Morgunblaðið - 15.08.1959, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 15.08.1959, Qupperneq 6
6 MOR'iTJlSTtLAÐlÐ Laugardasur 15. áerúst 1959 Hans Hedtoff-slysið á riýj u stigi; Akset Larsen krefst að ríkisrettur taki mál Kjœrböls fyrir Viðgerð á Snorralaug og jarðgöngunum að henni NÝLEGA er lokið við mjög I Haínarf ram- ■ I kvæmdir í Firð- ! ■ ■ ■ ■ ! inum ■ ■ HAFNARFIRÐI — Myndina hér að ofan tók ljósmyndari Mbl., Ólafur K. Magnússorv, fyrir nokkr um dögum og sýnir hún vel stauraröðina fyrir framan Fisk- iðjuver Bæjarútgerðarinnar. Eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, var hafizt handa fyrir nokkru að reka niður heljarmikla staura frá króknum við gömlu bryggjuna og að hinni nýju, og er því verki nú senn lokið. Er hér um tvöfalda stauraröð að ræða, sem ætlað er að bera uppi vinnupalla, en þá er einnig byrjað að setja upp. Síðan verð- uð sökkt járnþili við staurana, og þegar því hefir verið komið traustlega fyrir, verður hafizí handa um að fylla upp fyrir inn- an þilið. Þegar þessu verki er lokið, myndast fyrir framan Fiskiðju- verið mikið athafnasvæði, sem ætti að auðvelda mjög fiskflutn- ing úr skipum. Munu togararn- ir þá leggjast upp að hafnar- bakkanum og aflanum skipað á land, líklegast á færibandi, sem næði allt að Fiskiðjuverinu. Verður að þessu athafnasvæði mikið hagræði, sem auðvelda mun mjög alla affermingu úr skipum. — G. E. rækilega viðgerð á Snorralaug í Reykholti og hinum fornu jarð- göngum að henni. Hefur Þorkell Grímsson safnvörður verið í Reykholti undanfarnar vikur og unnið að þessu verki á vegum Þjóðminj asafnsins. Snorralaug hefur verið í sama formi svo lengi sem menn vita, en elzta lýsing á henni er í ferða- bók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Annað mál er það, að auðvitað hefur þurft að halda henni við, og seinast var hún gaumgæfilega hlaðin upp árið 1858 að tilhlutan séra Vern- harðs Þorkelssonar, sem þá var prestur í Reykholti. Verkið vann Þorsteinn Jakobsson steinsmiður frá Húsafelli, faðir Kristleifs bónda og fræðimanns á Stóra- Kroppi. Þessi hleðsla Þorsteins var prýðileg, en steinar voru brotnir orðnir og tærðir eða með öllu horfnir. Nú hefur hún verið endurnýjuð að miklu leyti. Öll er laugin hlaðin úr tilhöggnu hveragrjóti; bændurnir á Úlfs- stöðum og Kópareykjum í Reyk- holtsdal, Þorsteinn Jónsson og Benedikt Egilsson sýndu þá greiðasemi að leyfa að tekið væri hveragrjót úr landi sínu eins og þurfti til þessarar viðgerðar. Þess hefur vandlega verið gætt nú að breyta ekki lögum né svip laugarinnar frá því sem áður var. Ennfremur hefur að nýju ver- ið gert yfir göngin sem frá laug- inni liggja í átt til gamla bæj- arstæðisins. Til að verjast jarð- vatninu voru og gerð holræsi fram úr gólfi ganganna og með- fram lauginni báðum megin. Ekki er unnt að hafa til sýnis nema nokkurn hluta ganganna, enda liggja þau undir hús á staðnum og hafa því ekki enn verið fullrannsökuð. Verður sú rannsókn að bíða um sinn, en einhvern tíma gefst að líkindum tækifæri til að skoða til hlítar þetta forna mannvirki og hafa það sýnilegt í allri lengd sinni. Aðhlynning þessara fomleifa í Reykholti er að nokkru leyti gerð fyrir atbeina Reykholtsnefndar og kostuð af fé, er síðasta alþingi veitti í þessu skyni. (Frétt frá Þjóðminjasafninu). KAUPMANNAHÖFN, 13. ágúst Einkaskeyti til Mbl. — Aksel Larsen, þingmaður, hefur borið fram þær kröfur við forsætisráð- herrann, H. C. Hansen, að ríkis- réttur verði látinn fjalla um mál Kjærböl, fyrrum Grænlands- málaráðherra, vegna þess, að hann hafi gefið þinginu villandi upplýsingar um álit skipstjóra á Grænlandsförum um hættuna samfara siglingum til Grænlands að vetrarlagi, þegar bygging Grænlandsfarsins Hans Hedtoft var ráðgerð. Larsen bætir því við, að hinar