Morgunblaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 17
Sunnudagur 20. des. 1959
MORGUNBLAÐ1Ð
17
Esjubergs-hjónin — Afmæli
SÍÐASTLIÐINN vetur áttu merk
ishjónin Oddný Árnadóttir og
Gísli Guðmundsson á Esjubergi
í Kjalarneshreppi 70 ára aldurs-
afmæli. í tilefni af þeim tíma-
mótum, vil ég þótt nokkuð seint
sé, minnast með fáum orðum á
nokkra þætti í æviferli þeirra. —
Oddný Árnadóttir er fædd 2.
apríi 1889 í Víðinesi í Kjalar-
neshreppi, dóttir merkishjónanna
Árna Björnssonar, er kominn var
frá Jóni lögréttumanni ísleifs-
syni, Selkoti undir Eyjafjölium
og var af Selkotsætt og Sigríði
Jónsdóttur frá Bakka í Land-
eyjum, og voru ættir hennar úr
Skaftafellssýslu.
Gísli Guðmundsson er fæddur
I Stardal í Kjalarneshreppi 7.
marz 1889, sonur merkishjónanna
Guðmundar hreppstjóra Kolbeins
sonar Eyjólfssonar, Kollafirði og
konu hans Sigríðar Gísladóttur,
er var systir Gíslínu, seinni
konu Einars H. Kvarans, rithöf-
undar.
Eru bæði hjónin komin af ráð-
deildarsömu og dugmiklu bænda
fólki, sem kunnugt er.
Þau hjónin ólust upp í foreldra
húsum, Móum og Esjubergi, í ná-
grenni, í ágætu fjölskyldulífi og
foreldrar þeirra vel efnum búm.
Árið 1917 giftust þau Oddný
og Gísli og byrjuðu búskap á
Tindstöðum í Kjalarneshreppi þá
um vorið og bjuggu þar í tvö ár,
en 1919 tóku þau á leigu Esjubeig
af séra Eiríki Briem og hafa bú-
ið þar til dóttir þeirra og tengda-
sonur tóku jörðina á leigu 1957.
Hafa þau hjónin Gísli og Odd-
ný búið á Esjubergi með dugn-
aði og sýnt frábæra fyrirhyggju
og ráðdeild í búnaðarháttum. —
Gísli Guðmundsson er traustur
maður, stilltur og farsæll. Hann
er vel greindur, orðheppinn og
hrókur alls fagnaðar í glöðum
félagshóp. Hestamaður er hann
góður og situr vel gæðing sinn.
Þá er hann góður fjármaður og
hefur ánægju af fjárgeymslu.
Oddný Árnadóttir er greind
kona, mikilhæf og nýtur trausts
í byggðarlagi- sínu, hún hefur
verið ljósmóðir síðan 1922 og
farnast það starf með afbrigðum
vel. Er mér kunnugt um, að oft
hér áður fyrr var leitað til henn-
ar í veikindatilfellum með ráð,
er svo bar undir að erfitt var
að ná í lækni eða smákvilla var
um að ræða.
Þau hjónin hafa nú látið byggja
sér íbúðarhús, áfast við íbúðarhús
jarðarinnar, mjög vandað að aliri
gerð og búa þar nú. En á jörð-
inni búa þau Sigríður dóttir
þeirra og tengdasonur Snorii
Gunnlaugsson. Önnur börn þeirra
hjóna eru Guðmundur bifreiðar-
stjóri, giftur Fanneyju Gunnlaugs
dóttur og Bergþóra gift Valdi-
mar Magnússyni húsameistara, eg
eru þau búandi í Reykjavík.
Eitt barn misstu þau hjónin,
sem var á fyrsta ári. Um 1920
keyptu þau Gísli og Oddný jörð-
ina af séra Eiríki Briem. Kaup-
verðið var rúmlega fasteignamat
eða kr. 27.300.00. Við undirskriít
kaupsamnings var greitt kr.
