Morgunblaðið - 20.10.1959, Síða 17
Þriðjudagur 20. okt. 1959
MORCTJNTtL AÐIÐ
17
Jón Kristgeirsson
kennari — Minning
í DAG verður Jón Kristgeirsson,
kennari kvaddur hinztu kveðju.
Hann andaðist að heimili sínu 9.
þessa mánaðar.
Jón Ólafur, en svo hét hann
fullu nafni, fæddist að Heiðarbæ
í Þingvallasveit 28. apríl 1895.
Voru foreldrar hans Kristgeir
Jónsson, Ólafssonar, bónda í
Heiðarbæ og Guðný Ólafsdót'tir,
Guðlaugssonar, skipstjóra í Hlíð-
arhúsum.
Jón fluttist ungur að Gil-
streymi í Lundarreykjadal og
og naut trausts og virðingar allra,
sem til hans þekktu. Heilsan var
góð, eftir að hann vann bug á
berklaveikinni, og vinnuþrek ein
stakt, allt til þess er vágestur
sá, er nú stendur mest ógn af,
sótti hannt hann heim fyrir
nokkrum misserum.
Langvinnan og ákaflega erfið-
an sjúkdóm þoldi hann með æðru
leysi og karlmennsku, sem þeir
einir sýna, er heila hafa innviði.
Átti hann sót þá ósk eina, eftir
að hann vissi, að hverju fór, að
fá að vera heima. Lýsir það orð-
um betur tengslunum við heim-
ili og ástvini.
Kennarastéttin sér á bak mik-
ilhæfum manni, og er þar skarð
fyrir skildi, en mestur er missir
þeim, sem næst standa. Vil ég
fyrir hönd stjórnar S.Í.B. votta
ástvinum Jóns einlæga samúð.
Honum þökkum við af heilum
hug og varðveitum minninguna
um góðan dreng.
Gunnar Guðmundsson
Áttræður í dag:
Eiís Jónsson, kaupm.
ólst þar upp hjá foreldrum sín-
um fram yfir fermingaraldur. Þá
var hann tvo vetur við nám í
Flensborg og síðar í Menntaskól-
anum í Reykjavík ,en veiktist af
berklum og varð að hverfa frá
námi, þegar komið var að prófi
fimmta bekkjar. Varð það ærin
raun unglingi og sár vonbrigði.
En Jón var snemma harðger mað
ur og lét ekki bugast. Hann sigr-
aðist á berklaveikinni á næstu
misserum og las undir stúdents-
próf utan skóla. Af prófi varð þó
ekki, því að aðrar annir kölluðu
að. Á þessum árum hóf Jón
kennslustörf í Vestmannaeyjum,
en réðst svo til bæjarfógetans
þar og var fulltrúi hans um ára-
bil. Jón lagði þó kennslustörf
aldrei alveg á hilluna, og árin
1930—’33 kenndi hann j íþrótta-
skólanum í Haukadal. Vorið 1934
lauk hann kennaraprófi og gerði
kennslu að lífsstarfi sínu. Kenndi
næsta ár í Gagnfræðaskóla Siglu
fjarðar. Næsta áratuginn var Jón
skólastjóri á Hólmavík, en flutt-
ist þá til Kópavogs og síðar
Reykjavíkur og kenndi í Mið-
bæjarskólanum til æviloka.
Jón Kristgeirsson var óvenju-
lega duglegur maður, að hverju
sem hann gekk, fullur af starfs-
orku og lífsþrótti. Var hann ó-
þreytandi í leit að leiðum og að-
ferðum, er að gagni mættu koma
í starfi hans, og varð vinnudag-
urinn því oft æðilangur. Mun
margur nemandinn minnast hans
með einlægri þökk. Veturinn
1954—’55 ferðaðist Jón um Banda
ríkin og Kanada og kynnti sér
skólamál þar. Ritaði hann margt
fróðlegt um þá ferð.
