Morgunblaðið - 20.02.1959, Page 3

Morgunblaðið - 20.02.1959, Page 3
Fðstudagur 20. febr. 1959 MORGV'NHLAÐIÐ 3 Prestssetrið að Borg. Prestsetrið á Borg brann í gær Húsið ónýtt, en fólk og gripir björguðust BORGARNESI, 19. febr. — f morgun kom upp eldur á prest- '•setrinu Borg á Mýrum og brann íbúðarhúsið að mestu. Má heita að presthjónin hafi misst allt sitt, og hjá fjölskyldu ábúanda stór- skemmdist allt af vatni og reyk. Ekki er vitað um eldsupptök, en talið líklegt að kviknað hafi í út frá rafmagni. Kl. tseplega 9.30 í morgun, þeg- ar prestfrúin kom niður í eldhús, sem er á miðhæð hússins, varð hún vör við reykjarlykt, en sá hvergi eld. Kom þá prestur strax á vettvang, og við nánari athug- un varð hann var við eld uppi undir lofti í einu horni stofunnar Var eldurinn orðinn talsvert magnaður. Hringdi hann sam- stundis á slökkviliðið í Borgar- nesi, sem brá strax við. Svefn- herbergi presthjónanna var uppi á lofti og þutu þau þangað, gripu tvö ung börn sín, og með þeim tvær sængur og komu þeir út í bíl prestsins. Var þá miðhæð húss ins alelda og stóðu logar út um stofugluggan*. Presthjónin misstu nær allt sitt Brátt kom slökkviliðið og tók þegar að dæla vatni, en ómögu- legt var að komast inn í húsið fyrir reyk. Eftir um það bil klukkustund var búið að kæfa eldinn, en þá var mestöll mið- hæðin brunnin og nokkuð af efri hæð. Eldurinn komst ekki í kjall- ara hússins, en allt fylltist þar af vatni og reyk. Var litlu sem engu af húsunum bjargað. Bókasafn og skjalasafn prestsins brann, og eyðilagðist að mestu, svo og öll húsgögn af stofuhæð. Eftir að eldurinn hafði verið slökktur náðist nokkuð af fatnaði og smá- munum a fefri hæðinni, allt meira og minna eyðilagt. Húsið stendur enn uppi, en má teljast ónýtt. Á Borg býr séra Leó Júlíusson, sóknarprestur, með konu sinni, önnu Sigurðardóttur, og tveimur ungum börnum. Ennfremur býr á Borg Ólafur Nikulásson, sem er ábúandi jarðarinnar, og Hans Meyvantsson með konu sinni og tveimur börnum. Býr þetta fólk í útbyggingu úr aðalhúsinu og komst eldurinn í millivegg á milli húsanna, og varð að bera allt út úr íbúðinni, sem skemmdist mjög af vatni og reyk. Þarf útbygging in mikillar viðgerðar við, svo sá húshluti verði íbúðarhæfur á ný. Fjós og hlaða standa mjög nálægt að baki íbúðarhússins og fylltist þar af reyk. Voru þar átta naut- gripir, tvö hross og þrír hrútar. Var gripunum náð út og þeir látnir í hús á Kárastöðum, sem er næsti bær. Þangað fór bónd- inn og hans fólk líka. Presthjón- in fóru niður i Borgarnes og eru þar nú. -sT lbúðarhúslð með elztu húsum á landinu. íbúðarhúsið á Borg er járnvar- ið timburhús á steinsteyptum kjallara, ein hæð og hátt ris. Það var byggt árið 1903 upp úr gömlu húsi, sem þangað var flutt frá Kóranesi á Mýrum, og endur- byggt um 1950. Var húsið á Kóra nesi íbúðar og verzlunarhús Ás- geirs Eyþórssonar, föður herra Ásgeirs Ásgeirssonar