Morgunblaðið - 20.02.1959, Blaðsíða 12
£
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 20. febr. 1959
RITSTJORAR: hörður einarsson og styrmir gunnarsson
Fiófessor Ólafur Lárusson afhjúpar „Grágás Orators".
ORATOR
félag laganema 30 ára
ORATOR, félag laganema, er 30
ára á þessu ári. f tilefni þessa
merkisafmælis ræddum við ný-
lega við núverandi formann íé-
lagsins, Jóhann J. Ragnarsson og
báðum hann að segja okkur frá
upphafi þess og staxfi fram á
þennan dag.
— Fyrstu drög að stofnun Ora-
tors munu hafa venð iögð á haust
missiri 1928, segir hann, en talið
er, að félagið hafi byrjað starf
Jóhann J. Ragnarsson
sitt á vormissiri 1929. >ví mið-
ur eru fyrstu gerðabækur Ora-
tors glataðar og þess vegna litið
vitað um störf þess og forystu-
menn í byrjun. En Benedikt
Blöndal, sem ritað hefur grein í
Úlfljót um upphaf Orators, kemst
að þeirri niðurstöðu eftir að hafa
rætt við ýmsa þá, er laganám
stunduðu á þessum tíma, að fyrsti
formaður Orators hafi verið Jó-
hann G. Möller, en næsta ár á
eftir hafi Sigurður Ólason, hrl.
tekið við formennsku. Fyrsti for-
maður, sem vitað er um með
fullri vissu, var Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri, árið 1930—
1931.
Þegar félagið var stofnað var
það aðeins félag eins árgangs
iagadeildarinnar. Smátt og smátt
jókst félaga talan og fleirum var
veitt innganga í félagið. Að lok-
um öðlaðist það þann sess, sem
það hefur nú, að vera félag allra
laganema, en laganemar verða
sjálfkrafa meðlimir þess, er þeir
innritast i deildina. Fyrst í stað
var félagið eingöngu málfunda-
og skemmtifélag, en síðar^ eða
um 1939 ,voru teknar upp mál-
flutningsæfingar, sem síðan hafa
verið snar þáttur í starfsemi fé-
lagsins. Auk þess sem þessar mál-
flutningsæfingar eru laganemum
mjög nauðsynlegur þáttur í sam-
bandi við námið, þá hafa þær,
þegar snjallir menn hafa átzt við,
verið til mikillar skemmtunar.
Nú um nokkurt árabil hefur
starfsemi Orators verið með mikl
um blóma og má fullyrða, að fé-'
lagsstarfsemi hafi ekki verið með
jafnmiklum blóma hjá nokkru
deildarfélagi í skólanum. Fundir
hafa verið haldnir, málflutnings-
æfingar hafa verið tíðar og alls
kynns önnur starfsemi. Má t. d.
nefna, að nú fyrir nokkrum dög-
um fór fram í skólanum keppni
milli deildanna i skák. Orator var
eina deildarfélagið, sem sendi
tvær sveitir til mótsins. A-sveit
félagsins sigraði glæsilega og
hlaut 2014 vinning af 25 mögu-
legum. Viðskiptadeild fékk 13%
og B-sveit Orators varð þriðja
með 13 vinninga. Aðrar sveitir
fengu 12 vinninga og niður 16%
vinning. Friðrik Ólafsson stór-
meist tefldi á fyrsta borði laga-
deildarinnar en að sjáfsögðu má
þakka honum að talsverðu leyti
áhuga manna i deildinni og skól-
anum fyrir þessari göfugu íþrótt.
Þá má ekki gleyma einum
mjög skemmtilegum og gagn-
legum þætti í starfi Orators, en
það eru hinir svo kölluðu Vísinda
leiðangrar. Á hverju ári fara laga
nemar í ferðalag, á einhvern
þann stað, sem einhverja þýðingu
SvefnherbergEshúsgögn
úr birki og mahony, bamarúm og bamakojur.
