Morgunblaðið - 15.08.1959, Síða 12
12
MORCVyBLAÐlÐ
Laugardagur 15. ágúst 1950
Ingibjörg Sigurðardótfir
frá Byggðarhorni - kveðja
í DAG er til moldar borin Ingi-
björg Sigurðaráóttir frá Byggð-
arhorni í Sandvíkurhreppi, Ár-
nessýslu. Mig langar til að minn-
ast þessarar merku konu, og
þakka fyrir liðna daga, því margt
hef ég henni að þakka frá
bernsku- og æskuárum mínum.
Ég er fæddur og uppalinn á
næsta bæ við Byggðarhorn,. og
var mjög vel kunnugur því heim
ili, því leiðin lá oft þangað.
Ingibjörg Sigurðardóttir var
fædd og uppalin í Langholti,
Hraungerðishreppi, dóttir þeirra
merku hjóna Sigurðar Sigurðs-
sonar og Margrétar Þorsteinsdótt
ur, sem bjuggu þar myndar búi
alla sína búskapartíð, og var hún
ein úr hópi níu barna þeirra.
Ingibjörg giftist tvítug að aldri
Gissuri Gunnarssyni, sem var
fæddur og uppalinn í Byggðar-
horni og bjuggu þau Gissur og
Ingibjörg þar allan sinn búskap,
eða þar til Gissur lézt árið 1941.
Þau eignuðust 16 börn og eru 14
þeirra á lífi, 10 búsett í Reykja
vík, eitt í Vestmannaeyjum, og
þrjú eru búsett á æskuslóðunum.
Þessum stóra barnahóp komu þau
vel til manns, og liggur því eftir
þau meira starf en almennt ger-
ist. Það hlýtur að vera erfitt að
ala upp svo stóran barnahóp, en
ekki var það að sjá í Byggðar-
horni. Þar var tekið á móti hverj
um gesti, sem að garði bar með
mikilli rausn og höfðingsskap,
og aldrei kvartað yfir erfiðum
vinnudegi, enda voru þau hjón
dugleg svo af bar, og sambúð
þeirra til sannrar fyrirmyndar.
Oft komum við krakkarnir af
næstu bæjum þangað til að leika
okkur, og alltaf vorum við vel-
komin. Það vill oft vera, þar
sem börn eru fyrir að fleiri sækja
þangað, en £ Byggðarhorni var
alltaf rúm fyrir alla. Ég man vel
eftir hinu milda og hlýja brosi
Ingibjargar, þegar leikur okkar
barnanna var kominn í fullan
gang, og hinum milda og góðlega
svip, sem var á manni hénnar,
þegar þau litu yfir hópinn. Það
var oft vani hjá Gissuri að taka
yngstu börnin á hné sér, þegar
Til sölu
Lister Ijósavél
16 hestöfl með 8 kílówatta ryðstraumsrafal 220 volt.
Spennubreyti, rafmagnsgangsetningu o. fl.
Allar nánari uppl. gefur
JÓN GUÐMUNDSSON
hjá K.f. Stykkishólms í Grafamesi.
hann kom inn á kvöldin og
syngja fyrir þau og láta þá hin
eldri syngja með, og þannig
glæddi hann áhuga þeirra fyrir
söng og fögrum kvæðum, enda
eru syskinin frá Byggðarhorni á-
gætt söngfólk, sem mun vera
arfur úr báðum ættum.
Einn af góðkunningjum mín
um, sem skrifaði afmælisgrein
um Ingibjörgu, þegar hún var 80
ára, komst þannig að orði að um
ævi og starf þessarar mætu konu,
mætti skrá l.anga og fagra sögu
því lífssaga hennar má vera mjög
til fyrirmyndar öldnum sem ó-
bornum. Sú saga verður þó ekki
rakin í stuttri blaðagrein, en víst
væri hún góður efniviður í hönd-
um hinna snjöllu ævisagnaritara
vorra tíma ,og þá um leið góð
kennslubók fyrir nútíma húsmæð
ur, sem leist hafi af hendi mikil
og heillandi störf á langri æfi.
Um það er ég honum sammála og
vildi gjarnan gera þau að mínum
orðum.
Þau hjónin í Byggðarhorni
voru bæði fríð sínum, og í alla
staði sóma og myndarhjón, sem
vöktu á sér eftirtekt, hvar sem
þau fóru. Þau voru í hópi þess
fólks, sem var í blóma lifsins
um síðustu aldamót, og að mín-
um dómi liggur mikið starf eftir
þá kynslóð, og voru áreiðanlega
góðir fulltrúar sinnar samtíðar.
Þeim heppnaðist að rækta og
hýsa jörð sína og gera þar miklar
framkvæmdir, þrátt fyrir sinn
stóra barnahóp og hjúasæl voru
þau alla tíð meðan þau þurftu
að hafa vinnufólk.
Ingibjörg andaðist hér í Reykja
vík 10. þ.m. og verður lögð j Laug
ardælakirkjugarð við hlið manns
síns. Svo kveð ég þessa vinkonu
mína og þakka henni góða sam-
veru og fyrir allt gott.
