Morgunblaðið - 21.02.1959, Síða 1
16 siður og Lesbók
46. árgangur
43. tbl. — Laugardagur 21. febrúar 1959
Prentsmiðja Morgn íblaðsbM
Við Nasser gætum
samið á klukkustund
segir Ben-Gurion
TEL AVIV, 20. febr. — David
Ben-Gurion, forseti Ísraelsríkis,
sagði í dag, að þeir Nasser mundu
geta komizt að samkomulagi og
gert bandalag með ísrael og
Sjálismorð
vegna þokunnar
LONDON, 20 febr. — Það var
upplýst í dag, að tveir Bretar
frömdu á dögunum sjálfsmorð
vegna Lundúnaþokunnar víð-
frægu. Sjötugur öldungur skaut
sig vegna þess að hann var kom-
inn að þeirri niðurstöðu, að þok-
unni, sem gekk yfir England á
dögunum, muiidi sennilega aldrei
létta — og hafði þessi öldungur
þó séð sitt af hverju. Hinn skrúf-
aði frá gasinu í íbúð sinni, því að
hann taldi þokuna hafa heilsu-
spillandi áhrif.
Arabaríkjunum á „einni klukku-
stund“, ef þeir hittust.
Forsetinn lét þessi orð falla í
sambandi við sífellt háværari
raddir í Arabaríkjunum um að
hinn stöðugi straumur Gyðinga,
aðallega frá kommúnistaríkjun-
um, væri ógnun við hinn ara-
bíska heim. Blöðin I Jórdaníu
sögðu m.a. frá því í dag, að
jórdanska stjórnin mundi vekja
athygli framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna á þessum stöð-
uga innflytjendastraumi, sem
stjórnarvöld ísraels stæðu fyrir
í samráði við höfuðsmenn al-
heimskommúnismans.
Ben-Gurion sagði, að engin
hætta væri samfara innflutningn
um. Ísraelsríki gæti veitt millj-
ónum Gyðinga viðtöku — og þeir
sem fyrir væru í landinu gledd-
ust jafnan, þegar nýir hópar
kæmu.
Að undanförnu hefur straum-
urinn verið hvað mestur frá Pól-
landi og Rúmeníu og hefur það
vakið grunsemdir, að einungis
Gyðingum er leyft að hverfa úr
þessum járntjaldslöndum.
Brezki togarinn dreginn
til Fœrevia i Ekki var tilgreint hve langt
undan íslandi togarinn hafi verið
þegar óhappið átti sér stað.
LUNDÚNAFREGNIR hermdu í
gærkveldi, að brezkur togari,
Vascana, hefði átt í miklum erf-
iðleikum undan íslandsströnd í
gærdag. Vír hefði farið í skrúfu
togarans, en vegna sjógangs og
íshröngls hafi verið ógerningur
að ná vírnum úr í rúmsjó.
Togarinn Lincoln City hafi þá
komið til aðstoðar. Dráttartaug-
um hafi verið komið milli skip-
anna og síðan hafi Lincoln City
haldið til Færeyja með Vascana
í togi. Gekk ferðin vel þegar
síðast fréttist.
Þrjár þúsundir
MELBOURNE, 20. febr. (Reuter)
Meira en 3000 manns þustu í dag
fram úr mannsöfnuði og hróp-
uðu í einum kór, að þeir gengju
í lið með Kristi. Þetta gerðist
á fjöldasamkomu, sem ræðumað-
urinn Billy Graham efndi til í
borginni í kvöld. Rigning og
súld var og kvaðst Billy Graham
ekki hafa búizt við mikilli að-
sókn, — en trú okkar var veik.
Samtals mætta 25 þúsund manns
til samkomunnar, en 3000 gengu
í lið með Kristi. Það er einn
stærsti hópurinn, sem ég hef
séð ganga í lið með Kristi, sagði
Billy.
Bourgiba
einbeitlur
PARÍS, 20. febr. — Bourgiba
sagði í blaðaviðtali í dag,
að hann mundi ekki hika
við að leggja frönsku hafn-
arbækistöðina Bizerta undir Tún-
is hinn 17. júní eins og áður hef-
ur verið ákveðið, ef Frakkar
hefðu ekki þá tekið upp samn-
ingaviðræður við uppreisnar-
menn í Alsír. Sagði Bourgiba
ennfremur, að Túnisstjórn væri
fús til þess að falla frá þessari
ákvörðun sinni, ef Frakkar tækju
upp samband við uppreisnar-
Dulles
í geislalækningu
Washington 20. febrúar. —
Geislalækningu var beitt við
Dulles utanríkisráðherra í fyrsta
sinn í dag, en sem kunnugt er
þjáist hann af krabbameini inn-
vortis. Geislalækningatækið
er milljón volta — og var því
beitt í eina mínútu. Síðan mun
tíminn verða lengdur smám sam-
an í hvert sinn. Dulles var í góðu
skapi og hinn hressasti. Áður
en honum var ekið í sjúkrarúm-
inu inn í geislalækningastofuna
átti hann 10 mínútna símtal við
einkaritara sinn um stjórnmála-
ástandið.
