
ókunnugir eru, þar sem þeir eru
staddir, geta með engu móti gert
sér Ijóst, hvort það borgar sig
fyrir þá að bíða eftir næsta vagni,
eða ganga af stað.
Aftur á móti er vafalaust erf-
itt að gefa upp ákveðinr. tíma
á öllum biðstöðvum. Vagnarnir
eru misjafnlega lengi í ferðum.
Getur það farið eftir ýmsu, um
ferð, færð og því hve margir eru
með. Þó sett væru merki á bið-
stöðvarnar, sem gæfu upplýsingar
um tíma, gætu þær aldrej orðið
nákvæmar — og yrði fólk að
skilja það. Samt sem áður held ég
að mikil bót væri í slíkum upp-
lýsingum. Það væri t.d. þægilegt
fyrir hvern þann, sem staddur er
í úthverfi, að vita hvort næsti
vagn er væntanlegur eftir um
það bil 10 mínútur eða hvort
örugglega er um allt að hálftíma
bið að ræða.
Leiðin merkt líka.
UR því merking á biðstöðvum
er til umræðu, langar mig
til að minnast á annað atriði í
þessu sambandi. Sums staðar
erlendis eru á hverri biðstöð
merktar leiðirnar sem tiltekinn
vagn ekur. Það þarf ekki að vera
langt mál, heldur aðeins upplýs-
ingar fyrir þá, sem eru ókunnugir
númerunum á þessari leið. T. d.
19: Lækjargata, Hringbraut,
melarnir, Ægissíða, Suðurgata.
Þá getur vegfarandi séð undir
eins hvort vagninn fer nálægt
þeim stað, sem hann þarf að kom-
ast á. Ef hann vissi svo að auki
hér um bil hvenær vagninn kem-
ur, þá væri kerfið fullkomið.
ingahússins, er til hægri.
Björnsson, forstjóri Víkur, er
þeim vanda vaxinn að halda
glæsibrag yfir þessum nýja veit-
ingasal, það hefur hann sýnt
með rekstri sínum á neðri hæð-
inni Þannig segir í grein í blað-
inu Reykjanes, sem gefið er út
í Keflavík, og síðan segir:
„Það er siðferðisleg skylda
okkar — fólksins í Keflavík —
að styðja þessa bjartsýnu við-
leitni af fremsta megni og hjálpa
til að halda þeim menningarbrag
og svipmóti, sem til er ætlast með
opnun og rekstri þessa veitinga-
salar.
Við Keflvíkingar mættum
gjarnan athuga það og virða að
/erkfall
RÓM, 25. nóv. — Járnbrautar-
starfsmenn um gervalla Ítalíu
gera sólarhringsverkfall frá og
með miðnætti til þess að leggja
áherzlu á kröfur sínar um hærri
laun, lengra sumarfrí og hærn
eííirlaun. Verkföllin eru boðuð
af verkalýðsfélögum, sem komm
únistar og kristilegir demókrat-
ar ráða — og búizt er við, að það
nái til næstum allra starfsmanna,
160 þús. að tölu. Daglega eru
íarnar 6000 járnbrautarferðir inn
an Ítalíu. Þá hafa póstmenn og
boðað sólarhringsverkfall.