Morgunblaðið - 05.07.1959, Page 13

Morgunblaðið - 05.07.1959, Page 13
Sunnudagur 5. júlí 195u MORCVNBLAÐ1Ð 13 Sumarnótt við suðurströndina. REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 4. júií Af liver ju kom sigurvissa Iícrmanns? Á FUNDI, sem Framsóknarmenn héldu í Keflavík á fimmtudags- kvöldið fyrir kosningar, veittu menn því athygli, hversu Her- mann Jónasson var sigurviss. Hann sagði þá, að frambjóðendur stuðningsmannu kjördæmabreyt- ingarinnar mundu stráfalla víðs vegar um land, einkum þó Sjálf- stæðismenn. Kjördæmabreyting- in yrði þess vegna stöðvuð og Framsókn héldi áfram lykilstöðu sinni í islenzkum stjórnmálum. Nú er það að vísu gamall her mannasiður, að láta líklega, þótt óvænlega horfi. Vonleysi gerir ósigur vísan. En of mikil sigur- vissa er ekki síður hættuleg. Ef Ijóst er að sigur getur ekki unn- izt, þá verður afturkastið af of miklu gorti og stærilæti fyrir- fram enn óhugnanlegra fyrir gortarann og traust á honum hlýtur að dvína þegar raunveru- leikinn blasir við. Hermann JónassOn var ekki einn um það af foringjum Fram- sóknar að láta mikið yfir sér fýrir kosningar. Framsóknar- menn höfðu vikum saman í sinn hóp fullyrt, að þeir myndu fá 22 þingmenn kjördæmakjörna og dagana fyrir kosningar breiddu þeir út um allt land að 23 væru vissir. Ekki dugðu 23 En ekki dugðu 23 til að fella máiið, mundu einhverjir segja. Hermann taldi sig eiga varalið, sem grípa mætti til, ef litlu mun- áði. Þexta sagði hann strax í vor í útvarpsumræðum frá Alþingi, svo að sú ráðagerð hefur alls ekki farið leynt. Mennirnir, sem Hermann taldi í varaliði sínu, voru allir neyddir til þess af fylgismönnum sínum að gefa yf- irlýsingu um hollustu við kjör- dæmamálið. En hver tekur mark á yfirlýsingum þeirra manna, sem að eigin sög.i hafa farið inn í flokk til að sundra honum og reyna að leiða fylgismennina frá hinum eiginlegu foringjum til annarra? Hannibal Valdimarsson ferð- aðist um landið þvert og endi- langt fyrir kosningar og prédik- aði, að Alþýðubandalag og Fram sókn ættu að vinna saman. Kjós- endur drógu af þessu þá eðlilegu ályktun, að ef þeir á annað borð ættu að selja sig undir forustu Framsóknar, þá væri bezt að fara þangað þegar í stað og setj- ast að kjötkötlum hennar með- an þeir enn væru fleytifullir. Það er naumast tilviljun, að menn urðu á síðustu stundu varir við það í nokkrum vafakjördæm- um, að Hannibalista-deild komm únista hóf áróður fyrir því, að hjörðin skyldi öll kjósa Fram- sókn. Nú eftir á gengur Hannibal um og segir, að eðlilegt hafi ver- ið, að svona hafi farið, vegna þess, að um einvígi Framsóknar og Sjáifstæðismanna hafi verið að ræða. Þarf ekki að efast um, hvorum meginn hugur hans hafi verið í því einvígi. Sjálfsblekking Hermanns Þjóðviljinn leggur á það meg- ináherzlu nú eftir kosningar, að allt bjartsýnistal FramsóknaT' broddanna hafi verið vísvitandi blekking gegn kjósendum. Á fimmtudaginn fullyrðir hann t. d., að Framsóknarmenn hafi tal- ið mönnum trú um, að kjördæma breytingin þyrfti að hljóta sam- samþykki % hluta þingmanna, og væri Framsókn þess vegna nóg að fá aðeins rúman V3 hluta kosinn til að geta fellt málið. Ef þessu hefur verið haldið fram, er það auðvit- að visvitandi lygi og sviksamleg blekking. Sízt er ástæða til að efa, að Framsóknarmenn hafi til þessa gripið þar sem þeim þótti það henta. En þessi skýring er ekki nægi- leg. Framsóknarmenn mundu ekki hafa iátið svo mikið yfir sér, sem þeir gerðu, ef þeir hefðu ekki talið sig hafa