Jón tók alla tíð mikinn þátt í
félagsmálum, eins og eðlilegt var
um svo dugmikinn mann og fé-
lgaslyndan. Var hann hvatamað-
ur að stofnun Framfarafélags
Kópavogs og fyrsti formaður
þess. Þá átti hann lengi sæti í
stjórn Stéttarfélags barnakenn-
ara í Reykjavík, í stjórn Bygg-
ingafélags kennara og nú síðast
í stjórn Sambands ísl. barnakenn
ara frá 1956 til æviloka. Þeir, sem
með honum unnu, minnast ein-
stakrar ósérhlífni hans og vilja
til að ráða hverju máli svo til
lykta, að allir mættu vel una.
Jón kvæntist árið 1936 Krist-
ínu Tómasdóttur frá Hólmavík,
og lifir hún mann sinn ásamt
nítján ára dóttur, Guðnýju, sem
nú er við nám { 6. bekk Mennta-
skólans í Reykjavík, og tíu ára
syni, Ágústi Þór.
Jón var gæfumaður, þótt oft
blési á móti, einkum á fyrri ár-
um. Hann átti góða konu og
mannvænleg börn. Að störfum
sínum gekk hann glaður og heill
ELÍS Jónsson er Austfirðingur að
ætt og uppruna, fæddur að Firði
í Seyðisfirði, 20. október 1879,
sonur Jóns Sigurðssonar bónda
þar og konu hans, Guðnýjar
Bjarnadóttur, Einarssonar, bónda
að Ásgeirsstöðum í Eiðaþinghá.
Elis er kominn af traustum ætt-
um, bæði af Fljótsdalshéraði og
úr fjörðum, höfðingsbændum og
kjarnakonum.
Fimmtán ára að aldri byrjaði
hann að vinna við Johansens-
verzlun á Seyðisfirði, „Norsku
verzlunina“ sem kölluð var, og
vann þar í 10 ár, við verzlunar-
störf og bókhald, af slíkri trú-
mennsku og dugnaði, að honum
var falið að veita forstöðu verzl-
uninni „Framtíðin" á Vopnafirði,
árið 1903, því aldagömul og
sterk „Örum og Wullfs-verzl-
un“ var þar fyrir og því við
ramman reip að draga.
Elís varð fljótt vinsæll þar í
héraði, enda stjórnaði hann
verzluninni með rausn og mynd-
arskap og hlóðust því bráðlega á
hann trúnaðarstörf, svo sem safn-
aðar- og skólanefndarstörf o. fl.
Verzlun Framtíðarinnar á
Vopnafirði stjórnaði Elís til árs-
ins 1913, en flutti þá til Djúpa-
vogs, til þess að taka við verzlun
Framtíðarinnar þar, sem einnig
var umfangsmikil og stjórnaði
hann henni til 1924. Einnig rak
hann þar útgerð í félagi við
menn þar á staðnum.
Þar voru honum vegna vin-
sælda og dugnaðar einnig fahn
trúnaðarstörf í þágu hrepps og
kirkj u.
Árið 1902 kvæntist Elís Jóns-
son konu sinni, Guðlaugu Eiríks-
dóttur, frá Hoffelli í Nesjum,
myndar- og ágætiskonu, enda var
heimili þeirra bæði á Vopnafirði
og Djúpavogi þekkt um allt
Austurland fyrir myndarskap og
gestrisni.
Það mun ekki of mælt, að á
Djúpavogi hafi jafnan í haust- og
vorkauptíð verið fleiri gestir á
heimili þeirra en húsrými leyfði,
en allt komst af og var þá oft
glatt á hjalla, þó þröngt væri set-
inn bekkurinn og sannaðist þar
hið fornkveðna, að, þar sem er
hjartarúm þar er einnig húsrúm.
Frá Djúpavogi flutti Elís að
Reynistað á Skildinganesi við
Skerjafjörð og bjó þar búi sínu
um sex ára skeið.
Var hann þar einnig hrepps-
nefndaroddviti og umboðsmaður
sýslumanns við skipakomur.
Eftir að Elís hætti búskap á
Reynistað, en það mun hafa verið
um 1930, hefur hann rekið eigin
verzlun, fyrst í Skildinganesi, en
síðar á Kirkjuteigi 5 hér í bæ.