Lágt verð, góðir greiðsluskilmálar.
HÚSGAGNAVERZLUN
Guðmunc/ar Guðmunc/ssonar
Laugaveg 166
Ler talinn hafa fyrir laganámið.
Er það að vísu sagt bæði í gamni
og alvöru. Var þetta tekið upp
á fyrstu árum Orators og hefur
verið gert næstum árlega síðan.
Var það í fyrstu ekki á vegum
félagsins, en laganemar voru þó
með frá upphafi. Hafa þessir leið
angrar oftast verið farnir að
Litla-Hrauni en einnig á staði
sem sögulegir atburðir, sem
snerta lögfræði hafa gerzt.
Hafa þessi ferðalög verið farin
árlega undanfarin ár og verður
vonandi í framtíðinni, laganem-
um til gagns og skemmtunar.
— Lvað getur þú sagt okkur
um gæsina, sem er höfð í mjög
miklum metum í félaginu, Jó-
hann?
— Sú hugmynd kom fram inn-
an Orators fyrir nokkrum árum
að taka grágæs upp sem merki
félagsins. Að sjálfsögðu þarf ekki
að skýra ástæðu þeirrar hug-
myndar. Matthías Á. Mathiesen
var formaður Orators 1955—56,
og fékk þessari hugmynd fram
komið. Fékk hann grágæs og lét
stoppa hana. Jafnframt fékk hann
lánaða bók hjá háskólabóka-
verði, sem talin er bundin á sama
tíma og Grágás, þ. e. a. s. hin
forna lögbók. Lét hann búa til
eftirlíkingu að þeirri bók, binda
hana inn, og var gæsin síðan
fest á hana. Á hátíðisdegi Orators
16. febrúar 1956 afhjúpaði próf.
Ólafur Lárusson gæsina, en for-
maður félagsins komst svo að orði
að hún væri félagstákn Orators,
og fögnuðu menn henni innilega,
er hún hafði verið afhjúpuð.
— En hvers vegna var 16.
febrúar valinn sem hátíðisdagur
Orators?
— Eins og áður er minnzt á
er ekki hægt með neinni vissu
að tiltaka sérstakan dag sem stofn
dag Orators svo að ekki var nein-
um slikum degi til að dreifa. Er
laganemar hugsuðu því mál sitt
um það, hver skyldi vera hátíð-
isdagur félagsins, kom þeim ein-
mitt fyrst í hug afmælisdagur
í vísindaleiðangri
Hæstaréttar og varð það úr, að
sá dagur varð fyrir valinu ,en
hann er einmitt 16. febrúar.
Ein mjög skemmtileg venja
hefur skapazt í sambandi við
þennan hátíðisdag. Á kvöldfagn-
aði, sem haldinn er þennan dag,
er Grágás sérstakur heiðursgest-
ur. Þegar nýbökuðum kandidöt-
um eru afhent þakkar- og heiðurs
skjöl frá Orator verða þeir áður
en þeir fá þau í hendur að hneigja
sig mjög djúpt og virðulega
frammi fyrir Grágás. Verða
veizlugestir að viðurkenna
hneiginguna með lófaklappi,
Hin nýkjörna stjórn FUS á Siglufirði. Sitjandi frá vinstri:
Victor Þorkelsson, meffstj., Stefán Friðbjarnarson, form.,
Uelga Baehmann, gjaldkeri, Knútur Jónsson, varaform. —
Standandi: Gunnar Ásgeirsson, meðstj., Haukur Magnússon,
ritari og Pétur Þorsteinsson, meðstj.
Aðolfnndur S. U. S. á Siglufirði
FÉLAG ungra sjálfstæðismanna
á Siglufirði hélt aðalfund sinn
25. janúar sl. Formaður félags-
ins, Stefán Friðbjarnarson, setti
fundinn og bauð velkominn Ein
ar Ingimundarson, sem sat fund
inn í boði félagsins.
Siðan flutti formaður skýrslu
um starfsemi félagsins sl. ár, en
þar bar hæst fjórðungsþing S.
