Morgunblaðið - 05.07.1959, Page 24

Morgunblaðið - 05.07.1959, Page 24
VEÐRID A-kaldi eða stinningskaldl rigning þegar líður á daginn Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13 Brezkur togari sigldi hættulega nærri íslenzkum trillubáti PATREKSFIRÐI, 4. júlí: — Það bar við í fyrrinótt, að enskur togari sigldi hættulega nærri litl- um trillubát út á dýpri Skeggja hér norður með flóanum. Sleit togarinn sundur færi frá bátnum og mjóu munaði að ekki hlauzt alvarlegra tjón. Nánari atvik eru þau, að vél- báturinn Nonni, var á færaveið- um í fyrrinótt á áðurnefndum stað. Tveir menn eru á bátnum, sem er 4 til 5 tonn, og formaður Gunnar Waage. Sjá þeir nú hvar brezkur togari kemur, en togar- inn virtist ekki stefna á þá, er þeir sáu fyrst til hans. Er hann kom nær, beygði hann að þeim og virtist auka ferðina verulega. Sigldi togarinn það nálægt bátnum, að hann hvarf undir hvalbakinn og því ógerningur að sjá hann úr brúnni. Bátsformað- urinn setti þegar í gang, en félagi hans varð heldur seinn að draga inn færi sitt og hefur það annað hvort ient í vírum eða trolli tog- arans og slitnaði. Togarinn hélt áfram að toga er hann var kom- inn framhjá bátnum og eitthvað kölluðu togaramenn til bátverja, sem hinir síðarnefndu ekki skildu. Fleiri brezkir togarar voru á þessum slóðum og einnig aðrar íslenzkar trillur. Fóru fram orða- skipti milli þeirra illindalaust, en ekkert i'-om fram í þeim viðræð- um, sem skýrði þetta atvik. Nafn brezka togarans var máð, en hann var frá Grimsby og núm- er hans 205. T. Á. ★ Við íítum mjög alvarlegum augum á þetta atvik, sagði Pétur Sigurðsson, forstöðumaður Land- helgisgæzlunnar um síðasta at- ferli Breta á lögbrotasvæðum þeirra hér við land. Með tilliti til þess að skip landhelgisgæzl- unnar voru hvergi nálægt, þegar þetta gerðist, kvaðst Pétur mundu fara þess á leit við dómsmála- ráðuneytið að sjópróf yrðu látin fram fara á Patreksfirði út af þessu máli og svo öll veigamikil atriði fengjust skjalfest fyrir dómi. Dómur genginn í Hæstarétti jraj-vegur Þrengslanna þurr. Almennt munu menn hafa talið Þrengslin vera miklum mun dýpri en þau eru í rauninni. Þegar viðgerð stíflugarðanna við Dráttarhlíð var á lokastigi MENN voru glaðir í bragði. — Hið þrotlausa starf undanfarnar vikur var komið á lokastigið. Þannig var yfirbragð manna aust ur við Efra-Sog í fyrrakvöld, skömmu áður en byrjað var að fylla upp í skarðið, sem brast í varnargarðana við Dráttarhlíð fyrir 8 dögum. Á stíflugörðunum beggja vegna skarðsins var mik- ið um að vera og margt manna að störfum. Fremst á görðunum, næst skarðinu, var búið að hrúga upp miklu af stærðar björgum. Menn stóðu með kröftuga loft- bora og settu gat í gegnum björg- in, en síðan var stálvír þrætt í gegn, og vírinn síðan þræddur í næsta stein. Björgin áttu að fara í skarðið. — Með því að binda björgin saman var síður hætta á því að hinn þungi vatns- straumur gegnum skarðið hrifi björgin með sér, en það hafa menn þar eystra séð, er hinn ægi- legi straumur hefur kastað stærð arbjörgum á undan sér, eins og smávölur væru. Með því að binda björgin saman, myndast líka samfelldari skriða fram í skarðið er jarðýturnar ryðja þeim fram af garðinum út í djúpið. Það var stöðugur straumur bila og grjótflutningavagna, sem eru svo hastir að ökumennirnir verða að hafa á sér svonefnd nýrna- beltí. Á milli varnargarðanna tveggja, þess nýrri og gamla, er fyrst brast, var verið að vinna að uppsetningu stálþils. Stór krani flutti að hin löngu skúffujárn, sem svo eru nefnd, í hið nýja stálþil. Þilið á að stöðva alveg vatnsrennslið í gegnum garðinn. Þá fyrst verður hægt að fara að hugsa til þess að setja upp dælur í jarðgöngunum og tæma þau, til þess að unnt sé að kanna í för með sér. Það er seinunnið að koma stálþilinu niður og mun taka 7—10 daga unz það er full- gert. Úr gamla farvegi Þingvalla- vatns, frammi í Úlfljótsvatns- þrengslunum, barst vélaskrölt og hávaði, því þaðan var verið að flytja grjót í varnargarðana. Eft- ir botninum liggur nú bílvegur og í farveginn hefur verið gerð renna. Hún hefur