Morgunblaðið - 18.04.1959, Page 1
16 siður og Lesbók
<$> Aéc
46. irgangrur
tbl. — Laugardagur 18. apríl 1959
Prentsmiffja Mor*unMaSsiil6
Söngparið fræga, Nína og Friðrik, sem hér voru í vetur, lentu í bílslysi á miðvikudaginn fyrir
utan Kaupmannahöfn. í bílnum með þeim var Ole Schmidt, tónskáld og hljómsveitarstjóri við
Konunglega leikhúsið í Höfn. Það var Friðrik sem var við stýrið. Bíllinn lenti aftan í flutninga-
bíl með þeim afleiðingum að Schmidt fékk mörg höfuðsér og heilahristing, Nína fékk húðsprettu
á hvirflinum, en Friðrik slapp ómeiddur. Myndia sýnir hvernig bíll þeirra Nínu og Friðriks leit
út eftir áreksturinn.
»
18 kínverskir ,villumenn'
teknir í náð aftur
Enn miðar oð sam
komulagi í Genf
PEKING, 17. apríl. NTB-Reuter.
Átján kínverskir leiðtogar, sem
voru „hreinsaðir út“ í fyrra
vegna hægrivillu og árása á
kommúnistastjórnina, voru í dag
aftur teknir í náð. Þeir verða
samt að gera sér það að góðu að
gegna óæðri embættum en áður.
Þrír fyrrverandi ráðherrar voru
i þessum hópi, sem telst til hinn-
ar svonefndu þjóðlegu ráðgjafa-
nefndar. Ráðgjafanefndin heldur
þrettán daga fund i Peking á
sama tíma og hið nýja kínverska
„alþýðuþing" kemur þar saman.
Ráðgjafanefndin og þingið mun
halda nokkra sameiginlega fundi.
Lofa að bæta ráð sitt
í ráðgjafanefndinni eiga sæti
1071 fulltrúar úr ýmsum grein-
um atvinnulífsins í Kína. Vara-
formaður nefndarinnar tilkynnti
í dag, að hinir átján villuráfandi
meðlimir hefðu verið teknir í náð
aftur, vegna þess að þeir hefðu
látið í ljós óskir um að bæta ráð
sitt.
TEZPUR, 17. apríl — Reuter —
Mikill viðbúnaður er nú í Tezpur
til að taka á móti Dalai Lama og
120 manna fylgdarliði hans, sem
kemur tii bæjarins á morgun.
Mikill fjöldi Búddatrúarmanna
er kominn til Tezpur tii að hljóta
þar blessun Dalai Lama.
Hann mun ræða við 100 blaða-
menn, útvarps- og sjónvarps-
menn í Tezpur.
Dalai Lama og föruneyti hans
ferðast í 25 jeppum í fylgd ind-
verskra hermanna. Hann dvald-
ist nokkra daga í Bondila og
hvíldi sig eftir hina löngu ferð
frá Tawang-klaustrinu. Mikill
mannfjöldi safnaðist saman í
morgun í Bondila til að kveðja
hinn tigna gest og óska honum
góðrar ferðar.
Dalai Lama kom til Khelong
í dag og var þar tekið með kost-
um og kynjum, söng og dansi.
Fregnir frá Kalimpong herma
að enn geisi harðir bardagar um
240 kílómetra fyrir suðvestan
Lhasa, og hefur mikið kínverskt
heriið verið sent þangað.
Eftir fundinn í ráðgjafanefnd-
inni komu helztu leiðtogar komm
únistaflokksins og ríkisstjórnar-
innar saman til fundar til að
undirbúa dagskrá „alþýðuþings-
ins“ og kusu jafnframt æðsta ráð
97 meðlima.
WASHINGTON, 17. apríl. Einn
af leiðtogum Repúblikana á þingi
sagði í kvöld, að Christian Herter
sem farið hefur með embætti ut
anríkisráðherra í forföllum Dull-
esar, yrði skipaður í embættið
innan sólarhrings. Hefur það ver
ið mjög gagnrýnt í Bandaríkjun-
um, m. a. af stórblöðunum, að
Eisenhower forseti skyldi ekki
þegar í stað skipa Herter í embætt
ið ,eftir að Dulles sagði því Iausu
Kínversk frétt
1 frétt frá Hongkong segir að
kínverska fréttastofan „Nýja
Kína“ hafi skýrt frá fundi nokk-
urra Tíbetmanna í Lhasa, þar
sem þeir þökkuðu kínverska
hernum fyrir frelsunina. Segir í
sömu frétt að svikarar úr æðstu
stéttum Tíbets hafi brennt klaust
ur, limlest og strádrepið munka,
svívirt nunnur og rænt eignum
alþýðunnar.
