Morgunblaðið - 03.01.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.01.1959, Blaðsíða 18
18 MORG VIVRI AÐ1Ð Laugardagur 3. Jan. 1959 Enn er mikil karfaveiði HAFNARFIRÐI — Þri'r togar- ar komu hingað á gamlárskvöld. Röðull, með fullfermi af karfa frá Nýfundnalandsmiðum, en þar er hin ágætasta veiði ennþá, Ágúst af sömu miðum með fullfermi og Surprise af Vestfjarðamiðum með um 170 tonn, sem hann sigldi með Karl Eyjólfsson, Keflav'ik sextugur ; ÍKARL Eyjólfsson, verkstjóri í Keflavík, varð sextugur á gaml- ársdag. Karl er einn af hinuan innfæddu Keflvíkingum langt fram í ættir, hann hefur vaxið «neð Keflavík og lagt sitt fram til þess að nú er gamli kotbærinn orðinn einn af hinum þróttmestu vaxandi bæjum á landinu. — Karl er harður í horn að taka á fitundum en hið mesta ljúfmenni þegar á þá strengi er Ieikið. Karl Eyjólfsson hefur stundum bogn- að en aldrei brotnað og valið sér að standa í þjóðmálaátökunum, þar sem frjálst fraantak og eigin atorka fær að njóta sín. Kefl- vikingar þekkja Kalla í Strít — og óska honum alls hins bezta á þessum merku tímamótum í lífi hans. Við vonum að starfskrafta hans megi lengi við njóta okkar tmga bæ til framdráttar. aðfaranótt nýjársdags á Þýzka- landsmarkað. í gær kom Júní af veiðum, og var gizkað á að hann væri með um 170 tonn. Vegna bilunar á vél, varð Júní að leita til hafnar fyrir vestan og tafðist því nokkuð frá veið- um, því að ílytja varð stykki í vélina vestur með flugvél. Var í gær skipað út i hann nokkru af þorski úr Ágúst, en síðan hélt hann áleiðis til Þýzkalands. Flestir reknetjabátanna hættu veiðum fyrir jól, enda var þá orðið síldarlaust. Eru þeir nú all- ir búnir að taka upp netin og margir hverjir farnir að búa sig undir vertíðina. Enn er allt óráð- ið hversu margir bátanna fara á línu, en reikna má með því, að héðan verði gerður út svipaður fjöldi báta á línu og net og í fyrra, eða í kringum 20. Nokkur ufsaveiði var hér í höfninni fyrir jól og fengu nokkrir smábátaeig- endur þá ágæta veiði í nokkra daga. —G.E. Mikið um farþega- flutninga MIKH) var um farþegaflutninga á vegum Flugfélags íslands inn- anlands um þessi jól eins og und- anfarin ár. Fyrir hátíðina urðu að vísu nokkrar tafir vegna erfiðra veðurskilyrða, en allir farþegar munu samt hafa komizt leiðar sinnar fyrir jólin. Að morgni aðfangadags beið flug- vél á Sauðárkróki og flaug þaðan til Akureyrar, Húsavíkur og Þórshafnar, en þeir staðir höfðu verið lokaðir sökum snjókomu daginn áður. Milli jóla og nýárs hefir veður verið betra, og hefir verið flogið samkvæmt áætlun til allra staða nema Siglufjarðar, en þangað var flogið í dag. Enn- fremur var m. a. flogið til Ak- ureyrar í dag og fluttir þaðan tæplega 60 farþegar. Island í landsleik við Noreg 10. febr., v/ð Dani 12. febr. og v/ð Svía 15. febr. ÞAÐ hefur löngum verið um það kvartað af hálfu ísl. blaðamanna að margar góðar fréttir sem íslendinga varðar berast fyrst erlendis frá — og er slíkt óskiljanlegt sleifarlag af hálfu þeirra manna hér heima er málin varða hverju sinni. Flytur „Ekstrabladet“ í Kaupmannahöfn þá fregn 30. des. s.I. sem hér skal frá greint. „Akveðið er nú meðal handknattleikssambanda á Norðurlöndum hvenær lands- leikir íslendinga og hinna Norðurlandanna í handknatt- leik fara fram. ísiendingar leika fyrst landsleik gegn Norðmönnum í Osló hinn 10. febrúar n.k. Síðan leika þeir Iandsleik gegn Dönum í Hels- ingör hinn 12. feb. og loks mæta þeir landsliði Svía i Borás hinn 15. ferbrúar". Meðan ekkert heyrist frá Handknattleikssambandi ís- lands þá verður að álykta að