Morgunblaðið - 19.12.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.12.1958, Blaðsíða 20
20 MORCUTSBLAfíl f> Föstudagur 19. des. 1938 ★ Úrvalið minnkar því ífær sem líður jólum, og líkurnar til þess að eignast fallegan lampa. ★ Ennþá eigum vér þó fallega gólflampa, borð- og vegg- lampa. Dragið ekki að kaupa yður fallegan lampa fyrir jólin. Gólflampar verð aðeins kr. 695 Borð- og vegglampair í úrvali. Verð frá kr. 175,00. / JfeklcL Austurstræti 14, sími 11687 JÓLAGJAFIR! Skrifborbslampar með spíral-armi. Kr: 295. — Jfekla Austurstræti 14 Sími 11687. «ínu leyti af því að sjá, hve vel drengnum þegar var batnað. Hann var orðinn rjóður í kinnum og með ljóma í augum, og hann var ham- ingjusam-ur af því, að vera með föður sínum. „Líður þér vel, drengur minn?“ spurði Rolf. „Já, ágætlega, pabbi!“ En vantar þig ekkí leiksystkini á aldur við þig? Hefur þú reynt að tala við Ann og Barböru?" „O, ég kæri mig ekki um telp- ur“, svaraði Tómas fljótt. „Ekki þegar ég hef þig hjá mér. Jú, mér þótti vænt um Súsönnu lækni, en hún er líka fullorðin kona,- Hvers vegna gat hún ekki komið með okkur hingað, pabbi?“ „Hún þarf að hugsa um sitt starf — og aðra litla drengi sem þarf að lækna". Tómasi virtist snöggvast falla þetta miður, en það stóð ekki lengi. Rolf lét hann vinna tvisvar í kroket og þeir ætluðu að fara að ganga inn til hádegisverðar, þegar bifreið kom utan af vegin- um og nam staðar utan við sval- irnar. Rolf sneri bakinu að og sneri sér ekki við, en þó leit hann á Tómas, sem starði á bílinn og hleypti brúnum nærri eyðilagður á svipinn. Rolf sneri sér snöggt við. Katarina Hemmel stóð fram- an við svalirnar í glæsilegri, brún- leitri lérefts „dragt“, með rósrauð an hatt á svörtu hárinu og brosti sigri hrósandi. „Katarina", varð Rolf að orði. 12. KAFLI. Tómas eða Katarina? „Góðan daginn, herrar mínir!“ sagði Katarina hlæjandi. „Urðuð þið hissa?“ Hún kom upp til þeirra í sínum glæsilega búningi, og eins og svo oft áður veitti Rolf því eftirtekt, að hún iðaði af lífsfjöri. Hann stóð upp og rétti henni höndina. „Hvers vegna í ósköpunum kemur þú á þessar slóðir, Katar- ina?“ spurði hann. „Hefur þú kos- ið heldur að hvíla þig innan um máfa og bændastúlkur, en að ferð- ast til Frakklands?" „Já, ég ætla að njóta friðar og hvíldar hérna reglulega vel, og ég er búin að tryggja mér herbergi fyrirfram. Það lagðist einhvern veginn í mig, að þið mynduð þurfa einhverja svolitla tilbreytingu". Hún beygði sig og strauk koll- inn á Tómasi. „En hvað það er gaman að sjá, að þú ert orðinn svona frískur, litli vinur. Við verðum að gera allt til þess að þú getir gleymt ljóta spítalanum". „Hann var alls ekki Ijótur", mótmælti Tómas gramur. „Undir eins og við komum heim, ætla ég að fara og heimsækja Bergmann lækni. Þá ætla ég að koma í heim- sókn, hún hefur lofað mér því“. Það lézt Katarina ekki heyra. Hún hélt áfram að tala við Rolf. „En hvað þetta er dásamlegur st-aður. En hvernig í ósköpunum færð þú kvöldin til að líða? Situr þú og spilar á hárgreiðu í einver- unni? Jæja, það ætti þó alitaf að geta heppnazt að koma einni bridge af stað. Ert þú alltaf jafn ómannblendinn og súr á svipinn?“ Rolf hristi höfuðið. „Við Tómas erum eiginlega ekki komnir lengra en að átta okkur dálítið á staðn um hérna. Við höfum ekki tekið þátt í samkvæmislífinu, ef þá er um nokkuð slíkt að ræða. „Þeir þarna í rauða bænum eiga geit. Hún étur tóbak“, skaat Tóm as inn í. „Það getur ekki verið", svaraði Katarina annars hugar. „En nú verð ég vissulega að fara inn og hafa fataskipti. Við hittumst lík- lega við miðdegisverðinn. Hvað skyldi maður eiga að fara í? Ég verð víst að velja kóralrauða kjólinn minn. Hann getur alltaf glatt og gengið í augun á ein- hverri skrifstofumúsinni meðal gestanna". Þegar hún var farin, horfði Tómas hugsandi á föður sinn. — „Hve lengi á hún að vera?“ „Það veit ég ekki, drengur minn. Hún er víst í dálitlu leyfi eins og við“. „Hvers vegna kom hún?“ „Ja, henni lízt líklega vel á stað- inn hérna, og svo hefur hún ætl- að að vera okkur til skemn.tunar-". „Ég hef enga þörf á skemmt- un“, 'Sagði Tómas ákafur. „Hefur þú það, pabbi?“ Um leið var klukkunni hringt, svo að Rolf komst hjá því að svara spurningunni. Hann sagði Tómasi, að hann skyldi flýta sér að þvo sér um hendurnar, og dfengurinn fór þegar af stað fegins hugar. Þegar hann kom inn í ganginn, rakst hann á Katarinu, sem var að biðja eina stúlkuna að strjúka nokkrar treyjur fyrir sig. „Nei, Tómas", sagði aún, „hleyp ur þú svona um einsamall? Hvað segir faðir þinn um það?