Morgunblaðið - 07.03.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.03.1959, Blaðsíða 6
e MORCUNTtL 4 ÐIÐ Laugardagur 7. marz 1959 Fjclbýlishús við Kaplaskjólsveg og fjárframlag til eldvarna veldur deilum á bæjarstjórnarfundi Á FUNDI bæjarstjórnar í gær var tekin til umræðu fundar- gerð frá 3. marz, en 6. og 7. liður þeirrar fundargerðar eru á þessa leið: 6. Lagt fram að nýju bréf Húseigendafélags Reykjavíkur, dags. 21. nóv. 1957, þar sem farið er fram á, að Húseigenda- félag Reykjavíkur fái fjárfram- lag úr brunatryggingasjóði bæj- arins til þess að vinna af eLingu eldvarna í bænum. Bæjarráð samþ. með 4:1 atkv. að mæla með því, að félaginu verði á þessu ári veittar kr. 120.000.00 í þessu skyni. 7. Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa, dags. 12. sept. sl., ásamt umsögn borgar- ritara frá 14. okt. sl. Bæjarráð samþ. fyrir sitt leyti naeð 4:1 atkv. (Guðm. Vigfússon á móti) byggingarleyfisbeiðni fyrir fjölbýlishúsi á lóðinni nr. 51—55 við Kaplaskjólsveg, enda verði frárennsli frá húsinu hag- að samkvæmt fyrirmælum bæj- arverkfræðings og heilbrigðis- nefndar. Guðmundur Vigfússon kvaddi sér hljóðs um þessa liði fundar- gerðarinnar, og kvaðst vilja gera grein fyrir afstöðu sinni, en hann hefði greitt atkvæði gegn þessum liðum í bæjarráði. Taldi hann mjög varhugavert að veita Húseigendafélagi Reykja- víkur þá fjárupphæð, sem lagt var til í bæjarráði. Þessi upp- hæð væri tæpur helmingur af rekstrarkostnaði slökkviliðsins og virtist sér farið út á varasama og varhugaverða braut ef þessi upphæð yrði veitt. Það væri mjög óheppilegt að dreifa eld- varnarstörfunum á margar hend- ur. Þá taldi ræðumaður Húseig- endafélag Reykjavíkur ekki rétta umboðsmenn íbúðaeigenda í bæn um, því í húseigendafélaginu væru ekki nema 12 til 1500 fé- lagsmenn, en íbúðaeigendur í bænum væru um 16000. Þá kvað hann bæjarstjórnarmeirihlutann ætíð hafa borið lítið traust til húseigendafélagsÍMS, enda hefði það verið undir stjórn órólegu deildarinnar í Sjálfstæðisflokkn- um. Nú væri komin betri stjórn í félagið og því ætti að stinga að því dúsu. Bað Guðmundur bæj- arfulltrúa að hugsa vel um þetta mál og mæltist til þess, að hafðar yrðu um málið tvær umræður. Þá ræddi Guðmundur Vigfús- son síðari lið fundargerðarinnar. Kvað hann hafa verið byggt stór hýsi við Kaplaskjólsveg áður en frárennslisvandamálið hefði ver- ið leyst og hefði stafað af þeirri byggingu mikið óhagræði og vandræði. Á þessu ári væri að vísu áætlað að verja einni millj. kr. til holræsagerðar í þessu hverfi, en sú hætta væri þó til staðar, að húsið yrði komið upp áður en holræsavandamálið yrði leyst. í lok máls síns lagði ræðu- maður fram frávísunartillögur við báða þessa liði fundargerð- arinnar. Gunnar Thoroddsen, borgar- stjóri tók næstur til máls. Skýrði hann svo frá, að byggingarnefnd hefði í vetur sent bæjarráði til athugunar umsókn um bygging- arleyfi fyrir fjölbýlishúsi við Kaplaskjólsveg. Hefði bæjarráð geymt að svara þessu í nokkra mánuði meðari ekki var ráðið hvenær Kaplaskjólsræsið yrði gert. — Nú væri holræsaáætlun lokið og ákveðið að verja einni milljón kr. á þessu ári til Kapla- skjólsræsisins. Væri nauðsynlegt að hraða lagningu þessa ræsis til þess að sundlaug Vesturbæj- ar gæti tekið til starfa, en hún yrði væntanlega tekin i notkun árið 1960. Kaplaskjólsræsið yrði væntanlega fullgert á næsta ári. Hér væri allt öðru máli að gegna, en um það fjölbýlishús, sem reist var við Kaplaskjóls- veg fyrir nokkrum árum. Sam- kvæmt útreikningum fagmanna yrði sjálfrennsli frá kjallaragólfi hússins, sem nú væri áformað að byggja. Væntanlega tæki um tvö ár að koma húsinu upp og ætti því holræsið að vera fullgert þeg ar húsinu yrði lokið. Hér væri