Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 10
10 MORCVWm.ATHÐ Fimmtudagur 24. des. 1959 Smásaga eftir Kelvin Lindemann Þ AÐ var aðfángadagúr jóla. Við stóðum nokkrar við afgreiðslu- borðið og vorum að spjalla sam- an, áður en dagsverkið átti að hefjast. Ég stjórna leikfanga- deildinni og er áreiðanlega yngsti deildarstjórinn í allri verzlun- inni, og ég er ekki trúlofuð syni verzlunarstjórans, ef þið haldið það, því að verzlunarstjórinn okkar, frú Mikkelsen, á alls eng- in börn. Við vorum dálítið þreyttar. Það er ekki alltaf jafnskemmti- legt að vera afgreiðslustúlka síð- ustu dagana fyrir jól. „Hefirðu lesið síðasta kaflann af Fórn ástarinnar, Jonna?“ spurði ungfrú Carlsen úr ilm- vatnsdeildinni. „Ég?“ sagði ég. „Hvað er Fórn ástarinnar? Það hljómar eins og það væri eitt af ilmvötnunum þínum!“ „Ég hélt þú fylgdist með fram- haldssögunni", sagði hún. „Nið- urlagið er í blaðinu í dag“. „Hvernig endar hún?“ spurði frú Engelberg úr smávörudeild- inni, „tók Phyllis saman við manninn sinn eða unga lávarðinn Darlington?“ „Hún fór burt frá manninum", sagði ungfrú Carlsen, „hún og Darlington lávarður keyptu höll í Feneyjum — þú veizt, gondóla- borginni!“ „Bara það hefði verið ég“, andvarpaði ungfrú Nielsen úr gólfteppadeildinni, „kærastinn minn og ég getum ekki einu sinni fengið tveggja herbergja íbúð“. „En hvað um barnið?" sagði frú Engelberg. ,,Ég hætti nefni- lega að lesa söguna, því að Phyllis átti þessa yndislegu dótt- ur — þá hélt ég auðvitað, að hún myndi verða kyrr hjá rnann- inum sínum“. „Það var einmitt það frum- lega!“ sagði ungfrú Carlsen. „Ast Phyllisar var svo sterk, að hún sigraði allt — hún varð að yfir- gefa manninn sinn, heimili og barn til að fá þann mann, sem hún elskaði — þess vegna hét sagan Fóm ástarinnar!" „Er það nú spilling?“ sagði "rú Hansen. Þetia lét svo alvarlega yr- um, að við litum allar á hana. Við höfðum staðið þarna og mas- að án þess að hugsa nánara út í það. Frú Hansen roðnaði við þögnina, sem fylgdi orðum henn- ar. ástarin „Ég á bara við“, sagði hún, „að þessi Phyllis hefði getað hugsað sig um, áður en hún hleypur frá eiginmanni og dótt- ur. Ef maður hugsar lengra, mun sá dagur koma, að Phyllis þráir að sjá barnið sitt og manninn aftur — og þá er barninu kannski fyrir beztu, að hún verði áfram í burtu — að gera það, er fórn ástarinnar — og ekki að hanga suður í Feneyjum og þvælast fram og aftur um borgarsíkin með einhverri landeyðu!" Ungfrú Carlsen hló. „Þér ættuð ekki að taka þetta svona alvarlega, frú Hansen“, sagði hún. „Phyllis er þó ekki annað en sögupersóna! Ef ein- hver okkar hér næði í góðan mann, sem vildi eignast börn, þá myndum við vissulega vera kyrrar hjá honum og ekki hlaup- ast burt til Feneyja. Það megið þér vera viss um! En þess vegna er einmitt dásamlegt að gera sér í hugarlund, að það sé til ást, svo mikil, að hún muni færa stærstu fó'rnir“. „Maður mun gjalda þess síð- ar!“ sagði frú Hansen. Hún fór að trekkja upp lítinn fugl. Hún var aðeins aukastúlka, sem hafði verið ráðin í mína deild fyrir jólin. Hún var litil og ljóshærð, líklegast um fertugt. Hún var bráðsnotur, en það mátti vel sjá, að hún var ekki eins ung og við hinar. Þegar hún var sett í mína deild, var það sjálfsagt vegna þess, að umsjónarmaðurinn gerði ráð fyrir, að ekki þyrfti ungar afgreiðslustúlkur til að koma út leikföngum fyrir jólin — það kemur af sjálfu sér. Frú Hansen talaði aldrei mik- ið við okkur hinar í deildinni, en hún var mjög duglegur sölu- maður, og var einkanlega lagin að fást við börnin, og það var mikill kostur í minni deild. Þegar ég kom niður eftir morg- unverð, sá ég hana vera að af- greiða konu, sem klædd var loð- kápu úr otraskinnum. Konan heilsáði mér og benti mér að koma til sín. Þegar ég kom þang- að, sá ég, að þetta var frú Maja dag, og það hentaði henni mjög vel, því að hún hafði