Morgunblaðið - 05.07.1959, Qupperneq 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 5. júlí 195S
Laxveiði heldur treg
í Borgarfjarðaránum
AKRANESI, 4. júlí — í gær náði
ég tali af Kristjáni Fjeldsted,
bónda í Ferjukoti. Hann var þá
einmitt nýkominn vestan af Mýr-
um. Hann sagði, að enn hefði ekk
Síldarverksmið j ur
ríkisins liafa feng-
ið 32 þúsund mál.
SIGLUFIRÐI, 4. júlí. — Austan
bræla er úti fyrir á miðunum og
mörg skip liggja í höfn. Frétzt
hefur að nokkur skip hafi fengið
síld í nótt á svipuðum slóðum og
áður: Víðir II. 500 tunnur, Jök-
ull 250, Snæfell 500, Faxaborg
500 og aðrir minna.
Alls hafa Síldarverksmiðjur
ríkisins á Siglufirði tekið á móti
32.678 málum af síld tii bræðslu.
— Guðjón.
ert sem teljandi væri veiðzt í
vesturánum.
20. maí mátti leggja laxveiði-
netin í Hvítá. Fyrstir lögðu þeir
á Hvítárvöllum og í Ferjukoti,
en flestir hinna veiðibændanna
ekki fyrr en undir mánaðamót-
in maí—júní. Netjaveiði er heim-
ilt að stunda í Hvítá frá Einars-
nesi upp að ármótum Hvítár og
Þverár. Veiði var treg framan
af, en tók fyrst að glæðast um
miðja síðastliðna viku og hefur
stórum aukizt í þessari. í Norð-
urá má hefja stangarveiði 1. júní,
en víða annars staðar ekki fyrr
en 15. En sem komið er hefur
mjög lítið veiðzt í Grímsá og
Þverá, en þess ber að gæta að
laxinn er að ganga í ámar og
stangaveiðitíminn því raunveru-
lega að hefjast, sagði Kristján
Fjeldsted að lokum.
Fimm laxar veiddust í Laxá í
Leirársveit einn daginn í þessari
viku. — Oddur.
Festist í spili
við uppskipun
ÍSAFIRÐI, 4. júlí. — f fyrradag
varð það slys hér á ísafirði, að
sjómaður, Kristóbert Rósinkars-
son, festi stakk sinn í spili og
slasaðist nokkuð.
Verið var að skipa fiski upp úr
Pólstjörnunni, við bæjarbryggj-
una, en báturinn hefur verið á
handfærum að undanförnu. Var
Kristóbert við spilið og festist
stakkur hans í spilvírnum. Eng-
inn annar var niðri í bátnum,
aðeins uppi á bryggjunni. —
Klemmdi vírinn hann upp að spil
inu, svo honum lá við köfnun og
kom brátt ekki upp nokkru hljóði.
Fálmaði hann með hendinni í vir-
inn og missti við það framan af
þumalfingrinum og skaddaði
hendina. Stöðvaði skipstjórinn þá
spilið, en hann hafði hlaupið til
ofan af bryggjunni.
Sten Olof Vestman
Verkamaður sniíð-
ar sér svifflugvél
AKRANESI, 4. júlí — Hér á
Akranesi er verkamaður, sem
heitir Sigurður Arnmundsson. í
5—6 undanfarin ár hefur hann
varið tómstvmdum sínum til þess
að smíða svifflugvél. Er nú svo
komið að Sigurður er búinn að
smíða alla hlutina í sviffluguna,
en vantar nógu stóran sal, til þess
að setja hana saman. Þegar sam-
setningu er lokið, er ráðgert að
toga hana til flugs hér á bað-
ströndinni á Langasandi. Hefur
Benedikt Hermannsson, tré-
smíðameistari, sem hefur svif-
flugskennarapróf, lofað Sigurði
að vera honum innan handar og
stjórna fyrstu tilraununum við
að koma svifflugunni á loft.
— Oddur.
Refaskytta fékk
skot í bakið
ÍSAFIRÐI, 4. júlí, — Það slys
varð hér í gærkvöldi að skot hljóp
í bakið á Kjartani Sæmundssyni,
er hánn var á refaveiðum. Eru
meiðsli hans ekki talin lífshættu-
leg.