4.200 og svo kr. 1.700,00 árega,
þar til lokið var. í samningn-
um stóð þar meðal annars, ef van-
efndir yrðu með greiðslu á rétt-
um gjalddaga, þá skyldu kaupin
ógild verða og ekkert endurgreitt
til baka, sem greitt hefði verið.
Var þetta ákvæði mjög algengt
þá í kaupsamningum. Nokkru eft
ir andlát séra Eiríks Breim urðu
tafir á greiðslu ársafgjaldsins. —
Fóru þau hjónin í leit að láni
í bankana, en ekkert fékkst þar,
og þau fóru í aðra staði, sem lík-
legir voru, en ekkert lán, — en
þó hljóp undir bagga góður kunn
ingi þeirra úr sveitinni og lánaði
það sem vantaði til að gjöra full
skil.
Eggert Briem lét gott heita og
nefndi engin vanskil á nafn, en
mun þó hafa verið ljósthvaðhægt
hefði verið að gjöra. Þegar hjón-
in sögðu mér frá þessum fjár-
mála erfiiðleikum og þeim
áhyggjum, er þeim urðu samfara
á fyrstu sjálfseignar árunum, er
þau áttu í orði ábýlisjörð sína,
urðu þau mjög alvarleg á svipinn
eins og þetta tilfelli væri nýaf-
staðið.
Þegar þau hjónin voru leigu-
liðar á Esjubergi hofðu þau að
eins til slægna túnið og Árvall-
ardalinn, því engjar jarðarinnar
voru leigðar öðrum. Var heyöfl-
un þeirra um 300 hestar, en er
þau keyptu jörðina jókst hún
upp í 7—800 hesta, og gátu þau
einnig lánað slægjur. í leigu af
4 kúgildum voru 8 fjórðungar
af smjöri, og í peningum af jörð-
inni var greitt 900—1000 krónur
árlega. Fjárhagsafkomuna telja
þau hjón að hafi verið jafn bezta
á árunum 1922—1927—8, því þá
var mjólkurlítrinn til þeirra 55
aurar og lækkaði reyndar þessi
árin niður í 46—48 aura.
Þá berst í tal við þau hjónin
sá mikli sorgarviðburður, sem
gerðist á útmánuðum 1909, er feð-
ur þeirra beggja drukknuðu á
Kollafirði. Þeir fóru saman á bát
— nágrannarnir, því eins og kunn
ugt er, þá bjó Guðmundur á Esju
bergi og Árni í Móum — til
Reykjavíkur og voru á heimleið,
komnir vel miðja leið frá Lund-
ey til lands. „Ég var“, segir Odd-
ný, „úti við læk að þvo gólfklúta,
því móðir mín vildi hafa þá
hreina. Allt í einu hvessir á suð-
vestan með koldimmu éli og á
svipstundu er komið eitt hið
\
versta ofstaveður, élið birti upp
fljótlega, en veðrið hélzt fram
undir morgun næsta dag“. Pilt-
arnir fóru fljótt niður til sjávar
og sáu þá bátinn skammt frá
landi á kafi í sjó og rak bátinn
brátt að landi. Feður okkar hafa
aldrei fundizt né önnur stúlkan,
en piltur og stúlka fundust fljót-
lega, sem með þeim voru.
FRAKKAR standa allframarlega í
bílaiðnaði, og eru sum frönsku
„merkin" þekkt víða um heim. Fátt
sést þó af frönskum bílum á götum
og þjóðvegum hér heima á íslandi
— viðskiptunum á þessu sviði er
beint í aðrar áttir, sem kunnugt er.
— Við birtum nú hér til gamans
um bifreiðum, sem athygli hafa
myndir af nokkrum nýjum, frönsk-
vakið.
