Morgunblaðið - 03.01.1959, Blaðsíða 12
IZ
MORGUTSBLAÐ1Ð
Laugardagur 3. jan. 1959
Annan vélsfjóra
og beitningamenn vantar á m.s. Hafn*
firðing. Uppl. hjá skipstjóranum
í síma 50757.
. InnheimtumaBur
Stórt verzlunarfyrirtæki óskar að ráða Jnn-
heimtumann. Umsóknir með upplýsingum um aldur
og fyrri störf umsækjenda, sendist afgreiðslu blaðs-
ins fyrir 7. janúar n.k. merkt:
„Innheimtumaður nr. 5601“.
Suðurnesjamenn
Hinn árlegi
grímudansleikur
verður haldinn í Samkomuhúsi Niarðvík-
ur í kvöld kl. 9.
Munið beztu skemmtun ársins.
Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur.
U nglinga
vantar til b'aðburðar í eftirtalin hverfi
Nesvegur
Höfðaboffg
Sörlaskjól
Herskálacampuu
Di granes vegur
Nýbýiavegur
Miðtún
Bráðræðisholt
Lynghagi
— Hlustab á úfvarp
Framh. af bls. 8
— Þetta er mjög ófullkominn út-
dráttur úr vandlega sömdu og
ágætu erindi Jónasar Þorbergs-
sonar.
★
Frú Sigríður Thorlacius talaði
um daginn og veginn. Hún kvað
gamla jólasiði og venjur smátt og
smátt leggjast niður en í stað
kæmu alls konar erlendir jólasið-
ir. Bréf bærust mörg til Santa
Claus á íslandi og væri þeim
svarað vingjarnlega. (Undirritað-
ur vill geta þess, að þegar hann
vann í pósthúsinu hér á fyrsta og
öðrum tug aldarinnar, 1907—1913
voru bréf til Santa Claus endur-
send með áskriftinni Incomu!). —
Frú Thorlacius kvað útl. náms-
menn, er hér hafa dvalizt, yfir-
leitt bera íslandi vel söguna, er
þeir koma heim. Fólk þetta hefur
mjög orðið snortið af náttúru
landsins. Finnst því betra að búa
í strálbýli, fjölskylduböndin
sterkari. — Mikið að gera um
jólin, mjög þakklætisvert hve
hjúkrunarfólk og annað starfs-
fólk sjúkrahúsa gerir sér mikið
far um að gera sjúklingum þar
dvölina bærilega og leggur þetta
fólk á sig mikið erfiði til þess.
Slæmt að matsölustaðir eru lok-
aðir um jólin, þeir er þar borða
verða að lifa á snöpum og jafnvel
hálfsvelta. — Mælti frúin gegn
sorpritum og slæmum kvikmynd-
um svo og skömmum í blöðum,
daglega. Þar er stjórnmálamönn-
um úthúðað, þeir svertir og
nefndir öllum verstu nöfnum og
alls konar fúkyrði notuð. Þetta
er stórskaðlegt og ósæmilegt. —
Ættu konur að taka sig saman og
Áramótafagnaður
í Framsóknarhúsinu í kvöld kl. 21.
Miðar seldir á staðnum frá kl. 2.
Hljómsveit hússins ásamt Helenu Eyjólfsdóttur
skemmta.
Nemendasamband Samvinnuskólans.
Sendisveinn
Köskur sendisveinn óskast nú þegar.
= HÉÐINN =
Friðurinn endurreistur
Nýr himinn — Ný jörð
Um ofanritað efni talar O.
J. Olsen í Aðventkirkjunni
annað kvöld (sunnudaginn
4. jan. 1959) kl. 20:30.
Guðmundur Jónsson
syngur.
Ailir velkomnir.
mótmæla þessu athæfi stjórnmála
blaðanna. Að lokum gat frú Sig-
ríður um dugnað og hetjudáðir
fólks er gegndi skyldustörfum i
illviðrum vetrarins. — Þetta var
ágæt ræða og röggsamleg.
★
Einkennileg voru ljóð þau er
lesin voru eftir Jónas Svafár.
Margir áttu erfitt með að njóta
þess skáldskapar. Hugleiðingar
Hendriks Ottóssonar um fyrstu
Mósebók voru fróðlegar eins og
allt er H. O. flytur og skemmti-
lega fluttar. Anna Þórhallsdóttir,
söngkona söng sjómannaljóð.
eldri og yngri. Hún hefur einkar
þægilega söngrödd og fer óvenju-
lega smekklega með melódíu og
texta sem hún bar svo vel fram
að varia misstist orð af kvæðun-
um. Er það óvenjulegt. Einkum
þótti mér gaman að heyra lag
eitt eftir dr. Hallgrím Helgason,
sem ég hef aldrei heyrt fyrr. Það
er merkilegt lag, sem hlýtur að
vekja athygli og verða langlíft.
Svo hófust jólin með endalausri
músík, stórverkum snillinganna
og sálmalögum engu minni snill-
inga. Á útvarpsmess.ur hlustaði ég
ekki, fór aftur á móti í kirkju.
Jólavaka Ævars Kvaran var á-
gæt, það sem ég heyrði af henni.
Voru það sögur og kvæði flutt af
úrvalslistamönnum: Tómasi Guð-
mundssyni, Steingerði Guðmundg
dóttur, Jóni Thorarensen og Lár-
usi Pálssyni. Leikritið Undir
merki kærleikans eftir Duboi*
heyrði ég ekki.
★
„Lýðurinn tendrar ljósin hreln**
nefndist þáttur, er Björn Th.
Björnsson listfræðingur, talaði
við erlent fólk á íslandi um jóla-
siði og jólahald. í stórum dráttum
eru jólin haldin á svipaðan hátt
í öllum kristnum löndum, þótt
út af sé brugðið í smámunum, svo
sem mataræði og guðsþjónustu-
venjum. Þessi þáttur var fróð-
legur og skemmtilegur, jólahald
hér á landi, a. m. k. hér í Reykja-
vík, er nú mjög á annan veg en
var þegar ég var barn, fyrir
aldamótin. Og þó eru jólin ætíð
hin sömu, ljósum skreytt gleði-
hátíð, allra þeirra sem ekki hafa
við sjúkdóma og sorgir að stríða.
Þorsteinn Jónsson.
Vinno
Vordingborg Húsma-ðraskóli
ca. 1% st. ferð frá Kaupmanna
höfn. — Nýtt námskeið byrjar 4.
maí. Fóstrúdeild, kjólasaumur,
vefnaður og handavinna. Skóla
skrá send. Sími 275. Valborg Olsen
halda
VÖRÐUR - HVÖT - HEIMDALLUR - ÖÐINN
Spilakvöld
Sfálfstæðisféldyin í Eteykfavík þriðiuflaginii 6. janúar
KI. 9 eh. í Sjálfstæðisiiúsiim ecg Hétel Borg
— SKEMMTIATRIÐI -
Sjálfstæðishúsið:
Hótel Borg:
1. Félagsvist
2. Ávarp: Bjarni Benediktsson, alþm.
3. Spilaverðlaun afhent »
4. Dregið í happdrættinu
5. Baldur Hólmgeirsson skemmtir
6. Einsöngur: Guðm. Jónsson, óperusöngv.
7. D a n s.
1. Félagsvist
2. Ávarp: Jóhann Hafstein, alþm.
3. Spilaverðlaun afhent
4. Dregið í happdrættinu
5. Baldur Hólmgeirsson skemmtir
6. Einsöngur: Guðm. Jónsson, óperusöngv.
7. D a n s.
Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu í dag, laugatrdag frá kl. 2—4.
Skemmtinefndin.