Morgunblaðið - 28.11.1958, Síða 17
Föstudagur 28. növ. 1958
MORC. VTVRLAÐIÐ
17
— Minning
Frh. af bls. 16
gtundaði þar »ám í tvo vetur.
Veturinn 1898—1899 stundaði
Kristjana barnakennslu í Klombr
um í Vesturhópi og þar kynntist
hún eftiriifandi manni sínum
Tryggva Á. Pálssyni, þá kennara.
Þau giftust á ísafirði 1. október
1899, en þar stundaði Trýggvi þa
kennslu og dvöldu þau fyrsta
vetur hjuskapar síns á ísafirði
Vorið 1900 íluv.u þau að Skála-
nesi í Guíudalssveit í Barða-
strandarsýslu og hófu þar bú-
skap og bjuggu par í 3 ár. Þaðan
fluttust þau að Valshamri í Geira
dal og bjuggu þar í 5 ár. Vorið
1908 fluttu þau að Gufudal, þar
sem þau bjuggu til ársins 1914,
að þau fluttu að Kirkjubóli í
Skutulsfirði, en þar bjuggu þau
óslftið í rúm 20 ár.
Árið 1935 brugðu þau hjónin
búi og fluttu til Reykjavíkur.
Festu kaup á húseigninni nr. 31
við Reykjavíkurveg og áttu þar
heima æ síðan. Fyrir fjórum ár-
um kenndi Kristjana þess sjúk-
dóms er að lokum dró hana til
dauða. Nálega allan þann tíma
dvaldi hún í sjúkrahúsinu Hvíta-
bandinu, en í Sólvangi síðustu
vikurnar.
Þessi eru í stærstu dráttum ævi
leið Kristjönu Sigurðardóttur.
Þeim hjónum varð 9 barna auðið.
Látin eru: Sigríður, fyrrum hús-
freyja á Kirkjubæ í Skutulsfirði,
Guðmundur búfr., Sigurður, iðn-
nemi og Sverrir, er dó á barns-
aldri. Á lífi eru: Ólafur, verk-
stjóri í Reykjavík, Kristján, klæð
skerameistari á ísafirði, Tryggvi,
kennari í Reykjavík, Aðalheiður,
húsfreyja í Hnífsdal og Snorri,
garðyrkjubóndi í Hveragerði.
Með Kristjönu Sigurðardóttur
er gengin góð kona og göfug. Allt
hennar ævistarf var unnið af all-
úð og einstakri ástúð og góðvild.
Hún naut óskiptrar virðingar
allra þeirra, er hana þekktu,
vandamanna sem vandalausra.
Hún var mjög trúhneigð og inn-
rætti börnum sínum trú á guð og
góða siði. Bókhneigð var hún og
hvenær, sem henni gafst tóm til
frá annasamri búsýslu, þá las
hún í bökum sér til skemmtunar
og fróðleiks.
Hjónaband hennar og Tryggva
var farsælt og með ágætum og
mun þar aldrei hafa hlaupið á hin
minnsta snurða, enda þótt ef til
vill gæfist tilefni til eins og oft-
ast vill verða á langri lífsleið.
Hún var hin umhyggjusama eigin
kona og skilningsrík og átti þess
vegna svo auðvelt með að fyrir-
gefa.
Ævistarf hennar var mikið og
erilsamt. Tryggvi Pálsson var
umsvifamikill íramtaksmaður í
búskap sínum og í heimili þeirra
allajafna mjög mannmargt. Það
var því í mörg horn að líta fyrir
húsmóðurina og starfsdagur lang
ur.En öllum var störfunum sinnt
aí slikri rósemi og æðruleysi að
Rætt um sæsíma
yfir Atlantshaf
STJÓRN Alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar hefir ákveðið að halda
sérstakan fund í París í byrjun
næsta árs til að ræða kostnað við
notkun fyrirhugaðs sæsíma yf-
ir Atlantshaf sem lagður yrði til
að bæta símasambandið fyrir
flugþjónustuna. Þessi fundur á
að hefjast 12. jan. Þátttakend-
ur verða fulltrúar þeirra 14
þjóða, sem nú standa straum af
kostnaði við flugþjónustu á ís-
landi, Grænlandi og í Færeyjum.
Er ætlunin að sæstrengurinn
liggi um þessi lönd til Ameríku.
Sem stendur eru upplýsingar
flugþjónustunnar sendar á firð-
ritun milli þesara landa á út-
varpsbylgjum. Sambandsslit
vegna lofttruflana eru tíð, eink-
um vegna sólbletta, en sæstreng-
urinn á að koma í veg fyrir alvar
legar tafir og óþægindi, sem flug-
þjónustan á milli Ameríku og
Norðurálfu hefir orðið fyrir af
þessurn sökum.
„ldrei fannst það á að neitt færi
í handaskolum, þótt margt kallaði
að í senn.
Þannig var það einnig, er serg-
in knúði á dyr. Á einu iri dóu
þrjú bór.i hennar. Þá sem endra
nær stóð nún óbuguð við hlið
manns sins, treystandi nand-
leiðslu guðs s'ns.