villandi upplýsingar Kjærböls séu ef til vill sök undirmanna hans, en aðeins réttur geti skorið úr um það hver sé hinn seki. Ríkis- réttur hefur ekki tekið mál til meðferðar í Danmörku síðan 1910, en það var í sambandi við Albertihneykslið svonefnda. Kvöldberlingur skýrir frá því, að saksóknari ríkisins rannsaki nú Kjærböls-málið og hugsan- legar afleiðingar þess — og þar með hvort grundvöllur sé fyrir ríkisréttarránnsókn. Hingað til f BYRJUN næsta mánaðar hefst hið svonefnda „kandidatamót“ í skák í Júgóslavíu, en þar keppa sem kunnugt er snjöllustu skák- menn heimsins um réttinn til þess að skora á heimsmeistar- ann, Botvinnik, til einvígis. í þessum valda hópi verður stór- meistarinn okkar, Friðrik Ólafs- son — og kemst þar í sína mestu „eldraun“ til þessa. Danski stórmeistarinn Bent Larsen bauðst á sínum tíma til að verða aðstoðarmaður Friðriks hefur enginn annar en Aksel Larsen krafizt þess, að ríkisrétt- urinn skærist í leikinn. Eisenhower mun heirnsækja Churchill LONDON, 13. ágúst. — Undir- búningur að komu Eisenhowers er í fullum gangi. Búizt er við, að hann fari sem snöggvast til Skotlands til þess að hitta drottn ingu og fjölskyldu hennar, sem þar dvelst. Þá hefur Churchill fengið boð um að nærvera hans verði æskileg, þegar Eisenhower kemur, en Churchill er nú að koma úr langri siglingu um Mið- jarðarhaf með vini sínum Onassis. — Þá er gert ráð fyrir að brezkir ráðamenn 'reyni að sætta þá Eisenhower og Mont- gomery, en í styrjaldarmihning- um sínum sagði Montgomery, að herstjórn Eisenhowers hefði verið kjánaleg á köflum. á móti þessu, en af því mun nú ekki verða, því að fregnir hafa borizt um, að Larsen sé ráðinn aðstoðarmaður bandaríska ungl- ingsins Bobby Fischers, sem einn ig keppir á mótinu. Mun ástæðan sú, að dregizt hefur úr hömlu að semja endahlega við Larsen um þetta mál, óg hefur hann því tekið tilboði um að aðstoða Fischer. Óvíst muri, hver fæst til að- stoðar Friðrik í stað Larsen, en það mál er iiú í athugun. 1 lljj wÆw6#1|| skrifar úr# daglega lifinu Friðrik nýtur ekki aðstoðar Larsens á kandidatamoiinu, sem hefst í byrjun september Flugbrautin á ísafirði lendingarhœf í haust _ VXÐ STEFNUM að því, að hægt verði að taka flugbrautina á ísafirði í notkun í haust, sagði Gunnar Sigurðsson, settur flug- málastjóri, f viðtali við Mbl. í gær. Nú hefur flu^málastjórnin komizt að samkomulagi við Aðalverktaka um leigu á stórvirkum tækjum — og munu afköstin þar vestra því tvöfaldast um eða eftir miðjan mánuðinn. Á fsafirði hefur í sumar verið unnið að flugbrautargerð vegna þess, að Katalínubáturinn, sem Tveir nýir þing- menn I FYRRADAG og gær hafa tveir varaþingmenn tekið sæti á Al- þingi og munu væntanlega sitja þar til þingslita. Annar er Stefán B. Björnsson, bóndi í Berunesi við Reyðarfjörð sem var þriðji maður á lista Framsóknarflokksins í Suður- Múlasýslu og tekur sæti í veik- indaforföllum Vilhjálms Hjálm- arssonar. Hinn þingmaðurinn er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks próf. Ólafur Björnsson fyrsti ins í Reykjavík, en hann kemur í stað Jóhanns Hafstein, sem dvel ur utan bæjarins. Kjörbréfanefnd þingsins rann- sakaði kjörbréf beggja vara- mannanna og fann ekkert at- hugavert við þau. Voru kjör- bréfin síðan samþykkt einróma í Sameinuðu Alþingi. Flugfélagið hefur haft í förum vestur, verður brátt tekinn úr notkun. Ætlunin er að gera 1200 metra braut lendingarhæfa í sumar — og það mun nægja Douglas DC-3, sagði Gunnar, en lokatakmarkið er 1400 metra braut á ísafirði. ★ Varnarliðið hefur jafnan sýnt okkur mikinn skilning og veitt okkur góða aðstoð oft á tíðum. Við höfum samt aldrei fengið leigð tæki til framkvæmda sem þessara — og það er fyrir vin- samlega milligöngu utanríkisráðu neytisins, að þetta hefur nú