Morgunblaðið - 03.01.1959, Page 19

Morgunblaðið - 03.01.1959, Page 19
Laugardagur 3. jan. 1939 MORCVNBLAÐ1Ð 19 Sæmdir Fálka- orðonni Framkvæmda stiórar Á NÝÁRSDAG sæmdi forseti Is- lands, að tillögu orðunefndar, þessa íslendinga heiðursmerki hinnar íslenzku fálkaorðu: 1. Guðmund L. Hannesson, fyrrverandi bæjarfógeta, ridd- arakrossi, fyrir embættisstörf og störf að félagsmálum. 2. Ungfrú Lilju Sigurðardóttur, Víðivöllum, Skagafirði, riddara- krossi, fyrir garðyrkjustörf, heim ilisiðnað og störf að félagsmál- um. 3. Dr. Odd Guðjónsson, for- stjóra, riddarakrossi fyrir störf að viðskiptasamningum og önn- ur embættisstörí. 4. Sigurð .Kristjánsson, for- stjóra og ræðismann, Siglufirði, riddarakrossi, fyrir störf að fé- lagsmálum og sparisjóðsmálum. 5. Sverri Gíslason, bónda, Hvammi, formann Stéttarsam- bands bænda, riddarakrossi, fyr- ir störf í þágu landbúnaðarins. 6. Sverri Júlíusson, fram- kvæmdastjóra, formann Lands- sambands íslenzkra útvegs- manna, riddarakrossi, fyrir störf í þágu sjávarútvegsins. (Frétt frá orðuritara). Heimilisrafstöðin brennur GJÖGRI, Árnessýslu, 30. des. — Sl. sunnudagsnótt kviknaði í heimilisrafstöð í Kjörvogi á Ströndum. Brann rafstöðvarhús- ið til kaldra kola. Díselrafstöð heimilisins eyðilagðist, einnig sláttuvél frá dráttarvél, vara- hlutir og ýmislegt fleira, sem geymt var í húsinu. í Kjörvogi býr Guðjón Magnússon, oddviti. Eldurinn mun hafa komið upp skömmu eftir miðnætti. Fólkið á bænum hafði gengið snemma til náða, og voru allir í fastasvefni nema ein heimasætan, Sólveig, sem var að lesa sér til skemmt- unar bókina „Falinn eldur“. — Bezta veður var úti, en skyndi- lega heyrðist Sólveigu högl dynja á rúðunni. Leit hún þá út til að ganga úr skugga um, hvort kominn væri bylur. Var eldurinn þá þegar orðinn svo magnaður, að ekkert varð að gert. Húsið var úr timbri og stóð 4—5 m frá bæjarhúsunum. — Sprungu sex rúður af hitanum, en aðrar skemmdir urðu ekki á íbúðarhúsinu. Vindur stóð af bæjarhúsunum. Hefði ekki viljað svo vel til, er hætt við að þarna hefði orðið stórbruni. íbúðarhús- ið er múrhúðað timburhús og eru 17 manns í heimili. Ljósavélin kostaði 12 þús. kr., en var vátryggð fyrir 6 þús. kr. Tjón bóndans er því tilfinnanlegt. — Regína. Ugla rakst á bílrúðu AKRANESI, 2. jan. — Fyrir hálf- um mánuði var bílstjóri nokk- ur á ferð í bifreið sinni frá Kata- nesi og út á Akranes. Á veginum við Akrafjall lenti ugla á fram- rúðu bílsins. Uglan var á flögri þarna í grandaleysi og átti sér einskis ills von, en leið i ómegin við höggið. Bílstjórinn tók ugluna í bílinn. Er heim kom hlúði hann að uglunni, en hún nærðist lítið og sálaðist eftir 10 daga. — O. Ólafur konungur Norðmanna, sem er af ensku bergi brotinn eins og kunnugt er, fer í heim- sókn til Bretlands um mánaða- mótin maí-júní n.k. Mun kon- ungur m.a. heimsækja Elisabetu og Filippus í Windsorhöllinni. ★ Friðrik Danakonungur flutti þjóð sinni nýársboðskap af sjúkrabeði nú um áramótin. Kon- ungur er í góðri framför. * Eins og gert var ráð fyrir, hðfst Sameiginlegur markaður Evrópu 1. janúar s.L PAUL G. HOFFMAN, sem var framkvæmdastjóri Marshall- hjálparinnar, forseti Fordsjóðs- ins og síðast framkvæmdastjóri Studebakerbílaverksmiðjanna, hefir verið kjörinn