Morgunblaðið - 15.08.1959, Blaðsíða 18
18
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 15. agusí 1959
! Landsliöiö
heldur utan í
dag
LANDSLIÐ íslands í knattspyrnu
heldur í dag flugleiðis til Kaup-
mannahafnar til landsleiks við
Dani, er fram fer á þriðjudaginn.
Þremur dögum síðar eða á föstu
dag leikur liðið við landslið Nor-
egs í Oslo. Verða þetta sem kunn
ugt er leikir nr. 4 og 5 í 1. riðli
undanrása í knattspyrnukeppni
Olymp íuleikanna.
Utan fara 17 knattspyrru-
menn og hefir liðið gegn Dönum
endanlega verið valið. Það er
þannig talið frá markverði:
Helgi Daníelsson, Akranesi,
Hreiðar Ársaelsson KR, Árni
Njálsson Val, Garðar Árnason
KR, Hörður Felixson KR, Sveinn
Teitsson, Akranesi, Örn Steincen
KR, Ríkharður Jónsson, Akra-
nesi, Þórólfur Beck KR, Sveinn
Jónsson KR og Þórður Jónsson
Akranesi. — Varamenn í þessum
landleik gegn Dönum verða
Heimir Guðjónsson KR, Rúnar
Guðmannsson Fram, Helgi Jóns-
son KR, Guðjón Jónsson Fram,
Björn Helgason ísafirði og Bald-
ur Scheving Fram.
Ekki verður liðið gegn Norð-
mönnum valið fyrr en eftir leik-
inn við Dani.
Með þessu liði fara allmargir far
arstjórar og umsjónarmenn. Að-
alfararstjóri er Björgvin Schram,
formaður KSÍ, en auk hans fara
úr stjórn KSÍ þeir Ingvar Pálsson
og Sveir.n Zoega. Fulltrúi lands
liðsnefndar verður formaður
hennar, Ssemundur Gíslason og
fulltrúi Olympíunefndar verður
Jens Guðbjörnsson. Loks verður
Karl Guðmundsson landsliðs-
þjálfari með í förinni.
Lesendur Morgunblaðsins mtmu
eiga þess kost- að fylgjast með
öllu því, er í þessari mikilsverðu
utanför landsliðsins gerist. Frétta
maður blaðsins í förinni verður
Atli Steinarsson.
Eins og fyrr segir, fer liðið
utan árla dags í dag með Viscourj
vél. Á morgun er ráðgerð æfing
hjá liðinu í „Kongsins Kaup-
mannahöfn", en þar mun liðið
dvelja á hótel Cosmopolit á
Kóngsins Nýjatorgi. Til Osló
heldur liðið á miðvikudaginn ug
safnar kröftum fyrir leikinn á
föstudag gegn Norðmönnum. —
Heim verður komið sunnudaginn
23. ágúst.
Þorfinnsgestur í heim-
sókn hér
HÉR mun vera á ferð seytjándi
landinn, sem Þorfinnur Kristj
ánsson hefir greitt fyrir, að kost
ætti að heimsækja sitt gamla
land. Allt eru þetta íslendingar
búsettir í Danmörku.
Að þessu sinni er það ungfrú
Ólína Thoroddsen, ættuð frá
Kvígindisdal í Patreksfirði, sem
er nú á ferð. Hún hefir dvalið
33 ár í Danmörku, og unnið þar
bæði sem hárgreiðslukona og
einnig við saumaskap. En í
Reykjavík hafði ungfrú Ólína
dvalið í þrjú ár áður en hún
fór utan. Finnst henni til um
framfarirnar, sem hér hafa orð-
ið, til lands og sjávar, Reykja-
vík sé að verða falleg borg.
Annars átti hún ekki nógu
sterk orð til þess að lýsa hrifn-
ingu sinni yfir fegurð umhverf-
is hins íslenzka höfuðstaðar, sem
hún sér nú fyrst sér til ógleym-
anlegrar ánægju, og sannast þar,
að glöggt sé gests augað.
1 Danmörku héldu þær hóp-
inn nokkrar íslenzkrar vinkonur
Franskir karlmenn
— en hka svolltið aðrar konur
segir franska söngkonan Yvette Cuy
elska konurnar sínar
FRANSKA söngkonan Yvette
Gay er aftur kominn til fslands
og léttir nú svipinn á viðskipta-
vinunum — og hljómsveitinni í
Þjóðleikhúskjailaranum, eins og
síðast þegar hún var hér. — Því-
líkur munur á veðirnu hjá ykk-
ur eða í fyrra, þetta er ekkert
sumar, hrópaði hún, er frétta-
maður blaðsinc mætti henni á
götunni í fyrradag. — Ég er
ekkert of stöðug á þessum títu-
prjónsmjóu hælum og þegar vind
urinn tekur í víðu kápuna mína,
er ég dauðhrædd um að ég takist
á loft og fljúgi út í buskann.
