Morgunblaðið - 15.08.1959, Side 1

Morgunblaðið - 15.08.1959, Side 1
20 síður Þetta mun vera lengsta hús Frakklands og stenlur á útjaðri Parísar. Það er 560 metra langt, og í 450 íbúðum þess búa samtals 1500 manns. t hinum mörgu bugðum á húsinu er trjágróður og leikvellir fyrir börnin. Þetta er skemmtileg nýbreytni. Menn geta bara hugsað' sér hve óend- anlega leiðinlegt þetta hús væri, ef í því væru aðeins beinar línur. Wíöfœkur undir búningur undir Evrópuför Eisenhowers ■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■• Neyðarástand i Austurríki vegna flóða VÍNARBORG, 14. ágúst. NTB- Reuter. — Dcfnk og þverár henn- ar, Enns og Inn, í Austurríki héldu áfram að stíga í dag og flæddu yfir stór svæði í landinu austanverðu. í vestanverðu land- inu rénuðu flóðin hins vegar tals- vert og skildu eftir sig gífurlega eyðileggingu. í fyrsta sinn í tvo daga brauzt sólin gegnum hina myrku skýjabakka í dag í Aust- urríki vestanverðu og yfirvöld- in álíta að flóðin hafi nú náð hámarki. Hins vegar geta frekari rign- ingar stóraukið tjónið af flóð- unum, en það nemur nú sem svarar tveim milljörðum ísl kr. Níu manns hafa farizt í flóð- unum til þessa. í einu héraði voru 35 býli einangruð af belj- andi straumi í dag, meðan vatn- GETTYSBURG, 14. ágúst. — NTB-Reuter. — Eisenhower forseti mun eiga viðræður við utanríkisráðherra Spánar, Fernando Maria Castiella, þegar hann heimsækir Lond- on í lok þessa mánaðar. Þess- ar upplýsingar voru gefnar í dag á landsetri forsetans í ■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■ jLögin itm stjórn-j jarskrárbreyt- j ■ ■ jinguna staðrest j j Á FUNDI ríkisráðs í ; ■ Reykjavík í dag stað- ; : festi forseti íslands m.a. : ■ ■ > stjórnskipunarlög um j j breyting á stjórnarskrá j j lýðveldisins íslands 17. : ■ ■ : júní 1944 og lög um : ■ ■ j kosningar til Alþingis. j j (Frá ríkisráðsritara). j Gettysburg. Castiella mun einnig eiga viðræður við Christian Herter, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, meðan hann dvelst í London ásamt Eisenhower. Sem kunnugt er verður Hert- er í fylgd með forsetanum á ferðalagi hans um Evrópu. Ekki hefur verið látið neitt uppi um það hvenær viðræðurnar í Lond- on eigi sér stað, en Eisenhower og föruneyti hans kemur þangað 27. ágúst eftir átta tíma heim- sókn til Bonn. Hann verður þar um kyrrt til 2. sept., en fer þá til Parísar til að hitta de Gaulle Saliara-tílraun- irnar NEW YORK, 14. ágúst. NTB- Reuter. Stjórn Marokkó fór þess leit við Dag Hammarskjöld fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna í dag, að hann setti væntan- legar tilraunir Frakka með kjarnasprengjur á Sahara-eyði- mörkinni inn á listann yfir um- ræðuefni næsta allsherjarþings Flest Afríkuríkin og Arabaríkin hafa áður sent frönsku stjórn- inni harðorð mótmæli vegna hinna fyrirhuguðu tilrauna. Laugardagur 15. ágúst. Efni blaðsins m.a.: Bls. 2: Fréttir frá Alþingi. — 3: Rannsóknarstofa Háskólans hef ir starfað í 25 ár. — 8: Þrengslavegurinn nýi. — 9: Kvikmyndir. — 10: Ritstjórnargreinin: Þjóðin hef- ur fengið nóg af valdabraskinu. — 11: Hin nýja kjördæmaskipun mun flýta fyrir heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. — Ræða Gunnars Thóroddsens á Al- þingi. forseta Frakklands og þá Segni forsætisráðherra og Pella utan- ríkisráðherra Italíu. 1 París var skýrt frá því i dag, að Eisenhower mundi eigá um 12 tíma viðræður við de Gaulle, en hann verður jafn- framt gestur franska forsetans í tvo daga. Þessar upplýsingar voru gefnar eftir að James Hagerty blaðafulltrúi Eisenhow- ers hafði átt viöræður við frönsk yfirvöld um heimsókn forsetans. Hagerty kom í gær frá Bonn til Parisar og fer áfram til London I kvöld til að ræða við brezk stjórnarvöld um heimsóknina. Búizt er við að franska stjórnin birti í byrjun næstu viki vænt- anlega dagskrá heimsóknar Eisenhowers forseta. Fárviðri ■ ■ í D<mmorku j KAUPMANNAHÖFN, 14.' ágúst. — Mikið fárviðri gekk j tvisvar yfir Danmörku í dag : með skýfalli, þrumum og eld- j ingum. Margir sveitabæir: brunnu til ösku, en um mann- j tjón er ekki vitað. Vegir og : fyrirhleðslur skoluðust burt, j