Sigurður Þórðarson.
Ingibjörg Pétursdóttir
frá Suður-Bár — minning
„HÉR féll grein af góðum stofni,
grisjaði dauði meir en nóg“. —
Það er ekki ætlun mín, enda lítt
til þess fær að rekja hér
ættir eða afrek þessarar mætu
konu, hitt er víst að hverju því
málefni, sem hún beitti sér fyrir,
var vel borgið í höfn, ekki síður
en þeim skipum er hennar ágæti
maður, um langt skeið, stýrði
vandfarnar leiðir.
Það sem fyrir mér vakir er,
að minnast nokkuð æsku hennar
og bernsku mmnar þann stutta
tíma er við áttum samleið. um
það skeið.
Ingibjörg, sem var móðursystir
mín, var tíu árum eldri en ég.
Hún dvaldi á heimili foreldra
minna, nokkurn tímá, þá um
fermingaraldur. Mér þótti þetta
merkilegt fyrirbrigði, ekki það
að Imba systir eða Imba frænka
væri þar, hún var ávallt kölluð
svo á mínu æskuheimili, heldur
hitt, að jafnframt voru þar tvær
aðrar stúlkur á svipuðu reki,
önnur var systir mín, Katrin en
hin systurdóttir móður minnar,
Sigrún, allar eru þær nú horfn-
ar í skaut ,móður náttúru“. Ingi-
björg mun hafa verið þeirra
yngst, — og glæsilegust — tví-
mælalaust. Allt er nú þetta löngu
liðið, — og ritað eftir minni, eins
og það kom mínu afstæði á þoim
tíma fyrir. Frómt frá sagt, öf-
undaði ég þær fyrir aldur og
þroska. Þessu er nú nokkuð snú-
ið við, því: „Nú vildi margur
vera ungur og vernda fyrstu
gullin sín“, svo sem ein ágæt vin-
kona mín orðaði það.
Þegar þú nú, kæra frænka,
hverfur af hinu sýnilega sjónar-
sviði, þykir mér ekki ótilhlýði-
legt að kveðja þig, fyrir mína
og systkina minna hönd með al-
úðarþökk. Jafnframt vottum við
ykkur frændsystkinum og öðrum
aðstandendum okkar dýpstu sam
úð.
Kristján Andrésson
Karóhna Kóra-
dóttir
f DAG er frú Karólína Káradótt-
ir, Njálsgötu 49, áttatíu ára.
Hún er ein af þeim konum, sem
lætur minna á sér bera en efni
standa til og hefur skilað góðu
og stóru dagsverki. Hún hefur
eignazt sjö mannvænleg börn,
sem öll eru á lífi nema einn son-
ur, sem lézt fyrir nokkrum ár-
um, syrgður af móður og öð'rum
ástvinum.
Frú Karólína hefur verið mynd
arleg húsmóðir og frábær móðir,
kærleiksrík og umhyggjus'irr.
Hún hefur borið börnin sín á
bænarörmum, og lagt sig alla
fram að búa þau sem bezt úi í
lífið. Nú þakka þau henni móð-
urkærleikann á þessum tíma-
mótum og óska henni Guðs bless-
I. O. G. T.
Þingstúka Reykjavíkur
Kvöldvaka að Jaðri í kvöld kl.
8,30. --
1. Ávarp: Guðm. Illugas. Þ.t.
2. Kvartettsöngur.
3. Erindi: Séra Árelíus Nielss.
4. Kvikmynd frá Jaðri.
5. Upplestur: Ingimar Jó-
hannesson. —
Veitingar á staðnum. — Farið
verður frá G.T.-húsinu kl. 8 í
kvöld.
unar 1 ríkum mæli i nútíð og
framtíð.
Þótt heilsa frú Karólínu sé tiú
farin að bila, og tekið sé að halla
undan fæti, er hún bein í baká og
létt í spori, með glæsibrag í fasi
og framkomu. — Við, sem höfum
fengið að kynnast henni og notið
kærleika hennar, þökkum her.ni
af heilum hug og óskum henni
til hamingju með daginn og fram
tíðina.
Guð blessi afmælisbarnið.
Vinkona.
Landsmálafélagið Vörour
Skemmtiferð í Fljótshlíð
Sunnud. 16. ágúst 1959
Ekið verður austur um Hellisheiði og Selfoss að Þjórsártúni og staðnæmst þar. Síðan
verður ekið að Hlíðarenda í Fljótshlíð og sta ðurinn skoðaður. Frá Hlíðarenda verður
ekið að Múlakoti og stanzað þar. Síðan ekið í Bleiksárgljúfur og snæddur miðdegis-
verður. Þaðan verður ekið niður Markarflj ótsaura að brúnni og áfram að Bergþors-
hvoli og sögustaðurinn skoðaður. Á heimle iðinni verður stansað í Odda. Kunnur leið-
sögumaður verður með í förinni.
Farseðlar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu (uppi) og kosta kr. 195.00 (Innifalið í
verðinu er miðdegisverður og kvuldverður) — Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishús-
inu kl. 8 árdegis, stundvíslega. StjÓrn Varðar