Morgunblaðið - 15.08.1959, Side 20
i(tDRIC
Hæg NA-læg átt og léttskýjað í dag.
NA-kaldi eða stinningskaldi og skýjað
í nótt.
175. tbl. — Laugardagur 15. ágúst 1959
Kjördœmabreytingin
Sjá bls. 11.
■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
• ■■■■-]■■
Miklar annir á
Alþingi í gær
Þinglausnir fara fram kl. 13,30 i dag
Ford eða
Chevrolet ?
bESSI mynd er tekin í gær yfir
svæði það, sem sölunefnd varn-
arliðseigna hefur til umráða
inni í Sogamýri fyrir bíla þá,
cr hún fær sunnan af Keflavík-
urveili, og selur síðan hæstbjóð-
anda. —
í gær voru það ræflar af 26
bílum, sem voru þar boðnir til
kaups. Það var stöðugur straum-
ur áhugasamra, til þess „að
skoða og bjóða í drasiið", eins
og þeir komust að orði. Þessa
ræfla geta einstöku menn hag-
nýtt sér að einhverju leyti, þeir
sem kunna til verksins við að
rétta og sjóða saman gamla bíla.
En einn í hópnum, sem oft hef-
ur komið þarna sagði, að þetta
væri nú það Ijótasta, sem hann
hefði séð. Álengdar heyrðum við,
er tveir menn stóðu yfir bílgrind
og voru að þrátta um það hvort
hún væri af Ford eða Chevrolet.
Annað tilheyrandi þessum bíl var
járnarusl eitt.
Vörðurinn sagðist eiginlega
hafa furðað sig á því, að ekki
skyldi vera reimleiki í portinu!
í þessum bíl drap sig maður
í árekstri. 'Annar, næturvörður
sem taldi sig kunnugan þessum
bílaviðskiptum sagði að úti á
Keflavíkuflugvelli, væru stórar
breiður af notuðum bílum, sem
varnarliðsnefnd myndi væntan-
lega fá til sölu. — Ríkið kaupir
bílana eftir þyngd. — Mun pund-
ið í þeim vera mjög ódýrt — það
er að segja í innkaupi.
Ljósm. Mbl. ÓI. K. M.
Slæmf veður á mið-
unum fyrir austan
VONZKUVEÐUR er nú komið á
miðunum fyrir Austfjörðum og
hefur allur flotinn leitað til hafn-
ar. Er veðurútlit fyrir næsta sól-
arhring slæmt en samt eru horf-
ur á að næg síld sé enn á mið-
unum. Mörg skip hafa komið
til Raufarhafnar í dag með afla
sem veiðzt hefur SA af Norð-
fjarðarhorni um 18—24 sjómílur.
Þar var veiði veður allt til í
fyrrinótt.
Til Raufarhafnar hafa 21 skip
tilkynnt komu sína frá því í gær-
morgun þar til seint í gærkvöld.
Þau munu hafa verið samtals
með um 20.000 mál. Síldar-
bræðslan þar hefur tekið á móti
130.000 málum og hefur bræðsla
gengið mjög vel. Eru þrær verk-
smiðjunnar næstum fullar. Afla-
hæstu skipin sem komu til Rauf-
Skcmmtiíerð
Varðar
Ó S Ó T T I R farmiðar í
skemmtiferð Varðar-félags-
ins á morgun verða seldir fyr-
ir hádegi í dag, laugardag, í
Sjálfstæðishúsinu uppi.
Góð silungsveiði
í Reyðai vatni
GÓÐ silungsveiði er nú í Reyö-
arvatni. Blaðinu er t. d. kun.iugt
um tvo menn, sem veiddu þar
yfir 40 silunga um síðustu heigi.
Sá minnsti var tvö pund, en marg
ir 4—5 pund .
Fjórir piltar
játa innbrot
FJÓRIR piltar, innan við /ítpgt
hafa verið handteknir í sambandi
við sex innbrotsþjófnaði, s°m
framdir hafa verið hér í bænum
undanfarnar vikur, að einum und
anskildum, er farinn var í maí
mánuði.
Stærstir þessara bjófnaða eru
2700 króna peningaþjófnaður í
Söginni hf. við Höfða.ún ,og Kvik
myndatökuvél. sem stolið var úr
bil á Baldursgötunni Auk þess
stálu þeir góðmálmi úr brota-
járnsporti 'Sindra við Borgartún,
en á hinum stöðunum stálu þeir
vindlum og vindlingum.
