Morgunblaðið - 15.08.1959, Side 9
taugardagur 15. ágúst 1959
QilCVlSBLAÐlÐ
s>. W ••
Olympic Challenger heitir þetta glæsilega olíuskip og er eign Onassis hin gríska. Var veriS að
flytja það úr skipasmíðastöðinni í Kiel, þar sem smíði þess var Iokið fyrir skömmu og á skipa-
lægi í grenndinni. Þar verður það látið dúsa fyrst um sinn aðgerðarlaust. Olíuskip, sem ekki
eru í notkun munu nú nema um 7 milljón tonna.
ihrij
ar um:
* KVIKMYNDIR *
UNDANFARNA daga hafa verið
sýndar hér tvær kvikmyndir
mjög sérstæðar að efni. Önnur
þeirra: Hin látna snýr aftur til
lífsins, er sýnd er i Nýja bíói,
fjallar um það fyrirbrigði, er
andi framliðinnar mannveru
tekur sér bústað í lifandi vera.
Trúin a það, uð menn geti orðið
„andsetnir“, er ævafom og lifir
enn góðu lífi, en hér skal ekki
farið nánar út í það rnál. Mynd
þessi er að mörgu leyti athygl-
isverð og spennan töluverð en
ekki er ástæða til að fara uui
hana fleiri orðum hér, því að mér
er tjáð að hætt verði að sýna hana
áður en þessar línur birtast á
prenti.
Hin myndin, sem telja verður
mjög sérstæða er „Bölvun Frank-
ensteins*', sem sýnd er í Aust-
urbæjarbíói. Segir þar frá Frank
enstein baróni, sem frá unga aidri
hefur haft mikinn áhuga á alls
konar vísindum, enda náð svo
langt í rannsóknum sínum í til-
raunastofunni, að honum tekst
fyrst að lífga hund, sem hefur
verði dauður og stirðnaður og
síðar mann, sem hann skar niður
steindauðan úr gálganum. En Lil
þess að geta þetta, hefur Frank-
enstein þurft á að halda líffærum
frá öðrum mönnum, sem hann
aflar sér með því að fremja morð.
Hann verður sem sé svo altekinn
af þessum tilraunum sínum að
leiðir ti. algjörrar brjálsemi. Og
árangurinn verður heldur ekki
eins »g hann hafði búizt við,
því að maður oa, er hann hefur
gefið líf, reynist fullkominn o-
skapnaður n.ð ytra og innra, sen,
gengur sálarlaus og sem í b.’.indni
að fórnardýrum sínum og dmpur
þau. Frankenstein kaupir þessa
tilraun sína dýru verði, því að
hann bíður hið hörmulegasta tjóii
á sálu sinni og líkur ævi smni
á höggstokknum.
í augl. kvikmyndahússins seg-
ir að hryllingsmynd þessi hafi
sett allt á annan endann í Eng-
landi og í BEtndaríkjunum og að
myndin sé hrollvekjandi og ofsa-
lega spennandi. — Það er að vísu
satt að myndin er hrollvekjanii
í meira lagi, en það ei lika hið
Hún er fyrst og fremst ljót og
Hún er fyrst og frmest ljót cg
listigildi hennai ekkert. „Þetta
er andstyggilegasta myndin, sem
ég hef séð“' sagði ung stúlka
um leið og hún gekk út af sýn-
ingunni. Ég er henni sammála.
GAMLA BÍÓ:
Mogambo.