enga pen- inga fyrr en hún fengi kaupið sitt, þegar lokað yrði. Hvað átti ég nú að gera? Frú Hansen hafði verið nógu lengi hjá okkur til að vita, að frú Tang- Hansen hafði ekki aðeins mikil skipti við verzlunina, heldur var hún einnig vinkona forstjórans, frú Mikkelsen, og mér fannst það dálítið undarlegt, að hún skyldi ekki vilja sleppa gufuvélinni jafnvel þótt ég hefði gefið henni loforð fyrir henni. „Þetta er eina eintakið, sem við höfum handbært", sagði ég við frú Tang-Hansen, „en sú, sem keypti gufuvélina, hefir ekki borgað hana. Hún lofaði að hringja hingað, en að því er ég bezt veit, hefir það ekki orðið, og úr því að svona stendur á, get- um við vel selt gufuvélina!" Ég horfði fast á frú Hansen. Hún roðnaði, en endurgalt mér agunaráðið. „Kaupandinn hefir hringt“, sagði hún, „og mun sækja gufu- vélina á umsömdum tíma. En kanrrski má ég sýna forstjóra- frúnni eitthvað annað?“ „Nei, það er aðeins gufuvélin, sem kemur til greina!“ sagði frú Tang-Hansen. „En hinn kaup- andinn á kannski dreng líka, sem er jafnákafur í að eignast gufu- vélina“. „Ef til vill“, sagði ég, „hefir afgreiðslustúlkan misskilið hinn kaupandann“. Tang-Hansen, sem er gift Tang- Hansen forstjóra, sem smíðar olíuskip. „Góðan dag, frú Tang-Hansen“, sagði ég, „er nokkuð, sem ég get gert fyrir yður?“ „Ja, það var bara þessi gufu- vél“, sagði hún, „þér vitið, Pét- ur er svo hrifinn af henni.... “ Pétur er sonur hennar. Hann er röskur drengur, níu ára. Gufu- vélin var sú stærsta, sem við höfðum nokkru sinni haft í deild- inni, og við höfðum aðeins þetta eintak. Pétur hafði komið mörg- um sinnum og skoðað hana. Dag- inn áður hafði frú Hansen af- greitt hann, og virtist fara vel á með þeim, en Pétur hafði haft það eftir móður sinni, að gufu- vélina fengi hann alls ekki. Frú Tang-Hansen brosti til mín. „Það er vitlaust af mér“, sagði hún, „en Pétur fékk mig á sitt band, og ég lofaði honum því að fara inn og kaupa gufuvél- ina. ... “ Frú Hansen leit á mig snögg- lega. „Ég var að segja forstjóra- frúnni, að gufuvélin væri þegar seld“. „Og nú ætlaði ég að spyrja yð- ur, hvort ekki væri hægt að gera eitthvað í þessu“, sagði frú Tang- Hansen. „Pétur verður svo óá- nægður.. ..“ Það var að vissu leyti rétt, að gufuvélin væri seld. Eftir að drengurinn hafði komið og sagt, að hann myndi ekki fá ferlíkið, kom frú Hansen, sem hafði af- greitt hann, samstundis til mín og spurði mig, hvort hún gæti ekki keypt gufuvélina með venju- legum afslætti. Hún átti frænda, sem hana langaði til að gefa hana. Nú vakti gufuvélin mikla athygli í minni deild — þegar hún var í gangi og knúði smjör- strokka, ljóskastara og hvað eina, var alltaf fullt hjá okkur, svo að ég vildi helzt ekki sjá af henni fyrr en á síðustu stundu. Ég sagði frú Hansen, að við gæt- um vel tekið gufuvélina frá handa henni, en hún gæti ekki fengið hana fyrr en á aðfanga- „Hún frú Hansen hérna?“ sagði frú Tang-Hansen. „Nei, það kem- ur ekki til mála. Frú Hansen og Pétur eru góðir vinir, og ég held, að frú Hansen vilji gera allt til þess, að Pétur eignist gufuvél- ina“. Hún brosti til frú Hansen. „Pétur sagði mér, að hann og fóstran hans hefðu mætt yður i Friðriksbergsgarði og þér hefð- uð gefið honum rjómaís. Það er ekkert vit!“ Frú Hansen roðnaði og varð niðurlút. Ég var reglulega reið við hana. Hvað átti það að þýða að vera að leika lítinn saklausan engil! Ég fékk ekki tækifæri til að segja neitt við hana, því að fólk streymdi inn, þegar frú Tang-Hansen var farin. Þegar ég ætlaði að taka mér 15 mín. kaffihlé um tvöleytið, mætti ég frú Hansen í fata- geymslunni við kaffistofuna. Hún stöðvaði mig og sagði, að sig langaði til að tala dálítið við mig. „Ég veit vel, ungfrú Fischer", sagði hún auðmjúklega, „að frú Tang-Hansen verzlar mikið hér og ég hefi engan rétt til að fá gufuvélina með afslætti, þegar hún vill kaupa hana...." „Nú, þér getið skilið það!