MONTANA, 17. apríl. — Fangar
í ríkisfangelsinu í Montana í
Bandaríkjunum hafa fangelsið
enn á valdi sínu. Þeir hafa 18
fangaverði á valdi sínu og hafa
hótað að brenna þá lifandi, ef
yfirvöldin í Montana framkvæmi
áætlanir sínar um að senda vopn-
aða lögreglu og herlið gegn fang-
elsinu.
Leppur kínversku stjórnarinn-
ar í Kína, Panchen Lama, tók
þátt í þessum leiðtogafundi. Hann
sat einnig fund ráðgjafanefndar-
innar og var kosinn í æðsta ráð-l
ið. Hann hlustaði með sérstöku
heyrnartæki á Li Wei-Han, þeg-
ar hann talaði til féiaga sinna og
sagði, að nú væri nauðsynlegt að
hvetja fólk í öllum atvinnu-
greinum til að halda áfram bar-
áttunni gegn óvininum, bæði
innan lands og utan, og til að
frelsa Formósu.
Eisenhower mun hafa haft hug
á að gera Gruenther hershöfð-
ingja að utanríkisráðherra, en var
bundinn af loforði við Herter
þess efnis, að hann fengi embætt
ið ef Dulles neyddist til að láta
af því.
LONDON, 17. apríl. — Við suður-
strönd Englands geisa nú miklir
stormar, og hafa þeir torveldað
mjög siglingar um Eimarsund.
Kaupmannahöfn, 17. apríl.
Einkaskeyti til Mbl.
BANDARlSK samninganefnd
hefur lokið samningsviðræðum
við dönsk stjórnarvöld um risa-
stóra radarstöð í Kulusuk á
Grænlandi, sem mun kosta um
milljarð danskra króna. Stöðin
verður einn hlekkur í hinni
miklu viðvörunarkeðju gegn eld-
flaugaárásum. Það verða Danir,
sem starfrækja og vinna við hina
nýju radarstöð, ef hægt verður að
útvega nægilegt vinnuafl í Dan-
Fangarnir hafa myrt aðstoðar-
yfirmann fangelsins. Þeir náðu
einnig yfirmanni þess á sitt vald,
og héldu honum í þrjár klukku.
stundir. Þá tókst einum fanganna
að sannfæra hina um, að^rangt
mundi vera að taka yfirfangavörð
inn af lífi, eins og fyrirhugað var,
og var honum þá sleppt.
GENF, 17. apríl. NTB-Reuter. —
Á ráðstefnu stórveldanna þriggja
í Genf um bann við tilraunum
með kjamorkuvopn var í dag sam
þykkt brezkt uppkast að inngangi
væntanlegs samnings um bann
við tilraunum með kjamavopn
um alla ókomna framtíð. Segir i
þessum inngangi, að endanlega
skuli eyðileggja allar kjarnorku-
vopnabirgðir og leggja blátt bann
við framleiðslu slíkra vopna.
Jafnframt skal tilraunum með
þau hætt, og verði haft raunhæft
eftirlit með því að þær verði ekki
teknar upp að nýju. Kjarnorkuna
á aðeins að nota til friðsamlegra
þarfa.
í innganginum er bent á nauð-
syn þess að eftirlitið sé stöðugt,
og sú von látin í ljós, að öll ríki
muni skuldbinda sig til að gera
KAÍRÓ, 17. apríl. NTB-Reuter.
Forsætisráðherra Iraks, Abdul
Karim Kassem, hefur farið þess
á leit við hið alþjóðlega olíufé-
lag, „Iraq Petroleum Company“
(IPC), að það leggi olíuleiðslu,
sem kostar um 20 milljarða ísi.
króna, frá olíulindunum í Kirkuk
í Norður-frak til hafnarborgar-
innar Basap við Persaflóa. Þessi
fregn birtist í Kaíró-blaðinu „A1
Ahram“.
Orsök þessarar málaleitunar er
sögð vera sú, að Kassem vilji
ekki, að olían frá Irak skuli fram
vegis renna um leiðslur sem
liggja yfir sýrlenzk landsvæði.
Olían frá írak fer nú um leiðsl-
, ur, sem liggja yfir Sýrland til
hafnarborgarinnar Tripoli í Lí-
mörku, en ekki er talið sennilegt
að tii séu nógu margir sérmennt-
aðir Danir til að gegna starfinu.