Sí • •• iii &&&& ... * .v. V ÍiÉ .. * '• ^9***".ifltfftÍiÉÍÍÍiÉaHÉÉÉÍi
Sorpeyffingarstöð Reykjavíkurbæjar á Ártúnshöfffa.
Sorpeyðingarstöðin nýja
hreytir sorpi / lífrænan áburð
Öskuhaugarnir lagðir niður að
fullu og öllu
EFTIR þessa helgi verffa sorp-
haugarnir á Eiffisgranda lagffir
niffur aff fullu. 1 gær var bæjar-
fulltrúum, blaðamönnum og öffr-
um gestum boffið aff skoða hina
nýju sorpeyffingarstöff Reykja-
víkurbæjar á Ártúnshöfffa, sem
þegar hefur starfað í nokkra
mánuði og tekur nú viff því hlut-
verki aff losa Reykvíkinga viff
allan úrgang og breyta honum í
lífrænan áburff, sem vafalaust á
eftir aff auka alla ræktun í bæj-
arlandinu og víffar. Er hér mikl-
um og merkum áfanga náð i
þrifnaðar-, heilbrigffis- og menn-
ingarmálum bæjarins. Var gest-
um sýnd stöðin og á eftir bauff
borgarstjóri til kaffidrykkju í
Sjálfstæffishúsinu.
Byggingarframkvæmdum Sorp
eyðingarstöðvarinnar má nú
heita lokið. Eru byggingar mun
meiri og varanlegri en ráð hafði
verið fyrir gert í upphafi. Aðal-
vélakerfi stöðvarinnar er utan-
húss, en byggja þurfti móttöku-
hús, hús yfir síur o. fl. í mót-
tökuhúsinu eru tvær stórar gryfj
ur og má losa í þær úr 4 bílum
samtímis. Á botni gryfjanna eru
færibönd, sem flytja sorpið í tvo
stóra sívalninga, sem eru rúm-
lega 20 m langir og 314 m í þver-
mál og snúast. Á leiðinni tínir
rafsegull úr sorpinu dósir og ann
að úr málmi, auk þess er gler og
stórir hlutir fjarlægðir. í sívaln-
ingnum gerjast sorpið, blandast
ákaflega vel, kvarnast, brotnar
niður og smækkar ört, þannig
að rúmmál þess minnkar um
%—%. — I sívalningnum er
bætt í sorpið vatni og súr-
efni (lofti) eftir því sem þörf
gerist, til að tryggja hæfilega öra
gerlastarfsemi. Þar er sorpið 4—
5 daga að fara gegnum sívalning-
ana. Drepast við þennan lang-
vinna hita (50°) allir venjulegir
skaðlegir sýklar og má því segja
að sorpið komi út úr sívalning-
unum sem gerilsneyddur áburð-
ur. Við hitann missa einnig arfa-
og önnur illgresisfræ þroska-
möguleika sína eða drepast með
öllu. Út úr sívalningunum flyzt
hið unna sorp á færiböndum í
hristisíur, sem aðskilja áburðinn
frá úrgangsefnum, sem ekki
verða nýtt. Færist áburðurinn
enn á færiböndum út á svæði,
þar sem honum er komið fyrir
í bingum, þar til hann verður
notaður. Það er sameiginlegt
fyrir allar sorpeyðingaraðferðir,
sorpbrennslu sem aðrar, að alltaf
verða eftir málmhlutir og önnur
efni, sem ekki verður brennt,
eða eytt á annan hátt, oft um
15—20% af þyngd sorpsins. Úr-
gang þennan verður að setja í
sérstaka hauga og þekja mold
eða þ. h. og gera iðnaðarfyrir-
tækjum skylt að flytja úrgang
sinn þangað og svo verður hér.
Hristisíurnar í Sorpeyðingarstöð-
inni hér eru hafðar ákaflega fín-
gerðar, og fæst þá mjög fíngerð-
ur áburður, en einnig verður þá
Kýpursamningunum fagnað víða
Nokkurrar óánœgju gœtir á Kýpur
London, Aþenu og Nicosiu
20. fberúar. —
I LUNDÚNUM eru stjórnmála-
sérfræffingar í Lundúnum þeirr-
ar skoðunar, aff lausn Kýpurdeil-
unnar muni mjög auka samstöðu
Vesturveldanna og efla samtaka-
mátt þeirra. Fastlega má búast
viff því, aff andstöffu gæti á Kýp-
ur gegn samkomulaginu, bæffi
munu kommúnistar reyna aff
egna til illdeilna — og svo eru
meffal Kýpurbúa menn í báffum
flokkum, sem sætta sig ekki viff
málalok. Æsingamenn í hópi
gríska þjóffarbrotsins munu enn
um skeiff berjast fyrir sameiningu
viff Grikkland — og æsingamenn
meffal tyrkneska minnihlutans
krefjast aff sama skapi skiptingu
eyjarinnar. Þetta er álit stjórn-
málasérfræffinga, en þeir eru líka
þeirrar skoðunar, aff andstaffan
dofni skjótt, þegar frá líðtar —
og enginn af helztu fory stumönn-
unum heldur málinu vakandi.