tvennu ólíku saman að jafna. Gunnar Thoroddsen fór því næst nokkrum orðum um fyrir- hugaða fjárveitingu til Húseig- endafélags Reykjavíkur til eld- vama. Kvað hann Guðmundi Vig fússyni hafa orðið tíðrætt um þær 120 þúsundir, sem lagt væri til að veita í þessu skyni. — f sambandi við eldvarnir bæri nauðsyn til að margir aðilar legðu hönd á plóginn. Það væri þröngt um starfsemi slökkviliðs- ins í Tjarnargötu, en nýlega hefði verið samþykkt að verja nokkr- um milljónum kr. í nýja slökkvi- stöð. — Þá hefði verið samþykkt að verja allmiklu fé til slökkvi- tækja m.a. einni millj. kr. til kaupa á stigabíl. Slökkviliðið hefði unnið mikið og gott starf og ætti skilið þakkir bæjaryfir- valdanna og bæjarbúa. Fleiri aðilar hefðu einnig lát- ið til sín taka í þessum málum eins og vátryggingafélög, sem hvettu fólk til að tryggja og veittu því margháttaðar upplýs- ingar um brunavarnir. Slysa- varnafélagið hefði einnig rekið áróðursstarfsemi á þessu sviði. Æskilegt væri að bærinn tæki upp starfsemi við húseigenda- félagið um eldvarnir, enda væri sá háttur á hafður víða erlendis. Gat borgarstjóri þess, að þegar húseigendafélagið hefði spurzt fyrir um þetta atriði, hefði bæj- arráð leitað umsagnar rafmagns stjóra, sem taldi æskilegt, að tekið yrði upp samstarf við þessa aðila. Félagið gerði ráð fyrir að þetta starf yrði margþætt: Gefin yrðu út leiðbeiningarrit um olíu- tæki og rafmagnstæki og ráðinn maður til að líta eftir olíukynd- ingartækjum. Þá yrðu gefnar út skýrslur um tíðustu brunaorsak- ir, húseigendur fengnir til að vinna almennt gegn brunahættu og haldið uppi stöðugum áróðri um þessi mál meðal almennings. Hér væri tilraun og ekki væri ákveðin fjárveiting nema til eins árs. Húseigendafélagið mundi gefa skýrslu um starfsemina. Það væri haldið út á rétta braut með þessu samstarfi, sagði borgarstjóri að lokum. Alfreð Gíslason tók mjög í sama streng og Guðmundur Vig- fússon. Hann kvaðst ekki hafa haft tækifæri til að kynna sér málið til hlítar og óskaði þess að afgreiðslu þess yrði frestað. Guðnuundur Vigfússon talaði aftur. Kvað hann óþarft að styrkja húseigendafélagið til brunavarna því þeir menn er þar stæðu fremstir væru stór- ríkir. Magnús Ástmarsson tók til máls og kvaðst vilja gera grein fyrir afstöðu sinni til beggja þessara mála. Vék hann fyrst að eldvörnunum og kvað það oft gef ast vel fyrir hið opinbera að hafa samvinnu við áhugamenn og ef vel tækist í þessu máli væri síður en svo að hér væri farið út á ranga braut. Kvaðst hann telja að rétt væri að gera þessa tilraun. Þá vék Magnús að húsbygging- unni við Kaplaskjólsveg. Kvað hann að vísu hugsanlegt að húsið yrði komið upp áður en holræsið yrði lagt, en líkurnar til að þetta næði saman væru hins vegar svo miklar, að ekki væri verjandi annað en að samþykkja þetta. Þá væri einnig gert ráð fyrir þvi í samþykktinni að frárennsli frá húsinu yrði hagað samkvæmt fyrirmælum bæjarverkfræðings og heilbrigðisnefndar og gætu þessir aðilar bannað að flutt væri í húsið, ef téðum skilyrð- um væri ekki fullnægt. í forföllum Þórðar Björnssonar, taldi ekki rétt að byggingar yrðu leyfðar fyrr en lóðir væru byggingarhæfar. Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri undirstrikaði orð Magnúsar Ástmarssonar um að frárennsli frá húsum skyldi hagað sam- kvæmt fyrirmælum borgarlækn- is og bæjarverkfræðings. Borgarstjóri taldi rétt að verða við ósk minni hlutans um að fresta málinu til næsta fundar og var það gert. Leyfi fyrir sœnskum djúp- bor verði veitt nú þegar GUNNAR Thoroddsen, borgar- stjóri, skýrði frá því á bæjar- stjórnarfundinum í gær, að rætt hefði verið um það að undan- förnu, að bærinn keypti djúpbor, sem hann ætti og réði yfir að öllu leyti. Hefði