★
Slysið bar til með þeim hætti,
að Kjartan, sem var á refaveið-
um norður í Hornvík og búinn
að skjóta 10 refi, hrasaði er hann
var að eltast við einn og hljóp
skotið úr hlaðinni byssunni í
bakið á honum. Félagar Kjart-
ans lögðu af stað með hann í bát
þeirra til ísafjarðar, en þaðan var
sendur hraðskreiðari bátur á
móti þeim. Er Kjartan nú kominn
í sjúkrahúsið á ísafirði og líðan
hans eftir atvikum.
Finnskur blaðamaður
í mánaðardvöl á íslandi
FINNSKUR blaðamaður, Sten
Olof Vestman að nafni, leit inn á
ritstjórn Morgunblaðsins á dög-
unum. Vestman er hingað kom-
inn á styrk frá íslenzka ríkinu
og mun dveljast hér á landi til
júlíloka.
Vestman er frá Ekenas við
Finnska flóann og starfar við
blað, sem heitir Vastra Nyland
og er eitt af þremur dagblöðum
í Finnlandi, sem skrifuð eru á
sænsku. Blaðið er að nokkru
leyti málgagn Sænska þjóðflokks
ins og stjórnmálaritstjóri þess er
John Österholm, íormaður
Sænska þjóðflokksins í ríkisþing-
inu. Það kemur út í ellefu til tólf
þúsund eintökum.
Það, sem fyrst vakti áhuga
Vestmans hér á landi voru auð-
vitað kosningarnar, en síðan hef-
ur hann kynnt sér Hitaveituna
og Reykjalund og hrifizt af
hvorutveggja. t næstu viku legg-
ur hann land undir fót ásamt
Hákoni Bjamasyni, skógræktar-
stjóra, því hann hefur öðru frem-
ur áhuga á að kynnast skógrækt-
inni á tslandi. Hann mun einnig
fara til Siglufjarðar og víðar um
Norðurland.
Skólasfrákur smíðar
eldflaug
ENSKUR skólastrákur, Peter
Finney, vakti athygli brezkra
blaða á dögunum. Hann hafði
smíðað sjálfstýrða eldflaug —
algerlega á eigin spýtur.
Eldflaugina hafði hann búið til
á níu mánuðum, hún var að
Á nýja íbúð,
fékk aðra
ÍSAFIRÐI, 4. júli. — Maður héð-
an frá ísafirði fékk hæsta vinn-
inginn í nýafstöðnum drætti happ
drættis DAS, íbúð að Hátúni 4 í
Reykjavík. .Heitir hann Sigurður
Guðmundsson, málari, maður
rétt þrítugur, sonur Guðmundar
Sæmundssonar málarameistara á
ísafirði. Sigurður er kvæntur og
tveggja barna faðir. Hann býr í
nýju húsi, sem hann á sjálfur.
Nýr vanarsamn-
ingur
TOKYO, 2. júlí. — Búizt er við
að seinnihluta sumars verði nýr
varnarsamningur Japans og
Bandaríkjanna undirritaður. Jap
anski forsætisráðherrann sagði á
þingi í dag, að óvinátta í garð
bandarískra hermanna í Japan,
væri óvinátta í garð Japans.
Bandarikjamenn væru í Japan til
þess að verja Japan og þjóðina
gegn yfirgangi kommúnismans.
Japanir væru enn ekki færir um
að verja land sitt sjálfir.
mestu gerð úr aluminium og tin-
plötum — og hafði kostað hann
þrjú sterlingspund.
Hafði hann komið trékylfu fyr
ir í trjónu eldflaugarinnar — og
átti kylfan að svífa til jarðar í
fallhlíf, þegar aldflaugin byrjaði
að falla til jarðar. Hafði stráksi
reiknð út, að hún mundi ná 2.000
feta hæð.
Og svo átti að skjóta undra-
tækinu á oft. En þá kom babb
Á SÍÐASTLIÐNUM vetri efndi
Kjarnfræðanefnd íslands til rit-
gerðasamkeppni um eðlisfræði-
legt efni og skyldi fjallað um
gerð efnisins. Þátttaka var heim-
il öllum nemendum í mennta-
skólum landsins.