raunverulegan möguleika til að stöðva málið. Þeir hljóta að hafa gert sér grein fyrir, að menn, sem reynzt hafa svo augljósir falsspámenn sem þeir að þessu sinni, eru sízt lík- legir til þess að halda trausti sinna eigin manna, hvað þá hinna úr öðrum flokkum, sem voru ginntir til fylgis við Fram- sókn vegna kjördæmamálsins eins. Áhættan var of mikil, ef þeir töldu sig ekki standa nokk- urn veginn föstum fótum og sig- urvissan og gortið fram á síðustu stundu of áberandi, ef þeir gerðu sér sjálfir Ijðst, að allt mundi hrynja, j .fnskjótt og atkvæði væru talin. ,.Hyfr«indi“ Her- manns brugðust Nei, hér voru að verki þau ,.hyggindi“, sem Framsóknar- mennirnir höfðu talið sér koma í hag. Stjórnarferill Hermanns Jónassonar hófst með því, að eftir kosningarnar 1934, sem Jónas Jónsson vann, fékk Hermann Al- þýðuflokkinn til að neita Jónasi sem forsætisráðherra og hrifsaði sjálfur undir sig þann stól, sem foringi hans hafði þá unnið til. „Hyggindi" svipaðs eðlis komu enn að haldi, þegar Hannibal fór úr Alþýðuflokknum fyrir kosn- ingarnar 1956, og gekk í lið með kommúnistum, allt í samráði við og að undirlagi Hermanns Jón- assonar til að greiða fyrir valda- töku hans sjálfs. Sama leikinn átti að leika enn að þessu sinni. Hermann Jónasson treysti því, að Hannibal og lið hans mundi nægja til þess að afla Framsókn þess liðsauka, sem hún þyrfti til að stöðva málið. í þessu fólst algert vanmat á stjórnmálastöðunni í landinu. Allt í sei.n á styrk Hannibalista út af fyrir sig, á aðstöðu þeirra nú innan kommúnistaflokksins og á möguleka Framsóknar til að véla um fyrir mönnum í kjördæmamálinu. En í þessu rangmati var Hermann ekki ein ungis að blekkja aðra, heldur ekki sízt sjálfan sig. Ofurveídi SÍS Heyrzt hefur, að ef kjördæma- málið hefði ekki komið til, mundi Framsóknarflokkurinn hafa far- ið mjög illa út úr þessum kosn- ingum. Augljóst er, að atkvæða magn Framsóknar hefði orðið miklu minna, ef ekki hefði veríð kosið um kjördæmamálið. Þó réði sjálft kjördæmamálið úrslit- um í sárafáum kjördæmum. Þar eru allt aðrar orsakir að verki. Það er ofurveldi SÍS og skoðana kúgunin, þar sem máttur þess er ráðandi, sem úrslitaáhrifin hafði. Á þetta treystu foringjar Fram- sóknar frá upphafi. Einn helzti ráðamaður SÍS lét svo um mælt í vetur, að hingað til hefði SÍS ekki haft afskipti af kosningum, en nú mundi það gert. Hann lét þá skýringu fylgja, að svo yrði að vera, vegna þess að ráðist væri að samvinnufé- lögunum sjálfum. Meiri fjarstæða er ekki til. Allir íslendingar við- urkenna nytsemi samvinnufélaga og Framsóknarmenn eru ekki nema lítið brot af meðlimum þeirra. Það er misnotkun Fram- sóknar á þessum samtökum al- mennings, sem er orðið eitt mesta hneyksli aldarinnar í ís- lenzkum stjórnmálum. Litlu mátti muna Sú misnotkun er engin nýjung. Hún hefur farið vaxandi í ára- tugi og var íyrir kosningamar 1956 orðin svo hömlulaus, að þá fór Eysteinn Jónsson um landið og boðaði, að samvinnumönnum bæri að fylgja Framsóknarflokkn um að málum. Þegar ráðamenn SÍS sögðust nú ætla að beita valdi sínu, sýndi það einungis, að því ætti að beita enn skefja- lausar en nokkru sinni fyrr. Það var stoðin, sem Framsóknarherr- arnir töldu að mundi tryggja sér 22—23 þingsæti. Kosningaúrslitin sýna, að 47 atkvæði frá Sjálfstæðismönnum í þremur kjördær_.um hefði nægt Framsókn til að fá 22 þingsæti, og 90 atkvæði til viðbótar hefði tryggt henni 23. þingsætið. Þó hún hefði misst þúsundir af at- kvæðum annars staðar á