sums staðar var tveggja metra j djúpt vatn á þjóðvegum. Járn- I brautalestir komust ekki á-j fram á stórum svæðum á Jót- : landi. Skýstrokkur fór um j hórað á Jótlandi og sogaði ‘ þök og allt lauslegt upp í háa j loft. Tjónið af þessum náttúru i hamförum er þegar orðið gíf- • urlegt. Klukkan 9 í kvöld (ísl. j tími) var enn aftakaveður. I iS í Dóná steig um sex senti- metra á klukkustund. í Passau þar sem árnar Dóná og Inn renna saman var vatnsborðið í dag 3,5 metrum hærra en venjulega. Vatnsborðið í Dóná hækkaði um einn metra í dag. Frá Steiermark berast þær fréttir að áin Enns sé enn að fær- ast í aukana. Stór svæði í Enns- dalnum liggja undir vatni og flóð ið hefur sópað burt sex brúm af ánni. Mörg þorp á svæðinu eru algerlega einangruð. I Efra-Austuríki hafði dregið úr flóðunum í dag í öllum ám nema Inn. Á landamærum Vestur- Þýzkalands urðu landamæra- verðir að flýja þegar brúin sem þeir gættu var hætt komin. Salz- ach-áin sem í gær sópaði burt mörgum brúm varð vatnsminni í dag, þannig að hægt var að opna veginn til Salzburg, þar sem hin frægu tónlistarhátíðahöld fara fram. Þessi borg varð fyrir afar þungum búsifjum. Eyðileggingin af völdum flóð- anna er gífurleg. Járnbrautir og vegir meira og minna úr lagi gengnir, akrar þaktir leir og eðju og heljarmikil tré liggja á víð og dreif um vegi og akra. Sambandsstjórnin í Austurríki hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu, enda eru nú mörg hér- uð sambandslaus við höfuðborg- ina, þannig að ekki er vitað um afdrif íbúa þeirra. ■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■ Ofviðri drepur 120 manns í japan TÓKÝÓ, 14. ágúst. Reuter: — Miklar rigningar og stormar frá hvirfilvindinum „Georgíu" gengu ýfir miðhluta Japans í dag með þeim afleiðingum að 15 manns fórust, um 500 særðust og 120 eru enn ófundnir. Tölur lögregl- unna voru ekki endarlegar í kvöld, því sifelit voru að berast fregnir frá flóðasvæðinu um hið geysilega tjón ,sem óveðrið hefur valdið. Flóðin hafa sópað burt meir en 3000 húsum og auk þess hefur flætt inn í 113.000 hús. Dam kemur til að semja KAHPMANNAHÖFN, 14. ágúst. Danska útvárpið skýrði frá því í kvöld að færeyski Iögmaðurinu Peter Mohr Dam mundi innan skamms fara til íslands til að reyna að komast að samningum við íslenzk stjórnarvöld um að Færeyingár fái lagaheimild til að stunda handfæraveiðar og línuveiðar innan 12 mílna fisk- veiðilögsögunnar. Danska út- varpið sagði að almennt vilji íslendingar greiða fyrir Færey- ingum, en eins og sakir standi sé ekki sennilegt að þeir vilji gera undanþágu frá lögum sínum, en hins vegar megi vænta góðra undirtekta, ef fyrirhuguð al- þjóðaráðstefna fellst á kröfur ís- lendinga um 12 milna lögsögu. Vindhraðinn var um 120 km. á klukkustund, en þéttbýlustu svæðin kringum Yókóhama og Tókýó sluppu við óveðrið — Skip undan ströndum lands- ins lentu einnig í storminum. I skýrslu lögreglunnar segir, að 14 fiskiskip hafi sokkið, 17 kastast upp í klettana á strönd inni og.ll hrakizt á haf út. Flóðin tóku með sér um 700 brýr og stöðvuðu allar samgöng- ur á stórum svæðum. Víða var fólk í nauðum statt, umkri'igt hinu síhækkandi vatnsmagni, og voru björgunarsveitir sendar á vettvang til að bjarga þessu fólki. Þyrilvængjur voru líka notaðar við björgunarstörfin, og náðu þær fólki af húsþökum áður en vatnið tæki það með sér. Gúm- bátar voru notaðir til að bjarga öðrum. Vistir og björgunargögn voru í skyndi send til flóðasvæðisins. Á Hokkaido, nyrstu eyju Jap- ans, biðu íbúarnir milli vonar og ótta um það, hvort hvirfilvind- urinn bærist þangað, Listkynning Mbl. UNGUR listamaður, Ragnar I.ár- usson, sýnir verk sín ‘í sýning- arglugga Morgunblaðsins næstu viku. Ragnar cr fæddur 1935 að Brúarlandi í Mosfellssveit. Hann stundaði nám í Handíða- og mynd listarskólanum í tvo vetur og hefur haft eina sjálfstæða sýn- ingu í Reykjavík. Var hún í List- vinasalnum við Freyjugótu haustið 1956. Af þeim myndum, sem Ragnar sýnir, eru þrjú olíumálverk og níu teikningar Flestar eru mynd irnar frá sjávarsíðunni. Þær eru allar til sölu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.