—■ A/ew York Times
Framhald af bls. 1.
tveir, Framsóknarmenn og Sjálf-
stæðismenn, er bættu við sig þing
sætum, gætu sameinazt um mynd
un ríkisstjórnar. En til þess eru
litlar líkur. Afleiðingin af því er
svo aftur, að búizt er við því, að
minnihlutastjórn jafnaðarmanna,
sem studd er af Sjálfstæðisflokkn
um, sitji áfram, þar til hún fram-
kvæmir breytingar á kjördæma-
skipuninni og efnir til nýrra
kosninga í haust.
Einmitt vegna þess er þýð-
ingarmikið að nema eitt atriði
brott úr íslenzkum stjórnmál-
um, sem kommúnistar reyna
að hagnast á og sem gæti orð-
ið til þess að þeir stigi upp
aftur við hin nýju kosninga-
lög, er veita bæjunum aukna
þingmannatölu. Þetta atriði
er hin óheppilega fiskveiða-
deila við Bretland.
Aðrar þjóðir hafa eins og
Bretar mótmælt hinni einhliða
útfærslu íslendinga á fiskveiði
landhelginni í 12 mílur, en
Bretar hafa einir sent herskipa
flota sinn gegn íslenzku varð-
skipunum og hafa með þeim
hætti sameinað alla tslendinga
í andspyrnu gegn Bretlandi,
sem þó er bandamaður þeirra
í NATO og hefur þetta haft
óhjákvæmilegar afleiðingar í
för með sér fyrir NATO sjálft.
Hin fáu viðbótartonn af fiski
sem koma í net Breta eru ekki
þessa virði.
í bátinn. Flugumferðarstjórnin
hafði veður af ráðagerðinni — og
sagði NEI. Tilraunir sem þessar
mundu geta haft í för með sér
hættu fyrir flugumferð — og
bezt væri að taka fyrir allan slík-
an leikaraskap í upphafi. Og enn
situr við sama.
En tilganginum er að nokkru
leyti náð, því að smíði Peters
hefur vakið athygli skólastjórans
og kennaranna. Peter hefur ekki
verið alít of duglegur við námið,
en nú segist hann vonast til að
komast í gegn.
Þátttaka í keppninni reyndist
betri en búizt var við um jafn-
sérstætt efni og bárust ellefu rit-
gerðir, þar af sjö frá Menntaskól-
anum í Reykjavík, þrjár frá
Menntaskólanum á Akureyri og
ein frá Menntaskólanum á Laug-
arvatni. Þessar ellefu ritgerðir
fjalla um flesta þætti í gerð efnis
ins, allt frá atómögnum til orku-
framleiðslu sólarinnar og gera
góð skil efni því, sem fjallað er
um. Fyrstu verðlaun 1000. — kr.
í peningum hlaut Halldór Elías-
son, nemandi í 6. bekk Mennta-
skólans á Akureyri fyrir ritgerð
um skammtakenninguna.
Onnur verðlaun, bókina Lehr-
buch der Experimentalphysik,
lhaut Þorsteinn Vilhjlámsson i
5. bekk Menntaskólans í Reykja-
vík fyrir ritgerðum um talningu
atómagna.
Þriðju verðlaun, tveggja ára
áskrift að tímaritinu Scientific
American, hlaut Guðmundur Þor
steinsson nemandi í 4. bekk
Menntaskólans á Laugarvatni fyr
ir ritgerð um breytingar frum-
efna.
Hin mikla þátttaka í sam-
keppninni ber þess vott, að mik-
ill áhugi er að vakna hjá yngri
kynslóðinni á eðlisfræði og
skyldum greinum og sérstök
ástæða er til að minnast á, að
fjórar mjög góðar ritgerðir bár-
ust frá nemendum í 3. bekk
Menntaskólans í Reykjavík.
Þess má einnig geta, að vegna
hinnar miklu og góðu þátttöku
hefur Stærðfræðafélagið ákveðið
að veita bókaverðlaun þeim
þátttakendum, sem ekki hljóta
verðlaun frá Kjarnfræðanefnd.
Tilgangur Kjarnfræðanefndar
með þessum verðlaunaveiting-
um er að glæða áhuga mennta-
skólanema á eðlifræði og skyld-
um greinum raunvísinda og
hyggst nefndin halda áfram verð
launaveitingum í þessu formi
eða öðru.
Ellefu ritgerðir bárust
um ,,gerð efnisins44
Halldór Elíasson, nemandi í M.A. hlaut
fyrstu verðlaun