því hlutverki að gegna, að fljótlega verði hægt að beina um Þrengslin aftur öllu því vatni, sem með þarf til þess að starfræksla orkuveranna geti verið með fullu álagi. í fyrradag var vatnið svo lítið, sem orkuver- in fengu, að ekki nægði til þess ið knýja allar vélasamstæðurnar ag þær sem í gangi voru, skiluðu ekki fullum afköstum. Við get- um huggað okkur með því, að þetta er aðeins stundarfyrirbrigði og mun ekki koma niður á al menningi. Aftur á móti bitnar þetta á starfrækslu áburðarverk- smiðjunnar í Gufunesi. í gær var aftur búið að opna Þrengslin að mestu leyti. Mennirnir, sem voru að vinna undir Dráttarhlíð, voru flestir ó- þekkjanlegir eins og á stóð, því Þingvallamýið var í algleymingi, og allir sem áttu net til þess að hylja andlit sitt, voru með það yfír höfðinu. En hina ógrímu- klæddu reyndu hinir að hugga, þar sem þeir stóðu svartir af flug um, þar eð hún væri ekki enn far in að bíta og væri aðeins hvim- leið við vinnu. Þegar Ijósmynd- ari blaðsins og tíðindamaður þess héldu á brott frá Dráttar- hlíð, skyldi áhlaupið á skarðið í varnargarðinum hefjast eftir svo sem klukkutíma. Utan við skrif- stofu verkfræðinganna hittu þeir Árna Snævarr, sem kvaðst vona skemmdir, sem flóðið hefur haft að takast myndi að fylla í skarð- ið á svo sem 6—7 klukkustund- um, það vill segja milli kl. 2—3 um. í gærmorgun skýrði Árni Mbl. frá því í símtali að verkið hefði gengið greiðlega og var hægt að ganga þurrum fótum eft ir garðinum um miðnættið. í fyrri nótt og í gær var svo að því unn- ið að breikka og hækka garðinn. Klukkan 8 í gærmorgun var svo rofin fyrirhleðslan fyrir Þrengsl- in og vatninu beint í sinn gamla farveg, sem fyrr segir. Enn sígur allmikið vatn í gegn- um garðinn. Vatnsborð Þingvalla vatns hafði um hádegisbilið í gær hækkað um 10—12 sentim. frá því sem það var lægst. Hallveigastaðamálinu DÓMUR hefur nú gengið í Hæsta rétti út af fyrirhugaðri byggingu kvennaheimilisins Hallveigar- staða, on málið hefur verið á döf- inni undanfarin ár. Sú krafa var gerð, að gilda skuli áfram kvöð sú, er hvílt hef- ur á lóðinni þar sem Hallveigar- staðir eiga að rísa. í henni er svo ákveðið að aðeins megi byggja villu á þessari lóð. Mbl. mun greina nánar frá dómnum síðar, en talið var að skipulagsyfirvöld bæjarins geti látið hlutast til um að kvöðin verði tekin eignamáml og fengl þá granninn, sem málið höfðaði, bætur eftir því sem efni stæðu til. Væru það þá sérstakir dómkvadd ir matsmenn sem fjölluðu um hugsanlega bótafjárhæð. Kvöldvaka Sjálf- stæðismanna í firðinum HAFNARFIRÐI — Annað kvöld kl. 8.30 efna Sjálfstæöisfélögin til Hvalvciðin tresari kv“vik” ‘ f GÆR höfðu veiðzt 114 hvalirsíð an hvalvertíðin hófst 25. apríl, að því er Loftur Bjarnason, útgerð- armaður, tjáði blaðinu í gær. Er þetta talsvert minna magn en í fyrra, en þá höfðu veiðzt 185 hvalir á sama tíma. Sami fjöldi báta stundar veiðarnar og byrjað var í ár á sama tíma og í fyrra. Svona breitt var skarðið er því var lokað í fyrrinótt. í gær- kvöldi hafði vatnborð Þingvallavatns hækkað aftur um 4—5 sentimetra, frá því það var lægst orðið. Mun vatnsborðið alls hafa lækkað um 130 sentimetra. Það fer eftir veðrinu, úrkom- unni, hve lengi vatnið verður aftur að komast í samt lagt, sagði séra Jóhann Uannesson á Þingvöllum, en úrkoman hefur mjög mikil áhrif. ■ « . (Ljósm. MbL: Ól. K. M.) fyrir starfsfólk og stuðningsmenn frambjóðanda Sjálfstæðisflokks- ins í kosningunum. Dagskráin verður, sem hér segir: í byrjun leikur hljómsveit Aaage Lorange, síðan flytja alþingismennirnir Matthías Á. Mathiesen og Jóhann Hafstein, ræður, einnig verða flutt stutt ávörp. Þá syngur Árni Jónsson, óperusöngvari, með und irleik Fritz Weishappels — og einnig skemmta þeir Haraldur Á. Sigurðsson, Ómar Ragnarsson og Hafliði Jónsson. Handbók velfunnar í GÆR var dregið í happ- drætti veltunnar af fulltrúa borgarfógeta. Upp kom nr. 4338 Vinningsins, sem er útvarps grammófónn af vönduðustu gerð, má vitja í skrifstofu fjár öflunarnefndar, Morgunblaðs húsinu. t • - r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.