Morgunblaðið - 20.02.1959, Síða 2
- r
á.
M O R.C UNBLAÐIP
Föstudagur 20. febr. 1959
Smsvægilegor skemmdir ó síma-
línum víðs vegnr um Innd
í ÓVEÐRUNUM sem gengið hafa
að undanförnu, hafa skemmdir á
símalínum í rauninni verið miklu
minni en búast hefði mátt við,
samkvæmt upplýsingum frá
Landssímanum. Þó hafa orðið
smávægilegar skemmdir á nokkr
um stöðum, og sums staðar hafa
viðgerðir tafizt nokkuð vegna
þess að ekki hefur verið hægt að
komast á staðinn fyrir veðri.
Línan yfir Steingrímsfjarðar-
heiði er biluð. Ekki hefur verið
hægt að komast upp á heiðina
til að gera við, en búist er við
að þarna sé um smávægilega
skemmd á línunna að ræða. —
Símasamband er við Isafjörð um
Patreksfj arðarstöðina.
Fjórir meiddust
á jiýzkum togara
f FYRRInótt kom hingað til
Reykjavíkur þýzkur togari, sem
fengið hafði á sig þungan brotsjó
fyrir sunnan land. Togari þessi
er gamall, Wilhelm Kaisen frá
Bremerhaven. Var skipið statt
um 110 mílur undan landi. Ekki
var það að veiðum, hélt upp í
vindinn til að forðast áföll. Reið
brotsjór þá á brú togarans og
olli miklum skemmdum. Járn
plöturnar framan á brúnni létu
undan þunganum, losnuðu að
neðanverðu og lögðust inn. Glugg
ar brotnuðu og í brúnni og smá-
skemmdir urðu einhverjir aðrar.
Fjórir skipverjar hlutu meiðsl,
stýrimaður matsveinn og háseti
gátu þó haldið aftur til skips
eftir að gert hefði verið að sárum
þeirra hér á Landakotsspítala, en
sá fjórði, ungur háseti, skaddaðist
innvortis — og taldi læknir, að
hann hefði hlotið nýrnablæðingu.
Lá maðurinn í spítalanum í gær,
en rannsókn var þá ekki að fullu
lokið. Leið honum eftir atvikum
vel.
Dagskrá Alþingis
í DAG er boðaður fundur í sam-
einuðu Alþingi. Ellefu mál eru á
dagskrá:
1. Kosning þriggja yfirskoðun-
armanna ríkisreikninganna 1958,
að viðhafðri hlutfallskosningu,
samkv. 43. gr. stjórnarskrárinn-
ar.
2. Kosning 5 manna i stjórn
síldarverksmiðja ríkisins og jafn
margra varamanna, allra til 3ja
ára, frá 1. jan. 1959 til 31. des.
1961, að viðhafðri hlutfallskosn-
ingu samkv. 1. nr. 1 5. jan. 1938
og 1. nr. 43 19. maí s. á.
3. Kosning þriggja manna í síld
arútvegsnefnd og jafnmargra
varamanna, allra til 3 ára, frá 1.
jan. 1959 til 31. des. 1961, að við-
hafðri hlutfallskosningu, samkv.
1. gr. 1. nr. 74 29. des. 1934.
4. Kosning nýbýlastjórnar, 5
manna og jafnmargra varamanna,
allra til 4 ára, frá 1. jan. 1959 til
31. des. 1962, að viðhafðri hlut-
fallskosningu samkv. 2. gr. 1. nr.
48 28. maí 1957, um landnám, rækt
un og byggingar í sveitum.
5. Kosning þriggja manna í
stjórn Áburðarverksmiðjunnar
hf., til fjögurra ára, frá 6. febr.
1959 að telja til jafnlengdar 1963
að viðhafðri hlutfallskosningu,
samkv. 3. málsgr. 13. gr. 1. nr. 40
23. maí 1949.
6. Sögustaðir, þáltill. Hvernig
ræða skuli.
7. Votheysverkun, þáltill. Síð-
ari umr.
8. Hagrannsóknir, þáltill. Síðari
umr.
9. Uppsögn varnarsamnings,
þáltill. Ein umr.
10. Fjárfesting, þáltill. Ein
umræða.
11. Lán vegna hafnargerða,
þáltill. Ein umr.
Á Skeiðarársandi slitnuðu báð-
ir símavírarnir og rofnaði þá sam
bandið á stofnlínunni austur.