framkvæmda- stjóri „sérsjóðs" Sameinuðu þjóð anna, en það er sjóður, sem ætl- azt er til, að nemi að minnsta kosti 100 milljónum dollara og verja skal til stórframkvæmda í svonefndum „vanyrktum" lönd- um. Ætlazt er til að aðildarríki S. Þ. leggi fé til sjóðsins. Til þessa hafa 47 þjóðir lagt fram samtals 18 milljónir dollara. Chakravarthi V. Narasimhan, framkvæmdastjóri Efnahags- nefndar Asíu, hefir verið skip- aður aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (þeir eru alls 8). Narasimhan, sem er Ind- verji, kemur í stað Bretans, Sir í Humphrey Trevelyan, sem í októ- | bermánuði var skipaður sendi- herra Breta í Irak. En ginn togari í landlielgi 1 gær í GÆR var enginn togari að ólöglegum veiðum hér við land. Brezku togararnir fjórir, sem í fyrradag hófu ólöglegar veiðar út af Langanesi, eru nú hættir þeim, en herskipið er samt enn á þess- um slóðum ásamt birgðaskipi. Þá vöru brezku tundurspillarnir Houge og Solebax út af Aust- fjörðum í dag, en brezkir togarar voru að veiðum á nokkrum stöð- um utan 12 sjómílna markanna í námunda við herskipin. (Frá landhelgisgæzlunni). Um miðjan þennan mánuð verður að öllum líkindum efnt til víðtækra verkfalla á Ceylon, sem um 100 þús. manna taka þátt í. Lýðræðislega verkalýðs- félagið hefur lýst því yfir, að það muni standa að verkfalli þessu. k Miklir landskjálftar voru á ýmsum stöðum í Evrópu í dag. Tjón varð litið. Kirkjuvika á Seífossi VIKUNA 0.—15. nóvember var haldin kirkjuvika á Selfossi. — Voru flutt í kirkjunni erindi á hverju kvöldi og sungnir sálmar. Guðmundur Gilsson er organisti kirkjunnar. Læknirinn í heilsu- hælinu í Hveragerði, ULfur Ragnarsson, flutti erindi fyrsta kvöldið, frú Anna Sigurkarlsdótt ir, prestsfrú á Eyrarbakka, flutti erindi um safnaðarstarfsemi, Felix Ólafsson, trúboði, flutti er- indi um trúboð í Konso. Þá itomu þeir Haraldur Si.gmar og Jóhann Hannesson, og síðasta kvöldið flutti Sigurbjörn Einarsson er- indi um Biblíuna og heimamynd vísindanna. Séra Friðrrk Frið- riksson endaði öll kvöldin með því að lesa ritningargrein og flutti bæn; mun það ógleymanlegt öll- um, sem sóttu þessar samkomur en þeir voru margir, því kirlcjan var fullsetin öll kvöLdin. Var hinn mesti sómi að þessari kirkjuviku að öLLu leyti og mundi margur óska þess að eiga von á fieiri sLíkum vikum. Væri einnig gagn- legt að þessi erindi, sem voru flutt þarna, heyrðust víðar, t. d. í útvarpi, þvi þau voru öll á sér- stakan hátt uppbygging öllu trú- arLifi og kirkjustarfsemi. — Á Heillaóskir frá Carsten Nielsen EFTIRFARANDI skeyti barst Mbl. um áramótin frá Carsten Nielsen, ritstjóra í Kaupmanna- höfn: „Með virðingu og vinsemd gagnvart hinu fagra móðurlandi meðal norrænu frændþjóðanna sendi ég mínar hlýjustu nýárs- óskir varðandi framtíð lýðveldis- ins og innilegasta þakklæti mitt fyrir tryggð og vináttu íslend- inga“. SKAGASTRÖND, 2. jan. — Afli var hér mjög sæmilegur fyrir jólin, en róðrar liggja nú niðri og er beðið eftir, að samkomulag náist um fiskverðið. Hér er lítill eða svo til enginn snjór og ágæt færð. — J. Á. presturmn á Selfossi, séra Sigurð ur PáLsson, og þeir, sem stóðu að þessari kirkjuviku, mikla þökk skilið, og síðast en ekki sízt vil ég þakka þeim prestahjónunum á Sedfossi fyrir hönd