Morgunblaðið - 24.12.1959, Page 6

Morgunblaðið - 24.12.1959, Page 6
6 MORCVNBLAÐtÐ Fimmfudagur 24. des. 1959 jóíctíc ClCý í sálmasöngbók þeirri, sem íslenzka þjóðkirkjan notar nú og útgeÆin er 1936 og ljósprentuð í 2. út- gáfu 1948, er eitt lag, sem nefnist „Það ald- in út er sprungið“. Sem höfundur stend- ur Michael Pratorius, 1609. Þetta er þó ekki rétt, þar sem lagið er gamalt and- legt þjóðlag, upp- runnið úr Rínarhér- uðum sem þýzkt- katólskt trúarlag. — Hins vegar þekkir nútíminn einna helzt Michael Praetorius fyrir listilega útsetn- ingu hans á þessu eina kirkjunnar lagi. Praetorius var fædd- ur 1571, og hann gerði manna mest af því að auðga pró- testantiskan kirkju- söng með nýjum út- setningum á allra tíma sálmalögum. — Stærsta verk hans á þessu s iði er „Musae Sioniae", list gyðjur Sions, er út kom 1605—10, í níu bindum, eitt helgað hverri listgyðju. Og í sjötta bindi er jóla- lagið okkar um „ljúfa liljurós". Alls eru í þessu verki eru í þessu verki 1244 kirkjulegir söngvar. Og er það mikið þrekvirki, framlag borið uppi af hug- sjón og eldmóði heitt trúaðs organista og hljómleikastj. í Frankfurt við Od- er, Gröningen, Wolfenbúttel Dres den og Halle. — (Það má geta þess, að lag okkar „Allt eins og blómstrið eina“, sem hét í Grall- aranum „Dagur í austri öllu“, er I W'mí-Í 3 A_. J-i i l_l'Ú __í_____JA J jJL, . ‘r ,Í1 y X 3 r, -4- =e ri 4-- -3Z -Q-' tv*- /f ý dj’tJhbr hs^ ■ Copyright 1959 by Jón Leiís, Reykjavík. gotneska marg-röddunarstíls 13. aldar út frá Notre-Dame-skólan- um og Búrgúnd. Það er þessi „ars-autiqua“~ svipur, sem leitt hefur Jón Leifs til að gera laginu nýjan og þó a(di Ln út er ópnmai í Matthías Jochumsson pýddi d sínum tíma gömlu þjóövís- una, og fer fyrra erindiö hér d eftir („Þaö oldin út er s-prungiÖ“), en síöara erindiö („Þú Ijúfa liljurósin") frum- samdi skáldiö aö mestu leyti: Þaö aldin út er sprungiö og ilmar sólu mót, sem fyrr var fagurt sungiö af fríöri Jesse rót, og blómstriö pað á prótt að veita vor og yndi um vetrar miöja nótt. Þú Ijúfa liljurósin, sem lífgar heliö kalt, og kveikir kœrleiksljósin og krýnir lífiö allt! Ó, Guö og maöur: greiö oss veg frá öllu illu svo yfirvinnum deyö. leggja á það þenna mælikvarða 13. aldar. Þeir tímar sýna, þrátt fyrir vissan skort á auðugum hljómskiptum, ró og tign, ásamt festu og innilegum einfaldleik. Það er þessi hreinleiki hugans, sem oft er kenndur við norrænt eðli, þessi „natúralismi", sem samsvarar laginu bezt. Og upp úr þeim jarðvegi mun það upp- haflega vaxið. 22, — 12 1959. Dr. Hallgrímur Helgason. Leikfélag Akraness sýnir á þriðja jóladag barnaleikritið „Hans og Grétu“, og mun sýna það nokkrum sinnum eftir hátíðina fyrir börn á Akranesi. Leiknum stjórnar frú Sólnún Ingadóttir. Neitað um skilnaö til að kvænast LONDON 22. des.: — Jarlinn af Shrewsbury, sem aðstoðaði við krýningar Elísabetar drottningar 1953 og föður hennar 1937, er af einni fremstu ætt Bretlands, sem meðal annars aðstoðaði við að brenna Heilaga Jóhönnu og háls- höggva Maríu Stuart. Hann kveðst nú eftir umfangsmikil málaferli, ekki skilja lögin. Jarlinn, sem skírður er hávirðu legur John George Charles Henry Alton Alexander Chetwynd Chet wynd-Talbot, og er 21. jarlinn af Shrewsbury, sagðist óska eftir að kvænast dökkhærðri konu, sem verið hefði ás'tkona hans í 18 ár. ,,En ég býst við að konan mín veiti mér aldrei skilnað," bætti hann við. Þrátt fyrir játningu jarlsins, og þrátt fyrir 17 daga réttarhöld (sem kostuðu um 18 þúsund sterl. ingspund) neitaði dómarinn hjón unum um skilnað. En réttarhöld- in sannfærðu dómarann um að eiginkonan hafði átt vingott við heimiliskennarann, sem er helm- ingi yngri en hún. Jarlinn var samt ánægður með réttarhöldin, þar sem þau „hreinsuðu andrúms loftið“ fyrir hann og hina fertugu Aileen Mortlock, sem varð ást- kona hans þegar hún var 22 ára gömul skrifstofustúlka í ráðu- neyti á stríðsárunum, en hann var kapteinn í stórskotaliðinu með aðsetur í London. Aileen Mortlock sagðist vera fegin að þessi leyndartími væri nú liðinn, því hann hefði verið