tek- izt. Hér er um að ræða eina 20 tonna ýtu, mokstursvél og fjög- ur jarðvegsflutningatæki, sem flutt verða til ísafjarðar frá Keflavík og Aðalvík. Sagði Gunnar að fjárhagsgrund völlurinn hafi verið tryggður — og yrðu hendur nú látnar standa fram úr ermum. Þá mun flugmálastjórnin hafa til athugunar, hvort hægt er að framlengja flughæfnisskírteini Katalínubátsins um tíma með til- liti til annarra staða á Vestfjörð- um og Siglufjarðar. VELVAKANDI brá sér út að ganga í góða veðrinu í gær- morgun. Hiíti hann marga kunn- ingja á götunni og bar ýmislegt á góma. Alltaf sín hvor tegundin af áfengi fáanleg. YRSTAN hitti ég Konráð Guð mundsson í Lido og barst talið að skrifum hér í dálkunum um að veitingahúsin hefðu ekki vínkort á boðstólum. Sagði hann það rétt vera, að einhverj- ar takmarkanir væru á því að hafa mætti vínkort. En þó svo væri ekki, væri ekki hægt um vik fyrir veitingahúsin að hafa vínkort fyrir gestina, vegna þess hve sjaidan viæru sömu tegundir á boðstólum. Brennivín og áka- víti væri það eina, sem hægt væri örugglega að reikna með, en af gini og viskíi og öðrum vínteg- undum væri alltaf sín hver teg- undin fáanleg í Áfengisverzlun- inni. Sagði hann að Lídó ætti t. d. prentuð vínkort, sem aldrel hefðu verið notuð, m. a. af þess- ari ástæðu. Litlar telpur vilja fá að sjá Shirley Temple. ÆST hitti ég litla vinkonu mína, og spurði hana hvort henni lægi ekki eitthvað á hjarta. Hún hélt nú það. — Geturðu ekki beðið bíóin að fá aftur kvikmynd imar með Shirley Temple. Mamma á svo mikið af myndum af henni, síðan hún var lítil og ég er búin að lesa bækur um hana en nú eru aldrei lengur myndir í bíóunum með henni. Ég lofaði að koma þessu á fram færi. Kvikmyndahúseigendur segja gjarnan, þegar þeir eru spurðir um það af hverjuþeir hafi ekki heppilegri barnamyndir, að ekki sé mikið af þeim á mark- aðinum. En hvað um gömlu SLir- ley myndirnar? Nú er að vaxa ung kynslóð, er hefir aldrei séð þær. Og litlar telpur mundu fagna því, að fá að tárfella ofur lítið yfir örlögum Shirleyar litlu í bíó. Prentvillumar fyrir gagn- rýnu lesendurna. Á mætti ég manni, sem taldi upp prentvillurnar fyrir mig prentvillumar, sem hann hafði í dagblöðunum þann daginn, og lét hann ljót orð falla í garð blaða manna, prentara, prófarkalesara og yfirleitt allra, er nálægt blöð- um koma. Þetta minnti mig á tilkynningu sem ameríska blaðið Michigan Tribune, birti einu sinni í leið- ara sínum: Allar þær prentvill- ur, sem finnast í blaðinu í dag, hefur rítstjórnin sett þar með vilja. Það er gert til að gleðja þá lesendur, sem ekki hafa ann- að við tímann að gera en að gagn rýna morgunblöðin. Annars í alvöru talað, þá eru blaðamenn, pentarar, prófarka- lesarar og aðrir sem nálægt blaða útgáfunni koma ekki hvað sízt gramir, þegar þeir sjá hvernig prentvillupúkinn leikur blöðirr, en hann virðist einhvern veginn alltaf hafa yfirhöndina. „Asnalegt að sjá logandi götuljós í sólinni“. ÉTT þegar við vorum að ljúka samtalinu á miðju Lækjar- torgi, stökk kunningi okkar út úr Vogastrætó. — Ósköp finnst mér asnalegt að sjá logandi götu ljós í sólskininu um hábjartan daginn, sagði riann. í Vogunum er logandi á heilmörgum götuljós unf og er reyndar búið að vera Ijós á þeim nokkra daga.Skyldu þeir hafa gleymt formúlunni um það hvemig á að slökkva? Við samþykktum að það væri heldur kjánalegt að sjá logandi götu- ljós um þetta leyti dags, en höfð- um enga skoðun á því hvernig á því stæði. Kalt í veðri. N nú var Velvakanda orðið hrollkalt þrátt fyrir sólina, og flýtti hann sér því niður á skrifstofu, til að taka úr sér hroll inn með því að hamast við að vél rita. Hann er ekki hlýr andvarinn þessa dagana, þó enn sé ekki kominn nema miður ágúst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.