hitaveitúnefnd og hitaveitustjóri lagt á það mikla áherzlu að hitaveitan eign- aðist slíkan bor. í fundargerð bæjarráðs 24. febr. hefði verið lagt fram bréf stjórnar gufubor- ana ríkisins og Reykjavíkurbæj- ar, þar sem lagt væri til að leitað yrði eftir kaupum á vindu á gufuborinn, þannig að unnt væri að bora niður á 2000 metra dýpi. Bæjarráð hefði ályktað að fela borstjórninni að festa kaup á umræddri vindu og heimila henni að leita eftir nauðsynleg- um lánum í þessu skyni. Um gufuborinn væri það að segja, að bærinn réð yfir hon- um fyrsta árið eftir að hann kom til landsins. í fyrra sumar hefði bærinn lánað ríkinu borinn í 4 mánuði til Hveragerðis og hefði því umráð yfir honum þar til í haust. Djúpbor væri hins vegar miklu ódýrari í rekstri en gufu- borinn. Þegar tilboða hefði ver- ið leitað fyrir nokkrum árum eftir djúpbor, hefð hagstæðasta tilboðið komið frá Svíþjóð, en leyfi hefðu ekki fengizt fyrir bornum þaðan síðastliðin 3 ár. Upphaflega hefði hann kostað 1,3 milljónir, en mundi nú kosta 2—3 milljónir. f tilefni þessa kvaðst borgarstjóri vilja leyfa sér að bera fram svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjórnin skorar eindreg ið á innflutningsyfirvöldin að veita nú þegar innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir sænskum djúpbor, sem sótt hefur verið um síðastliðin 3 ár“. Tillaga borgarstjóra var sam- þykkt með öllum atkvæðum. Bornafræðslufrumvarpið fellt með rökstuddri dagskrú FRV. um ríkisreikninginn 1956 var til 2. umr. á dagskrá efri deildar sl. þriðjudag. Bernharð Stefánsson hafði framsögu í mál- inu af hálfu fjárhagsnefndar og skýrði frá því, að nefndin hefði borið töluliði frumvarpsins saman við ríkisreikninginn og legði ein. róma til að frv. yrði samþykkt og þar með ríkisreikningurinn. Var frumvarpsgreinin samþykkt með 13 samhljóða atkvæðum og frv. vísað til 3. umr. með sama at- kvæðamagni. Frumvarp um fasteignagjöld til Hörðtur Helgason, sem mætti' sveitarsjóða var til framhalds skrifcir úr daglegq íífinu ÞEGAR mikill snjór er á göt- unum, sækist fólk í það að ganga í hjólförunum eftir bílana. Þetta er ákaflega skiljanlegt, þeg- ar ekki eru neinar gangstéttir meðfram akbrautunum. Það er allt annað en gaman að kafa snjó- inn. En hjólförin eru hættulegasti staðurinn á götunni, fyrir gang- andi fólk. Bílarnir geta ekki beygt upp úr djúpum hjólförum, þegar þeir koma akandi og sjá allt í einu manneskju fyrir fram- an sig, og ekki er alltaf öruggt að hægt sé að stöðva bílinn sam- stundis ef hált er í hjólförunum. Því minnist ég á þetta nú, að nýlega ók ég inn fyrir bæinn í snjó og þæfingsfærð. Farið var að skyggja og öðru hverju birtist fólk rétt framan við bílinn. Satt að segja dáðist ég að því hve bíl- stjórinn var gætinn og þolinmóð- ur. Sem betur fer kom ekkert fyrir í þessari ferð, og það var eingöngu bilstjóranum að þakka. Aftur á móti er mér kunnugt um, að stúlka ein varð fyrir bíl, þegar hún gekk í hjólförunum suður . Kópavogi í fyrra vetur. Þurfti hún að liggja í rúminu í margar vikur af þeim sökum. Þetta ættu menn að hafa hug- fast. Það er óþægilegt að ganga utan við hjólförin í miklum snjó, en það er alltof hættulegt að ganga í þeim. ★ Aðkomumaður á Siglufirði: EG hefi séð í tveim blöðum bæj- arins, hina síðustu daga, að sagt er frá dönskum manni, Aage Henry Nörégaard, sem hafði mál- að utan á hús sitt rógskennda frá sögn af dvöl sinni á íslandi og samskiptum sínum við fslendinga. j hafi dag nokkurn komizt úr jafn- j vægi og hafi hann skotið af riffli i á eftir manni nokkrum er j hann hafði orðið sundurorða við, þegar maðurinn var að lesa um- af miklum dugnaði hænsnabú. Fyrir um 6—7 árum virtist hann vera orðinn þreyttur á hænsna- ræktinni