Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.08.1959, Blaðsíða 3
Þriðjurlaeinn 25. áeúst 1959 FRA ungu fólki 3 Hómer segir sögu af Ifígeníu, sem faðir hennar, Aga- memnon, ætlaði að fórna til að blíðka guðina og fá þá til að greiða för hins hellenska hers, er settist um Trójuborg. Ifígenía hélt lífinu, en saga hennar hefur orðið yrkisefni ótal skálda, m. a. Evrípídesar og Goethe. Hið ágæta þýzka tónskáld Gluck samdi ekki færri en tvær óperur um Ifígeníu og italska tónskáldið Udebrando Pizzetti hefur nýlega samið söngleik um meyna. Þessi ópera hefur verið sett á svið i Kaup- mannahöfn og á myndinni sjáum við Magnús Jónsson i hlutverki Akkillesar. VÚr lokaþættinum í La Bohéme, — Magnús og Ellen-Margrethe Edlers. Reykvíking- um gafst kostur á að heyra Magnús syngja hlutverk Rúdólfs skálds, áður en hann fór utan. Var óperan fiutt í Þjóðleikhúsinu á vegum Tónlistarfélagsins árið 1955. — ENN er það svo, að ýmsir ís- lenzkir listamenn koma ekki til ættlands síns nema eins og far- fuglarnir, — halda norður í höf á vorin, en fara utan á haustin, þangað sem verkefni er að finna við þeirra haefi. Einn slíkra er Magnús Jónsson óperusöngvari, sem dvaldist heima um nokkurra vikna skeið í orlofi frá störfum við óperu Konunglega leikhúss- ins í Kaupmannahöfn. Hann fór utan fyrir tveim vikum, en blað- inu finnst vel við eiga að minna nokkuð á störf hans með því að birta myndir af listamanninum í hlutverkum þeim, sem hann hefur komið fram í á fjölunum í leikhúsi kóngsins. Magnús er 31 árs gamall. Hann hafði verið við nám og söng- störf hér heima og á ftalíu, áð- ur en hann hélt til Hafnar í janú- ar 1957 og hóf þar nám í skóla Konunglega leikhússins. Hefur hann bæði lagt þar stund á leik- og söngnám. Árið 1958 var hann síðan ráðinn að óperunni til 2 ára og 13. apríl þá um vorið kom hann í fyrsta skipti fram á sviði leikhússins og þá í aðalhlutverki, hlutverki Manricos, í Farand- söngvaranum (II trovatore) eftir Verdi. Þar með var hann tekinn að starfa í hópi fremstu óperu- manna í Danmörku. Frú Anna Borg setti söngleikinn á svið, en meðal söngvara voru barytón- söngvarinn Niels Möller, sópran- söngkonan Bonna Söndberg, sem e. t. v. er fremst af hinum ágætu söngkonum, sem nú starfa við Konunglega leikhúsið Lilian Weber Hansen, sem lengi hefur verið ein glæsilegasta söngkona* Dana, og bassasöngvarinn Niels Juul Bondo. ☆ Síðan hafa Magnúsi verið falin tvö öni.ur aðai ih'tverk, 1. utverk Rúdólfs skálds í a Bohéme eftir Puccini og hlutverk Gústafs III. Svíakonungs í Grímudansleikn- um eftir Verdi. Auk þess hefur hann sungið hlutverk Akkillesar í óperunni Ifigenía eftir Ilde- brando Pizzetti, ítalskt nútíma- tónskáld. ☆ Magnúsi hafa því verið falin mikil verkefni og enn bíða hans störf í Kaupmannahöfn. Hann er ráðinn þar til næsta vors, en þeg- ar munu viðræður hafnar um nýjan samning. Gaman væri, ef Þjóðleikhúsið í Reykjavík yrði á undan koAungshúsinu og fengi Magnús heim að ári. Óperusýn- ingar hafa verið vel sóttar af íslenzkum leikhúsgestum og vissu lega væri æskilegt, að koma upp föstum söngvaraflokki við leik- húsið sem fyrst. Ur Farandsöngvaranum: Magnús og Bonna Söndberg. — Magnús fór með hlutverk Manricos, greifasonarinns, sem sígaunakonan rændi og síðar barðist við bróður sinn án þess að vita, hver hann var. Hlutverkið söng Magnús fyrir Reykvíkinga í „kon- sertuppfærslu“ í Austurbæjarbíói 1956. Gústaf III., einn glæsilegasti þjóðhöfðingi, sem setið hefur á valdastóli í Svíaríki, var myrtur á grímudansleik árið 1792. Örlög konungsina íru efnið í Grímudansleik Verdis og á for- síðu er mynd af Magnúsi í hlutverki Gústafs. f jöluifl kóngsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.