Það fer nú hver að verða s!ð-
astur að sjá kvikmynd með Grace
Kelly, hinni ungu og frgru
furstafrú í Monakó, þvi að tangt
er síðan hún hætti í Hollywood
og tók að sér varanlegra hut-
verk í óperetturíkinu fagra, þav
sem leikgáfa hennar kemur lika
vafalaust oft í góðar þarfir
I mynd þessari, sem tekm er
í litum, leika auk Grace Keliy,
þau Clark Gable og Ava Gardner
og má af því sjá að hér eru engir
viðvaningar á ferðinni. Myndin
er tekin í Afríku og hefur á allan
hátt verið mjög til hennar vand-
að. Alls voru í þessum kvik-
myndaleiðangri 350 Afríkum^nn
og 175 hvítir menn þeirra á mcðal
nokkrir þaulvanir og kunnugir
veiðimenn sem vöktu yfir vel-
ferð leikendanna. — Gerist
myndin í Tanganyika, brezku
nýlendunni í Austur-Afríku í
fögru landslagi með fjölskrúðug
um trjágróðri og fjölbreyttu dýra
lífi.
Á þessar slóðir er kominn ensk
ur vísindamaður, Donald Nord-
leys ásamt konu sinni Lindu
(Grace Kelly). Hann er mann-
fræðingur og hyggst kynna sér
líf og háttu górilla-apans í því
sambandi. Victor Marswell
(Clark Gable), er villidýrave’ði-
maður, sem hefur þarna bæki-
stöð sina og gerist hann leiðscgu
maður hins brezka vísindamanns.
Á ferð þeirra ber margt til tíð-
inda og margar hættur steðja að
leiðangursmönnum, bæði frá
villidýrunum, sem leynast í skóg
unum og blökkumönnunum inn-
fæddu. En allan þann vanda ieys
ir Marswell með myndugleika
og karlmennsku. En hins vegar
reynist honum erfiðara að leysa
þá þraut, að hann er áður en
hann veit af, staddur á milli
tveggja elda, þ e. frú Lindu og
hinnar fríðu og skemmtilegu
ungfrú Eloise, sem þarna hefur
líka borið að garði, en verða báð-
ar yfir sig ástfangnar af Mais-
well og hann af þeim. Verða
þarna n.argvísleg átök og á. ekstr
ar rriilli þessara þriggja elskenda,
svo sem jafnan vill við bera þeg-
ar slík mál lenda í „þríkanti",
sem svo er kallað. En Nord'ev
hugsar ekki um annað en mann-
apána og veit því lengi vel ekk-
ert um hið mikla ástardrama,
En Clárk Gable — það er að
segja Marswell er enginn við-
vaningur í svona málum og þcg-
ar maður heldur að allt sé að fafa
í hönk, leysir hann vandann á
þann hátt, sem allir geta vel
við unað.
Mynd þessi er allefnismikil
og skemmtileg, leikurinn og um
hverfið með öllu því margbreyti
lega, sem þar ber fyrir augu áhorf
andans, gefur myndinni mikið
gildi.
Eggjaframleiðsla
EINS og flestir vita hefur ný-
lega verið komið hér upp eggja-
samsölu. Þar sem þetta nýjá fyr-
irkomulag á eggjasölu virðist
eiga að ryðja úr vegi gömlum
söluvenjum er ekki úr vegi að
athuga lítið eitt, hvert stefnir í
þessum málum.
EggjamarkáðUrinn hefur fram
að þessu verið frjáls, þannig að
framleiðendur hafa selt egg sín
beint til kaupmanna eða neyt-
enda, og margir hafa haft fasta
viðskiptavini um margra ára
skeið og fullnægt eftirspurninni
á hverjum tíma. Nú er ætlazt
til að eggjasöiusamlagið verði
milliliður um alla sölu og öll
frjáls eggjasala verði bönnuð, en
slíks eru ekki dæmi í nágranna-
löndunum um egg ,sem seld eru
á innlendum markaði. Munu for-
mælendur þessa máls styðja sig
við afurðasölulögin, en hitt er
látið liggja í þagnargildi, að eggja
framleiðsla og eggjasala er í
flestu annars eðlis en sala kjöts
og mjólkur til dæmis.
