Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 2
MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. des. 1959 Efni er m.a.: BLAÐ I. Forsíðumynd eftir Ólaf K. Magnússon ásamt jólasálmi eftir Matthías Jochumsson. Úr vöggukvæði, eftir Einar prest Sigurðsson í Eydölum. Fagurt jólalag, útsett af Jóni Leifs. Ágúst í Kansas, ferðaminningar eftir Valdimar Kristinsson, við- skiptafræðing. Fórn ástarinnar, smásága eftir Kelvin Lindemann. Dagskrá útvarpsins um jólin. Ritstjórnargreinin: Hátíð friðar og kærleika. Utan úr heimi. Jól í öðrum löndum. Almenn skoðun að á íslandi væri op niður til Vítis. Sigurður Bjarna- son ræðir við Þórð Björnsson lögfræðing. Eitthvað fyrir unglingana ( Björn Bjarnason og Markús Antonsson). Ferðir strætisvagnanna um jólin. Verðlaunakrossgáta Morgunblaðsins (Þorbjörn Guðmundsson). ; NA 15 hnúiar SV50hnútar Snjókoma 9 OSi V Skúrir lí Þrumur W.Zi KuUath'/ Hifcski! H HaS 1 L * LaqS | Bls. 3 — 6: — 8: — 10: — 11: — 12: — 13: — 15 — 17 — 22 BLAÐ II. Bls. 27: Um Eddukvæðin. __ 29: Bréf til ungs skálds frá RUke (Hannes Pétursson). __ 30: Sitthvað um háttatíma í Skotlandi — og whiskylyktina þar (Harald- ur J. Hamar). — 31: Samtal við Pétur Ottesen (Sverrir Þórðarson). — 32: Var Mozart myrtur? (Haukur Eiríksson). — 34: Ævintýrið Forarpollurinn og himinninn eftir Ingimar Erl. Sigurðsson. — 34: Áhrifamikið listaverk. — 36: Fréttagetraun 1959 (Sverrir Þórðarson og Þorsteinn Thorarensen.) —_39: Kvennaþáttur og Úr kvikmyndaheiminum (Halldóra Gunnarsdóttir). __ 41: Smásagan Huldumaðurinn eftir Ingimar Erl. Sigurðsson. — 43: Bridgeþáttur (Axel Einarsson). — 43: Frásöguþáttur eftir Guðm. L. Friðfinnsson. —46: Lappnesk galdrasaga (Davíð Áskelsson). — 47: Skákþáttur (Ingi R. Jóhannsson). BLAÐ III. , , . BIs. 50: Með Valtý Stefánss^ni á Möðruvöllum (Matthias Johannessen). ___ 53; Smásagan Baksvipur mannsins eftir Guðm. L. Friðfinnsson. — 56: Ífígenía (Elín Pálmadóttir). — 59: Bréf hundadagakóngsins. Samtal við Jóhannes Helga. — 62: Þrautir og leikir. Myndavélin bak v/ð myndavélina — Kvikmynd er Pétur RÖgnvaldsson hér synir Pétur Rögnvaldsson, kvik- myndaleikari (Peter Ronson), kom til landsins kl. 7 í gærmorg un. Er hann hér aðeins í jólafríi. Tíðindamaður blaðsins náði snöggvast tali af Pétri í gær- kveldi og skýrði hann svo frá, að kvikmynd sú, er hann lék í, Leyndardómar Snaefellsjökuls eða „í iðrum jarðar“, hefði verið frumsýnd í Nassville á austur- strönd Bandaríkjanna 4. des. s.l., en opnuð til sýningar um öll Bandaríkin um miðjan mánuð- inn. Þá er myndin einnig komin til Lundúna og til S.