land- inu, hefði það ekki haggað neinu um þingmannafjölda hennar. Þá hefði hún með einungis Vs at- kvæðamagns og þeim svikum meðal yfirlýstra stuðningsmanna kjördæmabreytingarinnar, sem Hermann á sínum tíma tilkynnti í útvarpinu, getað komið í veg fyrir, að vilji yfirgnæfandi meiri hluta þjóðarinnar næði fram að ganga. Vonbrigði Framsóknar En þessar vonir, sem byggðaí * voru á mætti kúgunar og klækja brugðust. Þar stóð örugg sann- færing Sjálfstæðis.nanna sem órjúfandi veggur á móti. Almenningúr í ýmsum hinna litlu kjördæma þekkir nú þegar til ofurveldis SÍS og kann að varast þá klæki, sem hafðir eru í frammi. Vonbrigði Tímans dag- inn eftir atkvæðatalningu brut- ust ög út úr hverri línu. Einmitt þar sem Framsóknarhöfðingj- arnir höfðu talið sig eiga auð- veldastan leik, fór áætlun þeirra út um þúfur. Hinu er ástæoulaust að leyna að hér var mikil hætta á ferðum. Hætta, sem eingöngu strandaði á manndómshug kjós- enda sjálfra. Reynslan sýnir, að þar sem ofurveldi Framsóknar og SÍS hefir tekizt að bæla niður frjálsa skoðanamyndun, svo aS baráttuhugurinn þverr, þar verða kosningaúrslit svipuðust því sem í járntjaldslöndum er. Svo er ástandið nú, t. d. í Þingeyjar- sýslum og Strandasýslu. Einn andstöðumaður kjördæmabreyt- ingarinnar, Þóroddur Guðmunds son frá Sandi gaf raunar í Tím- anum fyrir kosningar skýringu á þessu fy-'irbæri: „Hafa ekki mestu snillingar þjóðarinnar og afarmenni, hver á sínu sviði, komið austan og vest- an af fjörðum og norðan úr landi?“ Ekki væri nema von, að úr þvi að við hér fyrir sunnan, erum búnir að fá alla þessa snillinga og afarmenni á borð við Þórodd, þá sé eitthvað minna um menn þeirrar tegundar eftir í heima- högum þeirra. En þessi Framsóknarskýring stenzt ekki. Sízt er ástæða til að gera lítið úr því fólki, sem byggir þessi héruð. Auðvitað eru þar jafngóðir íslendingar og hér í Reykjavík Gallinn er sá, að þar hefur með flokkskúgun og fjár- málavaldi tekizt að hindra eðli- legan skoðanaágreining. Skoð- anamunur leiðir af mannlegri hugsun og þar sem hann er bæld- ur niður, sést að eitthvað meira en lítið er athugavert. Allt þetta mun breytast, þegar hin nýja kjördæmaskipun tekur gildi. For ystumaður Þingeyinga fyrir hálfri öld, Pétur á Gautlöndum, sá það réttilega og sagði þess vegna, að hlutfallskosningar væru fegursta kosningafyrir- komulagið. Úr því, að hann sagði það þá, hvað mundi hann segja nú, ef hann hefði séð aðfarirnar, sem beitt var til að hindra að þessar umbætur kæmust á? Allt orkar tví- mælis Þó að barátta Framsóknar væri af illum toga spunnin og háð með ljótum vopnum, þá er það auðvitað jafnt með kjördæma- breytinguna og aðrar ákvarðan- ir, að allt orkar tvímælis þá gert er. Sennilega eru þúsundir manna, sem af heilum hug trúðu því, að hún væri misráðin. Þar kemur margt til. Sumir vildu kosningar í einmennings- kjördæmum og áttuðu sig ekki á, að stuðningur þeirra við Fram- sókn greiddi sízt fyrir framgangi þess kosninga-fyrirkomulags. — Tillögur Framsóknar voru á allt annan veg og einmitt á andstöðu hennar hefur fyrr og siðar strand að öll alvarleg íhugun þess, hvort raunverulega hefði verið hægt að koma sér saman um nýja kjör- dæmaskipan á þeim grundvelli. Hjá öðrum réði íhaldssemi og tryggð við gamalt fyrirkomulag. Þetta eru mikilsverðir mannlegir eiginleikar, sem sízt ber að víta eða setja út á. Að sjálfsögðu var hver frjáls að sannfæringu sinni í þessum efnum sem öðrum. Ef Frh. á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.