Alþýðublaðið - 28.10.1929, Side 3
it&ÞYBUS&AÐIfi
3
m
Bezta Cigarettan í 20 sífe. pökkum,
sem kosta 1 krónn, er:
Commander
lestminster,
Cigarettnr.
f
Virgima,
Fást í öllum verzlunum.
t hverjum paklta ep gallfalleg íslenzk
mynd, og f«er hver sá, ep safnað hefipSO mynd-
um, eina stækkaða mynd.
IBiil
Prátt fyrir einstök ágætiskvæ'ði
í þessari síðustu bók Davíðs,
verður pó ekki sagt, að um fram-
för sé að ræða. Hún hefði að
skaðlausu mátt vera talsvert
styttri. Sterk orð, sem of lítið finst
á bak við, úg handahófs-setningar
spilla mörgum kvæðanna. Ég
skal nefna dæmi: „Brenni alt,
sem brautir sannleikans flýr og
breytir mönnum í öskrandi villi-
dýr,“ lætur hann Neró segja í
söng sínum. Seinni línan er
hreint tilviljunarrim og ekkert
annað. Á slíkt mætti benda
víðar. Dálítið leiðinlegt er líka
að sjá skáldið nota sömu setn-
ingarnar hvað eftir annað ó-
breyttar eða lítt breyttar. Menn
eru farnir að kannast við petta:
„og sumir eiga drauma, sem
aldrei geta rœzt“ og fleira af
pví tagi.
En pótt ýmislegt megi að bók-
inni finna, er pó ljúft og skylt
að játa, að hún hefir að geyma
nokkur ágætiskvæði. Söngur Ne-
rós er voldugt og mikið kvæði,
pótt ekki sé pað gallalaust, enda
er vandfarið með slík efni. „Bréf-
id hennar Stínu“ er skemtilegt
og einfalt kvæði. f „Mannlýsing“
og „Leiksýning“ kemur fram
glögt auga skáldsins fyrir mis-
fellum í samlífi karls og konu.
Bæði kvæðin eru ágæt á sína
vísu. Hrœrekur konungur er og
ágætt kvæði, pótt ekki sé mikill
fornaldarbragur á pví. „Ad skiln-
adi“ og „Olíuvidurinn“ eru bæði
yndisleg og látlaus. „Skriftamál
gamla prestsins“ er voldug á-
deila á trúarhræsni klerkastétt-
arinnar. „Andvarp“ er prungið
biblíulegum eldmóði og andagift:
„Þú, sem græðir grös úr sandi,
getur bjargað pjóð og landi.
Þú almáttugi andi.
Viljirðu ekki vekja og fræða
veikan lýð, sem örlög hæða,
legusárin lækna og græða,
lífga pá, sem eru að deyja,
gefa peim málsins mátt, sem
Þegja,
miskunna peim, sem kné sín.
beygja,
gefa peim kraft til dirfsku og
dáða,
drengskapar og spekiráða,
anda til að yrkja og skrifa,
afl til pess að lifa —
lát pá dimma og degi halla,
lát dómsins lúður kalla,
lát björg og borgir falla,
lát básúnurnar gjalla,
lát her pinn höggva á böndin,
lát hafið gleypa löndin,
lát springa töfratundur
og tæta leirinn sundur,
lát gerast ógn og undur!“
Góð kvæði eru einnig „Tröllid“
og „Harún Alraschid“ að ó-
gleymdri perlunni „Konan, sem
kyndir ofninn minn“, sem er milt,
látlaust og spaklegt smákvæði,
og vafalaust er eitt hið bezta,
sem ort hefir verið á íslenzku af
pví tagi, og er fullkomlega sam-
bærilegt við „Den tjánande bro-
dern“ eftir Carl Snoilsky.
Það er ástæða til að fagna pví,
að hvergi hefir komið fram eins
Ijóst og í „Nýjum kvæðum“ sam-
úð Davíðs Stefánssonar með oln-
bogabörnum mannfélagsins og
hatur hans á pjóðfélagsranglæti
og trúhræsni. Hann er að verða
öreigaskáld. Sum ádeilukvæðj
hans, eins og t. d. hið síðasta, er
ég nefndi (pví að ádeilukvæði er
f'.að), hafa tekist ágætlega, en
önnur miður, t. d. kvæðið um
rússneska prestinn. Það minnir
of mikið á „hljómandi málm og
hvellandi bjöllu“, eins og reynd-
ar sum fleiri kvæðin. Ádeilan
misheppnast, vegna pess hve hún
er einsýn og grunnfær. Manni*'
verður að hugsa, hvað Fröding
hefði orðið úr pessu efni — Frö-
ding, sem gat litið á alt mann-
legt með skilningi og meðaumk-
unarbrosi, en misti pó aldrei
m.arks í ádeilu. Ég nefni hér Frö-
di?Eg, af pví að Davíð er hið
eina íslenzka skáld, sem virðist
hafa orðið fyrir áhrifum og auðg-
ast af meistaranum mikla, pó að
hann að vísu bresti næstum al-
veg „húmor“ hans og skorti mjög
á skilning hans á sálarlífi manna.
gvarðus*,
Keflavík,
--- Sandgerðl.