Einn þessara manna var nýlega
kominn af Litir.-Hrauni eftir að
hafa afplánað þar refsidóm.
arhafnar eru þessi: Haförn með
1350 mál, en það er einn mesii
afli, sem landað hefur verið þar
í sumar. Svala með 850 mál,
Helga RE 750; Páll Pálsson 700;
og Þórkatla 700. Var afli allt frá
200 málum upp í 1350.
SJÁ BLS. 19.
SAMEINAÐ Alþingi hefur verið
boðað til fundar kl. 13.30 í dag og
fara þá fram þinglausnir.
Sjö fundir
Miklar annir voru á Alþingi j
gær og var einkum kappkostað
að hraða afgreiðslu þeirra mála,
sem fyrir þingið hafa verið lögð
til úrlausnar og eigi þola bið.
í sameinuðu þingi og báðum
þingdeildum voru alls haldnir
7 fundir í gær og lauk þeim síð-
asta ekki fyrr en nokkuð var
liðið á kvöldið.
Tvenn lög
- Tvö frumvörp voru í gær af-
greidd sem lög frá Alþingi. Var
það frumvarpið um kosningar til
Alþingis, sem tekið vár til einnar
umræðu í neðri deild, eftir þær
minniháttar breytingar, sem efri
deild gerði á því og getið var hér
í blaðinu í gær. Þá var endan-
lega samþykkt lagafrumvarp um
samkomudag næsta reglulegs Al-
þingis og þar með ákveðið að
hann skuli verða 20. nóvember,
ef forseti tiltekur eigi annan sam-
komudag fyrr á árinu. Auk þessa
fóru svo fram í sameinuðu þingi
kosningar þær í nefndir, ráð og
stjórnir, sem skýrt er frá á öðr-
um stað í blaðinu.
Óafgreidd mál
Þá urðu á fundunum í gær
nokkrar umræður um tvær þings
ályktunartillögur og eitt laga-
frumvarp, sem mjög skammt voru
Landsþing Sambands ísl.
sveitafélaaa setf í gœr
SJÖTTA landsþing Sambands ísl.
sveitafélaga var sett í gærmorg-
un x véitingahúsinu Lido. Formað
ur sambandsins, Jónas Guðmunds
son skrifstofustjóri, setti þingið
og bauð fulltrúa og gesti vel-
komna og minntist látinna full-
trúa, fyrri landsþinga.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri cTg Friðjórt Skarphéðinsson
fluttu ávörp. Forseti þingsins var
kjörinn Jónas Guðmundsson skrif
stofustjóri.
Tilkynnt hafði verið um kjör
144 fulltrúa frá 122 sveitafélög-
um. Að forsetakjöri loknu var
Tveir rannsókn- I
ardómarar
í Esso-málimi
STÖÐUGT er unnið að rann-$
sökn Esso-málsins, máls Olíu-4
félagsins h.f. Fram til þessaX
heftir einn rannsóknardómari,T
<♦>
IGunnar Helgason, haft máliðé
með höndum. En svo umfangs-X
mikið virðist mál þetta ætlaT
að verða, að ógemingur er¥
fyrir einn mann að rannsakaZ
það til hlýtar.
Að því er Mbl. hefur frétt,<^
var Guðmundur Ingvi SigurðsX
son, einn af úulltrúum saka-
dómaraembættisins, nú fyrir'
xskemmstu skipaður rannsókn-
úardómari í máli þessu, ásamt^
4>Gunnari Helgasyni.
kosið í nefndir. Tíu fulltrúar frá
sveitastjórnarsamböndum á hin-
um Norðurlöndunum eru gestir
á þinginu. Nánar verður sagt frá
landsþingi sveitafélaganna í blað
inu á morgun.
SIGLUFIRÐI, 14. ágúst. — Hing-
að komu í dag tveir bátar með
reknetjasíld úr Húnaflóa. —
Brimnesið frá Stykkishólmi með
100 tunnur til Hinriksensbræðra.
Síldin er misjöfn
á veg komið og því loku fyrir
skotið, að fengið gætu þinglega
meðferð, ef þingi ætti að ljúka
nú fyrir helgina, eins og ákveð.
ið hafði verið. Engu að síður
lögðu málflytjendur mikla á-
herzlu á að koma málunum á-
leiðis og gerðu m. a. tillögur um
að þau yrðu sámþykkt, án þess
að fram héfði farið athugun í
nefndum, svo sem venja er.