forseta, og mun hann vera fæddur í þessu húsi. Slökkvistarfið gekk mjög vel og verður að teljast til afreka, þegar þess er gætt að allt er úr timbri, veggfóðrað og heystopp í öllum veggjum. Slökkviliðsstjórinn í Borgar- nesi, Björn Guðmundsson, varð þarna fyrir því slysi að renna til í stiga og meiða sig í fæti, þegar slökkvistarfinu var að verða lokið. Var hann fluttur til Skákmótið í Firðimim HAFNARFIRÐIi — Onnur um- ferð í skákmóti Hafnarfjarðar var tefld sl. miðvikudagskvöld og fóru leikar þannig að Jón Krist- jánsson vann Hjört Gunnarsson, Þórir Sæmundsson vann Ólaf Stephensen, Haukur Sveinsson vann Ólaf Sigurðss., en Sigurgeir Gíslason og Stígur Herlufsen gerðu jafntefli og einnig Skúli Thorarensen og Kristján Finn- björnsson. — Eftir 2. umferð er Jón og Þórir með tvo vinninga og Stígur og Sigurgeir með IV2. Þriðja umferð verður tefld á sunnudaginn kl. 2. — G. E. myndatöku á sjúkrahúsið á Akra nesi, til að gengið yrði úr skugga um hvort um fótbrot væri að ræða. Innbú hjá presti og ábúanda var mjög lágt vátryggt. Ekki er vitað um eldsupptök, en líklegt er talið að kviknað hafi í út frá rafmagni. — Friðrik. Sæluvikan hefst 5. apríl SAUÐÁRKRÓKI, 12. febr. — Búizt er við að Sæluvika Skag- firðinga hefjizt sunnudaginn 5. apríl. Leikrit Leikfélagsins mun ákveðið „Grátsöngvarinn" eftir Vernon Sylaine. Leikstjórn ann- ast Eyþór Stefánsson. Stjórn Leikfélags Sauðárkróks skipa: Kári Jónsson, formaður, Hreinn Sigurðsson, gjaldkeri og Jónas Þór, ritari. Douglasvélin rannsökuð í gær í FYRRINÓTT fóru starfsmenn frá Flugfélagí fslands með Heklu til Vestmannaeyja, til að ^ann- saka skemmdir á Douglasflugvél- inni, sem laskaðist þar í óveðr- inu. Komu þeir til Vestmanna- eyja um fjögur leytið í gærmorg- un og unnu að rannsóknum á skemmdunum í allan gærdag Ekki var kominn neinn endanleg- ur úrskurður um það hvort borg- aði sig að gera við vélina eða ekki 1 gærkvöldi. Leiðrétting í FRÁSÖGN blaðsins í gær um þá er fórust með Hermóði fékk blað- ið ekki fyllilegar upplýsingar um Jónbjörn Sigurðsson háseta. Allt sem sagt var er rétt, en hitt hafði blaðið ekki vitneskju um, að hann bjó með unnustu sinni og lætur eftir sig barn, sem er um það bil eins árs gamalt. Ljóð Stefáns frá Hvítadal í norska útvarpinu LJÓÐAÚRVAL Stefáns frá Hvíta dal á norsku, „Fra lidne dagar“, í þýðingu Ivars Orgelands, sendi kennara, hefur alls staðar í Nor egi hlotið hinar beztu viðtökur. S1 föstudag, 13. febrúar, ræddi prófessor Olav Midttun lofsam lega um bókina í útvarpsþættin um „Boknytt" og einn af aðal leikurum norska leikhússins Oslo, Harald Heide Steen, las þrjú kvæði úr bókinni, sem voru þessi: Bjartar nætur, Þróttleysi og Kvæðin mín. , I Skipverja af Júlí og Hermóði minnzt á bœjars tjórnarfundi —1 STAKSTEIEVIAR ER bæjarstjórnarfundur hafði verið settur klukkan 9 í gær- morgun, ávarpaði forseti bæjar- stjórnar, frú Auður Auðuns, bæjarfulltrúa