óteljandi gesta, sem að venju heimsóttu þau í saonbandi við þessar sam- komur. — Fundargestur. - Æskulýðsleiðtogi Framh. af bis. 11. úr líkum fyrir því að örvggis- lögreglan geti orðið ríki í rík- inu eins og hún var á dögum Beria. Þar með er ekki sagt að hún taki upp mannúðlegri að- ferðir en áður. Hjartans þakklæti færi ég öllum þeim, sem með heim- sóknum, gjöfum og skeytum glöddu mig á áttræðisaf- mælinu 11. des. sl. Sérstakar þakkir færi ég börnum mínum, barnabörn- um og þeirra börnum, og þó einkum þeim hjónunum Sigurgeiri Sigurðssyni, syni mínum og konu hans, Margréti, fyrir að búa mér indæla veizlu. Guð blessi ykkur öll. Evlalía Guðmundsdóttir, Bolungavík. Hjartans þakkir færi ég öllum þeim ættingjum og vin- um sem glöddu mig með gjöfum, heimsóknum og kveðj- um á fimmtugsafmæli mínu þann 21. des. sl. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gæfuríkt ár. Baldvin S. Baldvinsson. Lokað vegna jarðarfarar laugardaginn 3. janúar Kolsýruliileðslan s.f. Seljaveg 12 Lokaö í dag vegna jarðarfarar Vélsmiðja Kristjdns Gíslasonar Móðir mín og tengdamóðir GEIRLlNA ÞORGEIRSDÓTTIR andaðist 1. janúar að heimili sínu Bræðraborgarstíg 32a. Pálína Þorlpifsdóttir, Kristmann Jónsson. Móðir okkar KRISTÍN EYJÓLFSDÓTTIR frá Útskálahamri, lézt að heimili sínu Grettisgötu 56b 1. þ.m. Börn Iiinnar látnn. Maðurinn minn og faðir okkar ÓLAFUR J. GUÐLAUGSSON fyrrum veitingamaður, Grettisgötu 94, andaðist í Lands- spítalanum 2. janúar. Fyrir hönd aðstandenda. Ingibjörg Jónsdóttir og börn. Maðurinn minn og faðir okkar ÓLAFUR ELlSSON forstjóri andaðist að heimili sínu, Krosseyrarvegi 9, Hafnarfirði, að kvöldi 31. des. sl. Gyða Björnsdóttir og börn. Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir HALLDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR verður jarðsett frá Fossvogskapellu mánudaginn 5. janúar. Athöfnin hefst frá heimili hinnar látnu Gilshaga við Breiðholtsveg kl. 1, en athöfnin í kapellunni kl. 2. Athöfninni í kapellunni verður útvarpað. Jón Guðmundsson, dætur og tengdasynir. Jarðarför móður okkar ÞÓRUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR Lækjarhvemmi, er andaðist á jóladag, fer fram frá Dóm- kirkjunni mánudaginn 5. þ.m. kl. 2,30 e.h. Jarðsett verður í Sólvallakirkjugarði. Berta Sveinsdóttir, Þormóður Sveinsson. Útför mannsins míns KRISTJÁNS GlSLASONAR vélsmiðs, Öldugötu 45, Reykjavík, fer fram frá Dóm- kirkjunni laugardaginn 3. janúar kl. 10,30 f.h. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. Ingibjörg Árnadóttir. Faðir okkar og tengdafaðir ISLEIFUR JÖNSSON Nýjahúsi, andaðist 20. desember í sjúkrahúsi Vestmanna- eyja. Jarðað verður mánudaginn 5. janúar kl. 2. Börn og tengdabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður SIGURBORGAR JÓNSDÖTTUR. Halla Jakobsdóttir, Björg Jakobsdóttir, Ámi Bjarnason. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför föður míns og tengdaföður. MAGNÚSAR GlSLASONAR Ingibjörg Magnúsdóttir, Hermann Þorsteinsson. Innilegar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eig- inmans míns, föður okkar, tengdaföður og afa JENTOFT OLSEN Þormóðsstöðum. Guð gefi ykkur öllum gleðilegt ár. F.h. aðstandenda. Ingiríður Olsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.