Egg eru óverðbættar afurðir,
og framleiðslan byggist að lang-
mestu leyti á erlendu fóðri, og
eru eggin því í rauninni gjald-
eyrisvara. Það skiptir því ekki
litlu frá þjóðhags sjónarmiði, að
ekki verði offramleiðsla og að
hænsnaræktin sé rekin á sem
heppilegustum stöðum. Stærsti
eggjamarkaðurinn er auðvitað í
Reykjavík, og það er augljóst, að
enginn búhnykkur er í því að
flytja bílhlöss af erlendu fóðri,
langt út um sveitir til eggjafram
leiðslu umfram þarfir nágrennis-
ins og brothætt eggin aftur lang-
ar leiðir á Reykjavkurmarkað,
og ekki verða vanhöldin á eggj-
unum minni, þegar eggjasamlag-
ið er komið til sögunnar til að
tæma eggjakassana og pakka
eggjunum í annað sinn, áður en
þau komast í verzlanir. Lang hag
kvæmast er, að eggjaframleiðslan
sé mest £ nágrenni Reykjavíkur,
enda er það svo enn, og hefur
margt efnalítið fólk í úthverfum
bæjarins drýgt tekjur sínar
nokkuð með því að hafa fáein
hænsni og selja eggin beint til
neytenda án nokkurra milliliða
eða flutningskostnaðar. Vanda-
máli offramleiðslunnar er líka
tvímælalaust betur borgið með
frjálsri eggjasölu, þar sem fram-
leiðendum er kunnugt um þarf-
ir viðskiptavinanna og geta
dregið úr sölu á réttum tíma með
•því að lóga hænsnum. Af þessu
.leiðir einnig hitt, að gömul egg
verða ekki á markaðnum, en við
hvort tveggja verður hætt, þegar
sálarlaust skrifstofubákn er tekið
við stjórn þessara mála með sama
•einkasölufyrirkomulaginu og nú
virðist tröllríða öllu viðskipta-
lífi í þessu landi.
Eitt það helzta, sem málsvars-
menn eggjasamlagsins bera fram
máistað sínum til styrktar, er
það, að verð á eggjum hafi oft
verið boðið niður á frjálsum
markaði. Þetta lítur kannski nógu
laglega út frá sjónarmiði eggja-
framleiðenda, en er það ekki líka
nokkurs virði, að öll egg seljist
svo sem flestir geti veitt sér
þau við lægra verði, þegar fram-
boð er mikið Það skyldi þó
ekki vera, að þarna gægðist fram
vonin um það, að eggjasamlaginu
takist að koma eggjunum fyrir í
hinu fræga uppbótakerfi, og að
þeim verði fremur kastað í sjó-
nn en hnikað sé frá föstu verði?
í sjálfu sér er ekkert athuga-
yert við það, að þeir, sem ekki
geta framleitt egg með öðru móti,
stofni með sér samtök um eggja-
sölu, en hitt er lítill viðskipta-
bragur, að þeir hinir sömu svipti
frjálsræði og fái sektaða þá fram-
leiðendur, smáa og stóra, sem
hafa fasta kaupendur að eggjum
sínum, kaupendur, sem vilja
halda áfram viðskiptunum. Það
er ekki til mikils mælzt, þó að
þeir fái að verzla við þá áfram
óáreittir. Ef mjölið í pokanum er
jafn hreint og formælendur eggja
samlagsins vilja vera láta, þá
ættu þeir ekki að hræðast slíka
samkeppni, og vissulega munu
neytendurnir ekki vera henni
mótfallnir.
Geir Gunnlaugsson
21 stúlka hlýtur númsstyrk
úr Menningar— og minningarsjóði kvenna
NÝLEGA hefur verið úthlutað
námsstyrkjum úr Menningar- og
minningarsjóði kvenna. Fé það,
er að þessu sinni var til úthlut-
unar var samtals kr. 34.000,00 þar
af kr. 6.500,00 úr svonefndri Út-
hlutunardeild sjóðsins, sem var
stofnuð síðar en aðalsjóðurinn.