og mælti á þessa leið: „Þeir válegu atburðir hafa Caitskell bjartsýnn á lausn Berlínarvandans LONDON, 19. febr. NTB-Reuter. — Leiðtogi brezka Verkamanna- flokksins, Hugh Gaitskell, sagði í umræðunum um utanríkism'ál í neðri málstofu þingsins í dag, að hann gæti alls ekki fallizt á það sjónarmið, að nú væri aðeins um tvær leiðir að velja, annað hvort samþykkt rússnesku tillagnanna um Vestur-Berlín eða stríð. Hann kvað óþarft að velja milli slíkra öfga. Enginn hefði ógnað með stríði enda þótt báðir aðilar hefðu komið með allhvassyrtar yfirlýs- ingar, en þessar yfirlýsingar hefðu jafnan byggzt á því að hinn aðilinn hefði árás í huga. Gaitskell benti á að Krúsjeff forsætisráðherra hefði skýlaust lýst því yfir í nóvember að Rúss- ar hefðu ekki í hyggju að fara. í stríð út af Berlín. Rússar hefðu ekki heldur komið með neinar hótanir um að loka Berlín. Hann lét í ljós þá von, að allt yrði gert til að leysa málið á þann hátt, sem Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefði lagt til, og að hvorki Bandaríkin, Sovétríkin né Austur-Þýzkaland gerðu neitt það sem gert gæti ástandið alvar- legra. Tillaga Þjóðverja Gaitskeil sagði að ekki væri rétt að ganga fram hjá þeirri tillögu sem nokkrir Þjóðverjar hefðu komið fram með, þess efnis að afmarkað verði belti sem sé undir stjórn Sameinuðu þjóð- anna. Þetta belti nái yfir allavegi, sem liggja tii Vestur-Berlínar, og taki til jafnstórra svæða í A- og Vestur-Þýzkalandi. Annað alvarlegt vandamál Gaitskell kvaðst ekki sjá neina ástæðu til að iíta á Berlínar- vandamálið sem mesta vanda mannkynsins nú um stundir. Innan nokkurra mánaða væri ekki ósennilegt, að ástandið við austanvert Miðjarðarhaf reyndist vera miklu hættulegra. Hann lét í Ijós vonir um að heimsókn Macmillan til Sovét- ríkjanna bæri ríkulegan ávöxt. Það væri von allrar þjóðarinnar, þó Macmillan sjálfur gerði lítið úr mikilvægi heimsóknarinnar. gerzt síðustu daga, að 2 skip ís- lenzk, togarinn Júlí frá Hafnar- firði og vitaskipið Hermóður, hafa farizt með allri áhöfn. 42 íslenzkir sjómenn, af þeim 26 Reykvíkingar, hafa látið lífið í þessum átakanlegu sjóslysum og öll þjóðin er harmi lostin. Ég bið bæjarfulltrúana að votta minningu þeirra, sem fór- ust, virðingu sína og ástvinum þeirra samúð með því að rísa úr sætum“. „Einkenni þjóðfrelsis“ Axel V. Tulinius, bæjarfógetl Neskaupstað, skrifar í Þór hinn 3. febr. sl. grein um kjör- dæmamálið. Þar segir m.a.: „Einvaldsstjórn Dana á ís- landi setti staðartakmörk lög- sagnarumdæma í samræmi við það, sem stjórninni var hentug- ast, og hve miklum mannafla hún vildi beita í dómgæzlunnL Þessi lögsagnarumdæmi urðtu síð an kjördæmi, þegar þjóðin fór að kjósa sér fulltrúa á Alþing og þjóðfund um miðja síðustu öld. Staðartakmörk og stærð kjördæmanna eiga sér því enga stoð í ævafornum íslenzkum erfðavenjum. Þau eru eins og annað mannasetningar, sem gerð ar eru í samræmi