og vildi þá hverfa aftur heim til Danmerkur. Hann vildi selja Siglufjarðarbæ hænsnahúsið ásamt íbúðarskála, þegar hann hafði losað sig við hæsnin. Vera má að lesendur Mbl. reki enn minni til þess, að skýrt var frá því fyrir nokkrum árum, að eldur hafi komið upp í hænsna- búi, sem stendur skammt frá bænum og voru eldsupptök óljós. Þetta var bú Nörégaards. Það kom fram síðar að Nörégaard vildi heldur brenna hænsnahúsið til ösku, en taka því tilboði, er gert hafði verið í það, því svo lágt þótti honum það. Síðar kom Nöré gaard einnig við sögu í fréttum blaðanna, því veslings maðurinn fannst á götu hér í bænum, ósjálf rædda auglýsingu. Nörégaard í bjarga vegna olvunar, en i ljos þessi býr nú í Ringköbing að því I kom a logreglustoðmm, að hann er ráðið verður af frásögn blað- ! var með alla vasa fulla af Pen' anna. Það kemur ekki fram í blöð j ineum sv0 sklPU tu*um Þusunda- um hvar þessi maður var, er harn | Á Siglufirði var ^ það á vit- dvaldist hér á landi. En ég tel mig or^t allra, að Nörégaard gekk geta upplýst lesendur dálka Vel- j el6i heill til skógar andlega, þá vakanda um veigamikil atriði frá ! er hann hvarf þaðan, enda hef- íslandsdvöl Nörégaards. Fyrir j ur það nú sannazt eftir þeimfregn síðustu styrjöld kom þessi maður um er blöðin birta um Nöré til Siglufjarðar með dýpkunar- skipinu „lda“. Það var við upp- gröft í Siglufjarðarhöfn. Þar varð Nörégaard fyrir því slysi að missa aðra höndina og varð hann að hætta störfum á dýpkunarskip inu. Hann ílentist á Siglufirði. Á styrjaldarárunum rak hann t.d. gaard. Þetta rifjaðist allt upp fyrir mér, er ég las uml Nörégaard gamla og ég tel rétt að þetta komi fram, því það kann að bregða ljósi á íslandsdvöl hans. Hann var dugnaðar maður sem varð fyrir slysi svo að heilsa hans bilaði. annarrar umræðu. Framsögumað- ur heilbrigðis- og félagsmála- nefndar í málinu, Sigurður Ó. Ólafsson, tók til máls og skýrði frá því, að nefndin hefði tekið til athugunar þær skriflegu breyting artillögur, sem lagðar hefðu verið fram á síðasta fundi og legði meiri hluti nefndarinnar til að tillögurnar yrðu felldar. Þessara tillagna hefur verið getið hér í blaðinu. Breytingartillögurnar voru felld ar og frv. vísað óbreyttu til 3. umræðu með 10 atkv. gegn einu. Þriðja mál á dagskrá deildar- innar var frumvarp um fræðslu barna, þar sem lagt er til að próf- lausir barnakennarar fái full réttindi ef ákveðnum skilyrðum er fullnægt eins og nánar var rakið í blaðinu í gær. Mennta- málanefnc’. lagði til að frv. yrði vísað frá með rökstuddri dagskrá og gerði Sigurvin Einarsson nán- ari grein fyrir þeirri afstöðu nefndarinnar. Karl Ilristjánsson, fyrri flm. frv., tók til máls og gagnrýndi nokkuð ræðu framsögumanns og einstök atriði í röksemdafærslu þeirra aðila, sem höfðu sent um- sagnir. Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra kvaddi sér hljóðs og þakkaði menntamálanefnd af- greiðslu hennar á frv. Kvað hann það hefði verið spor í ranga átt ef frv. hefði verið samþykkt. Rökstudda dagskráin var sam- þykkt að viðhöfðu nafnakalli með 8 atkv. gegn 3. Fjórða r.iál á dagskrá efri deild ar var frv. um Búnaðarmálasjóð og er þess getið annars staðar í blaðinu. Ileilsufarið í GÆRKVÖLDI barst blaðinu yfirlit frá skrifstofu borgarlækn- is, um heilsufar bæjarbúa. Er yfirlitið miðað við vikuna 15.— 21. febrúar. Ekki er hægt að segja að í þeirri viku hafi geisað hér í bænum neinir alvarlegir kvill- ar. Þess má t.d. geta, að tala in- fluenzutilfella var þá viku 5 en hafði verið 26 vikuna á undan. Mislingar gera enn vart við sig, og höfðu tilfellin verið 18. Það voru helzt brögð að kvefi, 163 tilfelli, og svo 82 tilfelli háls- bolga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.