-Afríku, en hér á landi verður hún væntan- lega ekki sýnd fyrr en næsta sum ar. Mun Pétur verða viðstaddur fyrstu sýningu hennar hér. Hingað kom Pétur með kvik- mynd, sem hann hefur tekið vestra og kallar: Myndavélin bak við myndavélina. Getur þar að líta hin ýmsu tæknilegu atriði í sambandi við tökuna á Leynd- ardómum Snæfellsjökuls. Þessa mynd miun Pétur sýna á Akur- eyri 26. og 27. des., en síðan í Keflavík, á Akranesi, Selfossi og jólin Miblur onnir við jólnböggln MIKLAR annir hafa verið und- anfarna daga hjá póstafgreiðsl- unum hér í bænum. Hefur böggla póststofan lengur opið á kvöldin en venja er til. Póstbögglasend- ingunum virðist fjölga ár frá ári, ekki aðeins héðan og út á land, heldur og utan af landi hingað til bæjarins. Einnig hefur mikið póstmagn farið héðan til Þýzka- lands og Bandaríkjanna nú fyrir jólin. Tollpóststofan fékk í fyrra- kvöld 100 sékki frá Bretlandi og Bandaríkjunum með flugvél. Var verið að skoða þennan varning í fyrrinótt og síðdegis í gær var farið að vitja fyrstu sendinganna og var áformað að hafa opið til klukkan 7 í gærkvöldi til þess að auðvelda fólki að nálgast bögglana, að lokinni vinnu. — Kenndi ýmissa grasa, svo sem venja er til, þegar um jólasend- ingar er að ræða, matvörur, leik- föng, fatnaður og fleira. um loks í Reykjavík. Auk þess hef- ur hann til sýnis filmur, sem not aðar voru til að auglýsa Leynd- ardóma Snæfellsjökuls. Leyndardómar Snæfellsjökuls fengu mjög góða dóma vestra að því er Pétur tjáði okkur og eru taldir miklir möguleikar á að hún fái Oscarsverðlaunin fyrir tæknilegu atriðin, sem þykja af- bragð. Pétur Rögnvaldsson mun hverfa af landi aftur um 5. janú- ar. Þá heldur hann til náms í kvikmyndatækni og leiklist við háskóla í Suður-Californíu, en einnig mun hann þar vinna að töku kvikmyndar frá S.-Californ íu og Hollywood. Veðurfregnir: Stillt jólaveður Á kortinu er merkt lægð- armiðja 960 mb. skammt vest- ur af Skotlandsströnd. Um- hverfis hana er mjög víðáttu- mikill vindsveipur, sem ræður veðri á norðanverðu Atlants- hafi og Vestur-Evrópu. Lægð- in færist nú lítið úr stað og fer heldur minnkandi og lítur því út fyrir að veðurlag muni haldast með svipuðu móti og nú er hér á landi, a. m. k. næstu tvo daga. Hér á landi var hæg aust- an átt og bjartviðri um allan Suðvesturhluta landsins og einnig í innsveitum á vestan- verðu Norðurlandi, en á an- nesjum Norðanlands og á Austurlandi er skýjað loft með 2—4 stiga hita og lítils- háttar rigningu á stöku stað. • Kl. 18 í gærkvöldi var kald-; ast í Síðumúla og Blönduósi, S 5 stiga frost. 3 stiga frost var) í Reykjavík. Hlýjast var á; Hólum í Hornafirði, 6 stiga s hiti. | Um Bretlandseyjar og Frakk ' land mun verða vestlæg átts með 7—9 stiga hita um jólin.) í Danmörku og í Suður-Nor- | egi mun verða SA-átt og þýð- s viðri, en í Svíþjóð verður suð ) læg átt og hiti um frostmark. ■ Sumstaðar snjókoma um norð s anveri lnndiðL Yfir Banda- S ríkjunum og Kanada er mikið ■ háþrýstisvæði og kalt í veðri, ( t. d. norðanátt með 10—12 S stiga frosti í New York og ■ nágrenni. ( Hvor verðn ship- in n jólunum ALLMARGIR sjómenn verða fjarri heimilum sínum um jólin. Fara hér á eftir upplýsirigar skipafélaganna um ferðir skip- anna. Eimskipafélag Islands: Trölla- foss, Dettifoss og Gullfoss verða í Reykjavík, en Gullfoss fer á II. jóladag til Hamborgar og Kaupmannahafnar. Goðafoss er væntanlegur á aðfangadags- kvöld