Ágreiningur um afgreiðsln
Mál, þau er hér um ræðir, eru
frv. um breytingu á almanna-
tryggingalögunum, sem lá fyrir
efri deild. f ljós kom við um.
ræðurnar, að frumvarpið felur i
sér víðtækar fjárhagsskuldbind.
ingar, og varð það ekki hvað sízt
til þess, að sterk andstaða kom
fram í deildinni gegn því að af-
greiða það án ítarlegrar athug.
unar, enda þótt þingmenn væru
sammála um að tilgangur frum-
varpsins væri með ágætum. Þá
voru fyrir sameinuðu þingi tvær
þingsályktunartillögur, önnur um
heildarendurskoðun stjórnarskrár
innar og hin um niðurgreiðslu á
landbúnaðarvörum, en hvorki
voru þingmenn á einu máli um
nauðsyn þeirra eða ágæti íié þótti
öllum nægilega Ijós ýmis atriði
sem máli skiptu. Komu því fram
eindregnar óskir um að þeim yrði
vísað til nefnda og afgreiðslu
frestað. Hugsanlegt er þó að sam-
einað þing komi saman fyrir há-
degi, þ. e. ef unnt reynist að ná
til þingmanna allra, svo komið
geti fram þingviljinn um lyktir
málanna. En á fundinum í gær-
kvöldi voru nokkrir þingmenn
fjarstaddir, þar eð ekki hafði ver
ið gert ráð fyrir endanlegri at-
kvæðagreiðslu, vegna þess hve
málin voru skammt á veg kom-
in, áður en fundir hófust í gær,
og flutningsmenn þeirra ekki
látið uppi fyrirfram óskir um að
þeim yrði endanlega lokið.
Þingdeildir luku störfum
Báðar þingdeildir lukr störf-
um í gær og þökkuðu forsetar
deildanna, þeir Eggert Þorsteins
son og Einar Olgeirsson, þing-
mönnum og starfsfólki þingsins
gott samstarf, en af hálfu þing-
manna fluttu Bernharð Stefáns-
son og Eysteinn Jónsson forset-
unum þakkir fyrir ágæta fund-
arstjórn; þá var skipzt á kveðj-
um og árnaðaróskum.
Hægt að íá bifreiðir leij»ðar erleiKlis
n
Á SÍÐUSTU árum hefir það mjög
farið í vöxt, að ferðamenn í öðr-
um löndum leigi sér bíla og aki
sjálfir til þeirra staða er þá fýsir
að sjá.
Nú hefir Flugfélag Islands í
samvinnu við flugfélagið SAS,
tekið að sér milligöngu um út-
vegun slíkra bifreiða handa þeim
farþegum sínum, sem þess óska
og sem koma til erlendra flug-
hafna.
Væntanlegir farþegar geta
pantað slíka þjónustu t. d. um
leið og þeir sækja farmiða sinn
í afgreiðslu félagsins í Lækjar-
götu 4.
Þar er einnig hægt að greiða
fyrir bílaleiguna ef þess er ósk-
að, en leiguna má einnig greiða
við móttöku bílsins. Að sjálf-
sögðu fer greiðslan fram í er-
lendum gjaldeyri.
Um margar gerðir bifreiða er
Alls staðar er þó lágmarksleigu-
tími einn dagur.
Sem dæmi um kostnað við
leigðan bíl má nefna að í Kaup-
mannahöfn kostar Volkswagen
þrjá og hálfan Bandaríkjadal á
dag yfir sumartímann, ef um eins
til sex daga leigu er að ræða.
Ef bíllinn er leigður 7—20 daga
er dagsgjald þrír dalir, en ef
leigutíminn er yfir tuttugu og
einn dag er dagsgjald 2Vz d.
á dag.
1 Kaupmannahöfn er hægt að
velja um 16 gerðir bifreiða' og
er Volkswagen ódýrastur en
Cadillac automatic dýrastur,
kostar fjórtán og hálfan Banda-
ríkjadal á dag, auk benzíns.
Að samanlögðu annast Flugfé-
lag íslands milligöngu um slíka
bílaleigu fyrir farþega sína í eitt
hundrað og ellefu borgum í
tuttugu og fjórum löndum. Alls
er um 98 gerðir bifreiða að velja
WllX iiXUlgUl gVXUU Mlliv-iva V.JL i '-i MHl UU UiiiUiVU » ViJVi
að ræða og er verð nokkuð mis- ] og auk þess eiga viðskitpamenn
jafnt eftir því í hvaða landi er. >völ á tveim gerðum húsvagna.