Morgunblaðið - 05.07.1959, Qupperneq 14
M
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 5. júlí 1959
Mosaik-flísar
á gólf og veggi fyrirliggjandi.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Bankastræti 11.
Lokað
Skrifstof. -our lokuð mánudaginn 6. júlí n.k.
Tollstjórinn í Reykjavik
— Reykjavlkurhréf
Framhald af bls. 13.
þeir töldu að breytingin hlyti að
jleiða til ófarnaðar var skiljanlegt
að þeir kysu Fr_msókn að þessu
sinni.
Rangtúlkun Fram-
sóknar
Það hafa þeir nú gert. En þeir
munu verða því ákafari að hverfa
frá henni, þegar þeir sjá, að at-
kvæði þeirra er nú túlkað af
Framsókr. sem flokkslegur sigur
hennar sjálfrar, alveg gagnstætt
því, sem látlaust var hamrað á
fyrir kosningar.
í haust verður kosið eftir hinni
nýju skipan. Sú staðreynd, að
litlu munaði að fámennur minni-
hluti gæti stöðvað framgang
ákvörðunar yfirgnæfandi meiri
hluta þjóðarinnar, mun sanna öll
um sanngjörnum mönnum, að
breytingin mátti ekki dragast.
Reynslan á ókomnum árum mun
og færa öllum heim sanninn um,
að þetta er mikil réttarbót. Stjórn
málabaráttan verður hóflegri og
möguleikarnir til að ala á sundr-
ung og fjandskap meðal lands-
fólksins verða miklu minni en
áður. Tryggt verður miklu bet-
ur en hingað til, að fylgt verði
kenningu Jóns Sigurðssonar um
að þingin eigi fyrst og fremst
áð byggjast á því, að allsherjar-
viljinn komi þar fram. Enn hafa
íslendingar aldrei misstigið sig,
þegar þeir hafa fylgt ráðum Jóns
Sigurðssonar og svo. mun enn
rfiynast.
Fylffishrim Fram-
sóknar eftir 1931
Baráttan fyrir bættri kjör-
dæmaskipun hefur nú staðið í
nærri 30 ár. Fyrsta höfuðor-
ustan var háð 1931. Við kosning-
arnar um kjördæmamálið þá
unnu Framsóknarmenn stórlega
á. Þeir fengu nærri 36% atkvæða
og hafa aldrei, hvorki fyrr né
síðar, fengið líkt því eins mikinn
hluta íslenzku þjóðarinnar til
fylgis við sig. Þá fengu þeir kos-
inn hreinan meirihluta þeirra
þingmanna, sem að því sinni voru
kosnir og unnu 3 þingsæti af Sjálf
stæðismönnum, fengu sjálfir 21
þingsæti en Sjálfstæðismenn að
eins 12, og höfðu Sjálfstæðismenn
þó miklu meira fylgi með þjóð-
inni en Framsókn.
Hinn rangfer.gni sigur varð
Framsókn til Htilla heilla. Við
kosningarnar ári síðar minnkaði
fylgi Framsóknár úr tæpum 36%
níður í tæp 24%. í stað 21 þing-
manns fékk hann aðeins 14 þing-
menn kosna, en Sjálfstæðismenn
hækkuðu sig úr 12 í 17.
Sígur á ógæfuhlið
fyrir Framsókn
Aftur bætti Framsóknar-
Verzlanasamhandið hf.
Óskum að ráða nú þegar eina eða tvær skrifstofu-
stúlkur. Bókfærslukunnátta æskileg. Upplýsingar
á venjulegum skrifstofutíma sími 1 16 16.
Verzlunarhusnaeði
I miðbænum til leigu. Húsnæðið er ca. 50 ferm. Til-
boð er tilgreini hverskonar rekstur fyrirhugaðaur
er í húsnæðinu svo og fyrirframgeiðslu sendist af-
greiðslu Morgunblaðsins fyrir n.k. mánudagskvöld
merkt: „9331“.
Eins og tveggja manna
Svefnstólar Svefnsófar
með svampgúmmi.
HtJSGAGNAVERZLUNIN
Grettisgötu 46.
Ath. Tveggja manna svefnsófar frá okkur er með
járnrúllum.
Karlmannaskór
úrval.
Verð 160—227.00
— 266—267.50
— 287—322.00
H E CTO R
Laugaveg 11.