U.S. á Norðurlandi, sem háð var
á Siglufirði 28. júní sl. og sótt
var af tæplega 50 Áillitrúum
norðlenzkrar sjálfstæðisæsku.
Haukur Magnússon, fráfar-
andi gjaldkeri félagsins, las upp
er þeim þykir nógu vel
gert, en oft er það, að menn þurfa
að beygja kné sín oftar en eínu
sinni og oftar en tvisvar áður en
þessu er náð.
— Úlfljótur?
— Úlfljótur var stofnaður 1947.
Ber það fyrst og lremst að þakka
einum manni, Þorvaldi G. Krist-
jánssyni, sem áíti hugmyndina að
útgáfu þessari og hleypti blaðinu
af stokkunum með miklum mynd
arskap. í lögum Úlfljóts er kveðið
svo á, að ritið skuli koma út fjór-
um sinnum á ári og hefur aldrei
brugðið út af því utan eitt ár. Enn
fremur er það athyglisvert, að
lög félagsins bjóða, að birta skuli
a. m. k. eina fræðilega grein um
lögfræði eftir einhvern úr hópi
löglærðustu fræðimanna þjóðar-
innar í hverju töiublaði Úlfljóts.
Hefur þc.i ætíð staðizt og verið
blaðinu til aukins álits. Laganem-
ar fá ritið ókeypis skv. lögum fé-
lagsins og er ég ekki í nokkrum
vafa um, að það er mikil ástæða
fyrir því, að blaðið er svo lífvæn-
legt sem raun ber vitni. Fjárhag
blaðsins er borgið með auglýsing-
um og svokallaðri starfsskrá Úlf-
ljóts, en það er skrá yfir ýmis
atvinnufyrirtæki og málflytj-
endur bæjarins. Greiða þessir að-
ilar árlegt gjald fyrir birtingu
nafns síns í skránni. Einnig hafa
lögfræðingar sýnt blaðinu hina
mestu rausn á margan hátt. Það
er Orator til mikiL sóma, að Úlf-
ljótur er af mörgum talið merk-
asta tímarit, sem gefið er út af
laganemum á Norðurlöndum, og
jafnvel þótt víðar væri leitað.
Við þökkum Jóhanni fyrir og
óskum Orator og Grágás allra
heilla á komandi árum.
reikninga félagsins fyrir sl. ár.
Á árinu jók félagið hlutafjár-
eign sína í Sjálfstæðishúsinu
hf. um kr. 1.500,00, o ger hluta-
fjáreign þess nú kr. 11.300.00.
í stjórn félagsins voru kjörn-
ir:
Stefán Friffbjarnarson, form.,
Knútur Jónsson, varaform.,
Haukur Magnússon, rltari,
Helga Bachman, gjalHkeri,
Victor Þorkelsson, meffstj.,
Gunnar Ásgeirsson, meðstj.,
Pétur Þorsteinsson, meðstj.
í fulltrúaráð sjálfstæðisfélag-
anna voru kjörnir: Óli Blöndal,
Hafliffi Guffmundsson, Victor
Þorkelsson og Sigurffur Árna-
son, en auk þess eru sjálfkjörn-
ir í íulltrúaráðið Knútur Jóns-
son og Stefán Friðbjarnarson.
Fulltrúar félagsins á lands-
fund Sjálfstæðisflokksins voru
kjörnir: Gunnar Bachman og
Helga Bachman, ásamt fulltrúa
sem stjórn félagsins tilnefnir.
Ýmsar samþykktir um innri
mál félagsins voru gerðar.
Einar Ingimundarson flutti
merka ræðu um stjórnmálavið-
horfið, sem einkum fjallaði um
hina nýju kjördæmaskipan, sem
fyrirhuguð er, og frumvarpið
um niðurfærslu verðlags og
launa.
Þá settust fundarmenn að
kaffiborði. Fundur þessi var
hinn ánægjulegasti.