“ sagði ég. „Já“, sagði hún, „en mig lang- ar svo skelfing mikið til að fá hana“. „Hafið þér raunverulega efni á því?“ sagði ég, því að ég var alveg öskuvond. „Nei“, sagði hún, „það hefi ég ekki, en það er nefnilega sonur minn, sem ég ætla að gefa hana!“ „Sonur yðar!“ sagði ég undr- andi, „ég hélt, að þér væruð skilin“. „Það er ég líka, það hefi ég verið í átta ár. Munið þér, að við vorum í morgun að tala um heimskulega skáldsögu, Fórn ástarinnar?“ „Já, þér sögðuð, aið Phyllis hefði ekki átt að fara til Fen- eyja með Darlington lávarði....“ „Já! — Sjáið þér til, ég er nefnilega sjálf eins konar Phyll is! Ég fór líka frá manninum mínum, heimili og barni út af mikilli ást. Ég fór frá öllu, sem kona metur annars mest í þess- um heimi: manni, sem elskar hana, barni og auðæfum — en ástin mikla endar ekki í gondól í Feneyjum. 1 stuttu máli sagt, það entist tvö ár — þá hljópst elskhuginn á brott með annarri —• já, ég skal ekki þreyta yður, ungfrú Fischer, en nú er ég sem sé hér, og ég hugsaði mér, að gufuvélin gæti verið góð gjöf til drengsins míns“. „Já, auðvitað11, sagði ég. „Én ég gat ekki vitað, að þér ætluð- uð að kaupa gufuvélina handa yðar eigin syni? Ég er fegin, að þér sögðuð mér það. Þér hlakkið líklegast til þess að sjá hann í kvöld, þegar hann opnar bögg- ulinn?“ Hún hristi höfuðið. „Ég verð því miður ekki hjá honum. Ég hitti hann ekki, hann er hjá föður sínum. Ég forðast viljandi að leita þá uppi. Það er hið minnsta, sem ég get gert fyrir son minn og föður hans, eins og ég hefi komið fram við þá. Ég ætla að senda honum gufuvélina, og hann fær ekki að vita, hvar ég er. Sjáið þér, fórn ástarinnar, það er ekki að fara til Feneyja, nei, það er vera áfram í burtu, eftir að maður'er farinn að iðr- ast. Það er verðið! Og þá hefi ég að minnsta kosti þá ánægju, að ég hefi borgað, það sem á að borga!“ „Ætlið þér þá að vera ein í kvöld, frú Hansen?" spurði ég. „Já“, sagði hún. „Já, en, kæra frú Hansen. Þér getið þá komið út eftir til mín! Eg hefi litla íbúð á Amager. For- eldrar mínir eiga heima á Jót- landi, og ég get ekki náð til þeirra...... Ungfrú Carlsen í snyrtivörudeildinni kemur líka .... og síðan förum við heim og búum til mat .... ef þér kærið yður um, eruð þér velkomin .... með því skilyrði, að þér hjálpið líka svolítið til!“ „Hvort ég vil! Ó, kærar þakk- ir!“ Hún greip hönd mína. „En hvað þér eruð góð við mig! Ég vissi, að þér mynduð skilja mig!“ „Farið nú niður“ ,sagði ég, „og sendið gufuvélina til sonar yðar undireins, áður en fleiri óhöpp verða út af henni! Og svo hitt- umst við hér uppi um lokunar- tíma!“ Ég fór inn og fékk mér kaffi- bolla í snatri og flýtti mér aftur niður í deildina. Það var svo mik- ið að gera, að mér gafst ekki tóm til að skiptast á mörgum orðum við frú Hansen, en hún gat þó hvíslað að mér, meðan hún var að afgreiða, að gufuvélin hefði verið send af stað til drengsins hennar. Þegar við vorum rétt búin a8 loka, og ég var búin að hafa fata- skipti og var í þann veginn að fara, kom sendill með þau skila- boð, að mín væri beðið á for- stjóraskrifstofunni .... það var forstjórinn sjálfur, sem vildi tala við mig. „Þér verðið að fyrirgefa, að ég kalla yður hingað einmitt núna“, sagði frú Mikkelsen, „en það er af mikilvægu tilefni. Þér vitið, að Tang-Hansen forstjóra- frú, vinkona mín, vildi kaupa gufuvél í yðar deild í dag?“ „Já“, sagði ég. „En þér vilduð ekki selja henni hana?“ „Nei“, sagði ég, „hún var seld. Við héldum henni í deildinni, af því að hún hændi að viðskipta- vini“. „Vitið þér, hver keypti hana?“ Ég þagði andartak. „Það var ekki viðskiptavinur, sem er van- ur að verzla hjá okkur“. „Var það kona?“ „Já“. „Ég skal segja yður, hvers vegna ég spyr. Frú Tang-Hansen og mann hennar langar mikið til Framh. á bls. 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.