Eftir að viðgerð hafði farið fram,
kom í ljós að elding hafði brennt
síu á Jaðri og var fjölsíminn því
úr sambandi þangað til í gær.
í Eyjafirði urðu skemmdir á
símalínum í rokinu. 1—2 staurar
lögðust niður á Svalbarðsströnd-
inni. Og sambandslaust var milli
Akureyrar og Dalvíkur, vegna
bilunar á Krossum, sem ekki var
fullkönnuð síðast þegar fréttist.
Auk þess mun einstaka sveita-
sími hafa bilað um stundarsakir,
víðs vegar um land.
Eins og fyrr er sagt, hafa
skemmdir á símalínum orðið
minni en búast hefði mátt við
í því ofsaroki, sem gengið hefur
víða um land undanfarna daga.
Og reiknað er með að allar við-
gerðir geti farið fram mjög fljót-
lega.
Aftakaveður
í S-Þing.
ÁRNE3I, 19. febr. — f gær gekk
hér yfir suðvestan aftakaveður,
sem olli víða töluverðu tjóni. Hey
fuku, járn sleit af húsum á nokkr-
um bæjum, vagnar fuku og fleira
lauslegt. Ekki er þó vitað að
nokkurs staðar hafi orðið mjög
tilfinnanlegt tjón í þessu óskapa
veðri í dag. Hafa menn verið önn-
um kafnir við að lagfæra skemmd
irnar enda veður allgott.
— Fréttaritari.
Stjörnubíó mun nú aftur hafa örfáar sýningar á amerísku
kvikmyndinni „Skógarferðin" (Picnic), sem átti miklum vin-
sældum að fagna, Með aðaihlutverkin fara William Holden
og Kim Novak.
írar fœra ekki út fisk-
veiðilandhelgi sína
„FISHING NEWS“ skýrir svo frá,
að írar hafi ekki í hyggju að færa
fiskveiðilandhelgi sína út með
einhliða ráðstöfunum að svo
komnu máli. Hefur blaðið það
eftir fréttaritara sínum í írlandi,
að ákvörðun þessi hafi verið tek-
in með tilliti til hins mikla kostn-
aðar, sem væri samfara gæzlu
víðari fiskveiðilandhelgi — og
einnig til þess að valda ekki
Breytingortiilögur við fjór-
hagsóætiun Beykjnvíknrbæjar
BÆJARFULLTRUAR Sjálfstæð-
isflokksins gerðu eftirfarandi
breytingartillögu við frumvarp
að fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
Vopnfirðingarnir .
voru ókvæntir
EINS og kom fram þá er upptald-
ir voru skipverjar þeir, er
drukknuðu með vitaskipinu Her-
móði,voru tveir þeirra til heim-
ilis á Vopnafirð.
í gær leitaði Mbl. sér nánari
upplýsinga, menn þessa varðandi.
Hvorugur þeirra var kvæntur, en
báðir áttu þeir foreldra á lífi á
Vopnafirði. Einar Björnsson, að-
stoðarmaður á Hermóði, er son-
ur Björns Jóhannessonar skóla-
stjóra þar og konu hans. Foreldr-
ar Kristjáns heitins Friðbjörns-
sonar háseta, eru aldraðir.
Fánar í hálfa
stöng í Eyjum
VESTMANNAEYJAR, 19. febr.
í dag hafa bátarnir hér í höfn-
inni, en þeir liggja allir inni
vegna óveðurs, flaggað í hálfa
stöng, vegna hins hörmulega sjó-
slys, einnig er víða flaggað í bæn
um.
Skipverjar á Hermóði hafa
notið hér sérstakrar viðurkenn-
igar sjómanna, fyrir störf sín í
þágu bátaflotans á netavertíð-
inn. Hermóðs-menn hafa þar
alltaf verið reiðubúnir að leið-
beina og aðstoða bátana. Þetta
vandasama starf, hafa þeir leyst
af hendi með stakri prýði, eins
og sagt var í fréttum Mbl. í gær.
Eru Vestmannaeyingar slegnir
mjög yfir þessum hörmulegu tíð-
indum, þar sem þeir telja sig
nú sjá á bak gamalkunnum starfs
mönnum, sem þeir fá aldrei full-
þakkað heilladrjúgt starf.
Bj. GuSm.
ágreiningi og illdeilum við aðrar
þjóðir — og spilla mörkuðum
írsks varnings erlendis.
