Morgunblaðið - 17.11.1959, Blaðsíða 12
12
MORCUNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 17. nóv. 1959
Renault /960
„Dauphine", til sölu. Þetta er
mjög fallegur, lítilli bíll, enda
vinsælasti smábiiJinn £ Amer
íku í dag. —
MalBÍLASMM
Aðalstr., 16, simi 15-0-14
Glæsilegur bíll
Seljum í dag glæsilegan
Mercury Station, árgang ’55.
Vökvastýri, loftbremsur.
Bi IasaIan
Klapparstíg 37. — Sími 19032.
Moskwitch
station '60
Nýr. —
Volkswagen ’60, nýr
Taunus Station ’60
Ford ’58 „Taxi-cab“
óuppgerður, ódýr. —
Chevrolet ’58
Alls konar skipti.
tM BÍLASALAN
Aðalstr., 16, simi 15-0-14
6ÍLASALIHIN
við Vitato.g.
Sími 12 500
Reno ’46, í góðu Iagi
Moskwitch ’59
Fæst með góðum kjörum.
Ford Zodiac ’55
Mjög vel með farinn.
Austin 16 ’47
Nash ’47
Mercedes Benz 170 ’51
Nýkominn til landsins.
Volkswagen ’57
Sérstaklega vel með far-
inn. —
Chevrolet ’53
Selst á mjög góðu verði,
ef samið er strax.
BÍLASALINN
við Vitatorg.
Sími 12-500.
Tjarnargötu 5. — Sími 11144.
Chevrolet ’51, ’52, ’53, ’54,
’55, ’57, ’58, ’59
Ford ’42, ’47, ’50, ’53, ’55
Opel Capitan ’55, ’57
Volkswagen ’55, ’56, ’58
’59 —
Moskwitch ’55, ’57, ’58, ’59
Ford Prefect ’47, ’55, ’57
Morris ’46, ’47, ’49, ’55
Höfum einnig jeppa,
sendiferða- og vörubíla
j Tjarnargötu 5. — Sími 11144.
Hlustað á útvarp
A KVÖLDVÖKU, nýlega, flutti
Sigurður Jónsson frá Haukagili
visnaþátt. Sigurður er manna
fróðastur um skáldskap í bundnu
máli og þá ekki sízt vísur og
kann ógrynni af kvæðum og vís-
um. Er því vel fallinn til að
flytja eða sjá um þennan þjóð-
lega þátt, sem vafalaust mun
gleðja marga. Þótt mikið af vís-
um, rímum og raunar öllum
kvaðskap sé lítils virði, eru þó í
mörgum rímum og öllum þeim
fjölda, sem menn þekkja af
lausavísum, fjöldi af skínandi
perlum, sem sóma sér mætavel
við hlið hins bezta, sem orkt hef-
ur verið á íslenzka tungu. Væri
sannaríega mikill skaði ef unga
kynslóðin hætti við að hafa gam-
an af slíku andlegu sælgæti og
ekkert er heldur á móti því að
ungir menn reyni að „kasta
fram“ stöku, þótt stundum verði
ekki um mikinn skáldskap að
ræða. Það er a. m. k. vissulega
betra en hið innflutta jazzgaul
þeirra Ameríkananna, sem
fjöldi manna lítur á sem eitt af
því böli, sem fylgt hefur hern-
aði og hersetu hér á okkar frið-
sama landi. En — ég var að tala
um vísnaþátt Sigurðar frá Hauka
gili, og vona að hann flytji þessa
þætti við og við í vetur.
★
Einn af vinsælustu þáttum
útvarpsins hefur verið Spurt og
spjallað í útvarpssal, sem Sigurð-
ur Magnússon, fulltrúi, stjórnar.
Sunnudaginn 8. þ. m. hófst þátt-
urinn á ný, með því að mættir
voru í útvarpssal ásamt Sigurði,
þeir séra Emil Björnsson, sem
einnig er fréttamaður útvarpsins,
Hendrik Ottósson, rithöfundur
og fréttamaður, Helgi Þorláks-
son, skólastjóri, og séra Jóhann
Hannesson, prófessor í guðfræði
við Háskóla Islands. Allt eru
þetta landskunnir menn. Um-
ræðustjóri, Sig. Magnússon, gat
þess fyrst, að hann væri nýkom-
inn heim úr ferð til útlanda, þar
sem hann hefði hlustað á og at-
hugað hvernig hagað væri til um
líka þætti. Hafði hann komizt að
þeirri niðurstöðu, að heppilegast
myndi að hafa þættina með svip-
uðu formi og áður, sem sé, að fá
vel til fallna menn til þess að
ræða einhver tiltekin mál frem-
ur alvarlegs efnis,mál er flestir
hefðu áhuga á, þeir er á annað
borð eitthvað hugsa. Hann
kvaðst ekki vilja gera þetta
spjall áð gamanþætti. Var fyrsta
spurning hans á þá leið, hvort
þeir er til andsvara voru, vildu
leggja niður þjóðkirkju (ríkis-
kirkju) hér á íslandi. Háskóla-
þrófessorinn og skólastjórinn
vildu athuga það mál mjög
grandgæfilega, áður en út í það
væri farið og voru á móti því að j
leggja út í skilnað ríkis og i
kirkju að svo komnu máli.