Styrkiuinn skiptist á þessa leið:
A. Úr Úthlutunardeild:
Ásdís Jóhannsdóttir, Hvera-
gerði, námsgr. efnafr. í Þýzkal.
kr. 3000,00.
Maia Sigurðardóttir, Akureyri,
námsgr. sálarfr. í Bretlandi, kr.
3500,00.
Heyskaparhorfur slœmar
— en vel sprettur i
görðum
HÖFN, Hornafirði, 13. ágúst. —
Hér er alltaf sama ótíðin, og hey
skapur gengið því lítið. Hefur
enginn heyþurrkur komið síðan
um verzlunarmannahelgina. en
þá gátu menn bjargað nokkru af
heyjum, ýmist í hlöður eða upp
í sæti. — Eru nú víða nokkur
hey úti, en meira er þó um, að
mikið sé óslegið af túnum, og
hafa aðeins einstaka bændur lok-
ið fyrri slætti, að því ég bezt
veit. — Geysimikil grasspretta
er hér um svetir, og eru tún
því að verða úr sér sprottin
víða.
Eru menn að vonum orðnir
uggandi vegna þessa ástands, en
þeir, sem þykiast hafa reynslu
af tíðarfarsbreytingurn um höf-
uðdaginn, setja nú alla sína von
á hann — að hinir langþra^u
þurrkar komi í september, og
staldri þá eitthvað við.
Svo slæmt sem heyskaoarút-
litið er, horfa menn nú fram á
góða garðauppskeru. — Öilu
bjartara er að líta til sjávarins
en landsins, og má segja, að afli
handfærabáta hafi verið góður,
þegar á heildina er litið, og ýms-
ir hafa aflað ágætlega.
—Fréttaritari.
B Úr aðalsjóði:
Alma E. Hansen, Rvík, námsgr.
tónlist í Þýzkal., kr. 1500,00.
Arnheiður Sigurðardóttir, S-
Þing., námsgr. ísl. fræði við Há-
skóla íslands, kr. 1500,00.
Elín Hólmfríður Ásmundsdótt-
ir, Keflavík, námsgr. sjúkraleikf.
í Svíþjóð, kr. 1000,00.
Elsa Guðbj. Vilmundardóttir,
Reykjavík, námsgr. landafr. í
Svíþjóð, kr. 1500,00.
Grímhildur Bragadóttir, Árness.,
námsgr. tannlækn. í Þýzkalandi
kr. 2000,00.
Guðbjörg Benediktsd., Hafarf.,
námsgr. höggmyndal. í Danm.,
kr. 1500,00.
Guðrún Sigr. Magnúsd., V,-
Skaftafellss., námsgr. ísl. fræði
við Háskóla ísl. kr. 1500,00.
Guðrún Teod. Sigurðard., Rvík,
sálarfr. í Danm. kr. 1500,00.
Hildur Knútsd., Rvík., námsgr.
þýzka og þýzkar bókm. í Þýzka-
landi, kr. 1500,00.
Huld Gísladóttir, Húsavík, náms-
gr. enska og enskar bókm. í Engl.
kr. 1500,00.
Ingibjörg Þ Stephensen, Rvik,
námsgr. Tallækninfar í Bretl. kr.
1500,00.
Jóhanna Jóhannesdóttir, Reykja-
vík, námsgr. hagn. tónlist í Þýzka
landi, kr. 1500,00.
Jóna Þorsteinsdóttir, Rvík, náms
gr., listvefnaður í Þýzkal. kr.
1000,00.
Kristbjörg Kjeld, Rvík, náms-
gr. leiklist í Bretl. og Danmörku,
kr. 1500.
Sigrún Guðjónsdóttir, Borgar-
fjs. námsgr. grasafræði í Svíþjóð,
kr. 1500,00.
Framh. á bls. 19.