hræðilegur. Hún sagðist jafnvel stundum hafa hugsað um að gift- ast einhverjum öðrum, og meira að segja einu sinni hafa trúlofazt, en unnustinn hafi þá látist úr hjartabilun. líka í þessu stærðarsafni Prae- toriusar). Fram á daga Praetoriusar hafði sálmalag mótmælenda ver- ið borið uppi af samgildum anda safnaðarins, en nú brýzt fram áköf persónutilfinning einstaks manns. En þetta var viðhorf hans til guðs og heimsins: ein- staklingsmikillæti barok-tímans. Sálmasöngbók okkar gerir þessu ekki fyllilega skil. Hún noterar takttegundina, 4/4 en lætur samt skiptast á fjór- og sex-skiptan takt við þýðingu Matthíasar Joehumssonar. Þar að auki máir hún út synkópískt misgengi hjá Praetoriusi, sem þó má deila um, hvort upprunalega hafi íalizl í þjóðlaginu. Blær þess er allur forn; fimmundin í lagbyrjun er sterk uppistaða og eldri búning. í rauninni er lagið fágætt sambland af hörku raun- veruleikans á kaldri miskunnar- lausri vetrarnótt og blíðu vonar- innar um betra líf framundan. Þessu reynir Jón Leifs að ná fram annars vegar með hörðum en tærum kvint- og kvart-hljóm- um, hins vegar með fullskipuð- um þríhljómum með þýðum þrí- undum, sextarkorðum og sjöund- a -hljómum. Lífsvonin glæðist ekki sízt við áttundarrisið í 10. takti í hendingarlok. („Upp skaltu á kjöl klífa“, liggur örv- andi í tónferðinni). Og á norræn an hátt fellir Jón Leifs þetta inni hald í samfelldan fimm-skiptan takt, sem innbyrðis er bæði jafn og ójafn í senn (3x2 eða 2x3). Enginn vafi er á því, að lagið gæti bent aftur tíl hins fyrstaspeglast I nýju ljósi við að • Jólin hringd inn Jólaönnunum er senn lokið og jólin verða hringd inn klukkan sex í dag. Þá er lokið löngu og erfiðu striti jólaund- irbúnings, sem kostað hefur marga húsmóðurina vöku- nætur og erilsama daga. Ein- hver kynni að spyrja hvort þetta strit sé ekki allt unnið fyrir gíg og leiði aðeins til þess, að fólk fari á mis við hina einu sönnu jólagleði, sem það geti ekki notið vegna þreytu og svefnleysis. Því er til að svara, að jólin væru engin jól, ef ekki væri jóla- undirbúningurinn og allt erf- iðið og áhyggjurnar. Einmht stritið, vökurnar og spennan í jólaönnunum stuðla að því að gera jólin svo gleðirík og eft- irminnileg, sem þau eru. Allt þetta amstur stefnir að einu marki og er hér sem víðac að það er ánægjuríkast, sem mest er fyrir haft. Því ber okkur að þakka þeim, sem mest hafa á sig lagt við jóla- undirbúninginn, eljusömum húsmæðrum og mæðrum, sem lagt hafa nótt við dag til að gera sér og sínu fólki hátíð- ina ánægjulega. Þeirra starf er of oft of lítils metið. • „Ég boða yður mikinn fögnuð“ Jólin höldum við hátíðleg til minningar um fæðingu frelsara vors, Jesú Krists. — „Sjá ég boða yður mikinn fögnuð“, sagði engillinn við hjarðmennina, sem fyrstir manna fengu vitneskju um fæðingu frelsarans. skrifar úr daglega íifinu dauðlegur maður geti öðlazt hlutdeild í eilífu guðssamfé- lagi og orðið hluttakandi í gæðum ósýnileg heims. Skil- yrðin eru iðrun eða endurfæð- ing og trú, barnsleg trú bljúgs hugar. Kjarninn Þennan sama fagnaðarboð- skap flytja boðberar Krists og kirkju hans okkur á sérhverj- um jólum og sá, sem ekki nær að meðtaka hann, fer á mis við hina sönnu gleði jólanna. Kjarni þess boðskapar er, að og umbúðirnar Þessi kjarni jólaboðskapar- ins vill oft gleymast nútíma- manninum ekki sízt vegna þess, hve viðamiklar umbúðir jólahátíðarinnar eru orðnar. Jólagjafir eru oft gefnar meira af skyldurækni og venju en beint til að gleðja viðtakanda og andlegur boð- skapur jólanna verður stund- um að lúta í lægra haldi fyrir steiktri gæs. Fjarri fer því, að Velvakandi sé því mótfallinn, að menn skiptist á jólagjöfum og neyti góðs matar á jólum. En gjafir og góður matur mega ekki skipa öndvegið á þessari hátíð. Umbúðirnar mega ekki hylja kjarnann. Tilvera allra lífvera í náttúrunnar ríki byggist á því, að frækjarninn sprengi hýðið af sér og skjóti rótum. Kjarni jólahátíðarinn- ar ber í sér fræ eilífs lífs. Velvakandi óskar öllum les- endum sínum GLEÐILEGRA JÓLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.