Hendrik Ottósson var eindreg-
inn skilnaðarmaður, kvað það
skerðing á frelsi manna að vera
neyddur til að greiða til ríkis-
kirkju (menn geta nú greitt til
Háskólans ef þeir vilja það held-
ur). Enda mun Hendrik persónu-
lega enga þörf þykjast hafa fyrir
evangelisk-lútherska presta,
hverju sem hann annars kann að
trúa. Séra Emil Björnsson var
alveg á móti þjóðkirkju og taldi
þeirri stofnun flest til foráttu
samanborið við fríkirkju og var
afstaða hans ákveðin. Umræður
þessar voru lærdómsríkar, eink-
um fannst mér lærdómsríkt að
hlusta á prófessor Jóhann Hann-
esson og vel má segja að þetta
fyrsta „spjall“ hafi farið ágæt-
lega fram svo sem vænta mátti,
þar eð gáfaðir og menntaðir
menn áttust við orðræður um
mál, sem nokkuð hefur verið á
dagskrá lengi.
y-
Þættir úr sögu íslenzkra hand-
rita nefndist erindi er prófessor
Einar Ól. Sveinsson flutti 9. þ. m.
Prófessor Einar hefur alveg sér-
stakt lag á að segja þannig frá
vísindalegum efnum að sæmilega
greind og fróðleiksfús alþýða
hafi gagn og unun á að hlusta.
Ég vona að framhald verði á
þessum fræðslulestrum próf. Ein-
ars Ól. Sveinssonar, og er viss
um að hann hefur mjög marga
áheyrendur.
Afvinna
\ <• Óskum eftir að ráða nokkra bifvélavirkja eða menn vana bifvélavirkjun, nú þegar á verkstæði vort. Uppl- lýsingar gefur verkstjórinn, Árni Stefánsson.
EGILL VILHJÁLMSSON H.F. Sími 22240
Pípur
svartar og galvaniseraðar.
H. Benediktsson hf.
— Sími 11228 —
Smíðajárn
í plötum, 3—6 mm.
H. Benediktsson hf.
— Sími 11228 —
Merkið sem markar
tímamót í þjónustu
vi5 viðskiptavini vora
Falur h. f.
Kópovogl
Samkvæmt lögum er óheimilt að selja óviðurkennd rafföng
merkir að Rafmagnseftirlit ríkisins raffangaprófun
hafi viðurkennt vöruna.
Fyrirtæki vort, mun eftirleiðis, fyrst á íslandi, merkja allar
vörur er- vér flytjum inn.
Takmark vort er betri vara, betri þjónusta.
Kaupið
ÍJtvegum allar tegundir af gangsetjurum og öryggisrofum
frá Metzenauer & Jung Gambh, einnig allar aðrar rafmagns-
vörur er standast öryggismat.
FALLR HF.
0
merkta rafmagnsvörur
nmboðs- og heildverzlun
Hlíðarveg 8 — Kópavogí — Sími 12687.
Um daginn og veginn talaði
Stefán Jónsson, fréttamaður út-
varpsins. Gat hann um rigninga-
tíðina og kvað marga kvarta um,
að slíkt orkaði á skap manna.
Sagði svo að maður einn, er
hann þekkti, væri nýkominn úr
dvöl í sólríku landi og væri skap
þessa manns engu betra en áður.
Það mun vera rétt, að illa lyntir
menn eru alltaf illfygli og góð-
lyndir menn ætíð notalegir í við-
móti. Þá talaði Stefán um stjórn-
málarifrildið og ljót orð blaða
um helztu'menn andstæðinganna.
Sem betur fer er þetta þó mest
í „nösunum", yfirleitt geta þessir
menn vel unnið saman að vel-
ferðarmálum þjóðarinnar. Loks
talaði hann um meðferð áfengis-
sölu hér, sem hann taldi í versta
óefni og eru margir á sama máli.
Stefán Jónsson talaði áheyrilega
og skemmtilega.
★
Minnzt var 200 ára afmælis
stórskáldsins Friedrichs von
Schiller. Prófessor Alexander
Jóhannesson flutti ágætt erindi
um Schiller, eftir það var lesið
úr ljóðum hans og fluttur kafli
úr leikritinu „María Stuart", sem
dr. Alexander hefur þýtt. Þegar
ég var unglingur voru þýðingar
á ljóðum Schillers mjög mikið
lesnar og lærðar, löng kvæði svo
sem „Kafarinn", „Klukkuljóðin",
„Riddarinn af Toggenborg" o. fl.
— Allir kunna „Dunar í trjá-
lundi“ og „Sat við lækinn".
Með ungu fólki, þáttur Jóns R.
Hjálmarssonar, skólastjóra, var
ágætur. Hann talaði við nokkra
nemendur í Skógaskóla. Það var
sannarlega skemmtilegt að hlusta
á þetta unga fólk, með sínar
björtu framtíðarvonir. Hafði það
margar skynsamlegar og eðlileg-
ar tillögur að flytja, t. d. hefur
allt ungt fólk ætíð frá því ég
man fyrst eftir óskað þess, að
aldurstakmark til kosningaréttar
væri fært niður. Ég tel að 19 ár
væri hæfilegur aldur. Einnig að
16 ára unglingum væri heimilt
að aka bifreið. Uppástunga pilts-
ins á Skógum að ökuheimild
væri tekin af öldruðum mönn-
um, sem eðlilega eru farnir að
sljófgast, er athugunarverð. Það
var unun að hlusta á unga fólkið
á Skógum.
Nýlega var sungið í útvarp lag
við kvæði úr Lénharði fógeta.
Þulur, sem mun hafa verið Jón
Múli Árnason, sagði að kvæðið
væri eftir Indriða Einarsson.
Eins og flestir vita, er kvæðið
eftir Einar H. Kvaran og ætti
Jón Múli, sem bæði er skáld og
tónskáld að vita þetta engu síður
en aðrir. Svona óþarfa hroð-
virkni á ekki að koma fyrir hjá
þeim er undirbúa dagskrá út-
varpsins og þulirnir ættu ekki að
fara með það hugsunarlaust sem
fyrir þá er lagt.
Þorsteinn Jónsson.