Erlendir togarar hafa að undan
förnu verið margir við ísland og
nokkrir hafa verið teknir í land-
helgi. Háværar kröfur hafa verið
uppi um það í írskum hafnar-
bæjum, að fiskveiðilandhelgina
bæri að færa út í sex mílur, eða
tólf mílur. Þriggja mílna iand-
helgin væri allsendis ófullnægj-
andi. En samkv. frásögn blaðsins
mun stjórn írska fríríkisins hyggj
ast bíða og sjá hvað gerist í mál-
um þessum á alþjóðavettvangi.
Skemmdir í Eyja-
iiröi í OYe0n,M*
í fyrradag
í FYRRADAG var afspyrnuveð-
ur norðanlands, eins og áður hef-
ur verið getið í fréttum, og urðu
talsverðar skemmdir á Akureyri
og víðar.
Til viðbótar fyrri fréttum má
geta þess, að Akureyringar og
nærsveitamenn gátu ekki hlýtt á
útvarp frá endurvarpsstöðinni í
Skjaldarvík í gær vegna þess að
rafmagnslínan út með Eyjafirði
að vestan féll í rokinu, er sex
staurar brotnuðu hjá Dverga-
steini í Kræklingahlíð. Víða var
þó hægt að hlusta á Reykjavík,
þar sem loftnet eru góð, en mis-
brestur er þó á því og víða slitn-
uðu loftnet einnig niður í veðr-
inu. Staurarnir, sem brotnuðu,
eru 20—30 sm í þvermál og þver-
kubbuðust þeir ýmist niður við
jörð eða brotnuðu 1—2 m frá
jörðu.
Þá má og geta þess að eitt
elzta tré bæjarins, í garði Hall-
dórs Jakobssonar við Aðalstræti
52 á Akureyri, sleit upp með
rótum og skildi eftir um 80 sm
djúpa holu í jarðveginn. Víðar
munu gömul tré i Fjörunni hafa
slitnað upp eða fallið um. Haft
er eftir gömlum mönnum á Ak-
ureyri, að hér muni vera um að
ræða eitthvert snarpasta hvass-
viðri, sem þeir muna eftir.
Einhverjar skemmdir urðu á
Svalbarðsströnd og í Grenivík.
Þakplötur fuku af húsum, raf-
leiðslur slitnuðu og aðrar
skemmdir urðu. Braggi mun
hafa fokið á Haga á Árskógs-
strönd. Heyskaðar munu ekki
hafa orðið teljandi miklir, en
einhverjir þó.
bæjar fyrir árið 1959:
1) Lagt er til að kaup á bragga-
innréttingum fyrir 1 milljón
króna falli niður.
2) 12.000.000,00 króna verði lagð-
ar í nýjar götur í stað 14
miljóna.
3) 13.000.000,00 verði lagðar í ný
holræsi í stað 14 milljóna.
4) Framlag til ráðhússsjóðs verði
1 milljón í stað 1.800.000,00 kr.
Bæjarráð bar fram svohljóð-
andi breytingartillögu:
1) Styrkur til Leikfélags Reykja-
víkur verði 100.000,00 krónur í
stað 70.000,00.
2) Nýr liður verði tekinn inn í j
frumvarpið og er hann á þessa
leið: Barnaheimilið Vorboðinn!
fái 25.000,00 kr. til lagfæringar i
á húsnæði félagsins í Rauð- j
hólum.
3) Nýr liður verði tekinn inn
í frumvarpið svohljóðandi:
Styrktarfélag vangefinna fái
25.000,00 til starfsemi sinnar.
Tröllafoss
SKEMMDIRNAR, sem urðu á
Tröllafossi þegar rússneskur
prammi rakst á hann fyrir sunn
an Svíþjóð, hafa nú verið rann-
sakaðar í Trelleborg í Svíþjóð.
Fullnaðarviðgerð mun fara
fram á staðnum, og er búist við
að hún taki 8 daga. Hvorki þarf
að losa farminn úr skipinu né
þarf að taka það í slipp. Að við-
gerð lokinni mun skipið halda
áfram ferðinni til Hamborgar.
Þess skal getið til viðbótar
fréttinni af árekstrinum í blað-
inu í gær, að er áreksturinn
hafði orðið sendi Tröllafoss út
hjálparbeiðni, því stafninn á
prammanum gekk inn í skipið
og erfitt var að átta sig á
skemmdum í þeirri þoku sem
þarna var. Strandferðaskipið
Kongedybet flýtti sér á vett-
vang, en brátt afturkallaði
Tröllafoss hjálparbeiðnina.