Kvöldberlingur bendir á það í
dag, að nú sé engin dönsk flug-
vél á Grænlandi, en bandarískar
og íslenzkar flugvélar haldi uppi
ferðum þangað í ríkara mæli en
nokkru sinni fyrr. Brátt munu
líka franskar herflugvélar flytja
meðlimi úr hinum alþjóðlega
könnunarleiðangri Victors til
Grænlands. Nokkrir þeirra verða
látnir svífa niður á ísinn í fall-
hlífum, en aðrir lenda með flug-
vélunum á ísbreiðunni. Allar
birgðir til leiðangursins verða
fluttar loftleiðis.
Ekki er Ijóst hve margir hinna
600 fanga taka þátt í uppreisn-
inni, né heldur hvaða kröfur
fangarnir hafa gert. Einn þeirra
hrópaði til nokkurra starfsmanna
fangelsins úti fyrir, að fangarnir
vildu láta rannsaka ruddalega
framkomu fangavarða, sem mis--.
þyrmdu föngunum, bæði andlega
og líkamlega.
Fyrir tveimur árum var gerð
uppreisn í þessu sama fangelsi,
en þá beið enginn bana.
ekki tilraunir með kjarnorkO*
vopn.
Það er haft eftir góðum heim-
ildum, að rússneska sendinefndin
hafi enn krafizt þess aS
orðið „kjarnorkuvígbúnaðarkapp
hlaup“ yrði tekið með í textann,
en vestrænu sendinefndirnar hafi
bent á að orðið hafi á sér áróðurs-
blæ, það skorti vísindalega ná-
kvæmni.
í gær var níunda greinin í vænt
anlegum samningi samþykkt á
ráðstefnunni. Næsti fundur verð-
ur haldinn á mánudaginn.
HELSINKI, 17. apríl. — Peppo
Uolevi Helle, fyrrverandi for-
stjóri finnsku myntsláttunnar,
var í dag ákærður fyrir mynt-
fölsun, með því að hann hafði
látið gera silfur- og koparpen-
inga handa myntsöfnurum.
banon. Áður fór olían einnig um
leiðslur sem lágu til Haífa i
ísrael, en þær leiðslur hafa ekki
verið notaðar eftir Palestínustríð
ið 1948.
írak borgar brúsann
„A1 Ahram“ skýrir frá því að
Kassem hafi lagt fram málaleit-
un sína þegar hann ræddi við
forstjóra IPC, Honckton lávarð,
í Bagdad á mánudaginn var. —
Kassem er sagður hafa lagt á það
áherzlu, að íraksstjórn mundi
sjálf greiða kostnaðinn af hinni
nýju leiðslu, en hins vegar beðið
forstjórann um lán, sem yrði
endurgreitt smám saman með
olíunni. IPC er að verulegu leyti
í höndum brezkra, franskra, hol-
lenzkra og bandarískra hluthafa,
og hefur það alger yfirráð yfir
olíuframleiðslunni í írak, sem er
fjórða mesta olíuland við austan-
vert Miðjarðarhaf. Ágóðinn af
olíunni rennur hálfur til íraks-
stjórnar, en hinn helminginn fær
olíufélagið.
Orðrómur borinn til baka
Nýiega gekk um það þrálátul-
orrómur að Kassem hefði í
hyggju að þjóðnýta olíufram-
leiðsiuna í írak, og það væri þess
vegna sem Honckton lávarður
hefði farið til Bagdað, en sá orð-
rómur var borinn til baka, og nú
segist „AI Ahram“ hafa öruggar
heimildir fyrir máialeitun Kass-
ems.
★ ------------------------A
Laugardagur 18. aprll.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Stórbætt aðferð til að þurrka
saltfisk.
— 6: Vígorð leysa ekki vanda efna-
hagsmálanna.
— 8: Forystugreinin: Skattheimtaa
við búðarborðið.
Ýkjusögur og ósannfndi ura
Maríu Callas (Utan úr heimi).
— 9: Ræða Jóns Pálmasonar- alþingia
forseta við útvarpsumræðurnar.
L E S B Ó K
fylgir blaðinu í dag. Efni henB
ar er m.a.:
Ný ísöld í vændum.
Riddarar í sjónum.
Fornritaútgáfan og Alþingis*
sagan.
Talandi bækur.
Upplýsingar utan úr geimnura.
Frásagnaþáttur frá Grundar-
firði.
Smásagan „Bent á mann.
Bridge, fjaðrafok o. fl.
★ -----------------------*
Dalai Lama hvarvetna
hjartanlega fagnað
Herter eftirmaður
Dullesar
Fangar í Montana hafa fang-
elsið á valdi sínu
Mikið um að vera á
Crœnlandi
Kassem vill olíuleiðslur
til Persaflóa