“ „Ég á bara að þvo mér um hend urnar, áður en við förum inn að borða. Ert þú lík-a búin að þvo þér um hendurnar?“ „Skilaðu kreðju til pabba og segðu honum, að ég komi eins fljótt og ég get, og að hann skuli taka frá sæti handa mér við borð- ið ykkar. Veiztu hvað það þýðir, að taka frá? Þeir eiga að bera á borð fyrir einn í viðbót". „Já, það hef ég svo sem vitað lengi“, sagði Tómas montinn, og flýtti sér upp stigann. Þegar Katarina gekk inn í borð salinn, hætti allt samtal andar- tak. Kjóll hennar var eins og ein- tómir logar, og hörund hennar fullkomlega fagurt, eins og ávallt var. Hún leit í kringum sig með sjálfstrausti í svipnum og kink- aði kolli brosandi, þegar hún kom auga á Rolf og Tómas við borð úti við glugga. „En hvað þið hafið valið við- kunnanlegt borð“, ságði hún, og leit til þeirra hlæjandi. „Það verð ur áreiðanlega skemmtilegt að vera saman. Að hugsa sér, að Tómas skuli geta setið hérna inn- an um allt fullorðna fólkið. Leið- ist þér ekki, drengur minn?“ „Nei“, svaraði Tómas, með fullan munninn af kartöflum. — „Okkur pabba þykir svo gaman hérna“. „En þú verður að minnsta kosti að venja þig á að renna nið ur, áður en þú talar. Því má ekki gleyma í svona fínum borðsal. 1 rauninni ættir þú, Tómas, svona lítill drengur, að borða inni í barnaherberginu“. Hún leit á Rolf. „Myndi það ekki vera skemmtilegra fyrir hann? ....... Nei, nú verður þú að þegja, dreng ur minn. Ég var að tala við föður þinn“. „Ég lét hann velja sjálfan", svaraði Rolf. „Hann vildi heldur borða hérna, og það er líka svo langt síðan við höfum verið veru- lega saman. Og ég verð að segja, að hann hefur hegðað sér vel“. Katarina yppti öxlum. „Jæja, gerðu það sem þú vilt. Dálítið meira umgengni við önnur börn myndi áreiðanlega ekki verða hon- um að meini......En er það ekki Axelsson forstjóri, sem situr þarna við kringlótt-a borðið? Jú, það er hann! Einn af mínum helztu viðskiptamönnum. Ég þarf að ragða heilmikið við hann“. Rolf hló. „Nú ættir þú að gleyma viðskiptunum. Ég hélt, að þú kæmir hingað til að hvíla þig. Og það er líklega sama máli að gegna um forstjórann þarna“. „Þú hefur rétt að mæla“. Hún hallaði sér aftur í stólnum. „Hið eina, sem ég hef reglulega áhuga á hérna, er hr. málafærslumaður Rolf Agréus og sonur, það firma er mér mjög annt um. Þegar ann- ar hluth-afinn er háttaður, gæti ég fallizt á að fá mér skemmtilega, litla kvöldgöngu með eldri hluthaf anum“. ajlltvarpiö Fösludagur 19. desember: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 18,30 Barnatími: Merkar uppfinn ingar (Guðmundur Þorláksson kennari). 18,55 Framburðar- kennsla í spænsku. 19,05 Þingfrétt ir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt mál (Árni Böðvarsson kand. mag.). 20,35 Kvöldvaka: a) Laga- skóli á Islandi 50 ára: Samfelld dagskrá undirbúin og flutt af lagastúdentum. b) Rímnaþáttur í umsjá Kjartans Hjálmarssonar, Sveinbjarnar Beinteinssonar og Valdimars Lárussonar. c) Erindi: Manntalið mikla (Ölafur Þorvalds son þingvörður). 22,10 Upplestur: a) Úr „Sjálfsævisögu Björns Ey- steinssonar“ (Baldur Pálmason les). b) „Langspilið ómar“, bókar- kafli eftir Gunnar M. Magnúss — (Höf. les). 22,40 Létt lög af plöt- um. 23,10 Dagskrárlok. I a r L ú jr rr's TI-IE FOUR I CORNERS OF THE V, EARTH, ANP f IT MEANS 'r-A ( GfíLEAT MYSTERY /S EVERVWHERE? J 1) „Já, ég skal segja yður hvað þetta tákn merkir, — Sússana .. „Það eru hin fjögur endimörk jarðarinnar.“ 2) „Það á að tákna það, að hinn mikli leyndardómur sé alls stað- ar“ svarar Frank. „Segið þér bara til, ef yður finnst ég þreytandi, en hvers vegna hafið þér endilega þetta tákn?“ 3) „O-oo, mér fannst það þara athyglisvert. Ég lét stinga þetta á húðina á mér, þegar ég var strákur". Laugardagur 20. desember: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14,00 S-amtals- þáttur: Edwald B. Malmquist tal- ar við Hansínu Sigurðardóttir um blómskreytingar á heimilum um jólin. 14,15 Tjaugardagslögin. 16,30 Miðdegisfónninn: Frá „viku léttr- ar tónlistar" í Stuttgart í okt. s.l. 17,15 Skákþáttur (Baldur Möll- er). 18,00 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 18,30 Útvarpssaga barnanna: „Ævin- týri Trítils" eftir Dick Laan; V. (Hildur Kalman leikkona). 18,55 1 kvöldrökkrinu, tónleikar af plöt- um. 20,30 Á bókamarkaðnum (Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarps- stjóri). 22,10 Danslög (plötur).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.