Ég verð að standa mig, úlala.
Dægurlagasöngv-
ari á föruin
HINN vinsæli dægurlagasöngv-
ari Guðbergur Auðunsson, sem
undanfarið hefur sungið með KK
sextettinum, er á förum til Dan-
tnerkur til náms í auglýsinga-
teikningumi Mun hann stunda
nám við Kunsthándværkskolen í
Kaupmannahöfn.
Guðbergur hefur sungið með
ICK-sextettinum og „Fimm í
fullu fjöri“ og hefur söngur hans
vakið mikla athygli. í kvöld mun
hann syngja í Félagsgarði í
Kjós og verður það síðasta tæki-
færi fyrir aðdáendur hans að
heyra í honum áður en hann held
ur af landi brott.
— Hvar hafið þér verið síðan
í fyrrasumar?
— Ég er búin að vera í Sviss,
Þýzkalandi, Belgíu og Sv'þjóð.
í Uppsölum hitti ég marga há-
skólastúdenta, sem dreymir um
að koma til íslands. Þegar ég fcr
héðan um miðjan september, fer
ég tií Stokkhólms, þar sem ég
er ráðin til að syngja á Berns.
Það er fínn staður, þar sem
frægir listamenn hafa sungið,
eins og Edit Piaf, Josephine
Baker, Maurice Chevalier og
Charles Trenet. Ég verð svei mér
að standa mig ú-la-la- Ég sem
er ekki nein stór stjarna.
— Og hvernig gengur í Þjóð-
leikhúskjallaranum og Lido? Þér
syngið þar stundum líka, er það
ekki? ,
— Lido er glæsilegur staður
en mér hentar betur að syngja
á litlum stað, þar sem ég get
haft nánara samband við áheyr-
endur. Núna tala ég svolítið
meiri ensku en í fyrra. Ég vona
að minnsta kosti að fólkið skilji
mig, bætir hún við og hlær. Það
er ekketr gaman að segja eitt-
hvað fyndið og svo hlær enginn.
Annars er alltaf þó nokkur slæð-
ingur í kjallaranum, sem talar
frönsku Hverskonar lög ég syng
helzt? Frönsk, eins og áður. —
íslendin^ar vilja gjarna hlusta á
þau, en ég verð smám saman að
æfa fleiri cha-cha lög með hljóm
sveitinni, því hér biðja margir
um þau.
Enginn friður til að ná sér
í mann. /
— Nokkuð gift síðan í fyrra?
— ^íei, því miður, hvorki gift
né trúlofuð. Ég verð að láta allt
slíkt lönd og leið meðan ég stur.da
sönginn. Ég er alltaf þotin fvrr
eun varir frá hverjum stað og þá
gleyma karlmennirnir mér. En
ég vona að ég geti gifzt og setzt
um kyrrt eftir svona 1—2 ár, því
það eru hinir eðlilegu lifnað-
arhættir.
— Hvernið lízt þér á íslenzku
karlmennina?
— íslenzkir karlmenn hafa
marga kosti og líka marga-gai'a.
eins og karlmenn yfirleitt. Þetta
eru elskulegir menn og myr.dar-
legir, en ég þekki þá ekki nægi-
lega mikið til að vita hvort þeir
eru trúir og tryggir. Frakkar eru
elskulegir líka, en ótrúir. Þcir
elska konurnar sínar mikið, cn
aðrar konur svolítið líka.
— Hafið þér getað komið yður
vel fyrir meðan þér dveljið
hérna?
— Já, já, ég bý hjá indælu
sem nú eru flestar dánar. En
enga sóttu þær íslendingafundi.
Ungfrú Ólína hefir lengst af
dvalið hjá frændum vestra með-
an hún stóð við og ferðast um
fósturjörð.
Fer hún heim sæl og glöð yfir
heimsókninni, og þá einnig því
að hafa að nýju náð fullkomnu
valdi á því að geta talað sitt
gamla móðurmál og átt kost.
kynna að nýju við frændlið og
fósturjörð.
I
I
Yvette Guy
fólki í Ljósheimum, í 6 hæða^
húsi, þar sem engin er lyfta. En
það er bara betra fyrir lírxurnar
að þurfa að ganga upp á sjöttu
hæð oft á dag. Og ekki veitir
mér af að vera upp á mitt bezta
þeðar ég fer að koma fram á
Berns.