við kröfur og möguleika þeirra tíma, sem þau eru sett á. Hin forna skipun, goðorðin, var einnig með því marki brennd að vera afleiðing ríkj- andi hugsunarháttar, þegar hún var sett. Þeirri skipan voru ekki sett þrengri staðartakmörk en svo, að hver maður gat sagt sig í lög við hvem goða í sama fjórðungi og hann bjó. Þröng staðartakmörk eru því í íslenzku þjóðlífi einkenni ein- valdsstjórnar og ofríkis stjóm- arvaldanna, en rúm takmörk ein kenni þjóðfrelsis“. Meirihluti rVamsóknar Framsóknarmenn halda því fram, að breytingar þær, sem gerðar hafa verið á kjördæma- skipuninni frá því að umbóta- baráttan hófst 1931 hafi miðað til ills. Axel svarar því svo: „Ef kjördæmaskipunin frá 1931 — óskadraumur Framsóknar- manna — hefði gilt í kosningun- um 1956 hefði þingmannatala flokkanna orðið þessi: Framsóknarflokkur 20 þing- menn á 12.925 atkvæði. Sjálfstæðisflokkurinn 13 þing- menn á 35.027 atkvæði. Alþýðuflokkur 2 þingmenn á 15.153 atkvæði. Alþýðubandalag 1 þingmann á 15.859 atkvæði. Að baki hvers þingmanns Fram sóknarflokksins hefðu orðið 647 kjósendur, að baki hvers þing- manns Sjálfstæðisflokksins 2.695, að baki hvors þingmanns Alþýðu flokksins 7.577 og að baki eina þingmanns Alþýðubandalagsins 15.859“. Námskeið bifreiða- stjóra til meira prófs SAUÐÁRKRÓKI, 12. febr. - Námskeið bifreiðastjóra til meira prófs hófst á Sauðárkróki 20. jan. sl. að afloknu inntökuprófi. Þátttakendur voru 23 víðs vegar að af landinu. Námskeiðinu veitti forstöðu Bergur Arnbjörnsson bifreiða- eftirlitsmaður, Akranesi. Auk hans kenndu þeir Geir G. Bach- mann bifreiðaeftirlitsmaður, Borgarnesi og Vilhjálmur Jóns- son, vélaeftirlitsmaður, Akureyri, sem var aðalkennari á námskeið- inu. Námskeiðinu lauk fimmtudag inn 12. þ.m. með því að nemend ur buðu forstöðumanni og kenn- urum til sameiginlegr^r kaffi- drykkju, og leystu þá út með gjöfum, sem vott um ágæta sam vinnu og kennslu. — Jón. Meirihluti Hræðslubandalags Þá sýnir Axel fram á, hverjar afleiðingarnar hefðu orðið, ef umbæturnar 1942 hefðu ekki náð fram að ganga: „Kjördæmaskipunin frá 1934 gilti til 1942. Samkvæmt henni voru kosnir 38 kjördæmakjörnir þingmenn og 11 uppbótarþing- menn til jöfnunar milli flokka. Ekki var hlutfallskosning í tví- menningskjördæmunum. Ef sú skipan hefði gilt 1956 hefði Hræðslubandalagið fengið hreinan meirihluta á Alþingi, 26 þingmenn af 49. Framsóknarflokkurinn hefði fengið 20 þingmenn á 15,6% at- kvæða. Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið 14 kjördæmakjörna og tvo uppbótarþingmenn eða 16 alls á 42,4% atkvæða. Alþýðuflokkurinn hefði fengið 3 kjördæmakjöma og 3 uppbót- arþingmanna á 18.3% atkvæða, eða alls 6; og Alþýðubandalagið einn kjördæmakjörinn og sex uppbótarþingmenn eða alls 7 á 19,2% atkvæða. Til þess að ná jöfnuði millt þingflokka hefði orðið að úthluta 83 uppbótarþingsætum".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.