Bifvélavirkjar
Nokkra bifvélavirkja eða menn vana bifreiðavið.
gerðum vantar okkur nú þegar. Upplýsingar gefur
verkstæðisformaður.
4
FORD-umboðið
KR. KRISTJANSSON H.F.
Suðurlandsbraut 2 — Sími 3-5300.
flokkurinn hluf sinn, þegar kosið
var um kjördæmamáiið 1942, er
ákveðið var að hafa hlutfalls-
kosningar í tvímenningskjördæm
um. Þá hækkaði Framsókn hlut-
fallstölu sína upp í 27,6%, eða
nokkru meira en nú. Hún fékk
20 þingmenn kjöma, en Sjálf-
stæðismenn einungis 17. Hið
sama haust var kosið aftur eftir
hinni nýju skipan og fengu Sjálf
stæðismenn þá 20 þingmerm, en
Framsókn aðeins 15.
Skyndisigrar Framsóknar í
kjördæmamálinu hafa henni því
að litlu haldi komið. Atkvæða-
aukning hennar nú mun og að
verulegu leyti hrynja, þegar
gengið verður til kosninga á
næsta hausti. Jafnvel þó að at-
kvæðámagn yrði óbreytt, mundi
afstaðaix á Alþingi gjörbreytast.
Nú hefur Framsókn stöðvunar-
Vald á þingi ásamt kommúnist-
um. Ef kosið hefði verið eftir
hinni nýju skipan mundi Fram-
sókn einungis hafa fengið 17 og
kommúnistar 9, eða 26 aí 60 þing-
mönnum. Valdahlutföllin breyt-
ast því gersamlega frá því, sem
verið hefur og auðveldara verð-
ur um myndun starfhæfrar ríkis-
stjórnar.
Samstarísmenn
tapa til Fram-
sóknar
Mestur hluti fylgisaukningar
Framsóknar kemur af kjördæma
málinu. Svo er ekki um allt hið
nýja fylgi. Bæjarstjórnarkosning
arnar á árinu 1958 sýndu, að
Framsókn hafði þá þegar unnið
verulega fylgi af samstarfsmönn-
um sínum. Samstarfsflokkar
hennar, kommúi.istar og Alþýðu
flokkur, töpuðu þá bæði til Sjálf
stæðismanna og Framsóknar.
Vegna þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar, sem nú fór raunverulega fram
um kjördæmamálið, vann Fram-
sókn bersýnlega atkvæði af öllum
þremur flokkunum. Sjálfstæðis-
flokkurinn tapaði þó ekki í heild,
heldur vann á, en hinir báðir
töpuðu verulega. Alþýðuflokkur-
inn hafði samt mjög rétt sig við
frá bæjarstjórnarkosningunum.
Atkvæðatölurnar í Reykjavík
sýna, að þúsundir kjósenda veita
honum fylgi, þegar hann er í and
stöðu við Framsókn, en hverfa
frá honum, ef hann er í hennar
íylgd.
Kommúnistar hafa hinsvegar
samfellda hrakfallasögu að segja,
Þeir unnu að vísu á í einstaka
kjördæmi, en samtals ekki nema
18 atkvæði. í heild töpuðu þeir
2930 kjósendum frá því síðast,
þrátt fyrir fleiri kjósendur í heild
nú en þá. % hluti kjósenda þeirra
þá hefur þess vegna frá þeim
horfið og liggja til þess margár
ástæður, sem síðar verður betra
færi á að rekja.
Sigur Sjálfstæð-
isflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn einn má
vel við kosningaúrslitin una.
Menn voru aldrei í vafa um það,
að baráttan um bætta kjördæma-
skipan mundi verða erfið og
áhættusöm. Það hefði einhvern
tímann þótt ósennilegt, að Sjálf-
stæðisflokkurinn mundi koma út
úr þeirri baráttu á þann veg að
bæta allt í senn við atkvæðamagn
sitt„ hlutfall meðal kjósenda og
fá einn þingmann til viðbótar,
Ekkert sýnir betur styrk flokks-
ins, órjúfandi samheldni og
traust langstærsts hóps kjósenda.
Þetta verða jafnvel andstæðing-
arnir að viðurkenna og Tíminn
talar óttasleginn um „sókn Sjálf
stæðismanna11. Sízt mundi standa
á Framsókn að reyna að stöðva
þá sókn. Héðan í frá verður þó
mun erfiðara en hingað til að
beita klækjum og ofurveldi henni
til hindrunar.