Á mynd nr. 1 sjáið þið „Simca-
Talbot“. Reyndar sést aðeins afan
á hann, en það er nóg til þess að
gera sér grein fyrir megindráttun-
um í útlitinu, sem einkennist fyrst
og fremst af mjúkum boglínum. —
Vagn þessi er enn á tilraunastigi og
ekki farið að framleiða hann til al-
mennings nota. — Mynd nr. 2: Lítill
og snotur Citroen-sportvagn — vagn
húsið smíðað af fyrirtækinu Chap-
ron. — Mynd nr. 3: „Facellia*4 nefn
ist þessi tveggja sæta sportvagn —
og við vitum það um hann, að
hann nær hámarkshraða 180 km. á
klst. og eyðir 10 ltr. á 100 km. —
— Mynd nr. 4: Þetta þykir mörgum
fallegur bíll. Hann nefnist „Floride“
og er „sportútgáfa“ af „Drauphine“.
— Mynd nr. 5: Og hér er loks allsér-
kennilegur, lítill Citroen-vagn með
plastyfirbyggingu. Byggingarlagið
einkennist af brotnum línum eins
og sést á myndinni, en það er dá-
lítið óvenjulegt nú á dögum.
Allar þessar bifreiðir voru sýndar
á bílasýningunni miklu í París í
okt. sl., sem flestir helztu bílafram-
leiðendur heimsins tóku þátt í.
Þau hjónin Oddný og Gísli eru
glöð og hress í anda. ÞaU hafa
kynnst mörgu fólki. Þau telja
samferðafólkið hafa verið vin-
samlegt, gott í samvinnu og öll
misklíð verið jöfnuð í sátt og
samlyndi. Engin óvinátta, en góð
vinátta við alla.
Ég vil með þessum fáu orðum
mínum senda þeim kæru hjónum,
Oddnýju og Gísla, okkar beztu
vinsemdar kveðjur á þeirra
merkis aldursafmæli og þakka
frábæra vinsemd og góða fram-
komu. Megi þau enn njóta góðr-
ar heilsu og langra lífdaga, enn
á meðal ættingja og vina.
Ó. B.
Tottenham eist
22. UMFERÐ ensku deildarkeppninnar
fór fram í gær og urðu úrslit leikjanna
þessi:
1. deild:
Bolton — Blackpool ............. 0:3
Burnley — Leeds ................ 0:1
Fulham — Blackburn .............. 0:1
Leicester — West Ham ....:...... 2:1
Luton — Everton ................ 2:1
Manchester U. — W.B.A........... 2:1
N. Forest — Manchester City .... 1:1
Preston — Chelsea............. 4:5
Shefield W. — Arsenal........... 5:1
Tottenham — Newcastle........... 4:0
Wolverhampton — Birmingham .... 2:0
2. deild:
Aston Villa — Brighton .......... 3:1
Bristol City — Scunthorpe ...... 0:1
Charlton — Rotherham .......... 2:2
Derby — Sheffield U............ 1:1
Huddersfield — Ipswich ....... 3:1
Leyton Orient — Bristol Rovers .... 1:1
Lincoln — Swansea .............. 2:0
Liverpool — Cardiff ............ 0:4
Plymouth — Hull ................ 3:1
Portsmouth — Middlesbrough ..... 6:3
Sunderland — Stoke ............. 0:2
Að 22 umferðum loknum er staðan
þessi:
1. deild (efstu OR neðstu liðin):
Tottenham 22 11 8 3 48:24 30
Preston 22 12 5 5 46:36 29
W ol verhampton 22 13 2 7 58:42 28
Burnley 22 12 3 7 52:35 27
Blackburn 22 12 3 7 43:34 27
N. Forest 22 7 3 12 25:42 17
Leeds 22 5 6 11 33:52 16
Birmingham 22 5 5 12 29:44 15
Luton 22 4 6 12 24:44 14
2. deild (efstu og ncðstu liðin):
Aston Villa 23 16 3 4 56:19 35
Rotherham 22 13 7 2 43:28 33
Cardiff 22 13 6 3 46:30 32
Huddersfield 22 10 6 6 42:26 26
Portsmouth 22 5 5 12 32:42 15
Derby 22 5 5 12 32:46 15
Hull 22 5 4 13 25:51 14
Bristol City 21 5 2 14 27:50 12