Engin slys urðu á mönnum í
árekstrinum og líður öllum um
borð vel.
Bœndur í Gaulverjabœ-
jarhreppi mótmœla
hœkkun búnaðarmála-
sjóðsgjalds
SL. föstudag var haldinn aðal-
fundur Búnaðarfélags Gaulverja-
bæjarhrepps í félagsheimilinu.
Formaður félagsins Guðmundur
Jónsson bóndi á Syðra-Velli
skýrði frá störfum stjórnarinnar
sl. ár. Félagið keypti jarðtætara
á árinu er það hyggst leigja fé-
lagsmönnum til jarðvinnslu. Verð
ur hann tilbúinn til notkunar á
vori komanda. Unnið var með
jarðýtu að jarðvinslu á 25 heim-
ilum. Unnið var samtals 380 klst.
og fyrir það greitt rúml. 60 þús.
kr. Mæld nýrækt var á árinu
22,8 ha hjá 28 jarðabótamönnum.
Ennfremur voru byggðar nokkrár
þurheyshlöður og votheysgeymsl-
ur, nýjar girðingar uppsettar og
fleira höfðu félagsmenn unnið að
hver á sínum heimilum. Alls nam
jarðarbótastyrkur greiddur félag-
inu á sl. ári rúml 160 þús. kr.
Félagið gekkst fyrir að haldin
var hrútasýning á sl. hausti. Sýnd
ir voru 29 hrútar. Bezti hrútur-
inn á sýningunni dæmdist vera
frá Efri-Gegnishólum, eigendur
Óskar og Karl Þorgrímssynir. Á
fundinum var rætt um að félagið
eignaðist dráttarvél í félagi við
einstakling er síðan ynni með
henni hjá félagsmönnum. Var
ákveðið að hrinda því máli í fram
kvæmd svo framarlega sem nauð
synleg leyfi fengjust. Fagna bænd
ur hér því áreiðanlega ef úr ræt-
ist með að fá fullnaðarvinslu á
túnefnið þegar þeim hentar bezt,
en oftar hefur þurft að bíða ó-
heppilega lengi eftir umferðar-
vinslu ræktunarsambandsins.
Miklar umræður urðu á fund-
inum um verðlagningu landbún-
aðarvara og hækkun á búnaðar-
málasjóðsgjaldi er Alþingi er að
ræða síðustu vikurnar. Svohljóð-
andi tillaga var samþykkt í því
máli, og send forseta efri deildar
Alþingis:
„Aðalfundur búnaðarfélags Gaul-
verjabæjarhrepps, haldinn föstu-
daginn 13. febrúar 1959, mót-
mælir eindregið frumvarpi því
er liggur fyrir Alþingi um hækk-
un búnaðarmálasjóðsgjalds. Vill
fundurinn alveg sérstaklega mót-
mæla þeim vinnubrögðum, að lög
festir séu nýjir skattar á bænda-
stéttina án þess að henni hafi ai-
mennt gefist kostur á að ræða
nauðsyn þeirra, og með atkvæði
sínu ákveða hvort þeir skuliá lagð
ir eða ekki. Væntir fundurinn því
þess, að háttvirtir þingmenn ?fri
deildar Alþingis stöðvi framgang
áðurnefnds frumvarps á yfir-
standandi Alþingi" Var tillagan
samþykkt með 12 atkv. gegn 3.
í verðlagsmálum var samþykkt
eftirfarandi tilaga:
„Aðalfundur Búnaðarfélagg
Gaulverjabæjarhrepps haldinn
13. febrúar 1959 átelur harðlega
það misrétti er bændum hefir
verið sýnt með synjun á rétt-
mætri hækkun á laun þeirra sem
er 3,3% frá 1. sept. sl. saman-
borið við hækkun á launum
verkamanna frá sama tíma.“
Tillagan samþykkt samhljóða.
Að loknum aðalfundi búnaðar-
félagsins var haldinn deildar-
fundur M. B. F. og þar kosnir
fulltrúar fyrir sveitina á aðalfund
Mjólkurbúsins er venjulega er
haldinn í marzmánuði ár hvert.
Fulltrúar voru endurkjörnir en
það eru, Stefán Jasonarson Vorsa
bæ og Guðmundur Jónsson
Syðra-Velli.
Stjórn Búnaðarfélagsins skipa,
Guðmundur Jónsson Syðra-Velli,
Tómas Tómasson Fljótshólum,
Guðmundur Guðmundsson Vorsa
bæjarhjáleigu.