til Reykjavíkur, Lagarfoss er á heimleið frá New York, væntanlegur 30. des., Fjallfoss er á leið til Liverpool, Reykjafoss er í Rotterdam, Tungufoss í Gautaborg eða á heimleið og Sel- foss í Finnlandi eða Leningrad. Skipadeild SÍS: — Dísarfell og Litlafell verða í Reykjavík og Hamrafell er væntanlegt á II. jóladag. Jökulfell er á heimleið frá Riga, en Helgafell, Hvassafell og Arnarfell verða í siglingum. Eimskipafélag Reykjavíkur: — Askja verður í Reykjavík, en Katla er á leið frá útlöndum til Siglufjarðar og Akureyrar, vænt- anleg mánudag, þriðjudag. Jöklar: — Vatnajökull er á leið frá Hull til Rostock, með við- komu í Antwerpen, Drangajökull verður í Haifa 27. des., Lang- jökull er væntanlegur frá New York 31. des. Skipaútgerð ríkisins: — Öll skipin verða í Reykjavík um jólin nema Þyrill. — Togararnir: — Samkvæmt upplýsingum Togaraafgreiðslunn ar, eru fjórir af átján Reykja- víkurtogurum í höfn, þ. e. Hval- fell, Askur, Neptúnus og Úranus. Jólatrésskemmt- un á Garði ANNAN JÓLADAG verður hald in jólatrésskemmtun að Gamla Garði fyrir börn stúdenta og yngri systkin. Skemmtunin hefst klukkap 3 og stendur til klukkan sex um eftirmiðdaginn. Margt verður til skemmtunar, jólasvein ar munu koma og skemmta börn- unum með söng o. fl. Hljómsveit mun leika jólalög. Stúdentar, munið eftir jólatrésskemmtun- inni að Gamla Garði á annan í jólum og kómið með börnin þangað. Hvít jól á Húsavík, en í Vestmanna- rauð í eyjum í GÆR hafði Mbl. samband við fréttamenn sína á Húsa- vík og í Vestmannaeyjum og spurði almæltra tíðinda, en þó einkum um jólaveðrið og ann að það sem viðkemur hátíð- inni og hátíðaundirbúningi. íslenzkt jólatré Á Húsavík var sannkallað jóla veður, að því er fréttaritari blaðs ins tjáði. Hægviðri var á og fal- lega hvítt yfir allt, því ljóst að þar yrðu hvít jól. Fólk hefur streymt til Húsavíkur undan- farna daga til að halda jólin þar, bæði skólafólk og annað fólk þaðan, sem fer heim í jólaleyfi. Á Húsavík hefur verið sett upp íslenzkt jólatré eins og und anfarin ár. Er það bílstjórafélag staðarins, sem stendur fyrir þessu jólatré, sem er gert úr sex metra háu rekatré; sem einigrein ar eru bundnar á. Var tréð ljós- um prýtt og mjög fallegt á að líta s. 1. mánudag, en þá féll mik ill snjór í logni á Húsavík. Síð- an hefur ekki snjóað þar og hiti var við frostmark í gær. Sá hvergi snjó í Vestmannaeyjum var veður yndislegt í gær, logn og heiður himinn og hiti um eða undir frost marki. Þar sá hvergi á hvítan díl og rauð jól því fyrirsjáanleg. — Jólaundirbúningur var í fullum gangi í Eyjum, umferð mikil um götur og líf í öllu. Bæjarstjórnin hafði látið setja upp jólatré á fimm til sex stöð- um í bænum og voru þau fagur lega skreytt. Með nýja vél frá Danmörku NESKAUPSTAÐUR, 23. des. — Á laugardagskvöldið kom v/b Gull- faxi frá Sönderborg í Danmörku, en þar var sett í hann ný 330 hestafla Völund-dieselvél. Gekk báturinn tíu og hálfa mílu á heim leiðinni. Skipstjóri á Gullfaxa er Þorleifur Jónsson. Veður