Morgunblaðið - 20.02.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.02.1959, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ Norðanátt og léttir til í nótt snýst til suðvesanáttar síðdegis 42. tbl. — Föstudagur 20. febrúar 1959 Cœftaleysi og tregur afli hjá Keflavíkurbátum KEFLAVIK, 19. febr. — Mikið gæftaleysi hefur verið í Keflavík síðan um áramót ekki gefið á sjó vikum saman. Hafa þeir bátar sem oftast hafa verið á sjó farið 20 róðra á þessu ári. Af þessum sökum hefur engin vinna verið í frystihúsunum, og er mikil deyfð yfir atvinnulífinu í kaup- staðnum. Afli Keflavíkurbáta hefur ver- ið tregur, miðað við síðasta ár. Frá áramótum og fram til 15. febrúar voru þessir bátar hæstir: Ólafur Magnússon með 142 tonn í 20 róðrum, Hilmir með 137 tonn í 20 róðrum, Guðmundur í>órðar- son með 135 tonn í 20 róðrum, og Vilborg með 135 tonn í 20 róðr- um. Alls hafa bátarnir aflað 2746 tonna í 487 róðrum, og samsvarar það því að hver bátur hafi að meðaltali fengið 5,6 tonn í róðri. Er hér miðað við þá 34 báta, sem nú stunda veiðar með línu. Fimm bátar stunda netaveiðar, og hafa þeir alls fengið 26 tonn í 12 lögn- um. — Helgi. Aftur flogið innanlands Guðjón Hansen í GÆR hófst loks aftur innan- landaflug eftir að ekki hafðS verið hægt að hreyfa flugvél í 6 daga. Voru komnir um 200 far- þegar á biðlista hjá Flugfélagi fslands, einkum farþegar til Norðurlandsins. í gær voru flognar tvær ferðir til ísafjarðar, ein til Egilsstaða og ráðgerð var ferð til Akureyr- ar. Stjórnmálaskóli Varðar: Cubjón Hansen trygg- ingafrœðingur talar í kvöld FJÓRÐA erindið í stjórnmála- skóla Varðar flytur Guðjón Han- sen, tryggingafræðingur, í kvöld. Guðjón mun gera grein fyrir mannfjölda á íslandi, aldurs- flokkum og atvinnustéttaskipt- ingu, fólksfjölgun og fólksflutn- ingum milli byggðarlaga. Jafn- framt mun hann útskýra félags- leg og efnahagsleg áhrif breyt- inga á þessum atriðum á næstu árum. Raunhæf þekking á þess- um atriðum er ásamt öðru sá grundvöllur, sem byggja verður á allar tillögur um umbætur í félags- og efnahagsmálum. Sl. mánudag flutti Jóhannes Zoega, verkfræðingur, 3. erindi stjórnmálaskólans. Ræddi Jð- hannes um vatns- og hitaorku landsins og hagnýtingu hennar. Var erindi hans yfirgripsmikið og mjög fróðlegt og varð enda til efni fjölmargra fyrirspurna frá áheyrendum, sem voru mjög Samfelld stórviðri HÖFN, Hornafirði, 18. febrúar — Það sem af er mánuðinum hafa verið hér samfelld stórviðri að heita má. — Bátar hafa aðeins einu sinni komizt á sjó á þessum tíma, og urðu þeir flestir fyrir nokkru línutapi. — Ekki er vitað til, að veðrin hafi valdið neinum verulegum skemmdum á landi. — Gunnar. KÓPAVt i Fulltrúaráð SjálfstæOioieíaganna í Kópavogi heldur fund n.k. sunnudag kl. 15,30 í Sjálfstæðis- húsintu í Reykjavík. Bjarni Bene- diktsson ritstjóri ræðir um stjórn málaviðhorfið. margir. Erindi Guðjóns kvöld hefst kl. 8,30 Suðurgötu. Hansen í Valhöll við Annar skipsbáturinn frá Hermóði, léttibáturinn, var settur á flutningabíl, er leitarflokkarnir mættust í fjörunni kippkorn frá Kalmanstjörn. Bátarnir voru fluttir til Reykjavíkur. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Leitað frá Reykjanesvita út á Carðskaga 1 ALLAN GÆíiDAG, frá því bjart var orðið og þar til kl. 4 siðdegis, fóru alls um 30 menn á fjörur milli Reykjanesvita og Garðskagavita, til þess að fylgjast með, ef einhverju kynni að skola þar á land úr vitaskipinu Hermóði, sem fórst við Reykjanes aðfaranótt miðvikudagsins. Fundu leitarmenn þá ýmislegt, svo sem lestarhlera, bjarghring, kistulok, brot úr innrihurð og fleira. Leitarflokkar Leitarmönnum var skipt niður átta flokka og hafði fulltrúi Slysavarnafélagsins, Guðmundur G. Pétursson, yfirstjórn leitarinn ar með höndum. Nær allir leitar- menn voru héðan frá Reykjavík og voru það starfsmenn vitamála stofnunarinnar, frá Landhelgis- gæzlunni og gamlir skipsfélagar hinna látnu skipverja; þeirra. á meðal var Guðni Thorlacius, skipstjóri á Hermóði. Loks voru nokkrir menn úr Höfnunum. — Aðalbækistöð leitarmanna var x Kalmanstjörn hjá Hermanni Sig- urðssyni. , Milli Kalmanstjarnar og Merkiness Aðalleitin beindist að fjörunni á millj Kalmanstjarnar og Merkiness, en því helzta, sem rekið hefur úr Hermóði, hefur skolað upp á fjörurnar á þessu svæði, t. d. báðum bátunum. — Fóru leitarflokkar í gærdag fjór- um sinnum meðfram fjörunni frá Reykjanesvita að Höfnum. Allan daginn gekk á með dimmum éljum og nokkurt brim var við ströndina, en þó mikið úr því dregið frá því deginum áður. Tveir leitarmanna á f jörum suður við Kalmanstjörn í gærdag. Þeir skima út í brimgarðinn, og fylgjast með því, sem úthafsbáran skolar á land í stórgrýtta fjöruna. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Um 120 stúlkur hafa sótt um flugfreyjustörf hjá flugfélögunum ÞAÐ lítur út fyrir að flugfreyju- starfið freisti ungra stúlkna meira en flest önnur störf, ef dæma skal eftir öllum þeim fjölda umsókna, sem berast í hvert skipti sem flugfélögin aug- lýsa eftir stúlkum í þá stöðu. Bæði íslenzku flugfélögin hafa í hyggju að bæta við sig flug- freyjum áður en sumaráætlunin byrjar, og auglýstu þau fyrir skömmu eftir stúlkum. Umsókn- arfrestur er nú liðinn og stendur fyrir dyrum að velja úr hópnum. Loftleiðum hafa borizt 80 um- sóknir, en ætlunin er að ráða 10— 12 stúlkur. Allur hópurinn geng- ur fyrst undir læknisskoðun og síðan verða hæfnispróf, sem eiga að skera úr um það hverjar séu efnilegastar flugfreyjur. Flugfélag Islands ætlar að ráða 9—10 flugfreyjur á næst- unni og hafa 40 stúlkur sótt um þær stöður. Þær munu ganga undir hæfnispróf í næstu viku, og verða flugfreyjur valdar eftir því hvernig þær standa sig í því. ÁRÍÐANDI fulltrúaráðsfundur á morgun kl. 2 í Valhöll. Happdrætti Sjálfstæðis- flokksins SALA á miðum í happdrætti Sjálfstæðisflokksins hefur nú staðið yfir í 10 daga og hefur gengið fremur greiðlega. En vegna þess hve naumur tími er til stefnu, eru allir, sem fengið hafa heimsenda miða, beðnir að standa skrifstofu happdrættisins skil á andvirði þeirra sem allra fyrst. Því fleiri sem gera það nú í þessum mánuði, því auðveldari verður lokasóknin seinustu dag- ana og meiri lýkur fyrir því, að allir miðarnir seljist fyrir 16. marz, en þá verður dregið. Þeir, sem ekki hafa fengið heimsenda miða, en vilja kaupa þá eða taka nokkra miða í um- boðssöölu út um bæ, ættu að hafa samband við skrifstofu happ drættisins í Sjálfstæðishúsinu, sími 17104 og verða miðarnir þá sendir heim, ef óskað er. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 9 f. h. til 5 e. h. Happdrætti Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.