hér sé rétt með farið af hinu danska blaði. Því er svo við að bæta að handknattleikssamböndin í Danmörku, Noregi og Svíþjóð munu hafa tekið sameigin- lega afstöðu til leikja íslend- inga, enda munu þau á ein- hvern hátt í sameiningu greiða fyrir þessari ferð ísl. Iandsliðsins. Landslið gegn blaðaliði i handknattleik á sunnudag Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ fer fram að Hálogalandi kappleikur milli landsliðs Handknattleiks- sambandsins og liðs er félagar í Samtökum íþróttafréttamanna hafa valið. Er þetta liður í undir- búningi ísl. handknattleiks- manna fyrir landsleikina við Dani, Svía og Norðmenn sem fram fara í febrúar n.k. Hefur landsliðsnefnd HSÍ valið 20 leik- menn til sérstakra æfinga fyrir landsleikina og hafa æfingar ver- ið miklar og undirbúningur allur allgóður undanfarnar vikur. Úr þessum nál. 20 manna hópi hefur landsliðsnefndin valið eftir farandi landslið til að mæta liði blaðamanna á sunnudaginn. Tek- ur þó fram að landsliðið sé þannig valið aðeins fyrir þennan leik við blaðaliðið — en hvernig það verður endanlega getur eng- inn sagt fyrir um ennþá. Lands- liðið er svona: Markmenn Guðjón Ólafss 'R Hjalti Einarsa- Bakverðir Guðjón Jónsson Fram Einar Sigurðsson FH Hörður Felixsson KR Framlína a Hermann Samúelsson ÍR Birgir Björnsson FH Gunnlaugur Hjálmarsson ÍR Framlína b Rúnar Guðmannsson Fram HVAÐ VANTAR YÐUR? Eigið þér Eigið þér Eigið þér Eigið þér 10. janiíar Endurnýjunarmiði: 20 krónur Ársmiði: 240 krónur Eigið þér Eigið þér EIGIÐ ÞER MIÐA I VÖRUHAPPDRÆTTI 3 vinningar á /z milljón króna ý vinningar á Z 00.000 króna 6 vinningar á 100.000 króna 4987vinningar frá 500 -50.000 króna Styðjum sjúkc ti/ sjá/fsbjargar SÍBS Reynir Ólafsson KR Karl Jóhannsson KR Lið það er Samtök íþrótta- fréttamanna hafa valið til að keppa gegn þessu landsliði er þannig skipað: Markverðir Kristófer Magnússon FH Skúli Skarphéðinsson Afturelding Bakverðir Hilmar Ólafsson Fram Þórir Þorsteinsson KR Heinz Steinman KR Framlína a Berþór Jónsson FH Ragnar Jónsson FH Pétur Antonsson FH Framiína b Pétur Sigurðsson ÍR Karl Benediktsson Fram Matthías Ásgeirsson ÍR Fyrirliði landsliðsins er Birgir Björnsson og fyrirliði þess utan vallar er þjálfari landsliðsins Frí- mann Gunnlaugsson. Fyrirliði pressuliðsins á leik- velli er Hilmar Ólafsson en fyrir- liði utan vallar er fyrrverandi þjálfari landsliðsins Hallsteinn Hinriksson Hafnarfirði. Þessi leikur getur vel orðið jafn, því ekki er ýkja mikill mun ur á tveimur úrvalsliðum hér, þar sem breiddin er mikil í hand knattleiknum. Landsliðsnefndin gerir ýmsar tilraunir með nýja menn — einkum þó í framlínu, þar sem hún m.a. lætur Ragnar Jónsson oft markhæsta eða ann- an markhæstan mann úrvalsliða hverfa úr liðinu, en fær þá það hlutverk að „velgja" markvörð- um landsliðsins. Blaðaliðið fær auk þess samstæða framlínu þeirra FH-manna, og ætti það að auka á mátt blaðaliðsins. Sem sagt — það eru allar líkur til þess að leikurinn verði tvísýnn og skemmtilegur. r Olafur Elísson látinii HAFNARFIRÐI. — Á gamlárs- kvöld lézt hér á heimili sínu, Krosseyrarvegi 9, Ólafur Elísson, framkvæmdastjóri Lýsi og mjöl h.f., 45 ára að aldri. Hafði hann átt við þungbæran sjúkdóm að etja og á síðastliðnu ári legið í sjúkrahúsi og nú síðast heima. Hann lætur eftir sig konu og 4 börn. Ólafur varð framkvæmdastjóri Lýsi og mjöl árið 1948 og stjórn- aði því fyrirtæki af röggsemi og myndugleik. Einnig var hann fyrsti varabæj arfulltrúi Sjálfstæð isflokksins eitt kjörtímabil. — G.E.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.