hefur verið ágætt hér að undanförnu, en í dag brá til Þýð- viðris. Þó er enn snjór á jörðu. — Fréttaritari. Útvarpið um jólin RÍKISÚTVARPIÐ er í hátíða búningi um jólin, eins og allt annað, enda fer ekki illa á því þar sem meira mun hlustað á útvarp á jólunum en í nokk- urn annan tíma. Tíðindamað- ur Mbl. sneri sér til Vilhjálms Þ. Gíslasonar, útvarpsstjóra, á dögunum og innti hann eftir hvað væri það helzta, sem út- varpið byði landsmönnum yfir hátíðarnar og gaf hann yfirlit yfir það. Messur Guðþjónustur skipa að sjálf- sögðu stórt rúm í jóladagskránni, Kl. 18 á aðfangadag verður aftari- söngur í , Dómkirkjunni og jóla- hugvekja kl. hálfníu um kvöldið. Kl. 11 á jóladag verður útvarpað messu frá Laugarneskirkju og frá Hallgrímskirkju kl. 2 sama dág. Á annan jóíadag verður útvarpaö messu í kapellu háskólans. Tónleikar Af tónleikum nefndi útvarps- stjóri fyrst jólatónleika hljóm- sveitar Ríkisútvarpsins í Dóm- kirkjunni 29. des. Hans Antolitsch stjórnar hljómsveitinni, en leikin verða verk eftir Purcell, Johann Sebastian Bach, Pachelbel og Jo- hann Christoph Bach. Einleikar- ar verða: Dr: Páll ísólfsson, Björn Ólafsson og Karel Lang. Ein- söngvari: Sigurveig Hjaitested. Á aðfangadag leikur dr. Páll Isólfsson á Dómkirkjuorgelið, en Snæbjörn Snæbjarnardóttir og Hjálmar Kjartansson syngja. Það kvöld verða einnig fluttir kaflar úr Messíasi Handels, og jólasón- ata eftir Bach á jóladag. Söngur Stefán íslandi syngur á annan jóladag. Er það áður tekið upp fyrir útvarpið. Á þriðja í jólurn syngur Yvette Guy frönsk dægur- lög og daginn eftir verður þáttur, er nefnist Nútímatónlist og þar flutt tvö verk eftir Benjamin Britten. Á gamlárskvöld verða sungin gömul alþýðulög. Leikrit Jólaleikrit útvarpsins er Cesar og Kleópatra eftir Shaw, sem flutt verður í tvennu lagi. Þa verða leikrit í barnatímunum og nýtt leikrit verður flutt á jóla- vöku, sem Ævar Kvaran sér um. Talað orð Á slóðum Hafnar-Islendinga, nefnist samfelld dagskrá, sem út- varpið gerði út sérstakan leiðang- ur til að taka upp í Kaupmanna- höfn. Önnur samfelld dagskrá er um séra Matthías í Odda. Skemmtiefni Af skemmtiefni má nefna þátt- inn Kátt er uip jólin, Lög ársins, f gamni og græzkulausri alvöru, sem Flosi Ólafsson o. fl. sjá um. Þátturinn Vogun vinnur og tapar verður fluttur mánudaginn 28. Jólatrésskemmtun fyrir börn verð ur í útvarpssal í sambandi við barnatímana. Um bækur Síðasti kaflinn Á bókamarkað- inum verður fluttur milli jóla og nýjárs. Verður þar rætt við bóka- útgefendur, bóksala og gagnrýn- endur, þá Eyjólf Konráð Jónsson, Ragnar Jónsson, Sigurð O. Björns son, Helga Sæmundsson og Sig- urð A. Magnússon. Áramót Á gamlárskvölá flytur forsætis ráðherra ávarp, en forseti fslands á nýjársdag. Þá verður á gamlárs kvöld Annáll ársins og áramóta- kveðja. Þá verður það nýmæli á nýjársdag, að fluttar verða klukknahringingar frá ýmsum kirkjum landsins, sem teknar hafa verið á segulband.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.