Áætlunarferðir á hverjum degi
Bifreiðastðð
Steindors.
Davíð Stefánsson er svo mikið
og gott skáld í eðli sínu, að
hann polir vel, að hönum sé sagt
til syndanna. Gallar hans eru
honum sjálfráðir. Ef hann gerði
sér far um að vanda til hverrar
Íínu í kvæðum sínum, gæti hann
pað. Svo mikill listamaður er
hann. Og pjóðin, sem hann er
svo vinsæll hjá, myndi vilja
vinna til að bíða ári lengur eftir
næstu bók hans, til pess að svo
mætti verða.
M. Á.
Erlend simskeyti.
FB., 26. okt.
Drukknun.
Frá Milwaukee er símað: Ferja
fórst á Michiganvatni og drukkn-
uÖu 52 menn.
FB„ 27. okt.
Jafnaðarmenn vllja ekki vera i
stjórn til málamynda.
Frá París er símað: Daladier,
foringi „radikala“ flokksins, hefir
boðið jafnaðarmönnum sæti í
stjórninni, en ólíklegt er talið,
að peir piggi boðið. Aðalblað
jafnaðarmanna segir, aðjafnaðar-
menn vilji ekki sitja í stjórninni,
nema peir ráði mestu um stjórn-
arframkvæmdir.
Alment er talið vafasamt, að
Daladier heppnist stjórnarmynd-
un.
Æsingar svartliða.
Frá Rómaborg er símað: Æs-
ingarnaf í ítölskum blöðum gegn
Frakklandi aukast. Svartliðablöð-
in hóta Frökkum jafnvel ófriði,
ef Frakkar veiti andstæðingum
peirra stöðugt skjól í Frakk-
landi(!). — Lögreglan í Róm
verndar bústað frakkneska sendi-
herrans, par eð yfirvöldin ótt-
ast óeirðir vegna æsinganna í
blöðunum.
Um n«g|gnin ©g.^eglmis.
VERÐANDI. Fundur priðjudags-
kvöld kl. 8. , Embættismanna-
kosning og fleiri áríðandi mál.
Félagar, fjölmennið.
ST. FRAMTÍÐIN. Fundur í
kvöld. Kosning embættismanna
o. fl.
Verðskr: í:
Matskeiðar 2ja turna 1,90
Matgafflar — 1,90
Desertskeiðar — 1,80
Desertgafflar — —— 1,80
Teskeiðar — 0,50
do. 6 i kassa — 4,75
Ávaxtaskeiðar — 2,75
Rjómaskeiðar — 2,65
Áleggsgafflar — 1,75
Kökugafflar — 1,75
Sultutauskeiðar — 1,75
Kökuspaðar — —— 2,50
Tprtuspaðar — 3,25
Súpuskeiðar — 4,50
Kartöfluskeiðar — —— 5,00
Sósuskeiðar — 4,65
Borðhnifar riðfriir 1,00
Ávaxtahnifar riðfríir 1,25
Skeiðar og gafflar aipacca 0,75
Teskeiðar alpacca 0,40
do. aluminium 0,05
Gafflar aluminium 0.10
Kaffistell 6 manna 14,00
Þvottastell 12,00
Skólpfötur með lokl 3,50
Barnadiskar með myndum 0,65
Barnakönnur með myndum 0,40
Dúkku-Matar-Kaffi-Þvotta-stell 0,75
Munnhörpur — Úr — Dúkkur 0,25
Bílar, Hringlur, Fuglar 0,50
Vaskaföt 1,35
Vasar 0,75
Poltar 1,25
Mjólkurfötur 1.95
Sleifasett 7 st. 3,00
og allskonar Búsðhöld og Postu-
línsvörur. — Leikföng og tæki- færisgjafir ódýrast hjá
K. Einarsson & BJðrnsson,
Bankastræti 11.
Næturlæknir
|er í nótt Níels P. Dungal, Að-
alstræti 11, sími 1518.
Málverkasýningu
hefir Jón Þorleifsson listmálari