Dagsverki hennar er lokið með
sæmd að allra dómi og hefur
hún því hlotið að starfslaunum
það, sem bezt verður á kosið.
Síðustu ár æfi sinnar átti Krist
jana við afar þungbæran sjúkdóm
að stríða. Það, sem annað bar hún
með óbuguðu hugrekki og ró-
semi hugans.
Hún er kvödd hinzlu kveðju í
dag, sárt treguð af ástríkum eig-
inmanni, vandamönnum og vin-
um. En minningin um hina
ágætu konú mun aldrei fyrnast.
Sverrir Hermannsson.
Frú Kristjana Sigurðardóttir
frá Kirkjubóli
K V E Ð J A
Vestur á fjörðum veit ég um dal
þar sem vötn eru hrein og tær.
Þröngt er en fagurt í fjallasal
en fellur að grundum sær.
Fyrir löngu byggðist þar bær
á breiðum ,öldnum hól
sá kallast Kirkjuból.
Og ég þekki marga, sem gistu
þann garð
og gátu þess oft síðan þá,
að húsfreyjunni annt væri um
arð
þeirrar eignar, sem bezt verða
má.
Og mannkosti átti hún, þeir
mikluðu þá
mjög í ræðu um hana.
Hún kallaðist Kristjana.
Hún þótti fámælt, e* fundu
menn það,
að fylgin sér var hún lengi.
Og æðruleysi sat ávallt þann stað
þótt úrskeiðis sitthvað gengi.
Og jafnan bað hún sinn bónda
og drengi
að bróðurhug efldu þeir vorn.
Slíkt kallast kvendyggð forn.
Hennar hyggja var létt því að
byrðarnar bar
sá er bognaði ei undir þeim.
Ef bjarg hljóp á veg eða bára
skall þar,
bað hún Drottin að leiða sig heim
Eigi leikur það tungum á tveim
að traust er hjálpin sú,
sem kallast kristin trú.
Hún vissi af reynslu á langri leið.
hvaða lán fellur dýrast í skaut.
Að' skýla hverjum sem sköpuð
er neyð
eða skelfist í daganna þraut.
Að reiðast ei þeim er reglur
braut
og reynast hrjáðum vel,
það kallast kærleiksþel.
En hafir þú rétt þína hönd að
mér,
þegar helzt var ungum þörf,
þá skal nú kveðin þökkin þér
fyrir það og öll þín störf.
Við ævidagsins efstu hvörf
orða ég ljóð til þín.
Það kallast kveðjan mín.
Einn að vestan.
Húsbyggendur athugið
Getum tekið að okkur strax eldhúsinnréttingar og
innivinnu í húsum, ennfremur framkvæmum við
allskonar vélavinnu.
Upplýsingar í símum 23829 og 22158.
I HREI[\!SKILHI SPURI!
[RUÐ ÞÍR í EIIULÆGIUI ÁMÆGÐ4R MED HÁR YBAR?
Enginn undanbrögð — athugið nú hár yðar vandlega. Hvað
um blæfegurðina?- og snyrtingu hársins yfirleitt? — Hver
svo sem er uppáhaldshárgreiðslu yðar, þá ætlist þér til að
hár yðar haldist án þess að nota límkennt hárlakk, eða
brillantine, sem fitar hárið — eða með öðrum orðum þér
viljið fá gott permanent. —
Vér bjóðum yður TONI permanent fyrir aðeins lítinn hluta
af því sem stofupermanent kostar. — Athugið þess vegna
kosti TONI-permanents.
TONI er auðvelt, fljótvirkt og handhægt.
TONI-hárliðun endist lengi
og hárið verður blæfagurt
og eðlilegt.
TONI-hárbindingin er jafn
auðveld og venjul. skolun
TONI-hárliðunarpappírinn
TONI-hárliðunarvökvi
hefir gððan ilm.
'nniheldur lanolin, til að
hindra slit á endum lokk-
anna.
★
SUPER fyrir hár, sem erfitt
er að liða.
REGULAR fyrir venjulegt
hár.
GENTLE fyrir hár, sem tek-
ur vel liðun.
*
TONI er einmitt fyrir yðar hár.
Hvor tviburanna notar TONI?
Pat og June Mackell eru hinar frægu sörg-
stjörnur Breta. Pat sútil hægri er með TONI.
June systir hennar er með dýrt stofuperm-
anent. Pat er hæstánægð með TONI og finnst
hárið fara prýðilega.
Tfekla
Austurstræti 14.
Simi 11687.
FITAN HVERFUR FLJOTAR
ð freyðandi V IM
ine
öll fita hverfur á augabragði með
freyðandi VIM. Stráið aðeins örlitlu á
rakan klút, nuddið rösklega eina yfir-
ferð og hinn fitugi vaskur er hreinn.
Það er svo auðvelt! Hið freyðandi VIM
hreinsar öll óhreinindi. Hinar þrálátu
fiturákir í vöskum og baðkerum hverfa.
Pottar, pönnur, baðker, flísar og mál-
aðir hlutir verða tandurhreini
Gljáinn kemur fyrr
með freyðandi VllVf
X-V 906-16M-9Í