Umboðsmaður Happdrættis Há
skóla íslands hefur hann verið
síðan það var stofnað, eða í 25 ái.
Hann sér og um verzlun sína
enn, þrátt fyrir háan aldur.
Elís Jónsson ér prúðmenni í
hvívetna, fríður sýnum og vekur
traust og virðingu hvar sem
hann fer.
Þau hjón eiga tvær dætur,
Guðnýju og Halldóru, og eina
fósturdóttur, Díönu Karlsdóttur;
allar giftar frúr í Reykjavík.
Að endingu óska ég afmælis-
barninu til hamingju með dagmn
og framtíðina.
Finnur Jónsson,
Afthagafélag Akraness
Vekur athygli félaga sinna á leiksýningu leikfélags
Akraness í „Blíðu og stríðu“ í Iðnó föstudagskvöld-
ið 23. þ.m. kl. 8.
Aðgöngumiða má panta í síma 35890 milli kl. 5 og7.
STJÓRNIN
Veitingastofan — ísbar
Til sölu af sérstökum ástæðum er veitingastofa við
aðalverzlunargötu bæjarins. Verð og greiðsluskil-
málar geta orðið hagkvæmir ef samið er strax.
FASTEIGNASALA
Áka Jakobssonar og Kristjáns Eiríksonar
Sölumaður: Ólafur Ásgeirsson.
Laugavegi 27. Sími 14226 og frá 19—20,30
34087.
Til sölu
4ra herbergja íbúð við Hvassaleiti tilbúin undir
tréverk. — Nánari upplýsingar gefur:
MÁLFLUTNIN GSSKRIFSTOF A
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar
& Guðmundar Péturssonar.
Aðalstræti 6, III. hæð
Símar: 1-2002, 1-3202 og 1-3602.
Laus staBa
Sjúkrahúslæknisstaða við Héraðssjúkrahús Skag-
firðinga á Sauðárkróki er laus til umsóknar.
Óskað er, að umsækjendur séu viðurkenndir sér-
fræðingar í handlækningum eða hafi sérstaka æf-
ingu á því sviði.
Umsóknir sendist landlækni fyrir 31. des. n.k.
Sauðárkróki, 25 sept. 1959.
F. h. sjúkrahúsnefndar.
Jóh. Salberg Guðmundsson
Allt á sama stað
IMýkomið í Ford
Lítið inn. Eflaust eigum við það sem vantar í bílinn
Áklæði til í miklu úrvali.
Allt í kveikjuna
straumlokur,
ljósasamlokur.
kAAAAAÁAAAAAAAAAA
Ferodo-bremsuborðar
bremsudælur
og viðgerðarsett.
Stimplar
stimpilhringir
ventlar,
gormar
pakkningar
stangalegur
höfuðlegur
Demparar (Gabríel)
hjólalegur
spindilboltar
stýrisendar
IlAAAAAAAAAAAAAÁAAAAAAA
Vatnsdælur
viftureimar
AAA 'AAAAAi A AAAAAAAAAAJ
Plastáklæði
tauáklæði
Þéttikantur
F y r i r
veturinn
frostlögur
snjókeðjur
vatnskassa-
hreinsir
og þéttir.
Hljóðkútar
Kúplingsdiskar
AAAAAAAAAAAAAAA
Bremsuvökvi
bón
hreinsilögur
ventlaslípi
ventlamassi
AAA iAAWAAAAAAl
rafgeymar
rafmagnsvír
háspennuvír
kertagúmmí
DAGLEGA NÝJAR
VÖRUR
Egill Vilhjálmsson hf.
Laugavegi 118. — Sími 22240
Sendiráð
Band aríkjanna
vill selja nokkrar notaðar
RITVÉLAR
(Royal Underwood og Remington Rand)
E i n n i g
ÞVOTTAVÉL og
ÞURRKARAR
(Westhinghouse) Til sýnis í sendiráðinu frá
kl. 1—6 e.h. n.k. miðvikud. og fimmtud.
Tekið verður við tilboðum til 29. okt.