Og nú var Yvette Guy búin
að fá nóg af að standa úti á götu-
horni í þessari nöpru golu, og hún
þaut af stað í næsta húsaskjól.
E. Pá.
Ekkerl skip í slað
Hans Hedtoft
Kaupmannahöfn, 13. ágúst.
—• Einkaskeyti til Mbl. —
POLITIKEN segir í dag, að
nefnd sú, sem skipuð var
til þess að gera tillögur um
framtíðartilhögun Græn-
landssiglinga, muni ekki
leggjast gegn vetrarsigling-
um til Grænlands, en hin»
vegar verði öryggisþjón-
usta öll aukin stórlega. —
Lindberg, ráðherra, mun
ekki vera þess hvetjandi,
að nýtt Grænlandsfar verði
byggt í stað Hans Hedtoft,
en Grænlandsverzlunin l
nú einungis tvö skip, Um
anak og Disko, sem mjög
eru farin að láta á sjá —
og sennilegt er, að þan
endist ekki mörg ár til
viðbótar. Ljóst er því, að
útgerð Grænlandsverzlun-
arinnar mun leggjast niður,
en ýmsum skipafélögum
mun sennilega falið að ann-
ast siglingarnar.
Síldarstiilkurnar
farnar suður
GJÖGRI, 14. ágúst. — Síldar-
söltun er lokið hjá h.f. Djúpuvík
á þessu sumri og gerði Helgi Kr.
Jónsson, forstjóri síldarsöltunar-
innar upp við síldarstúlkurnar í
gær. Höfðu verið ráðnar hingað
nokkrar síldarstúlkur frá Reykja
vík.
Alls var saltað í 38 eða 40 tunn.
ur, en söltun varð minni en ella
fyrir þá sök að hér er engin síld-
arbræðsla. Hefur ekki verið
brætt hér í verksmiðjunni síð-
ustu tíu árin og er hún því að
grotna niður.
Um helgina var haldið ball 1
Trékylli3vík og fóru síldarstúlk-
urnar að sunnan þangað. Þóttu
ungu mönnunum hér þær blóm-
legar og fallegar og prýða mjög
samkomuna. En æskan er athafna
gjörn og stúlkurnar gátu ekki
hangið hér yfir engu. Héldu þær
því áleiðis suður í gær eftir að
hafði verið gert upp við þær eins
og áður segir. — Regína.
Handtökur
LITTLE ROCK, 13. ágúst. —
Lögreglan í Little Rock handtók
í dag þrjá negrapilta og þrjá
hvíta. Þeir hvítu óku um götur
og veifuðu gamla suðurríkjafán-
anum, sem notaður var í þræla-
stríðinu, en í fórum hinna svörtu
fundust vopn. Einn svertingjanna
handteknu var 16 ára piltur,
Thomas Jefferson, sá hinn sami
og nú fékk inngöngu í gagn-
fræðaskóla hvítra — og lætin
hafa mest orðið út af.
,,Burt með Crœnlands-
málaráðherrann"
GODTHAAB, 14. ágúst NTB-RB.
Einn af meðlimum grænlenzka
landsráðsins, Erling Höegh frá
Julianehaab, krafðist þess í dag,
að danska Grænlandsmálaráðu-
neytið yrði lagt niður. Jafnframt
réðist hann grimmilega á danska
Grænlandsmálaráðherrann og
embættismenn í ráðuneytinu.
Hann sagði, að prænlendingar
hefðu ímugust k ráðuneytinu,
fyrst og fremst vegna þess að
embættismenn þess virtust vera
til þess neyddir að taka allar
sínar ákvarðanir með pólitísk
sjónarmið í huga, en slíkt væri
ósæmandi í lýðræðisríki.
Höegh sagði ennfremur að
Grænlandsmálaráðherrann kæmi
sárasjaldan í ráðuneytið og hann
hefði aðeins einu sinni heimsótt
Vestur-Grænland.
Höegh krafðist þess að létt
yrði á ýmsum höftum á Græn-
landi, þannig að einsltaklings-
framtakið fengi að njóta sín í
ríkara mæli en hingað til, og
benti á að samkeppni og auknir
möguleikar til handa þeim, sem
væru duglegir og framtaksamir,
væru viðurkenndir aflgjafar í
vestrænum þjóðfélögum. Græn-
lendingar vilja að lítið verði á
Grænland sem hluta af Dan-
mörku, sagði hann, þannig að
ráðin og nefndirnar í landinu
hefðu úrslitavald í mikilvægum
málum eins og tíðkaðist í dönsk-
um sýslum og sveitafélögum.