Kyprianos biskup, einn af
leifftogum grískumælandi Kýp
urbúa, er einn þeirra fáu fram
ámanna á Kýpur, sem ekki
fagnar samkomulaginu. Hann
lét svo ummælt í dag, aff sam-
komulagiff væri fyrirfram
dauffadæmt, grískir menn á
Kýpur mundu halda áfram aff
berjast fyrir sameiningu viff
Grikkland — og þeirri baráttu
mundi lykta meff sigri.
í tyrkneska borgarhlutanum
í Nicosiu fóru unglingar í hóp-
göngu til að mótmæla og for-
dæma samkomulagið — og létu
þeir ófriðlega. Báru þeir spjöld
sem á var letrað:
„Niður með Macarios", „Mend-
eres seldur fyrir dollara".
Ekki kom þó til neinna átaka
og voru brezkir hermenn hvar-
vetna á varðbergi. Nokkrum
föngum slepptu Bretar í dag —
en enn hafa þeir um 1,000 Kýpur-
búa í haldi. Þeim verður þó sleppt
smám saman þegar um hægist.
Yfir 600 manns hafa fallið á
Kýpur á þeirri ógnaröld, sem þar
hefur staðið undanfarin fjögur ár
— og ber þessi tala fallinna einna
gleggstan vott um það hve bar-
áttuhitinn í eyjarskeggjum hefur
verið mikill.
Af þeim föllnu eru 142 Bret-
ar, en hitt eru grískir menn og
tyrkneskir sem falliff hafa í
bræffravígum þeirra eyjarskeggja
og fyrir byssukúlum brezkra
varffmanna.
Karamanlis, forsætisráðherra
Grikkja og Averoff, utanríkis-
ráðherra komu flugleiðis til
Aþenu í dag af Lundúnafundin-
um. Var þeim vel fagnað og
höfðu um 10,000 manns safnazt
saman á flugvellinum til að
Eisenhower sendi forsætisráð-
herrunum þremur heillaóskir og
fagnaði samkomulaginu.
Frh. á bls. 15
nokkru meiri úrgangur, sem er
notaður til að þekja ruslhauginn.
En skipta má um síur að vild.
í •Sorpeyðingarstöðinni munu
vinna 7—8 menn á daginn, en sí-
valningarnir þurfa ekki eftirlits
með á nóttunni, þó þeir séu ekki
stöðvaðir.
Frh. á bls. 15
Samúðarskeyti
vegna
Hermóðsslyssins
FRÁ Forseta fslands barst vita-
málastjóra í gær svohljóðandi
skeyti:
„Ég og kona mín sendum yður
og aðstandendum hinna vösku
sjómanna er fórust með vs. Her-
móði innilegar samúðarkveðjur.
Við biðjum guð að styrkja ástvini
þeirra í þungri sorg“.
Ásgeir Ásgeirsson.
★
Þá hafa forstjóra landhelgis-
gæzlunnar og vitamálastjóra enn
fremur borizt samúðarskeyti frá
bæjarstjórn Vestmannaeyja,
danska sendiherranum á íslandi,
Viceadmiral Nyholm, yfirmanni
danska flotans, skipasmíðastöð-
inni Finnboda Verf, Stockholm
og Kund E. Hansen Köbenhavn,
er smíðuðu og teiknuðu Hermóð,
Skipstjóra- og stýrimannafélag-
inu Verðandi í Vestmannaeyjum,
Commodore Anderson, yfirmanni
brezku eftirlitsskipanna hér við
land, svo og frá vitavörðum,
sjómönnum og öðrum velunnur-
um skips og skipshafnar innan-
lands og utan.
(Frá Landhelgisgæzlunni).
Laugardagur 21. febrúar
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Setning Búnaðarþings.
— 6: „Sannleikurinn um Nagy-mál-
ið“.
— 8: Forystugreinin: „Vel stjómað44.
Málafcrli út af „Arnarhreiðr-
inu“.
— 9: Bæjarmálastefna Sjálfstæðls-
manna (Ræða Geirs Hallgríms-
sonar).
— 14: Kosið til ýmissa starfa á Al-
þingi.
L E S B Ó K fylgir blaðinu i
dag. — Efni hennar er m.a.:
Hvernig reyndist Kirkjuþingið,
eftir Gísla Sveinsson.
Þrætulandið Kashmir.
Eiga konur að vera læknar.
Pappír.
Vetnisorkan til friðsamlegra
starfa.
Atomklukkan.
Heim úr miðsumarstúrnum.
(Smásaga). — Bridge o. fl.